Lögberg - 27.05.1954, Blaðsíða 8

Lögberg - 27.05.1954, Blaðsíða 8
8 LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 27. MAÍ 1954 Úr borg og bygð Samkoman í Árborg Á föstudagskvöldið var, 21. maí, efndi safnaðarnefnd lút- erska safnaðarins til samkomu í í kirkju sinni 'þar í borg. Sigurður Vopnfjörð hrepp- stjóri, forseti safnaðarnefndar setti samkomuna og stjórnaði henni. Leysti hann hlutverk sitt af hendi með prýði. Séra Bragi Friðriksson, prest- ur að Lundum, var aðalræðu- maður kvöldsins; flutti hann erindi um þau mál, sem hæst eru á baugi meðal heimaþjóðar- innar, svo sem handritamálið, landhelgisdeiluna o. s. frv. Var erindi hans hið fróðlegasta og vel og skörulega flutt. Jóhannes Pálsson lék nokkur lög á fiðlu með undirleik systur sinnar, frú Lilju Martin; enn- fremur stjórnaði hann sameigin- legum söng samkomugesta. Ungfrú Kristín Johnson, söng þrjú íslenzk lög, með undirleik Magnýar Sigurðsson. Thor Viking og séra Robert Jack ræddu um ísland og Canada; mælti hinn fyrrnefndi með Islandi en sá síðarnefndi með Canada. 1 samkomulok voru leikin nokkur íslenzk lög af hljóm- plötum. Því næst var sezt að rausnarlegum veitingum fram- bornum af kvenfélagi safnaðar- ins. Segja má, að samkoma þessi hafi tekizt vel, þótt kappræð- urnar hefðu mátt vera snarpari og fjörugri en raun varð á. — Aðsókn var góð. Ssíðastliðinn laugardag, 22. maí, voru gefin saman í hjóna- band þau Árni R. Thorkelson og Marie Tina Iees, verzlunar- mær. Brúðguminn er ættaður frá Ashern, Man., sonur Halldórs og Guðrúnar Thorkelson, sem þar bjuggu lengi, en eru nú til heimilis að 454 Victor St. hér í borg. ☆ Mrs. Paul J. Halldórsson frá Chicago kom til borgarinnar í heimsókn til systkina sinna og vina hér í borg og í Morden. Mun hún dvelja á þessum slóðum í tvær vikur. "A Realislic Approach to the Hereafter" by Winnipeg author Edith Hansson Bjornsson's Book Store 702 Sargent Ave. Winnipeg Á fimmtudaginn, 20. maí, voru gefin saman í hjónaband 1 Fyrstu lútersku kirkju af Dr. V. J. Eylands þau Catherine Elizabeth Brady, og Oliver Donald Olsen, stud. theol., hér í borginni. Er brúðguminn sonur þeirra Oliver B. og Rósu Olsen, sem til skamms tíma hafa átt heima hér, en eru nú búsett í Calgary, Alberta. Brúðurin, sem er hjúkrunarkona að menntun, er af íslenzkum ættum. Vegleg veizla fór fram að afstaðinni giftingunni; lögðu ungu hjónin svo af stað í brúðkaupsferð sína. ☆ Mrs. J .A. Árnason frá Oak Point var stödd í borginni í lok fyrri viku. ☆ Mr. H. J. Lindal fésýslumaður frá Californíu og Toronto dvelur í borginni um þessar mundir. « | — Hjónavígslur — Sigurrós Guðrún, einkadóttir Mr. og Mrs. J. O. Markússon, Árnes, Man., og Robert Theodore elzti sonur Mr. og Mrs. I. R. Kristjánsson, Gimli, Man., voru gefin saman í hjónaband í lút- ersku kirkjunni að Hnausum. Séra Harold S. Sigmar gifti. Marilyn Eva Erlendson, elzta dóttir Mr. og Mrs. John A. Er- lendson, og Allan John Ross voru gefin saman 8. maí í Sam- bandskirkjunni í Winnipeg. ___ Séra Philip M. Pétursson gifti. Raymond Indriðason, Selkirk, giftist Miss Alvina Unger, 8. maí. Séra Sigurður Ólafsson fram- kvæmdi hjónavígsluna. Mae Lenore, dóttir Mrs. A. V. Olson, Lundar, Man., og Mal- coln Carl MacGillivray voru gefin saman í hjónaband 1. maí. Séra Bragi Friðriksson gifti. Wallace Martin, sonur Mr. og Mrs. F. G. Bergman, Gimli, og Helen Margaret Cairns, River- ton, voru gefin saman í hjóna- band 1. maí. Séra Robert Jack framkvæmdi hjónavígsluna. Doreen Mabel, dóttir Mr. og Mrs. G. H. Sigurdson, Winnipeg,. og Harry Frederick Kabeznagel voru gefin saman í hjónaband í Baltimore, Maryland, 8. maí. Guðrún Lilja Thorey, dóttir Mr. og Mrs. Gestur Eythor Jacobson, Árborg, og Robert Jón, sonur Mr. og Mrs. John Is- feld, South Beach, Gimli, voru gefin saman í hjónaband 1. maí. Séra Robert Jack gifti. CHICKS FOR PROFIT White Leghorns Unsexed White Leghorn Puliets Approved 100 50 25 R.O.P. Sired 100 50 25 R.O.P. Bred 100 50 25 U8.50 $ 9.75 $ 5.15 36.00 18.50 9.50 •20.00 $10.50 $ 5.50 39.00 20.00 10.25 Barred Rorks Unsexed Barred Roek Pnllets 20.00 10.50 5.50 33.00 17.00 8.75 21.50 11.25 5.70 36.00 18.50 9.50 New Hampshires Unsxd. New Hampshire Pullets 20.00 10.50 5.50 33.00 17.00 8.55 21.50 11.25 5.70 36.00 18.50 9.50 Light Sussex Unsexed Light Sussex Pullets 519.00 $10.00 $5.25 31.00 16.00 8.25 20.00 10.80 5.50 33.00 17.00 8.75 R.O.P. Bred Chicks Are the kind that really lay And give you a better profit For the money that you pay. Black Australorps Unsxd Black Australorp Pullets 20.00 10.50 5.50 33.00 17.00 8.75 COCKERELS White Leghorns Heavy Breeds April Delivery 5.00 3.00 2.00 18.00 9.50 5.25 May DeUvery 6.00 3.50 2.00 20.00 10.50 5.50 FARMERS' CHICK HATCHERY Phone 59-3386 1050 Main Síreet Winnipeg, Man. IT PAYS TO SHOP AT EATON’S • Largest Assortment • Best All-Round Values • Goods Satisfactory or Money Refunded <^T. EATON C?,m,tED Mánudaginn 24. maí var jarð- sungin á Steep Rock frú Kristín Indíana Indriðadóttir Olson. Hún dó í Winnipeg 20. maí s.l. Séra Bragi Friðriksson flutti kveðjumál. Frú Olson var fædd 17. september 1875 í Böðvarsnesi í Fnjóskadal. Foréldrar hennar voru Sigurbjörg og Indriði Sig- urðsson. Hún kom til þessa lands árið 1902. Giftist eftirli'fandi manni sínum, Óla Jakobi Olson, 6. júní 1909. Þau bjuggu fyrst í Wapa, síðan á Asham Point, en á Steep Rock frá 1944. Börn þeirra eru: Jakobína Ólafía, nú Mrs. O. Nord, Fjóla Sigurbjörg, nú Mrs. S. Nord, Karl Herbert, Kristinn Óskar og Árni Herbert Kitchener. Frú Olson var myndarleg kona og vel gefin og vinsæl af öllum þeim, er henni kynntust. Voru þau hjónin mjög samrýmd í öllu, hvort sem leiðin lá um erfiðar brautir frumbýlingsár- anna eða, síðar, er leiðin var greiðfærari. íslenzkt þrek og kjarkur entist frú Olson til hinztu stundar. — Jarðarförin var mjög fjölmenn. ☆ Mr. Carl Thorsteinsson veður- fræðingur frá New Brunswick kom til borgarinnar síðastliðinn fimmtudagsmorgun til að vera við útför föðursystur sinnar, frú Solveigar Nielsen. ☆ Hr. Þóroddur Sigurðsson véla- verkfræðingur frá Reykjavík dvaldi nýlega nokkra daga hér í borginni; hann er í föðurætt af Patreksfirði, en að móðurættinni til frá Akranesi; þessi ungi mað- ur er útskrifaður af Mentaskóla Akureyrar, en lauk prófi í véla- verkfræði við Kaupmannahafn- arháskóla. ☆ Kaffisala fer fram í neðri sal Sambandskirkjunnar hér í borg á laugardaginn kemur frá kl. 2 til 4.30 e. h. Margt góðgæti á boðstólum. Vestur-íslenzkur æskulýðsleiðtogi ferðast um ísland í sumar Nýlega er kominn til Islands Matthías Þorfinnsson frá Minne- sota. Matthías kemur hingað á vegum FOA (Foreign Operation Administration) til að kynna hér æskulýðsfélagsskap þann, sem í hinum enskumælandi löndum er nefndur 4-H Clubs. Hér á landi var dálítið rætt og ritað um þennan félagsskap fyrir nokkr- um árum og hann nefndur „Hugur og hönd“, en hin 4 H, sem eru tákn félagsskaparins, tákna: hug, hönd, hjarta og heilbrigði. Matthías er af íslenzkum ætt- um eins og nafnið bendir til og talar allvel íslenzku, þó að hann sé fæddur vestra, í Norður- Dakota. Þar námu afi hans og amma land 1882, er þau fluttust vestur frá Brekkukoti í Hjalta- dal. En það er í frásögur fær- andi, að afi Matthíasar, Þorfinn- ur Jóhannesson, var blindur og kona hans, Elísabet Þorláksdótt- ir frá Hólum í Hjaltadal, brauzt til Ameríku með mann sinn þannig fatlaðan og 5 börn. Þau hjónin bjuggu um skeið í Hagakoti í Hjaltadal, en þar eru nú beitarhús frá Hólum. Þor- lákur Þorfinnsson, faðir Matt- híasar, mun hafa verið 17 ára, er fjölskyldan fluttist vestur. Þegar skáldið Matthías Joch- umsson var í Vesturheimi 1893 skírði hann Matthías Þorfinns- son og hlaut drengurinn nafn skáldsins. Matthías Þorfinnsson er menntaður sem jarðfræðingur (Soil conservation). Hann hefir starfað að landbúnaðarleiðbein- ingum frá því 1924, fyrst sem héraðsráðunautur og síðar sem ríkisráðunautur í Minnesota- ríki. Svo er til ætlazt að Matthías dveljist hér á landi 6—8 mán- uði. Er svo ráð fyrir gert að hann ferðist um á vegum Ung- mennafélags íslands til að kynna æskulýðsmálin, sem fyrr voru nefnd og sem Bandaríkjamenn leggja svo mikla áherzlu á. Snemma beygist krókurinn til þess sem verða vill. Þeir leggja því hið mesta kapp á að beina hug unglinganna í sveitunum, að búskapnum og framtíðar- möguleikunum, þeim, sem við hann eru tengdar » Stefán Ólafur Jónsson, kenn- ari, sem vinnur að útbreiðslu starfsíþróttanna, á vegum Ung- mennafélags íslands, mun ferð- ast með Matthíasi um landið og vinn ameð honum að þessari kynningarstarfsemi. Hér er mikil og góð kynning á ferðinni, er vonandi að henni verði vel tekið. Það er mikið happ slíku máli, er útlendingur, sem hing- að kemur til að kynna það, talar íslenzku reiprennandi, og hefir drukkið í sig við móðurhné ævintýrið um landið og þjóðina, sem hann nú er kominn til að kynnast og starfa fyrir. En það þarf enginn að tala mörg orð við Matthías Þorfinnsson til þess að verða þess var að hann hefir átt íslenzka foreldra. Móðir Matthíasar er enn á lífi, níræð, hún heitir Guðríður Guð- mundsdóttir Skúlasonar frá Reykjavöllum í Skagafirði. Hún er systir Barða Skúlasonar, lög- fræðings og ræðismanns í Port- land, Oregon. — Er hún af ætt Sveins læknis Pálssonar. Elísa- bet, amma Matthíasar, var föður systur séra Friðriks Friðriksson- ar, æskulýðsleiðtoga, svo að Matthías á ærinn frændgarð hér á landi. —Mbl., 4. maí Hver erum við? Framhald af bls. 5 jörðina og komast sjálfur til eða a. m. k. ná með áhrifum sínum til annarra hluta sólkerfisins. En hve þetta er þó lítilfjörlegt í samanburði við víðerni himin- geimsins, við ómælisvíddir al- heimsins, þar sem vetrarbraut- irnar svífa eins og hólmar í hundraða milljóna ljósára fjar- lægð. Framvinda lífsins á jörðinni, árangur skynsemi okkar og j vilja, þetta allt, sem rétt áður vakti með okkur stolt og sjálfs- traust, virðist okkur nú að engu gert vegna ómælis rúmsins. Og svo er líka ómæli tímans, loka- dauðinn, sem vofir yfir jörðinni, sólkerfinu, öllu athafnasviði okkar í nútíð og framtíð. Slíkar hugmyndir hvíla þungt á okkur, og okkur hættir til að örvænta. Erum við leiksoppar skynvillu? En ef til vill erum við slegnir skynvillu og miklum fyrir okkur gildi rúms og tíma, sem eru ekki annað en umgjörð skyjana okkar. Ef til vill skjátlast okkur, er við látum sem gildi einhvers verði mælt eftir rúmtaki eða tímalengd. Ef til vill er allur sá heimur, sem við þekkjum fyrir skynjanir okkar, allt frá otómi upp í stjörnuþokur, ekki annað en örlítil sneið víðari veraldar, sem einhverjar æðri mannverur kynnast ef til vill einhvern tíma. I Innan takamarka þessarar víðari veraldar kynni viðleitni okkar, sem miðuð er við Síríus, virðist okkur svo staðbundin og tímabundin, að fá aftur fullt gildi. Hugsast gæti, að vefari, sem væfi stórdúk og sneri rang- an að honum, áttaði sig ekki á því raunverulega verki, sem hann væri að vinna, er hann gæti snúið því við og staðið fyrir framan það. Þannig kann mannleg hugsun, er hún hefir náð hærra stigi, að skynja ef til vill einhvern tíma handan endimarka rúms og tíma eiginlegt gildi þess verks, sem hún hefir án afláts reynt að vinna og er sem framhald og fullkomnun á viðleitni lífsins. Þessi er hin æðsta von, sem vísindamaður getur yljað sér við á ævikvöldi sínu, er starf hans er að lokum komið. —Alþbk, 6. maí I Dóttir alþýðunnar Ég þakka fyrir bréfin, sem borizt hafa, og vænti þess, að áframhald verði á góðum undir- tektum, hvað þáttinn snertir. Hér kemur einn, sem ekki fer dult með viðfangsefni sitt við stökuna. Einar Sigurfinnsson: Mér er kátt við munaðs klið mærðargáttir kunnar. Tíðum dátt ég daðra við dóttur alþýðunnar. Og enn fremur segir hann: Gegnum myrkra geigvæn él geislar ljósir braga. Geymir það, sem gjört er vel gullnu letri saga. Þá lítur hann yfir ríki vetrar, og er þar að venju harla kulda- legt: Kaldur vetur, krapaél kremja dauðu stráin. Grána tindar, hrannar hvel, heyrist gnauða láin. Eins fer honum og okkur fleirum, að þykja „notalegur ylurinn“: Gott er vinum góðum með gleðistunda njóta. Hlýlegt orð ef hryggt er geð er helzt til raunabóta. Erum við ekki á sama máli um það, að þessi ráðstöfun geti verið allheppileg, þegar allt kemur til alls? Sami höfundur: Enginn maður um það veit hvað annars býr í hugarreit. Margur þögull þrautir ber og þunga byrði, er enginn sér. Og hérna kemur vinur okkar eins hress og glaður að vanda og lætur hvergi undan síga. Jósep S. Húnfjörð: Veiklun upp í vana kemst við að kvarta og æja. Var ég ekki fyrst og fremst fæddur til að hlæja? Færri munu svo mæla heilli huga. Sami: Þeim, er geðfelld grunda stef, gott er með að vaka. Vinsæl gleði veitist, ef vel er kveðin staka. Eitthvað finnst mér þetta grunsamlegur þenkimáti. Einna líkast því, að „áran“ — eða hvað það heitir, — yfir því sé með einhverjum skollablettum. Enn EU: Minni aldrei amar lund iðrun þess að geyma, þótt ég hafi stund ög stund stolizt til að gleyma. Þeir ,sem vildu kveða með í þessum þætti, sendi bréf sín og nöfn Alþýðublaðinu, merkt: „Dóttir alþýðunnar“. —Alþbl. Lesið Lögberg MESSUBOÐ Fyrsta lúterska kirkja Sr. V. J. Eylands, Dr. TheoL Heimili 686 Banning Street. Sími 30 744. Guðsþjónustur á hverjum sunnudegi: Á ensku kl. 11 f. h. Á íslenzku kl. 7 e. h. ☆ Lúterska kirkjan í Selkirk Sunnud. 30. maí: Ensk messa, kl. 11 ár. Með- limir Bandalags lúterskra kvenna, á ársþingi félagsins í Selkirk, verða heiðursgestir við guðsþjónustuna. Séra Robert Jack, sóknarprestur í Árborg, prédikar. Ensk messa, kl. 7 síðdegis. — Kveðjuorð til fiksimanna vorra. Fólk boðið velkomið. S. Ólafsson Leiðrétting í greininni bræðraminning, birt í Lögbergi 13. maí 1954. 1 greininni um Svein Sveinsson, er lézt í Portland, stendur: Hann giftist Elsie J. Su. Það átti að vera Elsie J. Fee. 1 sömu grein, næst á eftir orðunum, (öll í Portland, Ore.) stendur: Elzti bróðirinn, Sveinn Sveinsson byggingameistari, dó í Chicago o. s. frv. Það átt að vera: Elzti bróðirinn, Símon Sveinsson. — í greininni um Jón Sveinsson á eftir. Móðir Jónu var Kristjana Símonardóttir Kristjánssonar. Þar stendur: Og kona hans, Þor- björg Eiríksdóttir. Þessu er of- aukið. Free Sheels & Bags For COTTON & WOOLEN BAGS Please write for full information. New prints. Pieces size approxi- mately 36 x 40, very good quality cotton, but mipsrints and grue- some colors, cheap, each 15c. Thick chenile rugs, pastel colors, 24 x 36". Special $2.49 Unbleached Flour, 100 lbs. 23c Unbleached Feed, extra large 22c Unbleached Sugar, 100 lbs. 23c Bleached Flour, 100 lbs. 29c Same, slightly damaged 22c Bleached Feed, extra large 28c Bleached Sugar 29c Turkish Towels, pastel colours, half price, 21" x 41", sale price 49c each Print Bags, 50 lb., perfects 23c Coloruful Print Perfects, 100 lbs. 39c Damaged, extra large 100 lb. prints, all different colours, special 25c 36" Colourful Dress Prints, yard 33c Good quality white flannelette, 36" wide, 10 yds. for $3.85. 20 yds. heavy unbleached cotton, 40" wide, sale price $6.00. Unbleached double sheets, heavy cotton, sale price $1.69. Same bleached $1.89. Cotton pieces, 26" x 26", 12 for $1.00 98-lb. flour, slightly dmaaged 17c Towels, bleached Towels, bleached, extra large 18c Bleached Sheets, single &*c Winnipeg Bag Co. 975 Main St. Dcpt. W Winnipeg Depth of Seeding The depth of seeding depends upon the amount of moisture and the tilt of the soil. With good moisture and a good friable soil best results are obtained by seeding shallow, about one inch deep. Where moisture is lacking sow deeper so as to place the seed in the moist soil. On rough land deeper seeding is better $o that none of the seed lies on the surface. For further information write to: BARLEY IMPROVEMENT INSTITUTE, 206 Grain Exchange Building, Winnipeg, Manitoba. This space donated by DREWRYS

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.