Lögberg - 04.02.1954, Blaðsíða 2
2
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 4. FEBRÚAR 1954
Fréttir fré ríkisútvarpi íslands
17. JANÚAR, 1954
Hlýtt hefur verið í veðri að
undanförnu, h v e r g i snjór í
byggð, fjallvegir flestir færir
bifreiðum, og unnið hefur verið
sums staðar að jarðvinnslu með
vélum. Fyrri hluta vikunnar,
sem leið, var suðaustan og sunn-
an átt um allt land og hlýindi, og
var einkum hlýtt veður marga
daga á Norður- og Austurlandi,
en nokkuð skakviðrasamt á Suð-
urlandi. Síðari hluta vikunnar
kólnaði hins vegar í veðri og á
miðvikudaginn og fimmtudag-
inn mátta hetia stórhríð á Vest-
fjörðum en nú er. komið hæg-
viðri á þeim slóðum. 1 gær var
hiti við frostmark á Suður- og
vesturlandi. en tveggja til fimm
stiga hiti á Norður- og Austur-
landi. í góðum sauðfjárbeitar-
sveitum hefur fé varla komið á
hús í ^vetur í sumum landshlut-
um að minnsta kosti.
Á þriðjudaginn var sáust eld-
blossar í stefnu inn yfir Ódáða-
hraun frá bæjum í Bárðardal,
Mývatnssveit og Axarfirði og
var fyrst haldið að um eldgos
væri að ræða í Dyngjufjöllum
eða Kverkfjöllum, en síðar kom
í ljós að mikið þrumveður hafði
þá gengið yfir Vatnajökul, og
þykir sennilegt að eldblossar
þeir, sem sáust hafi verið elding-
ar.
☆
Biskupskjör fór fram hér á
landi síðari hluta desembermán-
aðar og fyrra hluta janúar, og
voru atkvæði talin á miðviku-
daginn var. III höfðu atkvæðis-
rétt og 110 greiddu atkvæði. As-
mundur Guðmundsson prófess-
or var löglega kjörinn biskup
landsins með 68 og tveimur
þriðju úr atkvæði, en lögmæt er
kosning fái biskupsefni þrjá
fimmtu atkvæða. Magnús Jóns-
son prófessor hlaut næstflest at-
kvæði, 45, þótt hann hefði áður
beiðst eindregið undan kjöri, og
þriðji í röðinni var Sigurbjörn
Einarsson prófessor.
Hinn nýkjörni biskup, Ás-
mundur Guðmundsson, er 65
ára að aldri. Hann er Borg-
firðingur að ætt, lauk prófi í
hebrezku við Kaupmannahafnar
háskóla og embættisprófi í guð-
fræði frá Háskóla Islánds 1912,
var um skeið prestur í Islend-
ingabyggðum í Kanada, nokkur
ár skólastjóri Eiðaskóla, varð dó-
cent við Guðíræðideild Háskól-
ans 1928 og prófessor 1934. Hann
hefur gegnt mörgum trúnaðar-
og virðingarstörfum öðrum.
☆
Forseta íslands, herra Ásgeiri
Ásgeirssyni, barst nýlega bréf
frá Júlíönu Hollandsdroftningu,
þar sem þökkuð er hjálp sú, sem
íslendingar létu í té vegna flóð-
anna miklu í Hollandi á sl. ári.
Segir þar m. a.: Við samskot þau,
sem efnt var til þegar í stað í
Reykjavík og öðrum kaupstöð-
um og þorpum, safnaðist álitleg
upphæð, sem veitti verulega
hjálp þeim, er tjón biðu af völd-
um flóðanna. Vil ég" geta þess, að
ég mat mikils þá frumlegu hug-
mynd að gefa út sérstök íslenzk
frímerki í þessu sambandi. Öll-
um þeim, sem gerðu sitt ítrasta
til að hjálpa, kunnum vér inni-
legar þakkir.
☆
Viðskiptasamningur Islands
og Vestur-Þýzkalands, sem falla
átti úr gildi um síðustu áramót,
var með erindaskiptum í Bonn
hinn 13. þ. m. framlengdur ó-
breyttur til 30. júní 1954. Vil-
hjálmur Finsen sendiherra ann-
aðist framlenginguna fyrir Is-
lands hönd.
☆
Fyrir nokkrum dögum kom til
Reykjavíkur pólsk sendinefnd til
þess að ræða nýjan viðskipta-
samning við íslendinga. For-
maður nefndarinnar sem við
Pólverjana ræðir, er Þórhaliur
Ásgeirsson skrifstofustjóri í við-
skiptamálaráðuneytinu. — Nú í
vikunni er væntanleg til Reykja-
víkur nefnd frá Rúmeníu til að
athuga um möguleika á viðskipt-
um milli Rúmeníu og íslands
☆
Eimskipafélag Islands á fjöru-
tíu ára afmæli í dag og var
þess minst í dagskrá útvarpsins
í kvöld. Félagið á nú 10 skip,
samtals nær því 26.000 lestir að
stærð, og eru átta þeirra keypt
eða smíðuð á síðustu fimm eða
Innköllunar-menn Lögbergs
Bardal, Miss Pauline
Minneota, Minnesota
Einarson, Mr. M.........
Minneota, Minnesota
Ivanhoe, Minn., U.S.A.
Arnes, Manitoba
Fridfinnson, Mr. K. N. S. Arborg, Manitoba
Arborg, Manitoba Geysir, Manitoba
Hnausa, Manitoba
Riverton, Manitoba
Vidir, Manitoba
Arnason, Mr. R.
.....Elfros, Saskatchewan
Leslie, Saskatchewan
Mozart, Saskatchewan
Foam Lake, Sask.
Wynyard, Sask.
Gislason, T. J. Morden, Manitoba
Gislason, G. F. .............Churchbridge, Sask.
Bredenbury, Sask.
Grimson, Mr. H. B. Mountain, North Dak.
Mountain, N.D. Edinburg, North Dak.
Gardar, North Dak.
Hallson, North Dak.
Hensel, North Dak.
Akra, North Dak.
Cavalier, North Dak.
Johnson, Mrs. Vala
Selkirk, Manitoba
Bjarnason, Mrs. I........,....Gimli, Manitoba
Gimli, Manitoba Husavik, Manitoba
“Betel”, Gimli, Man.
Winnipeg Beach, Man.
Lindal, Mr. D. J..............Lundar, Manitoba
Lyngdal, Mr. F. O.............Vancouver, B.C.
5973 Sherbrook St.
Vancouver, B.C.
Middall, J. J.................Seattle, Wash., U.S.A.
6522 Dibble N.W.
Seattle, Wash., U.S.A.
Myrdal, S. J. ................Point Roberts,
Box 27 Wash., U.S.A.
Oleson, G. J.......
Glenboro, Man.
.......Glenboro, Manitoba
Baldur, Manitoba
Cypress River, Man.
Simonarson, Mr. A............Blaine, Washington
R.F.D. No. 1, Blaine, Wash. Bellingham, Wash.
Valdimarson, Mr. J...........Langruth, Manitoba
Langruth, Man. Westbourne, Manitoba
sex árunum, og þau eru öll mót-'
orskip og sparneytnari og af-!
kastameiri en eldri skipin. SKip
Eimskipafélagsins fara nú um
100 fefðir á milli landa á ári og j
um 50 frá Reykjavík til annarra
hafna á landinu. Á sl. ári höfðu
þau viðkomu í 50 höfnum í 20
þjóðlöndum. Tekjur félagsins
frá upphafi hafa numið um 706
miljónum króna, en útgjöídin
orðið um 607 miljónir. Um 500
manns eru í fastri vinnu hjá fé-
laginu. Hluthafar eru rúmlega
13.000 og eiga langflestir þeirra
þetta 25 til 500 króna hlut hver.
Fyrsti formaður félagsins var
Sveinn Björnsson, er síðar var
kjörinn Forseti íslands, fyrsti
framkvæmdastjóri félagsins
Emil Nielsen, fyrsti skipstjórinn
Sigurður Pétursson, og fyrsta
skipið Gullfoss. sem smíðaður
var í Kaupmannahöfn ^g kom
til íslands í apríl 1915. — For-
maður félagsstjórnar Eimskipa-
félagsins Islands er nú Hallgrím-
ur Benediktsson og fram-
kvæmdastjóri félagsins er Guð-
mundur Vilhjálmsson, er tók
við því starfi árið 1930.
Eimskipafélag Islands hefur
nýlega ákveðið að taka upp fast-
ar áætlunarferðir milli Islands
og meginlands Evrópu í fyrsta
sinni síðan fyrir heimsstyrjöld-
ina síðari. Er ráðgert aðe þrjú
skip félagsins verði í þessum
ferðum og hefjast þær 20. febrú-
ar næstkomandi, er hið nýja
skip félagsins, Fjallfoss, fer írá
Hamborg. Skipin verða í sigling-
milli Islands, Hamborgar,
um
Rotterdam, Antwerpen og Hull,
og er þau koma til íslands munu
tvö sigla vestur og norður um
land, en eitt austur og norður.
Ráðgert er, að skipin verði í
þessum ferðum á 14 daga fresti
frá erlendum höfnum. Gullfoss
er nú í föstum áætlunarferðum
til Skotlands og Danmerkur, tvö
eru í Ameríkuferðum, en hin
hafa ekki haft fastar áætlunar-
ferðir sökum þess að útflutnings-
verzlun landsmanna hefur ráðið
ferðunum fremur en nokkuð
annað.
☆
Verkfall sjómanna á vélbáta-
flotanum stendur enn, og heldur
sáttasemjari daglega fundi með
deiluaðiljum. Aðalágreiningsatr-
iðið er verðið á fiskinum.
íslenzku togararnir fiska nú
flestir fyrir frystihúsin víða um
land, en nokkrir eru á saltfisk-
veiðum. Afli hefur verið misjafn
og gæftir afarstopular.
Síldveiðinni á Akureyrarpolli
er lokið, að minnsta kosti í bili,
og hafa veiðst þar í vetur um
16.000 mál síldar. — Nokkurrar
síldar varð vart um daginn við
ytri höfnina í Vestmannaeyjum.
Á sl. ári voru 12 skip tekin
vekna ólöglegra veiða í land-
helgi. Af þeim voru 8 erlendir
togarar, sex belgiskir en tveir
brezkir.
☆
Tryggingastofnun ríkisins,
sem verið hefur til húsa á fleiri
en einum stað í bænum, hefur
nú flutt alla starfsemi sína í
nýtt, stórt hús á Laugavegi 114.
Hús þetta er 6400 teningsmetrar
og hefur Tryggingastofnunin
tekið það á leigu til ársloka 1958
og tryggt sér kauprétt á eign-
inni að þeim tíma liðnum.
☆
I desembermánuði sl. var út-
hlutað úr félagsheimilasjóði.
Umsækjendur voru 44 og hlutu
27 félagsheimili styrk. Byrjað
hafði verið á byggingu 10 þess-
ara heimila árið 1953. Fram að
þessum tíma hafa alls verið
greiddar 6.2 miljónir króna úr
félagsheimilasjóði til 67 félags-
heimila og er byggingarkostnað-
ur þeirra samtals um 16 miljón-
ir króna.
☆
I Vestmannaeyjum hefur ver-
ið gjörður uppdráttur að bóka-
og byggðasafnsbyggingu, og er
ætlunin að hefja framkvæmdir
á þessu ári.
☆
Á miðvikudaginn var opnuð í
Þjóðminjasafninu í Reykjavík'
sýning kínverskra listgripa, sem
brezku sendiherrahjónin í Reyk-
javík, James Henderson og kona
hans, eiga og hafa góðfúslega
lánað safnniu um stundarsakir.
Á sýningu þessari eru um hundr
að gripir, þar af um 70 úr jaði-
steini og fjöldi þeirra frá því
mörgum árum fyrir Krist. Enn
fremur eru þar nokkrir æva-
fornir gripir úr bronzi og vegg-
málverk.
Brezki hljómsveitarstjórinn
Eugene Goossens er væntanleg-
ur hingað til lands í mánaðarlok-
in á vegum Sinfóníhljómsveit-
arinnar, og er ákveðið að hann
stjórni hljómleikum hennar sjö-
unda febrúar næstkomandi. Síð-
ustu árin hefúr Goossens eink-
um starfað í Ástralíu. — Sín-
fóníuhljómsveitin hélt hljóm-
leika í Þjóðleikhúsinu á þriðju-
dagskvöldið og ve r k e f t i r
Brahms, Mozart og Duka. Þur-
íður Pálsdóttir söng einsöng með
hljómsveitinni. Stjórnandi var
Robert A. Ottóson.
☆
I gær var frumsýning í Þjóð-
leikhúsinu á ævintýraleiknum
Ferðinni til tunglsins. Leikstjóri
er Simon Edwardsen. — Hinn
28. þ. m., á 200 ára ártíð Hol-
bergs, verður sýndur þar leikur-
inn Æðikollurinn eftir Holberg
í þýðingu Jakobs Benediktsson-
ar magisters. Leikstjóri verður
Lárus Pálsson. Þjóðleikhúsið
hefur nú sýnt Pilt og stúlku 12
sinnum og verið uppselt á
hverja sýningu. — Leikfélag
Reykjavíkur sýnir um þessar
mundir sjónleikinn Mýs og
menn eftir Steinbeck.
☆
Haustið 1949 veitti mennta-
málaráðuneytið fimm erlendum
stúdentum styrk til þess að
leggju stund á íslenzku við Há-
skóla íslands. Styrkur þessi hef-
ur síðan verið veittur árlega og
hafa yfir 20 stúdentar frá 12 Iönd
um notið hans. Halldór Halldórs-
son dósent hefur kennt stúdent-
unum á sérstökum námskeiðum
og hefur árangur verið góður.
Nú eru 25 erlendir stúdentar
innritaðir til náms í Háskóla Is-
lands, auk þess sækja þar marg-
ir aðrir útlendingar tíma í ís-
lenzku.
☆
Ferðaskrifstofa ríkisins hef-
ur ákveðið að efna til ferðalaga
á hestum næsta sumar og verð-
ur ferðast um Borgarfjörðinn.
Um 25 menn munu komast í
hverja ferð og verður farið viku-
lega. Farnar verða tvær hóp-
ferðir til meginlands Evrópu í
vor á vegum Ferðaskrifstofunn-
ar og verður farið með lang-
ferðabifreið héðan og haldið alla
leið suður til Italíu og Miðjaðar-
hafsstrandar Frakklands.
5ír
Sir Edmund Hillary, sá er
fyrstur gekk á Everest-tind á-
samt Nepal-manninum Tensing,
kom til Reykjavíkur á miðviku-
dagskvöldið á vegum tímarits-
ins Helgafells og flutti erindi um
leiðangurinn á föstudagskvöldið
í Austurbæjarbíó í Reykjavík.
Hann sýndi jafnframt á annað
hundrað litmyndir, sem teknar
voru í þessu ævintýralega ferða-
lagi. Annar fyrirlestur hans í
Reykjavík var í dag, einnig í
Austurbæjarbíó.
☆
Skagfirðingar hafa látið gera
kvikmynd af héraði sínu, lands-
lagi, sögustöðum, atvinnuhátt-
um fornum og nýjum og sér-
kennilegum og fögrum stöðum.
Mynd þessi er ekki fullgerð, en
lokið mun við hana við fyrstu
hentugleika.
Þrjótíu óra þingmannsafmæli
Bernharðs Stefónssonar
Hefur reynzt giftudrjúgur full- j
trúi héraðsins
Einn kunnasti og mikilhæfasti
þingmaður Framsóknarflokksins
Bernharð Stefánsson, 1. þing-
maður Eyfirðinga, átti 30 ára
þingmannsafmæli fyrsta vetrar-
dag síðastliðinn. Var hann fyrst
kjörinn þingmaður Eyfirðinga
árið 1923 og hefur jafnan verið
endurkosinn síðan. Aðeins einn
núverandi þingmaður mun eiga
jafnlangan þingmennskuferil að
baki. Er það Jóhann Þ. Jósefs-
son, þingmaður Vestmannaeyja-
kaupstaðar .
Kosningabaráttan hér 1923
var lengi í minnúm höfð, ekki
sízt fyrir það, að þá kom fyrst
fram á orrustuvöll stjórnmál-
anna ungur bóndi, sem vakti
mikla athygli f y r i r fágæta
mælsku og orðsnilld og rökfast-
an málflutning og mikla þekk-
ingu á stjórnmálum landsins og
atvinnuháttum þess. Þessi mað-
ur var Bernharð Stefánsson, þá
bóndi að Þvera í Öxnadal, og
hann sigraði líka í kosningunni
eftir harðan bardaga.
Síðan hefur Bernharð marga
hildi háð á sviði stjórnmálanna
heima í héraði og í sölum Al-
þingis og víðar, og jafnan beitt
sömu vopnum og reyndust hon-
um sigursælust 1923: einurð og
festu í skoðunum, fullum dreng-
skap og heilindum í málflutn-
ingi.
Þessir eiginleikar Bernharðs,
samfara mikilli þekkingu á sögu
landsins, atvinnuháttum og lög-
gjafarmálum, hafa ekki aðeins
dugað honum til þess að verða
einn hinn nýtasti þingmaður
fyrr og síðar, heldur einnig á-
unnið honum vinsældir og virð-
ingu langt út fyrir raðir sam-
herjanna.
Eftir 30 ára þingmennskuferil
á Bernharð Stefánsson miklum
vinsældum að fagna almennt í
landinu, hvar sem menn annars
standa í flokki. En samflokks-
menn hans — og Eyfirðingar
sérstaklega — hafa þó ríkasta á-
stæðu til þss að þakka honum
prýðilga unnin störf á vettvangi
stjórnmálanna í þrjá áratugi.
Trauslur þingfulltrúi — ein-
lægur samvinnumaður
Hér er ek-ki ætlunin að rekja
æviferil Bernharðs eða þingsögu
í einstökum atriðum heldur að-
eins að minna á þessi tímamót.
Um 20 ára skeið unnu þeir
Einar á Eyrarlandi og Bernharð
saman að framfaramálum hérað-
sins og varð mikið ágengt, enda
var samvinna þeirra hin ákjós-
anlegasta. En þótt andstæðingar
í stjórnmálum hafi farið með
umboð héraðsins ásamt Bern-
harð síðan 1942 hefur Bernharð
aldrei látið ágreining við þá
um almenn mál standa í vegi
fyrir eðlilegri samvinnu um
hagsmuna- og framfaramál hér-
aðsins ,enda hafa þeir kunnað
að meta drengskap og ágæta
hæfileika Bernharðs og fylgt for
ustu hans í þeim málum, er varð-
að hafa hagsmuni héraðsins sér-
staklega. Samvinnumenn hérað-
sins mega og minnast þess á
þessum tímamótum í ævi Bern-
harðs, að hann hefur alla ævi
verið traustur og einlægur sam-
vinnumaður og einn hinn skel-
eggasti talsmaður samvinnu-
stefnunnar á þingi.
Það er réttmætt og skylt að
minnast þessa drengilega og á-
gæta fulltrúa héraðsins á þingi
á 30 ára þingmannsafmæli hans.
Um langt skeið gegndi hann
virðingarstöðum á Alþingi, sem
verðugt var. Þótt hann hafi nú—
af annarlegum ástæðum — ekki
verið kjörinn til þeirra aftur, er
víst, að álit hans og vinsældir
meðal Eýfirðinga hafa ekki sett
niður ,heldur þvert á móti. Þeir
standa enn sem fyrr traustlega
að baki sínum þaulreynda og
ágæta þingmanni og treysta hon
um sem fyrr til ódeigrar baráttu
fyrir öllum góðum málum.
DAGUR, 6. nóv.
ferðabifreið héðan og haldið alla menn hans og Eyfirðingar — DA<
Sjóslys og drukknanir nólega helmingi fleiri
en venjulega og banaslys ó landi óvenju tíð
Ár.;* 1,'Ao -------------------------------------—-----
Árið 1953, sem nú er að líða,
hefur verið óvenju mikið slysa-
ár. 78 manns hafa farist af Is-
lendingum hér við land og á
landi, þar af eru drukknanir og
sjóslys 39, nálega helmingi fleiri
en venjulega, enda umferðarslys
ekki talin þar með.
I heildartölunni eru tvö dauða
slys á útlendum mönnum, sem
fórust af slysförum hér í þjón-
ustu íslenzkra aðila.
Samkvæmt s k ý r s 1 u , sem
Slysavarnafélagið lét Alþýðu-
blaðinu í té í gær, fórust með
skipum 18, útbyrðis féllu vegna
brotsjóa 6, af slysförum dó einn
og 14 drukknuðu við land eða i
ám og vötnum.
Alls fórust 24 af ýmislegum
dauðaslysum á landi öðrum en
umferðarslysum. Fimm fórust
af falli, þar af tveir af hestbaki,
3 dóu af slysförum við störf sín,
3 urðu úti, 4 létust af völdum
bruna, 2 af köfnun, 5 af eitri og
2 fórust í snjóflóði. Þá fórust hér
þrjár amerískar flugvélar og
bjargaðist enginn af áhöfnum
þeirra, alls 23 menn.
Umferðarslys munu ekki hafa
oriðð til muna fleiri á þessu ári
en venjulega. Létust alls 15
menn af þeim sökum, þar af 15
í Reykjavík. Sex urðu fyrir bif-
reiðum og slösuðust til bana, 3
dóu við árekstra, 2 er bifreið
valt, 3 af falli af palli bifreiða og
einn vegna viðgerðar á bifreið.
Á árinu 1953 var bjargað fyrir
atbeina Slysavarnafélagsins 30
mannslífum og 18 var bjargað af
öðrum aðilum eða af sjálfs dáð-
um úr bráðum háska. Þarna er
þó ekki meðtalin öll sú mikla
hjálp, sem björgunarskipin hafa
veitt sjófarendum á árinu vegna
þess, að skýrslur um það eru
ekki tilbúnar.
Sjúkraflugvélin flutti samtals
56 sjúklinga frá ýmsum stöðum
á landinu fyrir utan öll leitarflug
og aðra aðstoð og hjálp er flug-
vélin hefur veitt, er báta hefur
vantað, fólk týnzt o. s. frv.
KAUPENDUR LÖGBERGS
Á ÍSLANDI
Gerið svo vel að senda mér sem fyrst greiðslu fyrir
yfirstandandi árgang Lögbergs, kr. 75.00. Dragið
ekki að greiða andvirðið. Það léttir innheimtuna.
Æskilegt að gjaldið sé sent í póstávísun. Þeir sem
eiga ógreidda eldri árganga, eru vinsamlega beðnir
að snúa sér til mín.
SINDRI SIGURJÓNSSON
LANGHOLTSVEGI 206 — BEYKJAVtK