Lögberg - 01.04.1954, Síða 5
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 1. APRIL 1954
X ÁliLGAHÍL
IWENNA
Ritstjóri: INGIBJÖRG JÓNSSON
ELÍZABET POLSON ÁTTATÍU OG FIMM ÁRA
Á laugardaginn í þessari viku,
apríl, á merkiskonan, frú
Elízabet Polson 85 ára afmæli; í
Wefni þess heimsótti ritstjóri
vennasíðu Lögbergs hana, en
ý11 er til heimjlis hjá dóttur
sinni Línu og tengdasyni Paul
^oodman bæjarfulltrúa, að 652
oulding Street hér í borg, og
nýtur þar mikillar ástúðar. —
»Eg vil ekki, að þú segir mikið
niig, né hrósir mér, því það
® ekki skilið“, sagði frú
hzabet, „það sem mest er um
vert var, að guð blessaði mig
með því að gefa mér góðan
jnann, mörg góð börn og ástúð-
eg tengdabörn, sem hafa reynzt
mer framúrskarandi vel“. —
Frú Elízabet er fædd 3. apríl
69 að Krithóli í Lýtingsstaða-
rePP. Skagafirði. Fluttist hún
með móður sinni, Elízabetu
onsdóttur, sem þá var ekkja, og
Jorum hálfsystkinum til Can-
aúa með stóra hópnum svokall-
aða’ sumarið 1876, þá aðeins 7
®ra- Hún hefir því lifað allt
andnám Islendinga hér um
s óðir svo að segja frá upphafi,
°g kann frá mörgu að segja, því
a* minni hefir hún frábært og
greinargóð mjög, enda á hún
ú þeirrar ættar að telja; faðir
ennar, Gísli Konráð Eiríksson,
lar dóttursonur Gísla hins fróða
Sagnritara Konráðssonar; voru
Pyir faðir hennar og Indriði
'narsson leikritahöfundur
systrasynir, en Brynleifur To-
^asson, höfundur bókanna,
v®r er maSurinn. og frú Elíza-
et eru bræðrabörn.
Móðuramma frú Elízabetar
V«r fJuriður dóttir Worms Beck
a Geitaskarði í Húnaþingi. Sem
mmi upp á hinn meðfædda
a uga frú Elízabetar fyrir sagna
r°ðleik má geta þess, að hún
Seymir í minni frásagnir móður
S1nnar, Elízabetar Jónsdóttur,
Um hina dramatísku sorgarvið-
>Ur®/ 1 því héraði á öndverðri
' ðlci — Natansmálið— en sú
S'ðarnefnda hafði heyrt um þá
a vörum móðursýstur sinnar,
lzabetar Wormsdóttur; kann
ru Elízabet að segja frá atvik-
Um í því sambandi, sem ekki
haf
bet
a verið bókuð. — Frú Elíza-
nnan glöggt skáldið Bólu-
Jalmar; kom hann að Krithóli
0rið 1875, en hann lézt þá um
0marið. Var honum mjög farin
förlast sýn. Elízabet, sem þá
ar sex ára, man, að það kom í
^ennar hlut að leiða hann um
,^'nn, hvert sem hann vildi
j?r®; Ekki sagði hún, að sér
r0n*.ist mynd sú, er birtist í Eim-
kv s ni vera llk Hjálmari; hún
find‘St muna ui;lii' bans vel’ °g
. lsi- sér frændum hans hér
o Pa til hans, þeim Þorsteini
j. ^nldimar, sonum Pálma
^arussonar; hinum fyrrnefnda
vaxtarlagi, en þeim síðar-
nernda að andlitsfalli.
Elí atburða minnist frú
hafZat)et U leiðinni vestur um
v .sk/fun móðir hennar hafa
sHka kJarkmikil kona’ að takast
Trxex a hendur út í óvissuna
elzt ^ Pnrn a unga aldri, hið
u a !6 ára. Man hún þegar
PPskipað var farangri útflytj-
ge.fnna 1 Lieth á Skotlandi.
ag . móðir hennar þar til allir
þe lr böfðu lokið verkinu, en
arað bennar farangri kom,
far 1 Un barn við hvert stykki
un n§ursins um leið og því var
þó^hV?3^ °g X^ndi engU’ sem
sj£r n 1 ýnisa aðra, er nutu for-
Jóna^ karlmanna- Sigtryggur
reyndiV,..yar fararstlóri og
Eom t fl°lskyidunni hið bezta.
þar J kun til Gimli og dvaldi
þar <m Veturinn. Gekk Elízabet
kvaðWla ti] Jennie Taylor;
ensku Un kafa reynt að læra
Nýja ,Ineð PVl að lesa kafla úr
lenzku estamentinu, fyrst á ís-
befði n°g SVo a ensku’ en ekki
Pað gengið greitt.
Frú Elízabet Polson
Um vorið 1877 flutti móðir
hennar norður í Árnesbyggð
með barnahópinn, nam land og
nefndi Mel. Aldrei segist Elíza-
bet gleyma „stjórnarstónni“,
henni fylgdu 22 ílát, pottar,
pönnur o. s. frv. Hin gljáandi
blikkausa var fegurri og dýr-
mætari í hennar augum, en hinn
vandaðisti silfurbikar á síðari
árum; fann hún mikla nautn í
því að mega drekka úr ausunni.
En nú bar vágest að garði; öll
börnin lögðust í bóluveikinni, og
yngsti bróðir hennar, Árni, lézt,
11 ára að aldri. Dvaldi fjölskyld-
an að Mel í þrjú misseri og fór
þaðan norður að íslendingafljóti
og var þar í einn vetur. Þar var
skóli haldinn í öðrum enda
prentsmiðjuhúss Framfara að
Lundi. Kendu þar fjórir kennar-
ar um veturinn ókeypis: Séra
Halldór Briem kenndi kristin-
fræði og reikning; Torfhildur
Hólm, íslenzku; Sigtryggur
Jónasson ensku, og kona hans,
Rannveig Briem, kenndi skrift.
Innritaðist Elízabet i skólann og
gekk henni nú betur lærdómur-
inn en áður; minnist hún þess,
að einn nemandinn var Gunn-
steinn heitinn Eyjólfsson. Frú
Rannveig var litlu stúlkunni
góð; tók hana oft heim með sér
að Möðruvöllum og veitti henni
góðgerðir. Segist frú Elízabet
jafnan minnast þessarar stilltú,
skýru og góðu konu með virð-
ingu og dáir hún hana meira en
flestar aðrar konur, er hún hefir
kynnzt á lífsleiðinni.
Vorið 1879 fluttist fjölskyldan
til Winnipeg; var þar um meiri
atvinnu að ræða fyrir móðurina
og unglingana; jafnvel Elízabet
litla, sem nú var 10 ára, gat
ýmislegt gert, svo sem að passa
börn og túlka fyrir hina og
aðra, því að hún lærði fljótt
enskuna; börn á hennar aldri
læra tungumál ótrúlega fljótt.
Þegar hún var komin á ferm-
ingaraldur, skrifaði faðir hennar
henni, en hann hafði sezt að í
Norður-Dakota; bauð hann dótt-
ur sinni að koma suður og ganga
á skóla og fermast, því að ekki
var um það leyti íslenzkur prest-
ur í Winnipeg. Þá hún það og
dvaldi hjá föður sínum árlangt;
sótti skóla, en séra Hans B.
Thorgrímsson fermdi hana í
Víkurkirkju að Mountain, fyrstu
kirkjunni, er íslendingar reystu
í Vesturheimi.
Fór hún síðan til móður sinnar
í Winnipeg og vegnaði allri fjöl-
skyldunni vel. Elzt systkinanna
var Anna, Mrs. Baker, kunn
þrekkona, er rak í mörg ár
greiðasölu í Langruth. Elzti
bróðirinn, Jón Anderson, varð
dugnaðarmaður; varð hann hinn
fyrsti íslendingur til að setja á
stofn kjötverzlun í Winnipeg;
stóð verzlunarhús hans á aðal-
strætinu, þar sem nú er Toronto
Trust byggingin, en gripahús
hans voru spölkorn fyrir
aftan verzlunarhúsið; kvæntist
hann hérlendri konu og rak síð-
ar griparækt í stórum stíl að
St. Andrews, Manitoba. Jóhann
átti Arnfríði Jóhannsdóttur
systur Eggerts Jóhannssonar
ritstjóra Heimskringlu. Fluttust
þau til Seattle og dó hann þar.
Þann 3. júní 1888 giftist Elíza-
bet; átti hún August Gunnars-
son Pálsson (Polson) vinsælan
verzlunarmann. Var faðir hans
ættaður úr Skagafirði, en móðir
hans, Jóhanna Ingjaldsdóttir úr
Kelduhverfi. Bjuggu þau hjónin
fyrst í Winnipeg, en fluttust til
Gimli um aldamótin og dvöldu
þar í 18 ár og fluttu svo til Win-
nipeg; þar andaðist August Páls-
son 1944, 79 ára að aldri. Börn
þeirra voru þessi:
Jóhanna, Mrs. Frank Ward,
Winnipeg; Elisabeth, Mrs. Björn
Bjarnarson, Langruth, Man.;
Archibald Jón, féll í fyrri heims-
styrjöldinni; Florence N., Mrs.
B. M. Paulson, Winnipeg; Mar-
garet, Mrs. Valdimar Bjarnar-
son, Langruth, Man.; Augusta
Sigríður Björg, Mrs. John M.
Jackson, M.D., Essendale, B.C.;
Robert Wyatt, kvæntur Ólöfu
Egilsson, Langruth, Man.; Lína
Byron, Mrs. Paul Goodman,
Winnipeg; Fjóla Alexandra,
Mrs. Arthur T. Goodman, Win-
nipeg; Jóhann Konrad, kvæntur
Flóru McCarthy, Monrovia,
Liberia, W. Africa; Florence
Archibell Jóhanna, Mrs. Cyril
Cartwright, Winnipeg.
Komu Polson-hjónin þessum
stóra barnahóp vel til mennta.
Barnabörnin eru orðin 18, enn-
fremur mörg barnabarnabörn.
Ættleggur frú Elízabetar er því
orðinn stór, allt gervilegt og gott
fólk.
Mætti ætla að það hefði verið
ærið ævistarf hverri konu, að
annast um þetta stóra heimili og
ala upp öll börnin, en frú Elíza-
bet hefir jafnframt tekið mikinn
og góðan þátt í félagslífinu;
hefir verið góður stuðningsmað-
ur kirkju sinnar, og gestrisin
með afbrigðum. Hún les mikið
og fylgist vel með almennings-
málum. — „Ég er búin að lesa
hvern staf í íslenzku blöðunum“,
sagði hún, þegar ég hitti hana i
fyrri viku, og fór hún síðan að
ræða um ýmislegt, sem hún
hafði lesið í þeim. — Oft hefi ég
séð hana standa upp á almenn-
um fundum og ræða stillilega en
af fullri einurð um þau mál, er
fyrir fundinum lágu. Ást hennar
á íslenzkunni og virðing fyrir
uppruna sínum. er engin upp-
gerð. Minnist ég þess, hve oft
hún fylgdi ungri dótturdóttur
sinni í Laugardagsskólann og
hafði mikinn áhuga á starfi
skólans. Þökk sé henni fyrir
það. — En hún er jafnvíg á bæði
málin og fylgist ekki síður með
almenningsmálum þessa lands.
Frú Elízabet er fríð kona, vin-
gjarnleg og hress í viðmóti;
kemur ávalt til dyranna eins og
hún er klædd. Þótt aldurinn sé
orðinn hár, ber hún hann vel,
bæði líkamlega og andlega;
hugsunin er skýr og minnið
óbilandi. Vildi ég óska, að ein-
hver sagnfræðingur vildi skrá
eitthvað af þem mikla fróðleik
um landnámið, sem hún geymir
í huga sér. — Frú Elízabet Pol-
son á marga vini, sem dreyfðir
eru vítt um byggðir Islendinga
í þessari álfu; frá þeim öllum
streyma til hennar blessunar-
óskir í tilefni af afmælinu, og
fylgja þær henni fram á braut-
arenda.
MARIO SCELBA
Hveitið . . .
Framhald af bls. 4
oft margar mílur í burtu, og
flytja svo í kaupstaðina á haust-
in, en þar eiga þeir hús. Með
þessu móti er skepnum að fækka
vegna þess, að þeir vilja ekki
binda sig árið í kring yfir nokkr-
um skepnum. Þess má geta til
samanburðar, að kindur eru
varla til hér, en nautakjötið
kostar frá 60 cent upp í einn
dollar, og 30 cent enska pundið,
og fiskurinn kostar 40 cent og
upp í 90 cent enska pundið, og
það er vatnafiskur, sem ekki er
góður til matar, miðað við ís-
lenzkan sjávarfisk.
Róbert Jack
—TIMINN, 26. febr.
ílalskir kommúnistar óttast
hann mest af öllum and-
stæðingum sínum
I seinustu viku tókst einum af
leiðtogum kristilega flokksins í
Italíu, Mario Scelba, að mynda
nýja ríkisstjórn, sem er sú
fjórða í röðinni eftir þingkosn-
ingarnar, sem fóru fram í júní-
mánuði síðastliðnum. I þessari
viku mun hin nýja stjórn leita
eftir tarustsyfirlýsingu þingsins
og er búist við að hún verði
veitt. Þingmeirihluti hinnar
nýju stjórnar verður hins vegar
mjög tæpur eða innan við 20 at-
kvæði. Almennt er því spáð, að
hún verði skammlíf.
Þær þrjár .stjórnir, sem farið
hafa með völd í Italíu eftir þing-
kosningarnar á síðastl. sumri
hafa allar verið myndaðar af
kristilega flokknum einum og
hafa því allar verið minnihluta-
stjórnir. Líf sitt hafa þeir átt
undir konungssinnum. Hin nýja
stjórn er hins vegar meirihluta-
stjórn, því að ásamt kristilega
flokknum standa að henni hæg-
fara jafnaðarmannaflokkurinn
og frjálslyndi flokkurinn og eiga
þeir báðir fulltrúa í henni.
Saragat, formaður hægfara jafn-
aðarmannaflokksins, er nú vara-
forsætisráðherra, en auk þess
eru fjármálaráðherrann og
verkamálaráðherrann úr flokki
hans. Flokkur Saragats hefir
greitt atkvæði gegn þeim minni-
hlutastjórnum, sem kristilegi
flokkurinn myndaði eftir kosn-
ingarnar, en fyrir kosningarnar
átti hann sæti í stjórninni. Eftir
kosningarnar tók hann fyrst þá
stefnu að fara ekki í stjórn,
nema hinn róttæki jafnaðar-
mannaflokkur Nennis tæki einn-
ig þátt í henni. Frá þessu hefir
hann nú horfið, enda séð, að
hann myndi ekki græða á áfram
haldandi grundroða. Þrátt fyrir
þetta er þó ekki enn fullráðjð,
hvað Saragat ætlast fyrir, en
hann getur haft líf hinnar nýju
stjornar í hendi sér.
Sikileyingur. sem er andvígur
einræðissiefnum
Kommúnistar hafa tekið þess-
ari nýju stjórn verr en nokkurri
annarri, sem mynduð hefir verið
á Italíu síðan stríðinu lauk. Þeir
hafa skipulagt gegn henni mót-
mælaverkföll um landið allt.
Ástæðan er sú, að þeir óttast
hinn nýja forsætisráðherra,
Mario Scelba, meira en nokkurn
annan andstæðing sinn.
Mario Scelba er 52 ára gamall,
Sikileyingur að ætt og uppruna.
Hann er lögfræðingur að
menntun. Afskipti sín af stjórn-
málum hóf hann fyrst, þegar
hann var átján ára gamall, en
þá stofnaði Luigi Sturso kristi-
legan flokk, sem talinn er eins
konar undanfari kristilega
flokksins, sem nú er stærsti
flokkur ítalíu. Flokkur Sturso
náði ekki verulegu fylgi, en
meðal þeirra, sem strax í upp-
hafi skipuðu sér undir merki
hans, var Mario Scelba. Scelba
skrifaði m. a. mikið í blöð flokks
ins og önnur kristileg blöð á
þessum árum. Fljótlega kom til
átaka milli þessa flokks og fas-
ista Mussolini og leiddi það m. a.
af sér, að Sturso flýði til Ame-
ríku, en blöð flokksins voru
bönnuð. Scelba hætti þá afskipt-
um af stjórnmálum og sinnti
eingöngu löfræðistörfum eftir
það meðan. Mussolini fór með
völd. Allt frá þessum tíma er
hann mjög andvígur öllum ein-
ræðisstefnum og hefir t. d. að
undanförnu verið sá af foringj-
um kristilega flokksins, er
einna andvígastur hefir verið
samstarfi við konungssinna og
nýfaista. Af andstæðingum sín-
um itl vinstri er hann þó talinn
tilheyra hægra armi kristilega
flokksins, en þeir, sem vel
þekkja til, álíta það ekki rétt.
Málefnalega fylgir hann vinstri
arminum, en staða hans á und-
anförnum árum hafi komið því
orði á hann, að hann sé hægri
maður. Stjórnarmyndun Scelba
bendir til þess, að hann sé and-
vígur hægri stjórn, en vilji
treysta vald miðflokkanna
áfram.
Röskur innanríkisráðherra
Strax í stríðslokin, þegar
kristlegi flokkurinn v var stofn-
aður, gerðist Scelba einn af for-
ustumönnum hans. Hann var
póstmálaráðherra í stjórn Parri,
sem var mynduð 1945, og líka
stjórnmálaráðherra í fyrstu
stjórn de Gasperi. Fljótlega eftir
það, gerði de Gasperi hann að
innanríkisráðherra og gegndi
hann þeirri stöðu óslitið þangað
til eftir kosningarar í sumar.
í fyrstu efuðust margir um,
að þetta val de Gasperis væri
rétt. Scelba er ekki sérstaklega
mikill fyrir mann að sjá og er
fremur hægur og rólegur í fram-
göngu. Hann þótti því ekki lík-
legur til þeirra umsvifa og at-
hafna, sem þetta starf myndi út-
heimta, en undir það heyrði lög-
reglustjórnin og þar með að
halda uppi lögum og reglu í
landinu. Víða ríkti þá mikil óöld
í ítalíu. Kommúnistar höfðu
komið sér upp all öflugum
skæruliðasveitum seinustu mán-
uði styrjaldarinnar og beittu
þeim enn óspart, einkum þó í
Norður-ítalíu. Víða létu og ein-
stakir stigamannaflokkar til sín
taka, en þeir höfðu orðið til í
upplausn stríðslokanna. Svartur
markaður og önnur slík lögbrot
döfnuðu í ríkum mæli.
Það er nú almennt viðurkennt,
að Scelba hafa heppnast starf
sitt furðulega vel. Honum tókst
að koma upp bezta lögregluliði,
sem ítalir hafa nokkru sinni átt.
1 því eru um 200 þús. manns.
Kunnugir telja, að það sé vel æft
og skipulagt og stjórn þess fari
vel úr hendi. Margir telja, að
það sé stórum traustara og ör-
uggara til stórræða en herinn.
Óumdeilanlegt er líka, að því
hefir tekizt að friða landið Upp-
vöðslusemi kommúnista hefir að
mestu leyti verið brotin á bak
aftur og þeir halda nú starfsemi
sinni innan löglegra marka. Þó
hafa verið að finnast fram á
þennan dag ólöglegar vopna-
birgðir, er þeir hafa komið fyrir
á leyndum stöðum. Glæfrastarf-
semi önnur hefir líka að mestu
leyti verið brotin á bak aftur,
svo að nú mun ástandið sízt lak-
ara í þeim efnum í Italíu en í
mörgum löndum öðrum. Einna
frægasta viðureignin, sem lög-
reglan háði við slíkan glæpalýð,
var viðureign hennar við sikil-
eyska stigamanna-foringjann
Giuliano, en hún vakti athygli
víða um heim. Scelba tók sjálfur
að sér að lokum að stjórna að-
förinni að honum.
Þessi framganga Scelba hefir
að sjálfsögðu orðið til þess, að
hann hefir unnið sér hatur
kommúnista og fylgiflokks
þeirra, Nenni-sósíalistanna. En
konungssinnum og nýfasistum
hefir ekki heldur líkað neitt
betur við hann, því að hann hef-
ir ekki síður látð hndra ólögleg
vinnubrögð þeirra. Þess vegna
má telja það víst ,að öfgaflokk-
arnir til hægri og vinstri rtiuni
gera sitt ýtrasta til þess að
steypa stjórn Scelba af stóli.
Stefnuskrá sú, sem stjórn
Scelba hefir sett sér, er yfirleitt
róttæk. Hún lofar ýmsum rót-
tækum aðgerðum til að vinna
bug á atvinnuleysinu og bæta
kjör almennings. Vegna þess ár-
angurs, er Scelba hefir náð sem
innanríkisráðherra, er hann af
mörgum talinn manna líklegast-
ur til að ná árangri í framan-
greindum efnum einnig. And-
stæðingarnir munu hins vegar
unna honum þess síður en
nokkrum Æianni öðrum. Þess
vegna munu þeir vafalaust
reyna að fella hann sem fyrst,
enda sést það vel á verkfalls-
öldunni, sem kommúnistar eru
að reyna að reisa gegn honum.
Framtíð stjórnar hans veltur
mikið á því, hvernig samstarfið
tekst milli hans og Saragats, en
fram að þessu hefir verið grunnt
á því góða milli þeirra.
En þótt þessi stjórn Scelba
falli, er langt frá því, að hann
sé þar með úr sögunni.. Senni-
legt er, að þá reyni de Gasperi
stjórnarmyndun, en mistakist
tilraun hans, er ekki talið að um
annað verði að ræða en nýjar
þingkosningar. Úrslit þeirra eru
að sjálfsögðu óráðin. Kommún-
istar gera sér vonir um það og
vafalaust með réttu, að vaxandi
glundroði verði vatn á myllu
þeirra. En glundroðinn getur
líka aukið fylgi manna eins og
Scelba. Það er meira en líklegt,
að vaxi glundroðinn í stjórn-
málalífi ítalíu, kjósi hin lýð-
ræðislegu öfl að fylkja sér um
mann eins og Scelba og reyna
þannig að forðast einræði kom-
múnista eða hægri sinna.
—TIMINN, 13. febr.
Coiion Bag Sale
BLEACHED SUGAR .29
BLEACHED FLOUR .29
UNBLEACHED FLOUR .23
UNBLEACHED SUGAR .23
Orders less than 24, 2c per bag extra.
United Bag Co. Ltd.
145 Portage Ave. E. Wlnnlpeg
$2.00 Deposit for C.O.D.’s
Write for prices on new and used
Jut Bags.
Dept. 1M
u
EATON'S
Bulldog" Batteries
Dependable battery with loads of power, designed to give sure
starts in any weather. 24-month adjustment guarantee. Sizes to fit
most any car, including 12-volt type for English car system.
Hígh Type—17-plate Bulldog
$13.65 Battery $16.35
Group 2—17-plate Bulldog
16.20 Battery 15.85
Long Type—17-plate Bulldog
13.85 Battery 16.40
20.75
Group 1—15-plate Bulldog
Battery ...............
Group 1—17-plate Bulldog
Battery ..................
Gow Type—17-plate Bulldog
Battery .................
English Type, 17-Volt
Auto Accessories Section, Main Floor, Donald Annex, Dial 3-2-5
ST. P ATON C?
LIMITED
MllllllllllllinilllllllllllllllllHIIUIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIilllllllllllllllllllllllllllllllllUIUIIIIIIIIIWIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHIIIIIIIIIIIIIIIIIIilllllllllllinilllllllUIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHIIIIIIIIIIIUIIIIIl
LÆGSTA
TIL
ÍSLANDS
ASeins $
310
fram og lil baka
iil Reykjavíkur
FLUGFAR
Grípið tækifærið og færið
yður í nyt fljótar, ódýrar og
ábyggilegar flugferðir til
íslands í sumar! Reglu-
bundið áætlunarflug frá
New York . . . Máltíðir inni-
faldar og annað til hress-
ingar.
SAMBÖND VIÐ FLESTAR STÓRBORGIR
Finnið umboðsmann ferðaskrifsiofunnar
ICELANDIC AIRLINES
15 West 47th Street, New York
PLazo 7-8585
IIIIIIIIIIIIIIIIHIIIIIIIIHIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIinilllllllllUIIIIIHIIIIIIIinillllllHHIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIlllllllllllUHtlllllinillllllllllllllllllllllHIIIIHIIUIIHIIHIIHIIIIIIIHIIUtlllHHIIWIIIIIIUHIIIIIIIIIIIIIIinHlltllHntllltllllimi.