Lögberg - 10.06.1954, Blaðsíða 1
ANYTIME — ANYWHERE
CALL
TRANSIT - SARGENT
SILVERLINE TAXI
5 Telephone Lines
20-4845
ANYTIME — ANYWHERE
CALL
TRANSIT - SARGENT
SILVERLINE TAXI
5 Telephone Lines
20-4845
67. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 10. JÚNÍ 1954
NÚMER 23
Geysilegt tjón af völdum eldsvoða í Winnipeg
Á mánudagskvöldið og aðfara-
nótt þriðjudagsins reið yfir
Winnipegborg og Manitobafylki
eitt hið mesta aftakaveður, sem
sögur fara af og nam vindhrað-
inn 75 mílum á klukkustund;
veður þessu líkt hefir ekki
komið hér um slóðir síðan 1918.
Nákvæmt yfirlit yfir tjónið í
borginni er enn eigi við hendi,
þó víst sé, að það nemi hátt á
fjórðu miljón dollara; fjöldi
heimila er enn án rafmagns.
Á Portage Avenue brunnu til
grunna þrjú stórhýsi, Time
Building, 333 Portage Avenue,
Dismor Block, 327 Portage
Avenue, og Edwards Block,
325 V2 Portage Avenue; auk þess
skemdist stórvægilega Affleck
Block, 317 Portage Avenue, og
Marlyn byggingin að 309 Har-
grave St. Svo varð hitinn magn-
aður, að gluggar sprungu í T.
EATON búðinni þó þar yrði eigi
annað tjón. I áminstum bygg-
ingum voru margar skrifstofur
og stórverzlanir reknar.
Margt fólk hefir mist atvinnu
sína um ófyrirsjáanlegan tíma.
Skemdir út um fylkið eru all-
víðtækar, svo sem á símalínum
°g víða stórtjón á bændabýlum;
manntjón varð ekkert svo vit-
að sé.
Svo voru hamfarirnar miklar,
að felmtri sló á borgarbúa og
hugðu ýmsir fyrst í stað að atóm
sprengjum hefði verið varpað
yfir borgina og stríð væri
skollið á.
Hlýtur
námsverðlaun
Við nýlega afstaðin vorpróf
^ianitoba-háskóla hlaut Björn
Sigurbjörnsson Isbister Scholar-
ship að upphæð 80 dollara, en
hann fékk hæstu einkunn af
þriðja árs stúdentum skólans í
landbúnaðarfræðum.
Björn kom til Winnipeg
haustið 1952, ásamt frú sinni
Helgu Pálsdóttur. Hann er sonur
Sigurbjörns Þorkelssonar, sem
oftast er kenndur við verzlunina
Vísi, og konu hans Unnar Har-
aldsdóttur. Þau Björn og Helga
eru uppalin í Reykjavík og
haeði útskrifuð af Menntaskóla
þeirrar borgar, ennfremur er
Björn útskrifaður af Bænda-
skólanum á Hvanneyri. — Helga
starfar við bókasafn íslenzku
deildarinnar hér við háskólann.
Lögberg óskar Birni til ham-
lngju með þann heiður, sem
honum hefir hér með fallið í
skaut.
Útvarp á
lýðveldisdaginn
Haldið verður upp á lýð-
veldisdag Islands, 17. júní, hér
vestra með því að útvarpað
verður yfir kerfi CBW stöðvar-
hinar í Winnipeg. Herra Thor
Vhors, sendiherra Islands í
Lanada og Bandaríkjunum, flyt-
nr kveðju til Vestur-lslendinga
rá heimaþjóðinni. Einnig mælir
orseti Þjóðræknisfélagsins, Dr.
aldimar J. Eylands, nokkur
°rð- Útvarpað verður kl. 6
' T. — Menn hafa nægan
11113 til að hlusta á útvarps-
erindin og síðan að fara á
skemmtunina, sem deildin Frón
s endur fyrir og sem á að fara
ram í Fyrstu Sambandskirkju í
Winnipeg.
Kirkjan fordæmir
rannsóknirnar í '
Bandaríkjunum
(Þýlt úr Free Press)
Öldungaráð „Presbyterian“
kirkjunnar í Bandaríkjunum
sagði á mánudaginn, að slæg en
kröftug árás á grundvallaratriði
almennra mannréttinda ætti sér
stað í Bandaríkjunum. Meira að
segja kirkjan hélt fram þeirri
ákæru, að „fastheldni við sann-
leikann" væri fórnað í áróðurs-
skyni.
Aðalstjórn þessa kirkjufélags
sendi öllum prestum sínum og
öllum meðlimum sínum bréf
með skýringum á því, sem nú
er að gerast í heiminum. En
prestar þessarar kirkju eru 8000
og meðlimatala hennar er
2.500.000. Þetta var skoðað sem
óvenjuleg athöfn. í bréfinu var
komist að orði sem hér segir:
„Hættulegir atburðir eru að
gerast í þjóðlífi voru. Árás
hefir verið gerð á helgidóm sam-
vizkunnar og einstaklingsskoð-
anir, sem enginn nfema Guð
sjálfur hefir rétt til að dæma“.
Bréfið ákærir yfirvöld Banda-
ríkjanna um mannhaturslega
framkomu, sem haldi mönnum
frá því að reyna að koma á sætt-
um milli þjóða með samningum;
hafi snúizt upp í „rannsóknar-
rétt“. Þessar rannsóknir, sem
eru sögulegar eftirlíkingar mið-
alda-rannsóknanna á Spáni og
rannsóknarnefndanna hjá ein-
ræðisstjórnum nútímans, eru
farnar að stofna í hættu frjáls-
og sömuleiðis um það að upp-
lýsinganefnd Bandaríkjaþingsins
um hugsunum hér í landi —
(Bandaríkjunum).'
Þannig er komist að orði í
þessu bréfi.
Bréfið var opinberað á blaða-
mannaþingi, gerðu það tveir
menn: Dr. John A. MacKay,
fundarstjóri kirkjufélags þing-
manna og forseti Princeton guð-
fræðiskólans, og með honum Dr.
Eugeno Carson Blake frá Phila-
delphia, skrifari kirkjuþingsins.
Jafnframt því að lýsa alvar-
legri hættu, sem kommúnisminn
hefði í för með sér hélt bréfið
því fram, að sú hætta væri
notuð til að skapa óheilbrigðan
ótta og að vekja grunsemd; enn-
fremur til þess að bæla niður
mótstöðu og rægja góða borgara.
Ennþá alvarlegri segir bréfið
að það sé, hversu margir, bæði
innan stjórnar og utan, reyni að
vinna gegn kommúnismanum á
algerlega neikvæðan hátt: að-
eins á sama hátt og lögreglu-
valdið, en að öllu leyti án nokk-
urs uppbyggjandi skipulags.
Sig. Júl. Jóhannesson þýddi
Atvika vísur
Eftir PÁLMA
Næðingur
Næðum lokar norðan átt,
næðir hroka ræðum.
Gráum þoka’ á hlíðar hátt
hengir poka-slæðum.
Svartsýnir
Glaums í drunga gleymsku hjá,
glatast sungin kvæði:
Lýðsins unga erfða-skrá
íslenzkt tunga’ og fræði.
Þorni andans lífæð frá
lindin andans ríka;
skrifuð standa örlög á
eyðisanda slíka.
Dr. Valdimar Benjamín
Kjernested
Lýkur prófi í
dýralækningum
Þessi ungi og glæsilegi maður,
sem nýlega hefir lokið prófi í
dýralækningum við Ontario
Veterinary College að Guelph,
Ont., er fæddur að Oak View,
Man., hinn 29. október 1928,
sonur þeirra Carls og Lilju
Kernested, sem þar eru búsett;
hann stundaði fyrst alþýðu-
skólanám að Oak View, en
framhaldsnám við Daniel Mc-
Intyre Collegate í Winnipeg.
Undanfarin fimm ár í röð gaf
hann sig að námi við áminstan
dýralækningaskóla og útskrifað-
ist þaðan með ágætiseinkunn; að
loknu fyrsta árs námi þar, hlaut
hann verðlaun fyrir hæztu
jafnaðareinkunn í öllum náms-
greinum, og nú við embættis-
prófið hlotnaðist honum $100.00
verðlaun fyrir ritgerð um jórtur-
sjúkdóma.
Nýi Laxfoss verður fullbúinn 1. júlí 1955
Þann 27. apríl s.l. undirrit-
aði Gísli Jónsson, alþm. f. h.
H.f. Skallagrímur, Borgar-
nesi, samning við H. C.
Christensen Staal skibs-
værft í Martsdal, Danmörku,
um smíði á vöru- og far-
þegaskipi fyrir félagið til
ferða milli Reykjavíkur—
Akraness og Borgarness í
stað m.s. . Laxfoss. Skal
skipið afhendast fullbúið
1. júlí 1955.
Skipið verður 135 fet á lengd,
26 fet á breidd og 13 fet á dýpt.
Það er byggt í fyrsta flokks
Lloyd’s og samkvæmt kröfum
Skipaskoðunar ríkisins um skip
til siglinga á Atlantshafinu. —
Einnig er skipið sérstaklega
styrkt til siglinga í ís. Það getur
flutt allt að 250 dag-farþega og
hefur þar af»hvílur fyrir 38 far-
þega. Vöruflutningarými er fyr-
ir 80 tonn og auk þess rúm fyrir
15 tonna farþegaflutning. Botn-
geymar rúma 80 tonn af olíu og
ennfremur eru tankar, er taka
25 tonn af brennsluolíu fyrir
skipið. Vatnsgeymar rúma 20
tonn. Skipið verður útbúið með
2 Ruston og Hornsby-vélum og
verður hvor þeirra um 460 hest-
öfl. Tvær skrúfur verða á skip-
inu og hvor um sig tengd með
vökvatengsli við vélarnar og
niðurfærsluskiptingu, allt af
þekktustu gerð.
Þrjár dieselvélasamstæður af
Ruston og Hornsby-gerð eru i
skipinu til framleiðslu á raf-
magni, og framleiða þær 90 H.K.
við 1200 snúninga á mínútu og
eru tengdar við 50 kw. 220 v.
jafnstraums rafala.
New Partnership in Accountancy Firm
The long established firm of
chartered accountants, Dun-
woody Saul Smith and Com-
pany, which has had offices in
Fort William and other North-
western Ontario centres for
several years, has been taken
over by a new partnership of
chartered accountants, accord-
ing to an announcement made
today by Harold S. Sigurdson of
Fort William. Members of this
firm are: Harold S. Sigurdson,
C.A., Thomas A. Saul, C.A.,
Robert E. McMeekin, C.A., Jack
V. Cortens, C.A., W. W. Shep-
herd, C.A., and George D. Wood
Jr., C.A. The former partners,
James M. Dunwoody, C.A.,
Thomas E. Saul, C.A., and John
W. Smith, C.A., will continue to
be actively associated with the
firm in its practice as chartered
accountants.
The firm which has offices at
Toronto, Welland, Oakville, Fort
William, Atikokan, Fort Frances,
Kenora and Winnipeg has been
operating since 1918. The Fort
William office was opened in
1948 by Mr. Sigurdson, and is
presently located in the Francis
Block on Victoria avenue.
Harold Sigurdson graduated
from the University of Manitoba
and was awarded his degree in
1948 and has been actively as-
sociated with the firm since
that time. He has taken an
active part in many community
affairs at the Lakehead. In 1945
he married Norma Benson of
Winnipeg. They have three
children, two daughters and one
son. — Mr. Sigurdson is the son
of Mr. and Mrs. S. Sigurdson,
937 Minto St„ Winnipeg, Man.
—Fort William paper
Harold S. Sigurdson
í skipinu verður rafmags-
akkerisspil, tvær rafknúnar
vöruvindur, sem lyfta 2 og 5
tonnum og ein 3ja tonna raf-
magsdráttarvinda, svo og raf-
magns-vökvastýri og eru allar
þessar þilfarsvélar framleiddar
í Danmörku.
Skipið verður útbúið með öll-
um nýtízku siglingatækjum, svo
sem radar, dýptarmælum o. fl.
Einnig með öllum áhöldum fyrir
þilfar, vélarúm, eldhús, íbúðar-
herbergi og borðsali.
Líkur gamla Laxfoss
Allt fyrirkomulag í skipinu
og útbúnaður í herbergjum og
sölum er mjög líkt því sem var
í m.s. Laxfoss, nema hvað þetta
verður allt rúmbetra, þar sem
skipið er allt miklu stærra "en
m.s. Laxfoss. Gert er ráð fyrir,
að skipið rúmi 6—7 venjulega
fólksbíla á þilfari. Hraði skipsins
er áætlaður 13 mílur á klukku-
stund.
Kaupverð skipsins þannig er
2.400.000.00 danskar krónur, og
hefur h.f. Skaallagrímur fengið
loforð fyrir láni í Danmörku að
upphæð 1.380.000.00 til 4 ára frá
afhendingardegi skipsins.
Skipa- og vélaeftirlit Gísla
Jónssonar og Erlings Þorkels-
sonar verður falið eftirlit með
smíði skipsins.
—VISIR, 14. maí
Rektorskjör í
Hóskóla íslands
Eftir hádegi í gær, 14. maí, fór
fram í Háskóla íslands rektors-
kjör til næstu þriggja ára. Kos-
inn var dr. phil. prófessor Þor-
kell Jóhannesson sagnfræðingur.
Er þetta í fyrsta sirini, sem
hann er kjörinn til þessa em-
bættis, en Þorkell var skipaður
prófessor við norrænudeildina
haustið 1944. — Hafði hann þá
um eins árs skeið verið lands-
bókavörður en við Landsbóka-
safnið starfaði hann sem bóka-
vörður frá því árið 1932. Doktors
ritgerð hans, sem er á þýzku,
heitir: Frjálst verkafólk á Is-
landi. — Þá ritgerð varði hann
1933. — Þorkell er Suður-Þing-
eyingur, fæddur 1895. — Kona
hans ér Hrefna Bergsdóttir.
Núverandi háskólarektor, próf.
Alexander Jóhannesson mun
láta af embætti er næsta há-
skólaár hefst, í sept. n.k., og mun
þá próf. Þorkell taka við.
—Mbl., 15. maí
Frá Höfn í
Hornafirði
Á Höfn í Hornafirði er mikil
blíða og gróður orðinn eins
og í júnímánuði í meðalári.
Sauðburður gengur ágæt-
lega í kauptúninu og eru
flestar ær tvílembdar. Hey-
fyrningar eru miklar bæði í
Höfn og í sveitunum.
Atvinna er mikil bæði við
fiskverkun og í sambandi við
byggingu radarstöðvarinnar á
Stokkseyri, en þar vinna einnig
nokkrir utanhéraðsmenn. Hafn-
arbátar hafa aflað vel og mun
hæsti hásetahlutur vera rúmlega
20.000 krónur. Er það á bát, sem
hóf veiðar í janúar. Annars hafa
bátarnir aflað jafnvel, þannig,
að mismunur á hásetahlut stafar
eingöngu af mismunandi löngu
úthaldi.
Kartöflubirgðir eru miklar
m. a. eru enn á boðstólum
Hornafjarðarkartöflur, sem fræg
ar eru fyrir gæði. Hafa margir
bændur svo góðar geymslur að
telja má, að kartöflurnar séu
sem nýjar enn.
—VISIR, 15. maí
Nýkjörinn
háskólaforseti
Þegar hún Sigríður söng
I ómfræði ekkert ég skil
— það aldrei ég hyl eða dyl.—
Ég hlusta með ótömdu eyra.
En eitthvað þó fanst mér ég heyra
þegar hún Sigríður söng.
Já, eitthvað, sem huga minn hreif
og hátt yfir dagþrasið sveif
og hungraða sálina saddi
og samtímis hresti og gladdi
þegar hún Sigríður söng.
Þá klökknuðu konur og menn;
þær kvöldstundir munum við enn:
Það var eins og lífsstraumur liði
um loftið með himneskum friði
þegar hún Sigríður söng.
Dr. H. H. Saunderson
Svo sem vitað var, varð Dr.
Gillson að láta af forseta-
embætti við Manitobaháskól-
ann vegna heilsubrests; nú hefir
háskólaráð valið eftirmann hans
og er sá Dr. H. H. Saunderson,
borinn og barnfæddur í Winni-
peg og útskrifaður af háskóla
þessa fylkis.
Hinn nýi háskólaforseti er
fæddur 23. nóvember 1904.
Hann lauk B.A., B. Sc. og M. Sc.
prófum hér í efnafræði, en hlaut
doktorsgráðu í sömu vísinda-
grein við McGill háskóla 1932.
Hann gegndi um hríð prófessors
embætti við Manitobaháskóla,
en hafði með höndum síðan 1947
embætti við National Research
Council.
Dr. Saunderson er viður-
kendur áhrifamaður og góðum
skipulagningarhæfileikum búinn
og má því mikils góðs af honum
vænta í hinu nýja virðulega, en
jafnframt vandasama embætti.
Sig. Júl. Jóhannesson
Sérfræðingar
fil íslands
Tveir canadiskir sérfræðingar
hafa dvalið á Islandi um nokk-
urt skeið til að kynna sér æðar-
varp og dúntekju; á hinum norð-
lægu slóðum hér í landi, sem
Eskimóar byggja, er víða mikið
um æðarfugl, sem þeir skjóta sér
til matar, en kunna ekkert með
dúninn að fara; eftir að þessir
Canadamenn koma af íslandi,
mun það verða hlutverk þeirra
að kenna Eskimóum að nytja
æðarfuglinn betur en þeir fram
að þessu hafa gert og læra að
hirða vandlega um dúninn, sem
getur verið álitleg tekjulind
þegar fram í sækir.