Lögberg


Lögberg - 28.01.1954, Qupperneq 6

Lögberg - 28.01.1954, Qupperneq 6
6 LÖGBERG* FIMMTUDAGINN 28. JANÚAR 1954 „O, ekki held ég það“, sagði Magga. „Ég býst við að hún kærði' sig ekki mikið um að hann gengi í gjafafötum, hún móðir hans. Hún hefur saumað buxurnar sjálf, en peysan er útlend. Finnst þér hann ekki sæmilega myndarlegur núna, hann sonur þinn?“ „Jú, víst er hann það, anginn litli“, svaraði hann hlýlega og strauk eftir kollinum á drengnum. „Ertu dálítið upp með þér, vinur minn, af því að Magga segir, að þú sért myndarlegur?“ „Hann verður allur í móðurættina“, sagði Magga hreykin. En Jói lét dæluna ganga við Þóru, meðan hann var að borða, um lömbin, hvað þau væru væn hennar lömb. Hann gat aldrei fellt sig við sameign á búpeningnum, eignaði Sigurði það, sem komið var út af þeim skepnum, er hann hafði komið með utan frá Hvoli. Hinar átti Þóra, og þær voru allar talsvert bústnari. Það var af því, að þær voru aldar upp á heyjunum í dalnum, en ekki þaragumsinu úti á ströndinni. Það sagði Siggi á Nautaflötum. „En folaldið hans Sigurðar, það er mikið fallegra en þitt folald“, endið Jói ræðuna. „Jæja, er það svona stórt“, sagði Þóra. Svo bætti hún við og brosti: „Skyldi Björn hafa nokkurt vit á því, að það væri fallegt?" Þá tók Sigurður drenginn á handlegg sér og fór með hann út. Jói fór á eftir. Eftir dágóða stund kom hann inn með drenginn í fanginu. „Nú er Björn litli orðinn ríkur“, sagði hann brosleitur. „Hann á bæði kind og hross. Sigurður gaf honum folaldið sitt. Hann var ósköp kátur og vildi skoða það, en það gat nú ekki gengið". Þegar búið var að kveikja, tók Þóra drenginn og bar hann fram að fremsta rúminu, þar sem Sigurður lá hálf sofandi. „Það má víst ekki minna vera, en að hann þakki þér fyrir hrossið, sem þú gafst honum“, sagði hún og lét drenginn kyssa hann. „Hann má til að eignast hross, fyrst hann er svona stór og myndarlegur drengur“. Hún laut niður að honum og kyssti hann líka. „Það lítur út fyrir að hann verði hraustur og heilsugóður, blessað barnið“, sagði hún óvenju hlýlega. „Ertu nú sátt við mig?“ spurði hann lágt. Hún svaraði honum með öðrum kossi. Hann andvarpaði feginsamlega. Þá var þá þessi hviðan búin. Reynandi að koma ekki svona fram við hana aftur. STÓRA GRÖFIN Lísibet húsfreyja sagði svo fyrir, að taka skyldi svo stóra gröf í garðinum, að þau hjónin gætu verið hjá litlu stúlkunni. „Við höfum hana á milli okkar“, sagði hún við mann sinn. Og hann svaraði eins og hann var vanur: „Þú ræður því, góða mín, það þarf þá ekki að ganga í það aftur“. Svo var tekin stór gröf, hlaðin innan með grjóti, svo moldin hryndi ekki ofan á kistuna litlu, sem var látin síga niður í þetta gímald, alþakin blómum, og sýndist svo átakanlega einmana. Svo var stór tréfleki lagður yfir gröfina, eins og skilrúm milli lifandi og dauðra. Svona útbúnaður hafði ekki sézt fyrr þar í dalnum, og það var ekki laust við, að sumum fyndist það bera vott um að ríkidæmið héldi þó velli í lengstu lög. Anna hélt vasaklútnum fyrir andlitinu og grét beisklega, þegar þungi tréhlerinn byrgði barnið hennar algerlega, og hún átti aldrei að fá að sjá það framar. Fyrstu dagana eftir jarðarförina gekk hún ofan að gröfinni á hverjum morgni, strax og hún var komin á fætur, og stóð þar dálitla stund. En þegar fór að kólna í tíðinni, lét hún sér nægja að standa við stofugluggann og horfa ofan í garðinn. Einn morgun- inn spurði hún fóstra sinn, hvort hann héldi ekki, að henni Lísibetu litlu væri kalt einni þarna niðri í stóru gröfinni. „Ja, nei, nei, barnið mitt!“ svaraði hann. „Þetta er ekki annað en duftið, sem sameinast moldinni, andinn er farinn til guðs, sam gaf hann. Þú ættir að lesa betur í biblíunni“. Hún reyndi að lyfta huganum til himins með biblíu- og sálmalestri, en hann vildi ekki yfirgefa litla, kalda líkamann í kistunni. „Ég get víst aldrei gleymt henni“, andvarpaði hún raunaleg á svipinn. „Ætli nokkur móðir geti gleymt dána barninu sínu?“ Lísibet talaði um það við hana, að það væri hollara fyrir hana að ganga úti, þegar veðrið væri gott, en að sitja inni og lesa í biblíunni, þótt það væri góð bók. Kannske vildi hún fara út að Hvammi að gamni sínu. En hún komst aldrei lengra en út fyrir túngarðinn. Þar sneri hún við og var setzt niður hjá leiðinu eftir stuttan tíma. „Það fer eins og ég hef sagt, að hún lognast út af á eftir barninu, áður en langt líður“, sagði Sigga gamla einn morguninn við Finn úti á hlaðinu. Finnur gamli athugaði bæjarbustina vandlega, áður en hann svaraði. „Ónei, Sigríður sæl. Það verður einhver á undan henni í garð- inn, sem hraustari sýnist vera. Veikt blóm getur lifað lengi í hlýjum jarðvegi. Hún á eftir að sjá barnabörnin sín, býst ég við, konan þessi“. Sigga gamla hnussaði og gretti sig. „Alltaf kemurðu með einhverja skynsemina, karl, þykistu nú sjá þetta þarna uppi í mæninum, eða hvað?“ spurði hún önug. „Það yrði ekki óskemmtilegt fyrir hann að búa við hana allan þann tíma, ef hún verður alltaf lík því, sem hún er núna“, bætti hún við. Finnur gamli glotti bara svo ákaflega einfeldnislega og rölti niður fyrir bæinn, en Sigga tautaði eitthvað, um að hann væri alltaf sami sérvitringurinn, sem enginn maður gæti skilið. Eftir hálfan mánuð var farið að létta ögn yfir heimilinu. Siggi var farinn að rétta frá sér fæturna í myrkrinu, af gömlum vana, til að láta stúlkurnar detta um þær. Þá átti hann það víst, að þær flugu á hann í staðinn, en hann gerði það ekki, nema þegar hús- bændurnir voru hvergi nálægir. Þetta alvörulíf var að verða kæfandi. Þá veiktist hreppstjórinn allt í einu af lungnabólgu. Það var strax náð í meðul, en þau virtust lítið gagn gera. Á þriðja sólarhringnum versnaði honum svo, að sjálfsagt var að leita læknis að nýju. Jón stóð ferðbúinn á hlaðinu, þegar Borghildur kom út og sagði honum, að mamma hans vildi finna hann áður en hann færi. Hann hljóp inn með svipuna í hendinni. Móðir hans stóð við rúm sjúklingsins, döpur og kvíðafull á svip. „Hvað var það, góða?“ spurði hann. „Gleymdu ekki að kveðja hann. pabba þinn“, sagði hún. Hann færði sig nær rúminu. „Ég hélt, að hann svæfi eða mókti“. Hann tók af sér vettling- inn og lagði höndina á brennheitt enni sjúklingsins og sagði í hlýjum gælurómi, eins og hann væri að tala við barn: „Ég kom til að kveðja þig, elsku pabbi! Ég er að fara ofan á Ós“. Faðir hans leit á hann óskýrum augum. „Ætlarðu nú að fara að drekka?“ spurði hann með erfiðismunum. „Nei, ég ætla að finna lækninn. Kannske hann geti látið eitt- hvað, sem þér batnar af“, flýtti Jón sér að segja. „Þú ættir ekki að venja komur þínar í það hús; það verður þér til ógæfu, eins og honum föður þínum. Það var í því húsi, sem hann drakk frá sér heilsuna og vitið“, sagði sjúklingurinn 1 sama ruglingslega málrómnum. „Þú líkist honum alltaf meir og meir, sama gasprið og ábyrgðarleysið“, bætti hann við, svo lágt, að það rétt heyrðist. „Þetta er óráð“, sagði Lísibet með óstyrjtri röddu. „Hann er ekki með réttu ráði. Kveddu hann, góði minn, og vertu svo fljótur, sem þú getur“. „Já, vertu fljótur“, stundi sjúklingurinn. „Þú mátt ekki láta hana sitja eina við gluggann og bíða, þegar við erum bæði farin“. Eftir tæpa tvo tíma reið Jón í hlaðið á löðursveittum hestin- um. Borghildur stóð í dyrunum. Jón tók glasaböggul úr vasa sínum og rétti henni. „Farðu með þetta til mömmu, Borga mín. Ég ætla að spretta af hestinum, svo hann geti velt sér. Ég hef riðið eins og fantur“. Hún hreyfði sig ekki. „Þeirra þarf ekki við; hann er dáinn fyrir hálftíma", sagði hún. „Hvað segirðu?“ spurði hann. „Er hann pabbi dáinn?“ Hún játaði. Hann horfði á hestinn eins og utan við sig, sá hann beygja knén og bylta sér á hliðina ,og( velta sér rösklega. „Ég gat ekki verið fljótari“, sagði hann. „Læknirinn var ekki heima. Ég varð að bíða þó nokkuð lengi“. Borghildur hristi höfuðið. „Hverjum heldurðu að detti í hug að kenna þér um þetta? Verður ekki hver að hlýða, þegar kallið kemur?“ Jón bar hnakkinn og beizlið inn í skemmu. Fyrst svona var, lá ekkert á að fara inn; það var heldur ekki laust við, að hann hikaði við að horfast í augu við dauðann í annað sinn. Samt gekk hann hægt inn í hljóðlausan bæinn. Baðstofan var mannlaus, nema Sigga gamla lá magnlaus uppi í rúmi undir yfirsæng. Móðir hans hafði ekki lokið við að greiða manni sínum, þegar hann kom inn. Henni fannst hún ekki geta gert það nógu myndarlega. Jón stanzaði við hlið hennar og horfði á sviplaust andlitið. „Heldurðu, að hann sé dáinn, mamma? Mér finnst ég ekki geta trúað því. Það er svo stutt síðan hann talaði við mig,“ sagði hann lágt. „Já, hann er dáinn, án þess að fá rænuna. Ég hef þó þráð það svo mikið að geta talað við hann. En Drottni þóknaðist ekki að gefa mér tækifæri til að létta af samvizkunni, enda átti ég það ekki skilið. Ég hef ekki verið eins hreinskilin og ég átti að vera; hann var svo saklaus og vandaður". Hún titraði af grátekka. Jón tók hana í faðm sér og reyndi að tala einhver huggunarorð við hana. Hann mundi ekki eftir því að hafa séð hana gráta fyrr. „Farðu og talaðu við Önnu, góði minn“, sagði hún. „Lofaðu mér að vera einni hjá honum. Ég ætla að tala við hann, þótt hann heyri ekki til mín lengur, elsku maðurinn minn“. Jón yfirgaf hana, fyrst hún óskaði þess. Anna var víst frammi í litla herberginu inn af stofunni. Þar höfðu þau sofið síðan húsbóndinn veiktist. Þar sat hún með Jakob litla í fanginu. Hann var sofnaður. Jón kyssti konu sína, tók drenginn og lagði hann út af í rúmið. „Veiztu það, að sorgin, er komin aftur í heimsókn til okkar?“ hvíslaði þún. Já, hann vissi það, að hún var komin og hafði drepið á dyrnar. Hann hafði þó svo oft sungið um það, að hann ætlaði sjálfur til dyranna og segja henni, að hann væri í önnum og gæti ekki sinnt henni. En nú var hún komin í öllu sínu veldi, alla leið inn í bæinn, án þess henni væri boðið það, og það urðu allir að sinna henni, hvort sem þeim var það ljúft eða leitt, hann engu síður en aðrir. Það var eins og heimilið hefði dáið að hálfu leyti með hús- bóndanum. Fólkið gekk hljóðlaust um bæinn og talaði tæplega fullum rómi. Finnur gamli sagði, að það væri dagsanna, að ef tvær líkkistur væru fluttar af sama heimili með stuttu millibili, bættist sú þriðja við áður en árið væri liðið, eins myndi verða núna. Svo bætti hann því við, að það mætti gjarnan verða xistan sín. Lísibet var ákaflega syrgjandi. Hún hafði unnað manni sínum mjög mikið og hjónaband þeirra verið sönn fyrirmynd. Daginn fyrir jarðarförina var stóra gröfin opnuð. Jón leiddi konu sína ofan að henni, svo hún gæti séð hvað litla kistan væri hrein og falleg, alveg eins og hún var fyrir ijiánuði, þegar þau sáu hana síðast. Aðeins kransarnir voru farnir að gulna. „Ég bý til nýja kransa“, sagði hún ótrúlega stillt. „Og svo verður pabbi hjá henni“. Hún vakti um nóttina til að laga kransana. Borghildur hjálp- aði henni. Það kom múgur og margmenni til jarðarfararinnar. Þóra í Hvammi kom inn með spariföt manns síns á hand- leggnum og þvottavatn í fati. Hann rak upp stór augu. „Hvað ætlarðu með fötin mín?“ spurði hann. „Þú fylgir líklega hreppstjóranum til grafarinnar í dag, eins og aðrir bændur sveitarinnar. Mér hefur líka skilizt, að þér fyndist hann vera eini maðurinn hér í dalnum, sem nokkuð væri í varið“, svaraði hún nokkuð fasmikil. Sigurður ranglaði um gólfið, hálf vandræðalegur á svip. „Ég hafði ekki ætlað mér að þiggja góðgjörðir af Nautaflata- fólki“, sagði hann loks. „Svona, reyndu að stinga þessum nágrannakryt í vasann“, sagði Þóra. „Hann er óvanalegur hérna í dalnum og sómir sér hálf illa. Þú þarft varla að vera hræddur um mig fyrir Jóni í dag. Það verða of margir í kringum okkur, til þess að hætta sé á ferðum“. Sigurður anzaði engu, en fór að þvo sér, hálf kindarlegur á svipinn. Nokkru seinna riðu þau suður grundirnar. Þóra ríghélt við Mósa, svo þau gætu riðið samhliða. Þetta minnti bæði á, að þau hefðu einu sinni áður riðið þessar sömu götur til kirkjunnar í slagviðri og kulda. Þóru fannst vera ógnar langt síðan, þó voru það ekki nema rúm tvö ár; löng, erfið og hlýjulaus, eins og gift- ingardagurinn hafði spáð. Sigurði fannst aftur á móti alltaf bjart yfir þeim degi, þótt seinna syrti í lofti. „Þetta hefði nú getað farið betur fyrir okkur“, sagði hann upphátt. „Hvað?“ spurði hún hissa. Skyldi hann vera að hugsa um það sama? „Ja, þetta með samlyndið11, sagði hann. „Nú, finnst þér það ekki alltaf ákjósanlegt?“ spurði hún stuttlega. „Ég bjóst við því betra“, svaraði hann. „Það er víst engin von á, að það tækist betur. Ég var búin að segja þér, að það færi aldrei vel, þegar fólk þekktist eklcert“. „Það læt ég vera, þótt við þekktumst lítið“, sagði hann og setti upp óviðfelldinn guðræknissvip. „En það er annað. Það þurfa öll hjón að vera hreinskilin hvort við annað“. Hvað skyldi nú koma? hugsaði Þóra. Áleit hann, að hún væri svo bljúg, af því að hún var á leiðinni til jarðarfarar, að hún færi að skrifta fyrir, hvað gerðist í stofunni forðum. Það yrði víst ekkert af því í þetta sinn. Hún tautaði eitthvað um að þessi kerl- ingarreið væri óþolandi og gaf Mósa lausan tauminn, og reið í spretti það sem eftir var fram að hrossaréttinni. Sigurður lét Rauð skokka á eftir. Við réttina var hópur af dalbúum. Sigurði fundust þeir ólíkt hlýlegri en þegar hann kom fyrst til kirkju að Nautaflötum. Þeir heilsuðu honum jafn kumpánlega og konu hans. Allir töluðu um, hvað hér væru orðin snögg um- skipti og hvað sveitin hefði misst mikið, þar sem Jakob var. Þessi prúði og skynsami maður. „Hann fór allt of snemma", kallaði Sigurður gamli á Hóli. „Hvað skyldi Jón geta hugsað um hreppstjórnina; þessi „tralli“, sem aldrei hefur hugsað um annað en að dansa og drekka“. „Það getur þá líklega einhver eldri tekið það starf að sér“, lagði Sigurður í Hvammi til málanna. „Nei, það má enginn annar taka hana að sér“, sagði Sigurður gamli. „Hún hefur aldrei gengið úr ættinni. Hreppstjórinn hefur alltaf átt heima á Nautaflötum og alltaf heitið Jón eða Jakob svo lengi sem nokkur man. Strákurinn er svo sem vel gefinn, þó hann ungur sé“. í flestu eru dalbúar dálítið sérkennilegir, hugsaði Sigurður í Hvammi; en hann sagði ekkert um það upphátt. En að hugsa sér Jón hreppstjóra, fannst honum hlægilegt. Líklega yrði sérvizkan að ráða þar eins og annars staðar. Þóra lagaði hálstauið á manni sínum, áður en þau fóru heim. Honum hlýnaði yfir því, að ekki væri henni þá sama um, hvernig hann liti út. Vagn á Múla gekk fram hjá þeim og glotti kindarlega um leið og hann kastaði kveðju á Sigurð: „Sæli nú, Siggi!“ en rétti Þóru höndina. Sigurður tók þurrlega undir þessa lítilmótlegu kveðju. Svo var gengið til bæjar. Jarðarförin fór fram á venjulegan hátt. Elztu bændurnir úr dalnum báru kistuna í kirkjuna og úr henni aftur. Finnur gamli var einn líkmannanna. Hann var fram úr hófi hjárænulegur og hafði ekki talað orð við nokkurn mann allan daginn. En þegar búið var að moka ofan í gröfina, sagði hann hálf-hátt, eins og við sjálfan sig: „Við höfum vaxið með honum og elzt með honum. Hann var þó yngstur okkar; því þurfti hann að verða fyrstur? Ég er fimm árum eldri. Þess vegna átti ég að fara á undan“. Sigurður gamli á Hóli heyrði undarlega vel þetta eintal gamla mannsins. Hann skellti stóra hramminum á honum og sagði hörkulega: „Þetta bíður allt síns tíma, Finnur sæll! í dag mér, á morgun þér. Við smátínumst á eftir. Þú þarft varla að kvíða, meðan hús- móðurinnar nýtur við. Og þótt hennar njóti ekki við lengi, þá er hann sonur hennar, hann Jón, og lætur ekki fjúka að þeim, sem minnstir eru“. „En það verður autt sætið hans Jakobs fyrst um sinn“, sagði Finnur gamli dauflega. HEIMSÓKNIR OG GJAFIR Dagarnir mynduðu vikur og vikurnar mánuði. Heimilisfólkið á Nautaflötum fór að venjast því, að húsbóndann vantaði. Hann hafði oft verið burtu, en nú þurfti ekki að vonast eftir honum framar. Fötin hans voru send fram að Seli. Engir aðrir en þeir feðgarnir voru þess verðir að koma í þau. Reiðhesturinn hans var skotinn þar fram frá daginn eftir jarðarförina. Hann átti ekkert erindi heim að Nautaflötum framar. Lísibet var óþekkjanleg kona. Hún var föl og döpur og sat oftast nær inni, en lét Borghildi hugsa um húsmóðurstörfin, enda var hún orðin þeim vön. 1 byrjun jóla- föstu hætti hún að klæða sig, sagðist vera þreytt og ætla að hvíla sig nokkra daga, svo mundi hún hressast aftur. Þrem dögum eftir kom Anna Pétursdóttir frá Brekku fram eftir með fataböggul undir hendinni og sagði Borghildi og Önnu, að sig langaði til að gera Lísibetu eitthvað til þægðar, meðan hún væri-í rúminu. „Þú ert ævinlega velkomin, Anna mín, og ekki sízt núna“, sagði nafna hennar. Og Lísibetu þótti fjarska vænt um komu hennar, sem sýndi ljóslega, að hún var ekki vanþakklát stúlka. Anna var líka framúrskarandi glaðlynd og lífgaði heimilið. Kon- urnar í sókninni komu í heimsókn til Lísibetar og höfðu með sér krakkana, sem hún hafði oft haft á heimili sínu og hlynnt að á allan hátt. Þær fóru ríkari en þær komu, og börnin líka. Lísibet hafði aldrei verið smátæk á gjafir sínar, sízt núna. Og konurnar sýndu nágrannakonum sínum, hvað hún hafði glatt þær og börnin, „blessuð manneskjan“; hún gerði það ekki endasleppt. Þá leið ekki á löngu, þangað til sú hin sama lagði af stað fram eftir. Allar þóttust þær fullvissar, um að hún stigi ekki á fæturna aftur, þessi mikla velgjörðakona sveitarinnar. Rétt fyrir jólin versnaði tíðin, og um hátíðarnar voru sífelld- ar hríðir. Þá gat enginn komið í heimsókn. Eftir nýárið stillti til, en þá var kominn mikill snjór og gott skíðafæri. Magga gamla í Hvammi talaði um það við, Þóru, að einhverntíma þyrftu þær að fara fram eftir og kveðja blessunina hana Lísibetu í síðasta sinn. „Ég á ekki von á því, að Lísibet liggi á banasqenginni“, svaraði Þóra. „Ég vona, að hún eigi eftir að lifa mörg ár í nágrenninu við okkur“. „Þetta segja allir, að hún muni ekki fara aftur á fætur“, sagði Magga gamla dauflega. Og það dróst allan janúar að þær færu fram eftir. Magga var ekki góð skíðakona, en treysti sér ekki til að ganga í svona miklum snjó. En Þóra þóttist vita, að það kostaði ólund, ef hún færi, eins og vant var. En samt hafði Sigurður aldrei lagt nágrönnum sínum til, síðan hann fylgdi hreppstjóranum til grafarinnar, nema hann var vantrúaður á það, að Jón gæti verið hreppstjóri, svo nokkur mynd yrði á.

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.