Lögberg - 19.11.1953, Blaðsíða 8

Lögberg - 19.11.1953, Blaðsíða 8
8 LÖGBERG, FIMMTUDAGINN, 19. NÓVEMBER, 1953 Úr borg og bygð Takið eítir! Ársíundur Islendingadagsins verður haldinn í Góðtemplara- húsinu (neðri salnum) við Sar- gent Ave., miðvikudaginn þann 25. þessa mánaðar, klukkan átta að kvöldi stundvíslega. Ef íslendingum er ant um að þetta hátíðahald haldi áfram að Gimli næsta sumar, þá er þeim betra að koma á fundinn. Ef þeir vilja það ekki, og óski eftir að það $Ieyi út eins og allt annað sem íslenzkt er á meðal Islend- inga hér í landi, þá er langt bezt fyrir þá að hýrast hugsunar- lausir heima eins og að vanda. D. B. ☆ — DÁNARFREGNIR — Jens Guðmundur Johnson, fiskimaður í Mikley, féll út af bryggju þar og drukknaði 4. nóvember. Hann var fæddur 10. júní 1887 að Sólheimum í Arnar- dal í ísafjarðarsýslu, yngstur níu barna þeirra Guðjóns Jóns- 5onar og Hildar Kristjönu Jak-f AKo/lnttiir r\rt or mi níoirv’ ' Árni Gíslason og Ingibjörg Jóns dóttir. Hún giftist eftirlifandi manni sínum, Benedikt Kjart- anssyni, árið 1878 og fluttust þau vestur um haf árið 1900 og settust að í Mikley. Þau eignuð- ust einn son, Jón, sem hefir verið þeirra stoð og stytta í ell- inni. Þau tóku að sér og ólu upp annan dreng, Stefán Eiríksson, sem nú er búsettur vestur við haf, og gengu þau honum í föður- og móðurstað. Guðrún var greind kona og Ijóðræn, orti vísur en fór dult með. Hún æskti þess, að þessi vísa væri lesin við útför sína, en hún var ort af Jónasi Stefáns syni frá Kaldbak: Leggja mun ég lífrænt blað að líkkistunni þinni. Fagurgrænt og finn ég það fyrir sálu minni. Útförin fór fram frá Mikléyj- arkirkju 9. nóv. að viðstöddu fjölmenni. Séra H. S. Sigmar jarðsöng. ☆ obsdóttur, og er nú aðeins eitt1 Aðalfundur FRÓNS þeirra systkina á lífi, Jóhann Kristján Johnson. — Eftir lát manns síns fluttist Hildur Jakobsdóttir ásamt börnum sín- um vestur um haf 1892, og var Jens þá aðeins fimm ára. Settist fjölskyldan að í Mikley og átti hinn látni þar heima jafnan síðan, utan hálfs annars árs, er hann dvaldist vestur við haf. Hann kvæntist Bjarngerði Eyj- ólfsdóttur 10. sept. 1909 og lifir hún mann sinn; þeim varð fimm barna auðið og eru þau öll á lífi: Ásgeirína, Mrs. Eggertson, Hecla; Sigríður Árnína, Mrs. Jóhannson, Wynyard; Hildur Kristjana, Mrs. Clark, Van- couver; Jens Guðmundur og Jóhann Benedikt, báðir í heima- húsum. Jens Johnson var skýr maður og fastur í skoðunum. Hann stundaði fiskiveiðar alla sína ævi og var ávalt dugandi og sjálfstæður maður í sinni stétt. Hann var ástríkur faðir og lét sér mjög annt um að mennta börn sín. Hann var félagslyndur og sá glöggt hve erfitt var fyrir marga að standa straum af lækniskostnaði; hann gerðist því frumkvöðull að því, að stofnað var félagið, Hjálp í við- lögum á eynni, en það voru samtök eyjarbúa til að bera sameiginlega lækniskostnað ein- staklinga. Var hann fyrsti for- seti félagsins og forseti þess, er hann féll frá. Útför hans fór fram frá Mikl- eyjarkirkju 10. nóvember að viðstöddu fjölmenni vina og ættingja. Séra H. S. Sigmar jarðsöng. ☆ Níræð kona, Guðrún Arna- dóttir Kjartansson, lézt í Mikley 4. nóvember. Hún var fædd í Dysey í Norðurárdal í Mýrar- sýslu. Foreldrar hennar voru Eins og lesendum blaðsins er þegar kunnugt, verður aðal- fundur deildarinnar haldinn í Góðtemplarahúsinu mánudags- kvöldið 30. nóvember næstkom- andi, kl. 8. Til að fyrirbyggja allan ínisskilning þykir rétt að geta þess, að þeir einir, sem greitt hafa félagsgjald sitt fyrir árið 1953, hafa atkvæðisrétt. Dagskrá fundárins er á þessa lelð: 1. Fundur settur. 2 Skýrsla forseta. 3. Skýrsla ritara. 4. Skýrsla gjaldkera. 5. Samskot verða tekin. 6. Kosning framkvæmdar- nefndar fyrir árið 1954. 7. Ræða, Trúin á landið, Björn Sigurbjörnsson flytur. 8. Ný mál, framsögumaður Heimir Thorgrímsson. Þess er vænst, að meðlimir Fróns fjölmenni á þennan fund, svo að vetrarstarf deildarinnar megi að þessu sinni hefjast sem myndarlegastan og glæsi- legastan hátt. F. h. Fróns THOR VIKING, ritari ☆ The Womens Association of the First Lutheran Church helc their Annual Meeting November lOth, at 7:30 in the lower audi- torium of the church. Officers elected were: Past President, Mrs. V. JonaS' son; President, Mrs. P. Goodman; Vice-President, Mrs. P. Sigurd- son; Recording Secretary, Mrs. J. Ingimundson; Corresponding Secretary, Mrs. J. Bergman; Treasurer, Mrs. E. J. Helgason; Assistant Treasurer, Mrs. H. Olsen; Membership Committee, Mrs. G. W. Finnson, Mrs. J. D Turner; Publicity, Mrs. J. Gud PIANO RP0ITA0 Thora oAsgeirson du Tois FIRST FEDERATED CHURCH, BANNING STREET Friday, November 20th, 1953 8:30 p.m. PRONIIAM 1. 2. 3. GOD SAVE THE QUEEN JESUS CHRIST, THE SON OF GOD - Bach-Rummel Adapted from the Easter Cantata “Christ Lay in Death’s Dark Prison” - Cesar Franck Brahms PRELUDE, CHORALE AND FUGUE INTERMEZZO—Opus 117, No. 2 - - - RHAPSODY IN B MINOR—Opus 79, No. 1 Brahms — INTERMISSION — 4. 5. FANTASIE IN F MINOR—Opus 49 - PRELUDE from “Suite pour le piano” NOCTURNE IN E FLAT MINOR - CINQ MOUVEMENTS BREFS - - - Jean Rivier Prelude - Caprice - Berceuse - Ronde - Finale Under the auspices oí The Icelandic Canadian Club Chopin Debussy Gabriel Fauré mundson; Nominating Commit- tee, Mrs. V. Jonasson, Mrs. G. Ingimundson, Mrs. B. C. Mc- Alpine. Program consisted of a reading by Mrs. G. Johanneson and a travel talk with color slides by Mrs. Elene Eylands Smith who spent the summer in Europe. A social hour was enjoyed by all. The W.A. of the First Lutheran Church will meet November 24th, at 2:30 o’clock, in the lower auditorium of the Church. ☆ Gefin saman í hjónaband í Selkirk, Man., þann 14. nóv. Thordur Sigmundur Jóhannson, Winnipeg, Man., og Helen Jórunn Stefanía Finnson, Hnausum, Man. Við giftinguna aðstoðuðu: — Miss Kristín Sigurrós Finnson, systir brúðarinnar, og Jóhann Jóhannson, bróðir brúðgumans. Giftingin fór fram á heimili séra Sigurðar Ólafssonar og var framkvæmd af honum. — Ungu hjónin setast að í Winnipeg. ☆ Samkoma í Árborg Þjóðræknisdeildin Esjan efnir til samkomu í Ardalskirkju í Árborg föstudagskvöldið 20. nóvember kl. 8.30. Til skemmtunar verður: 1) Keppni í íslenzkri fram- sögn, börn og unglingar (4 flokkar). 2) Islenzkur söngur, nokkur ungmenni syngja. 3) Stutt ávarp og myndasýn- ing (tröllamyndir úr Dimmu- borgum), Finnbogi Guðmunds- son. — Auk þess verður ein- söngur og ef til vill eitthvað fleira til skemmtunar. ☆ — GIFTING — Mánudaginn 16. nóv. s.l. voru gefin saman í hjónaband þau Hazel Jónína Hallson og John Clarence Kohinsky. Brúðurin er dóttir Stefáns Hallsonar, Oak View, Man., sem nú er látinn, en móðir hennar Unnur er nú gift aftur Thorsteini Jónsson að Oak View, Man. — Að kveldinu buðu þau Mr. og Mrs. Jónsson til veizlu í Normandy Blue Room, 275 Sherbrook St., Wpg., og mættu þar um 100 manns, er skemtu sér við gleðskap og dans til miðnættis. ☆ Síðastliðið föstudagskvöld átti deild Þjóðræknisfélagsins á Gimli tíu ára afmæli og var þess minst með afar fjölsóttri sam- komu í aðalsamkomuhúsi bæj- arins, er fór um alt hið bezta fram; var þar sýndur gaman- leikurinn „Happið“ eftir Pál J. Árdal; þá sýndi og prófessor Finnbogi Guðmundsson Trölla- myndir úr Dimmuborgum og fylgdi þeim úr hlaði með skemtilegri og fjörugri frásögn. Dr. Valdimar J. Eylands flutti mergjað ávarp og stjórnaði sam- komunni; söngflokkur, er Frank Olson skólastjóri stýrði, söng ís- lenzk lög; stutt ávörp fluttu þau Einar P. Jónsson og frú, er voru boðsgestir deiídarinnar; viðtök- ur Gimlibúa voru hinar ástúð legustu og samkomugestir í há- tíðarskapi; er það fólkinu á Gimli til mikiilar sæmdar, hve ant það lætur sér um þjóðrækn- ismálin og hve deildin þar stendur í miklum blóma. ☆ Óskað er eftir íslenzkri konu til að vera í heimili hjá aldraðri konu. Upplýsingar á skrifstofu Lögbergs, sími 74-3411. ☆ Þeir, sem eiga og kynnu að vilja láta af hendi árganga af ársritinu Árdís fyrir árin 1950, 1951 og 1952, eru vinsamlega beðnir að gera aðvart um slíkt: Mrs. J. S. Gillies, 680 Banning Street, Winnipeg. ☆ Mrs. G. P. Thordarson. sem heima átti að 155 Canora Street, er nú flutt að 588 Arlington Street. — Sími 3-8851. Traustf Vigfússon, trésmíðcmeistari, landnámsmaður og bóndi í Geysisbygð í Nýja-íslandi Og nú fór sól að nálgast æginn, og nú var gott að hvíla sig, og vakna upp ungur einhvern daginn með eilífð glaða kringum sig. (Þ. E.) Þessi mæti maður, er hér skal að nokkru getið, var fæddur 19. júlí 1869 að Reykjakoti í Biskupstungum í Árnessýslu. Foreldrar hans voru Vigfús Guðmundsson, trésmiður, frá Hlíð í Gnúpverjahreppi í Ar- nessýslu, og Auðbjörg Þorsteins- dóttif frá Úthlíð í Biskups- tungum. Trausti misti föður sinn á bernskualdri, því Vigfús dó frá 16 börnum, er við lát hans tvístr- uðust sitt í hverja átt. Hann ólst upp á Stóra-Núpi í Gnúp- verjahreppi fram yfir ferming- araldur hjá séra Jóni Eiríks- syni og frú Guðrúnu konu hans. Hélt Trausti jafnan mikilli trygð við afkomendur séra Jóns, og Stóri-Núpur var honum kær staður til enda ævidagsins. Ungur að aldri fór Trausti frá Stóra-Núpi og dvaldi um hríð hjá Sigurði Jónssyni prests Ei- ríkssonar á Hreppshólum. Um hríð mun hann hafa stundað sjó við Faxaflóa. Hann hóf tré- smíðanám hjá Ingólfi Guð- mundssyni frænda sínum, er búsettur var í grennd við Akra- nes að Breiðabólstað. Hann lauk trésmíðanámi og varð ágætur smiður, er síðar mun að vikið. Hann stundaði smíðar á ýmsum stöðu mnæstu ár, en síðast á Isa- firði og var þar búsettur um hríð. Þann 27. okt. 1894 kvæntist hann Rósu Aldísi Oddsdóttur prests Gíslasonar að Stað í Grindavík, ágætri og háttprúðri konu, er reyndist honum hinn farsæli förunautur í löngu og hamingjusömu hjónabandi. Þau eignuðust eina dóttur, Þórunni, er síðar skal frekar að vikið. — Árið 1898 fluttu þau Trausti og Rósa vestur um haf og sett- ust að við Islendingafljót (nú Riverton, Man.) og dvöldu þar í 4 ár. Árið 1902 nam Trausti heimilisréttarland sunnanvert í Geysisbygð í Nýja-lslandi og nefndi landaám sitt Vatnsdal. Þar bjuggu þau hjónin óslitið til ársins 1950, að þau fluttu til Árborgar-bæjarins. Var Trausti þá mjög tekinn að þreytast og lýjast, enda þá hniginn að aldri. Hann hafði lengst ævinnar verið maður heilsuhraustur, átti mikið lífsfjör og bar sig jafnan vel. Telja mátti, að hann væri rúmliggjandi alt síðasta árið, sem hann lifði. Síðustu þrjár vikurnar, sem hann lifði, leið hann mikið. Hann andaðist að kvöldi föstud. 18 júní í Rauða kross sjúkrahúsinu í Árborg; út- för hans fór fram frá kirkju Árdalssafnaðar í Árborg, (er var ein af kirkjunum, sem hann hafði smíðað), sunnud. 21. júní, að viðstöddu margmenni. Sá, er línur þessar ritar, þjónaði við útförina. Trausti og Rósa eignuðust eina dóttur, Þórunni, sem nafn- greind er hér að framan. Jafnan hefir hún heima hjá þeim dval- ið og verið þeim til mikillar gleði og reynst þeim indæl dóttir. Hagkvæm hefir aðstoð hennar verið alla tíð. Mikið af umstangi og önnum féllu henni á herðar á síðari búskaparárum foreldra hennar; óþreytandi hefir hún verið í aðhjúkrun og umönnun sinni foreldrum sín- um til handa í elli þeirra Rósa móðir hennar var lengst af lasin og oft rúmliggjandi á efsta aldursári manns hennar, hjúkr- aði Þórunn þeim af mikilli prýði, sem vert er að minnast. Öldruð móðir hennar á ljúfa ellidaga í umönnun Þórunnar. Trausti Vigfússon mun nær eingöngu hafa stundað smíðar að atvinnu um mörg fyrri dvalarár sín her vestra. Um og fyrir síðustu aldamót skilst þeim, er línur þessar ritar, að ný húsabyggingaralda hefjist í Nýja-lslandi. Mun Trausti hafa haft með höndum húsabygging- ingar víðsvegar í héraðinu. Hitt er á vitorði eldra fólks að Trausti smíðaði þrjár íslenzku lútersku kirkjurnar í norður- hluta Nýja-lslands; ein þeirra, kirkja Bræðrasafnaðar í River- ton, mun hafa verið smíðuð fyrir eða um aldamót, en hinar, Breiðuvíkurkirkja að Hnausum og Árdalskirkja í Árborg, báðar smíðaðar og lokið við þær á fyrsta tug þessarar aldar; allar eru þessar kirkjur prýðileg guðshús, og tvær þeirra mega teljast stórar, og vel frá þeim öllum gengið. 1 byggingarstarfi sínu hygg ég að fullyrða megi, að Trausti gæti sér góðan orð- stír, sem og í öllu starfi sínu — fyrir áreiðanlegleik, vandvirkni og listræni, er einkenndu öll hans störf. Trausti var af alkunnri og listrænni smíðaætt kominn — Víkingslækjarættinni. Margir þjóðkunnir smiðir eru í ætt hans. Vigfús faðir hans var vel- kunnur smiður á sinni tíð. Margir lista- og lærdómsmenn voru honum náskyldir. Nefni ég í því sambandi Jón Ófeigsson menntaskólakennara, en marga fleiri mætti þar tli nefna. Fjöl- margir frændur hans voru leið- andi bændur í Árnessýslu. A efri árum Trausta, er nokkur kynning varð með honum og þeim, er línur þessar ritar, var hann hættur að starfa að smíð- um utan heimilis, en stundaði bú sitt í Vatnsdal. En jafnframt því eyddi hann öllum stundum, er hann mátti, anna vegna, á smíðastofu sinni að ýmsum við- gerðum og smíðum. Alla land- námstíð Nýja-lslands og fram til síðari ára hefir mikil tóvinna verið stunduð í héraðinu, opin leið og hagkvæm til léttir í örð- ugri lífsbaráttu, enda eðlileg þjóðarbrotinu vestra — afkom- endum þeirrar þjóðar, er öldum saman hafði stundað heimilis- iðnað. Um allmörg ár stundaði Trausti rokkasmíði, og innti þar af hendi þarft og þjóðlegt starf. — Erfðirpar íslenzku — ættland og átthagar — og heimaþjóðin sjálf gátu Trausta aldrei úr minni liðið — þrátt fyrir hina löngu dvöl hér vestra. Ræturnar stóðu svo djúpt, að hann gat al- drei verið annað en Islendingur. Lengi ævi sinnar hér vestra átti hann einnig óvenjulega náið samband við marga mæta menn á íslandi með stöðugum bréfa- viðskiptum. Meðal þeirra, er skiptust á bréfum við hann, var séra Valdimar Briem, er hann mjög svo dáði; Skúli Thorodd- sen; einnig æskuvinir, fóstur- MESSUBOÐ Fyrsta lúterska kirkja ÚM Sr. V. J. Eylands, Dr. Theol. Helmili 686 Banning Street. Sími 30 744. Guðsþjónustur á hverjum sunnudegi: Á ensku kl. 11 f. h. Á íslenz^u kl. 7 e. h. ☆ Lúterska kirkjan í Selkirk Sunnud. 22. nóv.: Ensk messa kl. 11 árd. Sunnudagaskóli á hádegi , Islenzk messa kl. 7 síðd. Fól kboðið velkomið. / S. Ólafsson systkini, skyldfólk og tengda- fólk Rósu konu hans, en á síðari árum frændfólks hans sjálfs af yngri kynslóðinni. Á heimili þeirra hjónanna 1 Vatnsdal dvaldi Auðbjörg móðir Trausta um 25 ára bil, og hjá þeim andaðist hún 20. janúar, 1924, þá 96 ára að aldri. Hjá syni sínum og tengdadóttur átti Auðbjörg indælt heimili í ellinni; reyndust þau hjómn og Þórunn dóttir þeirra henni frá- bærlega vel, hjá þeim naut hún elsku og umönnunar af ríkum kærleika til hinzta ævidags. Heimilið í Vatnsdal var að eðlilegleikum einkar íslenzkt í anda. Þar ríkti óþvinguð ís- lenzk gestrisni. Trausti var einkar söngelskur og hafði unun af að taka lagið með gestum sínum; háttprýði konu hans og dóttur gerður komur þangað eftirminnilegar og hressandi. Sjálfur átti Trausti mörg hugðarefni, er hann hafði mikla unun um að tala; var hann mað- ur fjörugur í umræðum, enda mjög vel greindur; aldrei myrk- ur í máli, hispurslaus og,hrein- skilinn; hélt fast við skoðun sína hver sem í hlut átti — og fór ekki ávalt almannaleiðir. Hann var hvorttveggja í senn — frjáls og óháður í skoðunum, en þó fastheldinn, tilfinninganæmur og ör í lund, en jafnaðarlega glaður — afar tryggur þeim, sem hann eitt sinn batt vináttu við, og að mínum skilningi ríkur af guðsbarna hugarfari. Hans er saknað af ástvinum hans — og mörgum vinum úr hópi ná- granna og samferðamanna. Vertu sæll vinur! S. Ólafsson „Happið gamanleikur í einum þætti, eftir Pál J. Árdal, verður sýndur í samkomusal Sambandskirkjunnar á Banning og Sargent, Winnipeg, á föstudags- .kvöldið 27. nóv., kl. 8.15. Inngangur 50c. Ágóði af samkomunni rennur til Héraðsspítala Húnavatnssýslu á Blönduósi, þeim er Kolka læknir veitir forstöðu. Leikflokkurinn er frá Gimli og er undir stjórn Dodda Thordarsonar. Hann er úrvinda af þreytu! Láiið hann fá WAMPOLE S ^ctract of CxLÍ íyer Þetta styrkjandi lyf úr sólskins bætiefni D HONUM FELIiUR ÞAÐ VEL. EKKERT FISK EÐA EÝSISBRAGÐ! 5 1 .25

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.