Lögberg - 04.02.1954, Page 1
Phone 72-0471
BARNEY'S SERVICE STATION
NOTRE DAME and SHERBROOK
Gas - Oil - Grease
Tune-Ups
Accessories 24-Hour Service
Repairs
PROMPT - COURTEOUS - DEPENDABLE
ADOLPH'S TAXI
Round The Clock Service
59-4444 52-6611
401 PRITCHARD AVE.
SPECIAL RATES WEDDINGS
ON COUNTRY TRIPS FUNERALS
67. ARGANGUR
WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 4. FEBRÚAR 1954
NÚMER 5
Fréttir fró ríkisútvarpi íslands
24. JANÚAR
Veður hefir enn. verið um-
hleypingasamt eins og löngum í
vetur. Um miðja vikuna var frost
um allt land, á miðvikudags-
morgun allt að því 14 stiga frost
norðanlands, en síðan hefir verið
hvöss austan eða suðaustan átt
og talsverð rigning. Gæftir hafa
verið stopular.
☆
Verkfalli sjómanna á vélbáta-
flotanum er lokið og vertíð hafin
víðast hvar. Samninganefndirn-
ar í sjómannadeilunni, sem stað-
ið hafði frá áramótum, undirrit-
uðu samkomulag síðdegis á
mánudaginn, og var það síðan
samþykkt í félögunum. Sam-
kvæmt þessum nýja samningi
hækkar verð á slægðum þorski
^Reð haus um 17 aura á kíló-
gramm til sjómanna og verður
ein króna 22 aurar kílógrainmið.
Verð á öðrum fisktegundum
hækkar í sama hlutfalli. Samn-
inganefndirnar urðu enn fremur
sammála um það, að óska eftir,
að þær breytingar verði gerðar
^ tryggingarlöggjöfinni, að dán-
nrbætur, sem greiddar eru í eitt
skipti fyrir öll vegna bátasjó-
manna, verði hækkaðar um
helming eða því sem næst.
☆
Fiskaflinn í októbermánuði s.l.
nam rúmlega 21.000 lestum, og
íyrstu 10 mánuði ársins 1953 nam
heildarfiskaflinn nær því 317.000
lestum, en það er 21.000 lestum
meira en aflinn varð á sama tíma
1952. Af þessum afla hafa verið
írystar 82.000 lestir, 87.000 lestir
saltaðar og 76.000 lestir hertar.
Söltuð síld var rösklega 31.000
lestir, fryst rúmlega 11.000 lestir
og bræðslusíld rúmlega 21.000
lestir.
☆
Hinn 4. desember s.l. afhenti
utanríkisráðherra sendiherra
Bandaríkjanna erindi varðandi
hreytingar á varnarsamningi
Riilli íslands og Bandaríkjanna á
grundvelli Norður-At^ntshafs-
samningsins og framkvæmd
hans. í ráði var, að samninga-
Refnd frá Bandaríkjunum kæmi
til viðræðu nú um helgina, en af
ymsum ástæðum mun nefndin
ekki geta komið hingað til lands
lyrr en upp úr næstu mánaða-
oaótum.
☆
1 samningi Islands og Banda-
rikjanna um efnahagssamvinnu,
sem gerður var árið 1948, var á-
kveðið að 5% af jafnvirði gjafa-
framlags skyldi lagt í sérstakan
sJÓð, er Bandaríkjastjórn hefði
fil eigin ráðstöfunar hér á landi.
Hinn 11. þ. m. voru undirritaðir
samningar milli ríkisstjórnarinn-
ar og fulltrúa Bandaríkjastjórn-
ar um 793.000 króna framlag úr
þessum sjóði til rannsókna og
iræðslustarfsemi í landbúnaði og
sjávarútvegi hér á landi. Búnað-
arfélagi íslands og Fiskifélagi
íslands hefir verið falið að ann-
sst um framkvæmdir samkvæmt
gerðum áætlunum. Hluti Fiski-
lelagsins af fjármagni þessu
verður notaður til þess að prófa
°S gera samanburð á nokkrum
aðferðum, sem helzt koma til
greina við framleiðslu fóður-
efna úr slógi, en hér á landi falla
til svo þúsundum tonna skiptir
at sl°gi á hverri vertíð. Fram-
leiddur verður svonefndur slóg-
jarni, og einnig slógmjöl. Um
hlut landbúnaðarins er það að
segja, að fjórir búfræðimenntað-
ir menn skulu ferðast um landið
í tvö ár og vinna að almennri
fræðslu um landbúnað, en megin
hlutverk þeirra verður að ann-
ast sýnisreiti, sem gerðir verða í
hverjum hreppi, og samanburður
gerður þar á mismunandi notk-
un tilbúins áburðar og síðan á
uppskerunni. Ráðunautar þessir
hafa þegar verið valdir og leggja
af stað í ferðalagið í byrjun
næsta mánaðar. Samhliða starfi
þessara manna er ætlast til, að
sett verði á fót sérstök leiðbein-
ingastarfsemi, er aðstoði ráðu-
nauta og útvegi þeim upplýs-
ingar og sýningarefni, svo sem
skuggamyndir, og enn fremur
verða gefin út smárit einu sinni í
mánuði um nýjungar í landbún-
aði. Gísli Kristjánsson ritstjóri
veitir upplýsingastarfsemi þess-
ari forstöðu.
☆
Reykjavíkurbær keypti fyrir
nokkru hús fyrir bæjarbókasafn,
Þingholtsstræti 29A, og var
safnið opnað til notkunar fyrir
bæjarbúa á fimmtudaginn var.
Bæjarbókasafnið hóf starfsemi
sina 1923 og á nú um 50.000 bindi.
Húsið, sem keypt var fyrir safn-
ið, var íbúðarhús, og voru þar
gerðar nauðsynlegar breytingar.
í lestrarsal geta setið milli 20 og
30 menn. Yfirbókavörður er
Snorri Hjartarson.
☆
Stjórn Loftleiða h.f. hefir að
undanförnu unnið að undirbún-
ingi víðtækari starfsemi félags-
ins. Til tals hafði komið að festa
kaup á nýrri flugvél og aflað
hafði verið heimildar til ríkis-
ábyrgðar fyrir allt að því 10
miljónum króna. Hæpið þótti þó
að ráðast í kaup á nýrri flugvél
að svo stöddu, og leitaði félags-
stjórnin því hófanna hjá norska
flugfélaginu Braathens-SAFE
um leigu á samskonar flugvél og
Heklu, en sú flugvél hefir verið
á flugleiðinni til Austurlanda. —
Stjórn Loftleiða gekk nýlega frá
leigusamningi að áskildu sam-
þykki viðkomandi stjórnarvalda,
og Braathens-SAFE sótti fyrir
nokkru um leyfi til norsku stjórn
arinnar um að leigja Loftleiðum
Skymaster-flugvél sína.
☆
Bæjarstjórnarkosningar og
kosningar hreppsnefnda í þeim
hreppum, þar sem þrír fjórðu
íbúanna eru búsettir í kauptún-
um, fara fram á sunnudaginn
kemur, og hefir kosningaundir-
búningurinn sett sinn svip á
blöðin að undanförnu. í Reykja-
vík hafa flokkarnir hver um sig
haldið kosningafundi og útvarps-
umræður verða um bæjarmálin
nú í vikunni. Það hefir borið til
tiðinda í kosningabaráttunni í
Reykjavík meðal annars, að dag-
blað þar bar þær sakir á efsta
mann á lista Þjóðvarnarflokks
Islands, Bárð Daníelsson verk-
fræðing, að hann hefði misnotað
aðstöðu sína í opinberustarfi.
Hann ákvað þá að taka framboð
sitt aftur og óska eftir opinberri
rannsókn á ásökun blaðsins. •—
Yfirkjörstjórnin í Reykjavík tók
beiðni hans til meðferðar en
taldi sig ekki hafa heimild til
þess að nema á brott nafn hans
af framboðslista flokksins. — í
Kópavogshreppi hefir kosningu
verið frestað til 14. febrúar
næstkomandi. Orsökin var sú, að
yfirkjörstjórn hafði merkt lista
Sjálfstæðismanna þar með C, en
þeir óskuðu eftir að listinn yrði
merktur bókstafnum D, og úr-
skurðaði sýslumaður að svo
skuli verða. Er úrskurðurinn
byggður á lagabreytingu, sem
gerð var í sambandi við síðustu
alþingiskosningar, og hnígur í þá
átt, að hver flokkur skuli halda
sínum listabókstaf.
☆
Samkvæmt upplýsingum Á-
fengisverzlunar ríkisins nam sala
áfengra drykkja á s.l. ári rösk-
lega 76,4 miljónum króna, og er
það nær því 12,4 miljónum króna
meira en árið 1952. Áfengis-
neyzla nam 1,469 lítrum á hvern
ibúa miðað við 100% spíritus, og
var það nokkru meira en árið
áður. Mest varð áfengisneyzian
hér á landi árið 1946 og komst þá
upp í tvo lítra á hvern íbúa.
Söluaukningin á árinu varð hlut-
fallslega miklu meiri en aukning
áfengisneyzlunnar, þar sem
meira var nú selt af dýrari vín-
tegundum en áður.
☆
1 gær var tekin í notkun
stærsta frystivél, sem smíðuð
hefir verið hérlendis. Smíði
hennar og uppsetningu annaðist
vélsmiðjan Héðinn í Reykjavík,
en eigandi er Hraðfrystihúsið
Heimaskagi á Akranesi. Afköst
vélarinnar er 150.000 hitaeining-
ar á klukkustund. Önnur slík vél
er þegar fullsmíðuð hjá Héðni og
fer hún til ísfélags Vestmanna-
eyja-
☆
Kvennaskólinn á Blönduósi
var settur 15. þ. m., en hann
starfaði ekki s.l. ár vegna þess
að gerðar voru stórfelldar um-
bætur og breytingar á skólahús-
inu. Þeim er að vísu ekki lokið
ennþá að fullu, og því komast
ekki fyrir í skólanum að sinni
nema 24 nemendur. Gerð hefir
verið viðbygging við skólahúsið
og er í henni rúmgóður borðsalur
og íbúð forstöðukonu. Forstöðu-
kona skólans er frú Hulda
Stefánsdóttir.
☆
Sendiherra Þjóðverja á ís-
landi, dr. Oppler, afhenti s.l.
laugardag Háskóla Islands að
gjöf frá þýzku stjórninni í Bonn
allmargar bækur í germönskum
fræðum, handbækur og vísinda-
rit, sem gefin hafa verið út í
Þýzkalandi á síðari árum. Rektor
háskólans, prófessor Alexander
Jóhannesson, þakkaði gjöfina.
☆
Felix Ólafsson kristniboði og
kona hans hafa dvalizt undan-
farna mánuði í Addis Abbeba,
höfuðborg Abyssiníu, og numið
mál landsmanna. Þau eru nú á
íörum til suðurhluta landsins,
þar sem þau ætla að koma á fót
trúboðsstöð í Konso. Samband
íslenzkra kristniboðsfélaga kost-
ar för þeirra og framkvæmdir
að öllu leyti. Það er von sam-
bandsins, að geta einnig sent
lækni og hjúkrunarkonu til
Konsó áður en langt um líður.
☆
Frú Unnur ólafsdóttir í
Reykjavík hefir gefið tiÞstyrxt-
ar blindu fólki ágóða af þremur
sýningum á kirkjulegum list-
munum, er hún hefir haldið í
Reykjavík á undanförnum árum,
og nemur sú upphæð rúmlega
43.000 krónum.
☆
Samkvæmt upplýsingum frá
Slysavarnafélagi Islands hafa
enn verið framin spjöll í skip-
brotsmannaskýli félagsins á
Þönglabakka í Þorgeirsfirði. —
Hafa matarbirgðir horfið þaðan,
olíutunna verið tæmd og ýmis-
legt skemmt.
☆
Undanfarin ár hafa verið tals-
verð brögð að því, að saltfiskur
gulni við framleiðslu og í
geymslu og hefir tjón af þessum
sökum numið miljónum króna.
Forstöðumaður rannsóknarstofu
Síldarverksmiðja ríkisins á
Siglufirði, Páll Ólafsson, hefir að
undanförnu fengist við rann-
sóknir á því, hvað valda muni
gulunni og hefir komizt að raun
um, að gerlar í saltinu valda
henni. Auðvelt mun að prófa,
hvort saltið sé smitað gulugerl-
um eða ekki.
☆
Tónlistarfélagið í Reykjavík
efnir til kammertónleika fyrir
félagsmenn sína á morgun og
þriðjudaginn og verða þar flutt
verk eftir Paul Hindemith,
Haydn og Schubert. — Þjóðleik-
húsið sýnir nú sjónleikinn Pilt og
stúlku og barnaleikritið Ferðina
til tunglsins, ávallt fyrir fullu
húsi. — Leikfélag Reykjavíkur
sýnir Mýs og menn eftir Stein-
beck.
☆
íslenzkar getraunir greiddu í
vinninga á s.l. ári 139.000 krónur.
Vikuleg þátttaka í getraununum
hérlendis er sem svarar 5 aurum
á hvern landsmann.
☆
Skagfirðingafélaginu í Reykja-
vík höfðu um miðja s.l. viku
borizt 52.000 krónur í reiðufé
handa fjölskyldunni á Heiði í
Gönguskörðum, sem misti aleigu
sína milli Jóla og nýjárs. Rauða
kross deildin í Reykjavík hafði
þá safnað um tæpum 10.000
krónum.
☆
Frú Georgía Björnsson átti
sjötugsafmæli á mánudaginn var
og var þá mjög gestkvæmt á
heimili hennar. Nokkrir vina
hennar tilkynntu að þeir hefðu
ákveðið að færa henni að gjöf
eirsteypu af mynd, er Einar
Jónsson myndhöggvari hefir
gert af henni, og verður myndin
ríkiseign eftir hennar dag. Frú
Georgía er fyrsta forsetafrú ís-
lands.
Afmæli
forsætisráðherrans
Rt. Hon. Louis St. Laurent
Síðastliðinn mánudag átti for-
sætisráðherrann í Canada, Rt.
Hon. Louis St. Laurent 72ja ára
afmæli, og var hann þá um dag-
inn hyltur mjög af öllum þing-
flokkum; í dag leggur hann af
stað ásamt fríðu föruneyti í
ferð umhverfis hnöttinn, en
heimboð höfðu honum borizt
víðsvegar að á árinu, sem leið;
hann mun maðal annars eiga
nokkura viðdvöl í Indlandi og
Pakistan.
Rannsóknarnefnd
Fylkisstjórnin í Manitoba hef-
ir lýst yfir því, að hún hafi
ákveðið að skipa rannsóknar-
nefnd, er óháð sé öllum pólitísk-
um flokkum til að íhuga vænt-
anlegar umbætur á áfengissöl-
unni innan vébanda fylkisins;
mun þess sízt vanþörf að áfeng-
islöggjöfinni, sem orðin er úrelt,
verði eitthvað breytt til
batnaðar.
Áki Jakobsson fyrrv. ráðherra segir sig
úr kommúnisfaflokknum
Það er nú kunnugt orðið, að
Áki Jakobsson, fyrrverandi
þingmaður og ráðherra komm-
únista hefir sagt sig úr komm-
únistaflokknum. Er hann sá
fyrsti af aðal-leiðtogum komm-
únista hér á landi, sem yfirgefur
hinn fjarstýrða flokk.
Áki Jakobsson var kjörinn
Fylkisþing sett
þingmaður fyrir kommúnista
á Siglufirði haustið 1942 er
Siglufjörður var gerður að sjálf-
stæðu kjördæmi. En hann var
fyrst kjörinn á þing í sumar-
kosningunum það ár og þá sem
landkjörinn þingmaður. Einnig
þá bauð hann sig fram á Siglu-
firði, þar sem hann hafði þá
verið bæjarstjóri í nokkur ár.
Hann var atvinnumálaráð-
herra í nýsköpunarstjórninni
árin 1944—1947. Sat hann á þingi
fram til s.l. vors, en þá gaf hann
ekki lengur kost á sér til fram-
boðs fyrir kommúnista. —
Úrsögn Áka Jakobssonar úr
kommúnistaflokknum er tví-
mælalaust mesta áfallið, sem
kommúnistar hafa orðið fyrir
hér á landi. Hún sýnir greini-
lega, hvert stefnir fyrir komm-
únistaflokknum á íslandi.
—Mbl., 10. des.
Hon. D. L. Campbell
forsætisráðherra
Á þriðjudaginn kom fylkis-
þingið í Manitoba saman til
funda og var sett af hinum
nýja fylkisstjóra, Hon. J. S.
McDiarmid, er flutti boðskap
stjórnarinnar til þingsins; yngsti
þingmaðurinn, Mr. Mulgat frá
St. Rose, var kjörinn til að svara
hásætisræðunni, en hann er að-
eins 27 ára að aldri, en stuðn-
ingsmaður varð Jack St. John,
Liberalþingmaður fyrir Winni-
peg Centre kjördæmið.
Halldór Bjarnason
látinn
Hinn 29. janúar síðastliðinn
lézt að heimili dóttur sinnar og
tengdasonar, þeirra Mr. og Mrs.
J. A: Vopni, Davidson, Sask.,
Halldór Bjarnason fyrrum kaup-
maður hér í borg, fæddur að
Litla-Múla í Dalasýslu 29. nóv-
ember 1862. Hann . fluttist til
Vesturheims árið 1889 og dvaldi
nokkur fyrstu árin í Glenboro;
hann rak matvöruverzlun í
þessari borg í 27 ár, en eftir
lát Margrétar konu sinnar 1943
fluttist Halldór til Davidson,
eins og þegar hefir verið sagt;
auk fyrgreindrar dóttur sinnar,
Mrs. Vopni, lætur Halldór eftir
sig tvö önnur börn, Önnu
hjúkrunarkonu í New York og
Otto verkfræðing í Virginia-
town, Ont.
Halldór var góður drengur og
hinn ábyggilegasti um alt. —
Útförin var gerð frá Fyrstu
lútersku kirkju síðastliðinn
þriðjudag. Dr. Valdimar J. Ey-
lands jarðsöng.
Úr borg og bygð
Gladys Kristrún, dóttir S. V.
Sigurdson bæjarstjóra í River-
ton og Mrs. Sigurdson, giftist
Lieut. Vern Douglas Peterson
frá Mayor, Sask. í lútersku
kirkjunni í Riverton 30. janúar
síðastl. Séra Robert Jack gifti.
Miss Geraldine Bjarnason söng,
en Mrs. Dóri Martin var við
hljóðfærið. Brúðar meyjar voru
Mrs. Irvin Ólafsson og Miss
Gladys Danielson, en F.O.
William Owston aðstoðaði brúð-
gumann. Heimili ungu hjón-
anna verður í Saskatoon.
Ánægjuleg
kvöldstund
Á föstudagskvöldið hinn 29.
janúar s.l., efndi Icelandic
Canadian Club til virðulegs
mannfagnaðar í salarkynnum
Marlborough hótelsins hér í
borginni; tala gesta mun hafa
numið tveimur hundruðum. For-
sæti skipaði W. J. Lindal dómari
af góðri rögg.
Samsætið hófst með borðbæn,
er séra Philip M. Pétursson
flutti.
Aðalræðumaður var séra
Robert Jack frá Árborg, er tal-
aði bæði á ensku og íslenzku;
einnig mælti nokkur orð Hon.
Ivan Shoultz, dómsmálaráð-
herra Manitobafylkis, en ávörp
fluttu þeir Dr. Valdimar J. Ey-
lands fyrir hönd Þjóðræknis-
félagsins, en af hálfu Leifs
Eiríkssonar félagsins skilaði
kveðjum Erlingur Eggertson
lögfræðinemi við Manitoba-
háskólann.
Miss Helga Baldwinson lék
Piano Solo, en Miss Ingibjörg
Bjarnason skemti með einsöng
aðstoðuð af Miss Sigrid Bardal.
Þetta var góð samkoma, er
hafði sitt ákveðna félagslega
gildi.
Að skemtiskrá lokinni var
stiginn dans við gleði og góðan
fagnað.
Fjórveldafundurinn
í Berlín
Að því er nýjustu fréttir frá
Berlíp herma, er naumast ann-
að fyrirsjáanlegt, en utanríkis-
ráðherrafundur stórveldanna
fjögra, sem enn stendur yfir í
Berlín og frá var sagt í fyrri
viku, muni þá og þegar gufa
upp; veldur því þrákelkni Rússa
og yfirgangssemi.
Vesturveldin hafa krafist þess,
að almennar kosningar um fyrir-
hugaða sameiningu Þýzkalands
verði haldnar hið bráðasta, því
með öðru móti verði ekki kom-
ist að skynsamlegum friðar-
samningum; þetta mega Rússar
ekki heyra nefnt á nafn og vilja
helzt ekki um annað tala en
rauðliða stjórnina í Kína.
Ekki er seinna vænna að út-
vega sér aðgöngumiða að hinni
frægu litkvikmynd Hal Linkers
Sunny Iceland, sem sýnd verður
í Playhouse Theatre 13. febrúar,
kl. 8.30.