Lögberg - 10.06.1954, Blaðsíða 3
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 10. JÚNÍ 1954
3
Sú trú, sem sigrar
Eftir séra GUNNAR ÁRNASON
1. Hverju trúir þú? Eða trúir
þú annars nokkru? Þetta eru
akaflega algengar spurningar.
Sennilega höfum við öll borið
þser upp, eða verið spurð að
þeim sjálf.
1 leit að svarinu höfum við
rannsakað hug okkar og velt því
fyrir okkur, hvort við gætum
nú svarað því jákvætt, að við
tækjum hinar og þessar kenn-
ingar gildar, sem við lærðum
utan að börnin, eða okkur er
sagt að hinir eða þessir meðal
hinna skriftlærðu haldi á lofti.
í einu orði sagt, það er algeng-
asta skoðunin, að trúin sé ein-
göngu bundin höfnun eða viður-
kenningu ákveðinna þekkingar-
atriða. Þess vegna er hún svo
oft nefnd sem mótsetning vís-
indanna. Og því eru margir á
þessari öld henni fráhverfir, að
þeir halda að hún sé tómir
hugarórar, — hreinn he^e-
spuni.
Ég held, að það sé nokkurs
konar barnasjúkdómur að líta
svona einstrengingslega á trúna.
Ég segi einstrengingslega af
því, að vitanlega er trúin alltaf
háð vissum trúarhugmyndum og
ákveðnum kennisetningum, en
lífæð hennar og máttur er þó
raunar annað. Það er krafturinn,
sem fylgir því, að hafa þá til-
finningu, að maður stendur í
sambandi við almáttugan höf-
Und tilverunnar, — hinn lifandi
Guð, — og að á allar hendur sé
okki aðeins hinn þröngi hvers-
dagssjónhringur, heldur enda-
laust eilífðarútsýni.
Þess vegna er trúin raunar
alltaf meira hjartans-mál en
heila-vísdómur. Og þess vegna
er hún líka ríkasta uppspretta
athafnanna. Það er bókstaflega
satt að við lifum í trú en ekki í
skoðun. Við vitum svo fátt, að
við verðum að jafnaði að fara
eftir því, sem okkur finnst.
Þetta sést yfirleitt svo vel á
guðspjöllunum. Þar er mest sagt
frá hversdagsmanneskjum, sem
1 krafti trúar sinnar reyndu
hiikla hluti. Þar eru fáar yfir-
fýsingar um trú þeirra, en sýnt
hvaða kraftur fylgdi henni. Trú-
in brýzt ekki fram í orðum, —
heldur lífi.
2. Það hefur fyrr og síðar
verið veikleiki kirkjunnar, að
við þjónar hennar, prestarnir,
höfum haft svo hátt um kenn-
ingarnar, að hugur fólksins hef-
ur leiðst frá lífi trúarinnar. Þetta
a jafnt við um þá, sem standa
til hægri og vinstri. Bæði rétt-
trúaðir og frjálslyndir eiga hér
sína sök.
En ég ætla að taka eitt dæmi
frá deginum í dag um það, að
það gildir, hvað verkin tala. Við
vinnum ekki heiminn fyrir
hristindóminn — nema sýna
hann.
Tveir hvítir menn, tveir prest-
iærðir menn munu nú vera
heimsfrægastir í Afríku.
Annar er forsætisráðherra
Suður-Afríku, dr. Malan. Hann
eflaust nógu lærður, en
hverju sem hann játar eða neit-
ar í kristinni kenningu, þá finnst
haér hann ekki vera vottur
Krists á meðal meðbræðra
sinna. Eða haldið þið að Kristur
hefði flokkað mennina eftir
itarhætti og jafnvel stétt eða
stöðu? Nei! Komið til mín allir,
sgaði hann. Og hann bauð okkur
^eira að segja, að elska óvini
° hur, hvað þá umkomulitla
uieðbræður. Ég held, að honum
lr*nist trú þessa manns lítil.
En annars staðar í sömu álfu
fr annar kristinn maður. Hann
eitir dr. Albert Schweitzer.
essi maður er doktor í heim-
sPeki, trúfræði og músik. Líka
, ®hnisfræði. Það er þó ekki
ómur hans, sem hefur gert
ann frægastan, né mun halda
a ru hans lengst á lofti . . . .
guðfr ÍGr SÍnar eÍgÍn gÖtUr {
guotræðinni, sem ekki er víst
margir reki síðar.
n hann sté ungur niður úr
prófessorsstólnum og úr háu
hefðarsæti heimsins og gerðist
læknir og þjónn fákænna svert-
ingja inni í frumskógunum. Síð-
an hefur hann árum saman
þvegið fætur þeirra, læknað og
líknað. Hann hefur gengið um
kring og gert gott. Nú er komið
að kvöldi .... Mun ekki Drott-
inn senn fagna honum á þrösk-
uldi eilífðarinnar og segja: Þú
góði og trúi þjónn! Yfir litlu
varstu trúr, yfir mikið mun ég
setja þig!
3. En nú skulum við hugsa um
eðli og gildi trúarinnar á tak-
markaðra sviði. Hugsa um okk-
ar eigin þörf og þann kraft, sem
trúin getur veitt okkur.
Sumir halda því fram, að það
sé vanmáttartilfinning manns-
ins, sem skapar trúarþrá hans.
En það má alveg eins segja, að
í villum okkar og umkomuleysi
er okkur gefið leiðarljós og sig-
urkraftur trúarinnar. Kanverska
konan er fulltrúi allra hinna
þjáðu í heiminum og þeir eru
óneitanlega margir.
Einhver ógleymanlegasta og
áhrifamesta setningin í skáld-
ritum Einars H. Kvarans er sú,
þegar hann lætur margreynda
og mædda sál segja þetta: „Mér
heyrðist einhver vera að gráta'“
Hafir þú hlustnæmt eyra,
hlýtur þú að heyra grát frá
mörgu brjósti. Dauðinn er ekki
aðeins alltaf á ferðinni og skilur
eftir harm í sporum sínum ....
Þú hlýtur að þekkja eitthvað til
þess. Fæstir komast svo til full-
orðinsára, að ekki sé höggvið
þeim nærri. En sannast sagt er
sorgin eftir látinn ástvin ekki
þungbærasti harmur lífsins. Oft
er unnt að létta hann með
tárum.
En til er heimilisböl, sem er
þyngra en tárum taki, — eins og
Brynjólfur biskup komst að
orði.
Sárast er þó að syrgja eigið líf.
Hversu ógleymanlega lýsir
ekki þeirri örvæntingu:
Eitt skipbrotslíf starir í
sorgarsæinn,
sökkvir augum í hjarta síns
eymd.
Þess auður er týndur, þess
ákvörðun gleymd.
Hann á ekki neitt, sem vermist
við daginn.
Hryggðarefni lífsins eru fæst
nefnd með þessu. Hversu margir
stríða ekki við efnahagslega
erfiðleika, svo að þeir eiga þungt
um gang og erfitt með að sofa.
Og hve margir berjast ekki við
margvíslegar freistingar, sem
þjá þá. Sjúkdómar sækja marga
heim.
Svo undarlegt sem það virðist
við fyrstu sýn, getur líka ýmiss
konar velgengni orðið kross.
Sumum auðugustu mönnum
heimsins veldur það hreinustu
vandræðum, hvað þeir eru ríkir.
Skínandi frægð fylgja dökkir
skuggar. Og endalausar skemmt-
anir verða að leiðum hversdags-
leika.
Já. Ekki verður ofsögum sagt
af byrðum okkar mannanna. En
getum við sótt okkur kraft til
að bera þær, — afl til sigurs?
Mörg þúsund ára gömul saga
segir frá allslausri og umkomu-
lausri ambátt, sem var hrakin
út á eyðimörk. Þá heyrði hún
rödd, sem hughreysti hana. Og
— segir í frásögninni — hún
kallaði Drottin, sem við hana
talaði: „Þú ert Guð sem sér“.
Er þetta ekki kjarni trúarinn-
ar, þeirrar vitundar, þeirrar til-
finningar, sem hefur hreyft sér
í brjóstum mannanna um allar
aldir og hvar sem er í veröld-
inni?
Guð hefur á okkur augun. Og í
Jesús Kristur hefur kennt okk-
ur og sýnt okkur, að það eru
kærleiksaugu.
Þegar þessi tilfinning er ríkj-
andi í mannssálunum, næst sig-
urinn í lífi einstaklinga og þjóða.
Hvað hefur hún ekki þolað,
þessi þjóð við hið yzta haf?
Is og hungur, eld og kulda,
áþján, nauðir, Svartadauða.
En hefur nokkuð haldið henni
uppi eins og þessi von: „Þú ert
Guð, sem sér?“ Ber ekki þjóðar-
sagan þess vitni? Sannast það
ekki af því einsdæmi, að ég hygg
í veraldarsögunni, að á hverju
kvöldi föstunnar eru lesnir
sálmar, er vart eiga sinn líka að
því er snertir trúarhita og sigur-
hreim. Enn í dag læsist kraftur
út frá þeim, kraftur trúar þess
manns, sem orti þá.
4. Þess eru dæmi, að menn
gera sér alls ekki ljóst hvílíkum
krafti þeir eiga yfir að ráða, og
hverju þeir gætu til vegar kom-
ið, ef þeir hagnýta sér hann.
Hversu tiltölulega stutt er ekki
síðan við Islendingar tókum raf-
orkuna í okkar þágu eða hinar
heitu lindir? Og þó hafa foss-
arnir hrunið og soðið í lindun-
um frá landnámstíð. Og nú fyrst
þessi síðustu árin hefur heimur-
inn kynnzt atomorkunni, og
okkur er byrjað að dreyma um,
hverju hún fái áorkað.
En hversu langt er ekki síðan
Jesús Kristur sagði, að sá, sem
tryði, gæti flutt fjöll úr stað —
gert það, sem sýnist ómögulegt,
mögulegt. Og hversu treg erum
við samt ekki til að trúa því, —
jafnvel þó að við getum alls
staðar séð þess dæmin.
Ekki veit ég, hvað ykkur kann
að þykja mest um vert, hvort
það eru einhver undur eða
kraftaverk. Mér þykir mest til
um þá menn og þær konur, sem
virðast allt geta borið og öllu
snúið til góðs, eru alls staðar
reiðubúin að vera til hjálpar,
allt vilja færa til betri vegar
fyrir náungann, — bera ævin-
lega eins og ljós í bæinn, — og
brosa mót sjálfum dauðanum.
Þessar manneskjur eiga hið
hljóða sigurafl trúarinnar, sem
er eins og strengur undir klaka.
Strengur, sem alltaf brýtur af
sér fjötrana fyrr eða síðar og
vekur blómgresi á akri manns-
hjartans. Þetta eru þær mann-
eskjur, sem hafa sannfærzt um,
að Guð er sá, sem sér, og að hinn
upprisni er á veginum með
okkur.
Þær hafa líka uppgötvað þau
lífssannindi, að það er ekki sæl-
ast að binda hugann við sjálfan
sig, né endilega að fá sínum vilja
ævinlega framgengt. Hitt er
hamingjuríkara, að vera öðrum
til gleði, og hlýðnast vilja hins
góða Guðs.
5. Barátta lífsins er oft hörð
og sár, en flestir óttast þó ann-
að meira, — hinn óþekkta dauða.
Jafnvel þeir, sem engu virðast
hafa að tapa en allt að vinna í
sambandi við hann, skjálfa
stundum er hann ber að dyrum.
En mér kemur í hug saga, sem
gerðist fyrir nokkrum áratugum.
Stórt hafskip fórst í rúmsjó.
Allir, sem gátu, flykktust í
björgunarbátana. Einn þeirra
var svo drekkhlaðinn, að þegar
hann var kominn örskammt frá
slysstaðnum, hrópaði stýrimað-
urinn: „Það verða einhverjir að
kasta sér útbyrðis. Báturinn ber
okkur ekki öll!“ Og mennirnir
bliknuðu og konurnar skulfu af
ekka. Sumum varð hugsað heim
til konu og barna, öðrum til föð-
ur og móður, og öllum var þeim
lífið kært.
En stýrimaðurinn hrópaði
aftur: „Það verða einhverjir að
fara fyrir borð“. Og enn ríkti
dauðaþögn. Hver gat farið?
Utan við borðstokkinn var út-
hafið og dauðinn.
Þá hljómaði raust stýrimanns-
ins í þriðja sinn: „Við förumst
öll, ef einhverjir fást ekki til
að yfirgefa bátinn“.
Þrír menn risu upp í bátnum.
Þrír almúgamenn, sem verið
höfðu í lestinni, óþekktir, fá-
tækir erfiðismenn. Og þeir
steyptu sér fyrir borð. Hafið
huldi þá.
Ekki veit ég, hvort þessir
menn kölluðu sig kristna. En
hverju, sem þeir játuðu, þá voru
þeir kristnir. Þeir áttu fórnfýsi
og kraft trúarinnar. Og áræði
hennar til að leggja út á djúpið.
Að dæmi Drottins létu þeir líf
sitt öðrum til björgunar. Og
sennilega hefðu þeir sagt með
séra Hallgrími, hefðu þeir þekkt
hann:
Ég veit minn ljúfur lifir
lausnarinn himnum á,
hann ræður öllu yfir,
einn heitir Jesús sá.
Þess vegna er raunar ekkert
að óttalegt að deyja. Aðeins för
inn um sáluhliðið.
Trú, sem veitir slíkan sigur-
kraft í lífi og dauða, trú, sem
veitir manni sigur jafnvel yfir
sjálfum sér, — hún er eftir-
eftirsóknarverðasta aflið í heimi.
Því var það að postulinn
mikli, sem flestum öðrum hafði
gengið víðar og lengur um hraun
mannlífsins, sagði undir leiðar-
lokin:
„Ég hefi barizt góðu barátt-
unni, hefi fullnað skeiðið, hefi
varðveitt trúna. Og nú er mér
geymdur sveigur réttlætisins,
sem Drottinn mun gefa mér“.
Þarna er fólgin veraldarsaga
og heimsstríð okkar allra. Og
einnig dásamlegt fyrirheit.
Ef við í krafti trúarinnar get-
um borið byrðar lífsins, og bar-
izt fyrir hinu góða, þá er ekki
kvíðvænlegt að stíga fram fyrir
dómara allra tíma.
Því að hann gefur okkur
kórónu lífsins.
—Kirkjuritið
Kaupið Lögberg
VIÐLESNESTA
ÍSLENZKA BLAÐIÐ
COPENHAGEN
Bezta munntóbak
heimsins
inn
LÆGSTA FLUGFAR
TIL
ÍSLÁNDS
Aðeins
fram og til baka
til Reykjavíkur
Grípið tækifærið og færið
yður í nyt fljótar, ódýrar og
ábyggilegar flugferðir til
íslands í sumar! Reglu-
bundið áætlunarflug frá
New York ... Máltíðir inni-
faldar og annað til hress-
ingar.
SAMBÖND VIÐ FLESTAR STÓRBORGIR
Finnið umboðsmann ferðaskrifstofunnar
ICELANDIC AIRLINES
15 West 47th Street, New York
PLaza 7-8585
Dr. P. H. T. Thorlakson
WINNIPEG CLINIC
St. Mary’s and Vaughan, Wlnnipeg
PHONE 92-6441
J. J. Swanson & Co.
LIMITED
108 AVENUE BLDG. WINNIPEG
Fasteignasalar. Lelgja hús. Ct-
vega penlngal&n og eldsAbyrgC,
bifreiCaílbyrgC o. s. frv.
Phone 92-7538
SARGENT TAXI
PHONE 20-4845
For Quick, Reliable Service
DR. E. JOHNSON
304 Eveline Street
SELKIRK, MANITOBA
Phones: Offiee 26 — Residence 230
Office Hours: 2.30 - 6.01 p.m.
Thorvaldson, Eggertson,
Bastin & Stringer
Barristers and Solicitors
209 BANK OF NOVA SCOTIA Bldg.
Portage og Garry St.
PHONE 92-8291
CANADIAN FISH
PRODUCERS LTD.
J. H. PAGE, Managing Director
Wholesale Distributors of Fresh and
Frozen Fish
311 CHAMBERS STREET
Offlce: 74-7451 Res.: 72-3917
Offlce Phone
92-4762
Res. Phone
72-6115
Dr. L. A. Sigurdson
528 MEDICAL ARTS BUILDING
Offlce Hours: 4 p.m.—6 p.m.
and by appointment.
A. S. BARDAL LTD.
FUNERAL HOME
843 Sherbrook Street
Selur lfkkistur og annast um út-
farir. Allur útbúnaCur sá bezti.
StofnaC 1894
SÍMI 74-7474
Phone 74-5257 700 Notre Dame Ave.
Opposite Maternity Pavilion
General Hospital
Nell's Flower Shop
Weddlng Bouqueta, Cut Flowers,
Funeral Designs, Corsages.
Bedding Plants
Nell Johnson
Res. Phone 74-6753
Gilbart Funeral Home
Selkirk, Manitoba.
J. Roy Gilbart
Licensed Embalmer
Phone 3271 Selkirk
SELKIRK METAL PRODUCTS
Reykháfar, öruggasta eldsvörn,
og ávalt hreinir. Hitaeiningar-
rör, ný uppfynding. Sparar eldi-
viC, heldur hita frá aC rjúka út
meC reyknum.—SkrlfiC, simiC til
KELLT SVEINSSON
825 Wali St. Wlnnlpeg
Just North of Portage Ave.
Slmar S-S744 — 3-4431
J. Wilfrid Swanson & Co.
Insurance in all lts branchea
Real Kstate • Mortgages - Rentals
<10 POWER BUILDING
Telephone 03-7181 Re«. 46-3480
LET US SERVE YOU
[iiiiRtiiniitintrnniiiiiiiimmmnmniiinniniiiimimiinnmiiiiinHiiiiiiiiiinn
S. O. BJERRING
Canadian Stamp Co.
RUBBER & METAL STAMPS
NOTARY & CORPORATE SEALS
CELLULOID BUTTONS
324 Smlth St. Winnipeg
PHONE 92-4624
Phone 74-7855
ESTIMATES
FREE
J. M. Ingimundson
Re-Roofing — Asphalt Shingles
Insul-Bric Siding
Vents Installed to Help Eliminate
Condensation
632 Slmcoe St.
Winnlpef, Man.
SEWING^MACHINES
Darn socks in a jiffy. Mend,
weave in holes and sew
beautifully.
474 Porlage Ave.
Winnipeg, Man. 74-3570
Dr. ROBERT BLACK
SérfræCingur I augna, eyrna, nef
og hálssjúkdömum.
401 MEDICAL ARTS BLDG.
Graham and Kennedy St.
Skrifstofusfmi 92-3851
Heimasfmi 40-3794
Creators of
Distinctive Printing
Columbia Press Ltd.
695 Sargenl Ave. Winnipeg
PHONE 74-3411
Hafið
Höfn
í huga
Heimili sólsetursbarnanna.
Icelandic Old Folks’ Home Soc.,
3498 Osler St., Vancouver, B.C.
ARLINGTON PHARMACY
Prescription Specialist
Cor. Arlington and Satgent
Phone 3-5550
Films, Picnic Supplies and
Beach Novelties.
We collect light, water and
phone bills.
Post Office
Lesið Lögberg
Minnist
BETEL
í erfðaskróm yðar.
Phone 92-7025
H. J. H. PALMASON
Chartered Accountant
505 Confederation Life Bullding
WINNIPEG MANITOBA
Parker, Parker and
Kristjansson
Barristers - Solicitors
Ben C. Parker, Q.C.
B. Stuart Parker, A. F. Krlatjanaon
500 Canadlan Bank of Commerce
Chamben
Wtnnlpeg, Man. Phone 92-3561
G. F. Jonasson, Pres. & Man. Dlr.
Keystone Fisheries
Limited
Wholesale Distributora of
FRESH AND FROZEN FISH
60 Louise Street Simi 92-5227
EGGERTSON
FUNERAL HOME
Dauphln. Manitoba
Eigandl ARNI EGGERTSON Jr.
Van's Efectric Ltd.
636 Sargenl Ave.
Authorized Home Appliance
Dealers
GENERAL ELECTRIC — ADMIRAL
McCLARY ELECTRIC — MOFFAT
Phone 3-481-0