Lögberg - 07.01.1954, Page 2

Lögberg - 07.01.1954, Page 2
2 LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 7. JANÚAR 1954 Sr. Sigurbjörn Einarsson: Nýr SkálholtsstaÖur Útlendur fyrirmaður var hér á ferð fyrir þrem árum, með fríðu föruneyti merkra manna frá Norðurlöndum öllum. Sér- stök atvik ollu því, að þessi maður, Manfred Björkqvisí, Stokkhólms-biskup, var hér kominn að þessu sinni, og hafði hann þó lengi dreymt um að fá einhverntíma að líta þetta land og koma á ýmsar þær slóðir, sem honum voru kærar og helgar vegna kynna hans af sögu íslands. Hann hafði unnið sitt aðal-ævistarf sem skólamað- ur. Hann er lærisveinn og mikill aðdáandi Grundtvigs, hins danska lýðskóla- og vakninga- manns, og lítur eins og hann á ísland sem „Hellas Norður- landa“, einskonar andlegt móð- urland hinna norrænu frænd- þjóða. Til íslenzkrar sögu þurfa frændþjóðirnar að sækja skiln- ing á sjálfum sér. íslenzkar, sí- stæðar bókmenntir eru sá and- legi höfuðstóll, sem frændurnir á norðurjaðri Evrópu þurfa að ávatxa með sér á hverjum tíma, til þess að halda þeim persónu- einkennum, sem þær verða að hafa í samfélagi þjóðanna, ef þær sökum smæðar sinnar eiga ekki að glata menningarlegri sérstöðu sinni og verða aðeins lítilvæg viðbót við höfðatölu hins margmilj ónhöfðaða mann- kyns. Þannig hafði þessi sænski menntafrömuður hugsað og þannig hafði hann kynnt Island meðal æskulýðs þjóðar sinnar. Hann hafði lesið Islendingasög- ur með nemöndum sínum. Eyj- an hvíta í vestri og örlög hennar í sögunnar rás hafði verið hon- um hugstæðari en flest önnur út- lönd. Hann kunni furðu glögg skil á sögustöðvum hérlendis og hugði gott til þess að fá nú loks á efri árum sínum að stíga fæti á marga þá staði, sem hugur hans hafði þrátt og títt dvalizt á. Þegar undirbúin var koma hans hér og föruneytis hans og rætt um það, hvernig hinum fáu dögum, sem til umráða voru, skyldi ráðstafað, kom margt til greina. En eitt atriði var veru- lega vandasamt: Skálholt. Það hefir orðið rótgróin hefð að var- ast af fremsta megni að minna útlenda gesti á, að Skálholt, hinn raunverulegi höfuðstaður Is- lands um lengstan aldur, væri enn á yfirborði jarðar og forða því, að þeir kæmu þar. Þessar felur hafa stundum kostað tals- verða stjórnkænsku, svo sem þegar Norðmenn fjölmenntu hingað vegna Snorra-hátíðar 1947, en yfirleitt tekizt furðan- lega. Við vitum ástæðuna: Það var óþvegna barnið, sem ekki mátti sjást, heimilis-ósóminn, sem varð að dylja. Það var van- ræksla okkar og menningar- skortur á tilteknu sviði, sem við blygðuðumst okkar fyrir, þjóðarvömm, sem við töldum okkur þurfa að fela. Okkur hefir að þessu leyti svipað til þeirra, sem ekki dirfðust að taka ofan höfuðfat á almannafæri, vegna þess að þeir voru með geitur. Okkur furðar nú á slíkri þolinmæði við þess konar ó- sóma, að menn skyldu ekki I heldur hafa einhver ráð með að verka sig upp en að leggja á sig þessar felur með höfuð sitt. En þó gegnir hitt ólíkt meiri furðu, hversu lengi við höfum haft þolinmæði til þess að reyna að dylja Skálholt. Hefir nálega þurft að elta á röndum hvern málsmetandi, erlendan gest, sem að garði hefir borið, til þess að afstýra því, að hann fengi augum litið hið hörmulega ástand þessa sögufræga staðar. Hvað hinn sænska biskup snertir, þá varð ofan á, góðu heilli, að farið skyldi með hann og fylgdarlið hans í Skálholt. Bæði var, að við, sem tókum að okkur að fylgja honum, treyst- umst ekki til að finna ástæður, er frambærilegar væru við slíkan mann og jafn gagnkunn- ugan íslenzkri sögu, fyrir því að sneiða hjá okkar mesta, kirkju- lega sögustað, og auk þess voru sumir okkar þannig sinnaðir, að við kærðum okkur ekki um að leika hinn venjulega skollaleik með þessa gesti. Við hugsuðum sem svo: Þessi þjóð er komin af því stigi að ganga með geitur. Hún er komin af því stigi eymd- arinnar að breiða yfir bæjar- skömm, þegar ókunnuga ber að garði. Hún er komin á það stig að þrífa sig til og losna þannig við allan heimóttar-flótta- og felusvip. Hún hefir, þjóðin okkar, sýnt það yfirleitt þessa tvo síðustu áratugi. Það er á engan hátt samboðið eða eðli- legt þeirri kynslóð, sem nú lifir á Islandi, að haga sér eins og hornkura, sem blygðast sín fyrir að koma fyrir manna sjónir. Og þar sem hún hefir enn ó- þrifakaun á líkama sínum, sem hana skortir manndóm til að taka til nauðsynlegrar meðferð- ar og leitast enn við að fela, þá má ekki hlífa okkur við því að fletta frá slíku, það er okkur sjálfum bezt, að við finnum til slíkra meina, þá kemur að því, að við bætum þau. ☆ Við komum á Skálholtsstað. Hvernig er umhorfs þar? Norð- lenzkur ferðamaður, ónafn- greindur, skrifar í blaðið „Dag“ í sept. 1951, „samtíning úr Suðurlandsferð" og segir þar m. a.: „Aðeins 2Vz km. frá þjóð- brautinni er merkasta höfuðból landsins á fyrri öldum, höfuð- staður landsins í sjö aldir, heim- kynni sumra beztu manna þjóð- arinnar, vettvangur mikilla at- burða Islandssögunnar, hið forna biskupssetur, Skálholt á bökkum Hvítár. Það er skaði, að margir íslenzkir ferðamenn fara svo um þessar slóðir að gefa sér ekki tíma til að koma í Skálholt. Það er góð kennslu- stund í Islandssögu að koma þar heim á hlaðið — ekki þó þannig skilið, að menn læri þar eitt né neitt um merkisatburði eða stórmenni þessa fornhelga staðar, haldur vegna þess, að hvergi er fremur en þar hægt að sjá, hversu sorglega litla rækt þessi „söguþjóð" hefir lagt við sögu sína og fornar minjar . . . . Staðurinn er gersamlega rúinn gripum og fornum minj- um, svo hreina furðu má kalla. Margur undrast að engin til- raun skuli hafa verið gerð til þess að spyrna fótum við eyði- leggingunni. Kirkjan er ómessu- fær .... Naumast mun fyrir- finnast ömurlegra guðshús á landi hér. Altaristafla er engin. Gólfið er að brotna niður. Kirkjan virðist skökk og skæld á grunninum .... Niðurlæging- in er svo stórkostleg, að menn verða að sjá hana með eigin augum til þess að trúa“. Þannig var umhorfs í Skál- holti, þegar hinir norrænu kirkjumenn með Björkqvist í broddi fylkingar komu þar. Og samt lifðu þeir þar stund, sem verður þeim öllum ógleyman- leg. Engin vanhelgun eða niður- níðsla getur gert að engu það, sem einu sinni hefir gerzt. Hinir erlendu bræður fundu, að þeir voru staddir á heilagri jörð, ein- um helgasta stað Norðurlanda. Hánn var næsta ólíkur yfirlitum þeim setrum nágrannalandanna, sem í þeirra sögu eru sambæri- legir við það, sem Skálholt er í okkar sögu. Hann var — og er — yfirlftum líkastur því sem villtir víkingar hefðu farið þar um, látið greipar sópa og fátt látið ógert, sem verða mátti til þess að lýsa sem dýpstri fyrirlitningu á minningum þessarar þjóðar. En þytur golunnar í stráum kirkjugarðsins varð að ómi, sem bar boð frá liðnum tímum, varð eins og niðandi æðasláttur lífs- ins í þessu landi, það var sem gestirnir hefðu lagt eyra að barmi þjóðarinnar og hlustað á hjartaslögin, bifuð ugg og von- um, baráttu, sigrum og ósigrum, hörmum og hamingju. Og þeir fundu það, gestir okkar, að líf þessa staðar, hjartastaðar ís- lenzkrar, kristinnar menningar, var þeim ekki óviðkomandi, það var þáttur í sameiginlegu lífi og sögu norrænnar kristni og menningar. Þeir fundu það og létu í ljós, að það varðar frænd- ur okkar og trúbræður í ná- grenninu, hvernig eftirleiðis fer um þennan stað. En hitt getur hver maður sagt sér sjálfur, að þeir hafa ekki komizt hjá því að velta fyrir sér þeirri spurningu, hvað geti valdið því; að þjóð, sem annars er svo framgjörn og að mörgu leyti svo metnaðarsöm og mann- dómleg í menningarsókn sinni og framkvæmdum, skuli þola sjálfri sér að vansæma minning- ar sínar, sögu sína, líf sitt eins og hún gerir í Skálholti. Þjóðin, sem hefir unnið sér orðstír og staðfest sinn tilverurétt vegna ræktarsemi við sögulegar erfðir og vegna frábærrar meðferðar á söguefni, sem án hennar væri glatað til óbætanlegs tjóns fyrir skyldar þjóðir, að þessi sama þjóð skuli öðrum þræði vera svona ótrúlega sinnulaus um helgustu sögumenjar sínar og þjóðarvé. Þeir fengu engar skýrinngar á þessu. Þær eru mál út af fyrir sig. Málsbætur eigum við að því leyti, að við vorum ekki sjálf- ráðir, þegar vansæmdarsagan hófst. En framhaldið er á okkar ábyrgð. Og svo mikið er víst, að málsbætur eigum við engar í þessu hér eftir, ef ekki verður skjótt og af fullri röggsemi brugðið á annað ráð. Og sem betur fer er fullt útlit fyrir, að svo verði. I því sambandi vil ég með þakklæti vitna til ritstjórn- arummæla í ágústhefti þessa rits: „Fyrir fáum árum var kveiktur neisti þeirrar hugsjón- ar, að hér (í Skálholti) skyldi aftur rísa vegleg mannvirki og andleg miðstöð í einhverri mynd. Neistinn hefir kveikt eld, sem vonandi verður að áhuga- báli meðal allrar þjóðarinnar. . . Hér skal rísa nýr Skálholls- staður. Að því verður öll þjóðin að stuðla“. Ég efa ekki, að þorri lesenda muni taka undir þessi drengi- legu orð. Það heyrast æ fleiri raddir um það, að mál sé komið og meira en mál, að öll landsins börn taki höndum saman til þess að hefja Skálholt úr eymd sinni. Skálholtsfélagið starfar þegar í nokkrum deildum á ýmsum stöðum. Tvennt vakti fyrir með stofnun þess: Að vekja áhuga, kveikja neistann, og verða á- hugamönnum starfstæki til þess að hrinda fram hugsjónum um endurreisn staðarins. Félagar gangast undir ákveðið árgjald í viðreisnarsjóð Skálholtsstóls. — Auk þess leitast félagið við að afla fjár með öðrum hætti. Verði þessi félagssamtök fjöl- menn og stuðningur við þau al- mennur er fjárhagslegur grund- völlur fenginn fyrir sómasam- legri endurreisn. Og vissulega mun Alþing og ríkisstjórn koma til móts við almennan áhuga. Árið 1956 eru réttar níu aldir síðan fyrsti biskupinn var vígð- ur til Skálholts. Það ár er níu alda afmæli innlendrar kirkju- stjórnar og íslenzks skólahalds. Skálholtsskóli sá, sem Isleifur Gissurarson stofnaði, var í raun- inni fyrsti, íslenzki háskólinn. Öllum, sem út í málið hugsa, hlýtur að vera Ijóst, að það væru óverjandi afglöp í menningar- legu tilliti að vera ekki búinn að veita Skálholti myndarlega uppreisn mála sinna á því ári. Við getum ekki gert allt, sem gera þarf, fyrir þann tíma. En við getum sýnt, að hverju við stefnum. Hvað á Sk.álholt að verða? Það, sem það er: Helgidómur, alþjóðarvé. Helgidómur er það. Því hefir níðsla undanfarins tíma ekki breytt, því getur ekk- ert hnekkt, meðan landið er ofan sjávar og þjóðin man til sín. En hvað gera siðaðir menn við helgidóma sína, hvernig búa þeir að þeim? Láta þá ekki grotna niður í vanhirðu og van- sæmd — það er að vanvirða sjálfan sig, láta þá ekki týnast úr meðvitund sinni — það er að afrækja það bezta í sjálfum sér. Menn elska helgidóma sína, virða þá, rækja og prýða og finna það við hvert viðvik, sem miðar að þessu, að þeir eru að göfga sjálfa sig, prýða, fegra sinn innri mann, glæða, efla það bezta, sem með þeim býr. Hvað gerum við Skálholti til sæmdar? Við reisum þar kirkju fyrst, musteri, sem verði boðleg umgjörð þeim munum, sem varðveizt hafa frá tignartímum staðarins og hæfileg ímynd þeirra kenda, sem heilbrigð þjóð ber í brjósti gagnvart helgustu minningum sínum og hugsjón- um. Þótt dómkirkjan í Skálholti væri oft endurnýjuð og endur- byggð, var heildarsvipur henn- ar lengst af mjög samur við sig allt til þess, er stóllinn var lagð- ur niður. Mörgum virðist ein- Hér á dögunum rakst ég á grein í Vísi um utanför Páls Bergþórssonar veðurfræðings til námsdvalar í Stokkhólmi. Samtímis því sem ég tek undir hrósyrði Vísis um þenna ágætis mann, vildi ég til fróðleiks bæta við nokkrum upplýsingum um stofnun þá, sem Páli er boðið að dvelja við í vptur. Stofnun þessi heitir Institutet för Meterologi og er alþjóðleg vísindastofnun, þar sem fram fer vísindaleg samvinna veðurfræðinga frá mörgum löndum í því skyni að reyna að leysa þau veðurfræði- legu viðfangsefni, sem nú eru efst á baugi og þá ekki sízt það spursmál, að spáð verði lengra fram í tímann en nú er gert. Forstöðumaður stofnunarinnar, Carl-Gustaf Romby, sá er bauð Páli hingað, er í tölu allra fræg- ustu núlifandi veðurfræðinga. Hann er sænskur, nam veður- fræði í Bergen og fluttist ungur til Ameríku. Hann var um skeið prófessor við Massachusetts In- stitute of Technology og var síðar um skeið aðstoðarforstjóri U. S. A.’s Weather Bureau í Washington og forstjóri veður- fræðistofnunarinnar í Chicago. Árið 1947 var hann kallaður til prófessorsembættis í Stokk- hólmi og hefir komið þar upp þeirri alþjóðlegu vísindastofnun, er fyrr getur. Þar starfa nú vís- indamenn frá mörgum löndum, einkum enskumælandi, og fer öll kennsla þar fram á ensku. Þess má geta, að einn af aðal- kennurunum við þessa stofnun nú er íslendingur, Geirmundur Árnason, er nam veðurfræði í Osló og var síðan í nokkur ár veðurfræðilegur ráðunautur flugfélagsins SAS og fór á veg- um þess víða um heim. Geir- mundur vinnur nú að háteóre- tiskum rannsóknum, er miða að því að taka hina nýju matema- sætt stefna að því, að hin nýja kirkja verði í meginatriðum með sama svip og sniði. Þessi kirkja á ekki síðan að standa auð og tóm sem varði einn eða bauta- steinn yfir minningum staðarins. Það þarf að halda þar uppi þjónustu og sitja staðinn ó þann veg, að hann geti orðið að nýju „andleg miðstöð“. Það hvíla á- lcvæði á hinu helga landi Péturs- kirkju í Skálholti: Þar skal á- vallt biskupsstóll vera meðan landið er byggt og kristni helzt í landi. Þau lög lagði einn mesti ágætismaður þjóðarinnar að fornu og nýju, Gissur biskup ís- leifsson, á óðal sitt um leið og hann gaf það kirkjunni. Þegar við minnumst þess eftir tæp þrjú ár, er faðir hans var vígður til SkHlholtsstóls, þurfa íslenzk- ir löggjafar að vera búnir að bæta það trúnaðarbrot, sem út- lend valdstjórn framdi, er hún gekk í berhögg við þessi forn- helgu ákvæði með því að selja landið ásamt kirkjunni og munum hennar, hirða and- virðið í sinn vasa og senda biskup og skóla á hrakning. Nú mun ekki þykja tækilegt, að biskupinn yfir íslandi flytjist úr höfuðstaðnum, þar sem hinn sí- vaxandi verkahringur hans snertir svo mjög stofnanir og aðila, sem þar eru. Þess vegna hefir Skálholtsfélagið fylkt sér um það stefnumál, að vígslu- biskupi Skálholtsbiskupsdæmis verði ákveðin seta í Skálholti og honum jafnframt með lögum markað starfssvið, ætluð tiltekin biskupsstörf. Þetta tvennt eru hornsteinar sómasamlegrar endurreisnar Skálholtsstaðar. Á þessum grundvelli getur það Skálholt risið, sem verði komandi kyn- slóðum ekki aðeins til sæmdar og gleði, heldur og til verulegra, andlegra nytja og blessunar. „Nýr Skálholtsstaður — að því verður öll þjóðin að stuðla". —FREYR, des. 1953 tikvélar í þjónustu veðurfræð- innar. Hann mun því ekki dvelja hjá Romby lengur en til áramóta, því honum hefir boð- izt góð staða í Bandaríkjunum og mun hann hverfa þangað upp úr áramótum. Stokkhólmi, í okt. 1953 « Sig. Þórarinsson —VISIR Elzfri íslendingurinn, Helga Brynjólfs- dótf-ir, lézfr 3. des. Hafnarfirði: — Elzti Islend- ingurinn, Helga Brynjólfsdóttir, andaðist að morgni dags 3. des. síðasl. að heimil sínu, Hring- braut 7 hér í bæ, 106V2 árs að aldri. — Helga var fædd 1. júní árið 1847 að Kirkjubæ á Rang- árvöllum. / Klæddist daglega Helga var við fulla heilsu allt fram á síðasta dag. — Hún klæddist daglega, og sat með prjóna sína mestan hluta dags. Allt fram yfir nírætt las hún gleraugnalaust, en sama og ekkert nú síðustu ár. Einnig hlustaði hún orðið lítið á útvarp. Að öðru leyti fylgdist Helga vel með og var bæði andlega og líkamlega hress. Sjón hennar og heyrn var sæmileg allt fram til síðustu stundar. Elzti íslendingurinn Geta má þess, að ættfræðingur nokkur tók sér það fyrir hendur að rannsaka, hvort nokkur ann- ar íslendingur hefði náð eins háum aldri og Helga Brynjólfs- dóttir. Eftir gaumgæfilega eftir- grenslan, komst hann að því, að svo var ekki. — Var hún því elzti Islendingurinn, a. m. k. svo langt aftur í tímann, sem kirkju- bækur ná. —Mbl., 3. aes. RICHARD BECK: Tvö ferðakvæði Logndagur á Kyrrahafsströnd Forni vinur, fagurbláa haf, fögnuð* vekur þú í sálu minni, ritað sumars gullnum geislastaf, glitað mildri töfrablæju þinni. Seglin björtu heilla huga minn, horfin draumaskip úr ægi rísa, halda á ný úr höfn með farminn sinn, hlaðin vonum, stjörnur sæinn lýsa. Innri sjónum, yzt við hafsins rönd, yndisríkum sveipuð röðulloga, ættarjarðar brosir blessuð strönd, blika fjöll í speglum kyrra voga. 1 Yellowstone National Park Bróðir Geysis bjartri súlu byltir hátt á kynjaslóðum, þar sem undraorku knúin ólgar jörð í hvítum glóðum. Silfurreykir svífa yfir svellagljáum hveravöllum, sindra í lofti sumartæru, svipinn milda- á klettatröllum. Sólu roðin höfuð hefja hrikafjöll í bláa geima. Landið fagra, langt í norðri, létt er hér að muna og dreyma. Þjóðgarðurinn Yellowstone National Park er, eins og kunnugt er, einn af víðfrægustu stöðum í Bandaríkjum Norður-Ameríku, sökum svipmikillar, sérstæðrar og fjölbreyttrar náttúrufegurðar sinnar. Meðal annars er þar fjöldi hveravalla, leirhverir svo þúsundum skiptir og goshverir eitthvað hundrað talsins; þeirra frægastur er „Old Faithful", sem nefndur er í kvæðinu „Bróðir Geysis“. —Höf. —EIMREIÐIN íslendingur síarfandi við frægustu veðurfræðistofnun heims

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.