Lögberg - 10.06.1954, Side 5
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 10. JÚNl 1954
5
*wvvvvwvvvvvwvwwvvwvvvw*
X ÍIK AMÁL
IWCNNA
Ritstjón: INGIBJÖRG JÓNSSON
LÝKUR MEISTARAPRÓFI
Mrs. Margaret Thorleifson
Mrs. Margaret Thorleifson,
kennari í íþróttafræði kvenna
(Physical Education for Women)
í þeirri kennsludeild ríkishá-
skólans í Norður-Dakota (Uni-
versity of North Dakota), lauk
nýlega með prýðilegum árangri,
meistaraprófi (M.A.) í þeirri
fræðigrein á Michigan State
College, East Lansing, Michi-
gan. Hafði hún stundað fram-
haldsnám sitt í sumarfríum og
öðrum frístundum frá kennslu-
og húsmóðurstörfum, og er það
vel að verki verið, enda er Mrs.
Thorleifson prýðisvel gefin og
um allt hin mætasta kona, sem
er vel metin af nemendum sín-
um og samkennurum á há-
skólanum.
Hún er fædd og alin upp að
Garðar, N. Dakota, dóttir þeirra
góðkunnu sæmdarhjóna Jóns og
Margrétar Hjörtson. Er Margrét
látin fyrir 10 árym, en Jón býr
hjá dóttur þeirra, Mrs. Thor-
leifson, í Grand Forks.
Mrs. Thorleifson stundaði
undirbúningsnám sitt í Gardar,
on síðan æðra nám á ríkishá- þvottinn, er tími til kominn að
HEIMILISRÁÐ
Hægt er að ná ryðblettum af
porcelain með sápuvatni, sem
nokkrum dropum af steinolíu
hefir verið bætt í.
☆
Til þess að leyna naglagötum
1 viðarvegg, sem á að mála, skal
reka eldspýtur í götin, skera
þær slétt við vegginn, slétta
yfir með sandpappír og mála
síðan, og verður þá ómögulegt
að finna gömlu naglagötin aftur.
☆
Þegar skrúfnagli hefir ryðgað
og erfitt er að losa hann, er reyn-
andi að halda heitu „solder“-
járni við naglahausinn í nokkr-
ar mínútur.
☆
Þegar endurnýja þarf gömul
húsgögn er ódýrt og auðvelt að
ná „varnish“ af þeim með því að
bera á það óblandaða ammonia
og nudda það síðan af með stál-
ull.
☆
Þegar gufu-straujárnið byrj-
ar að spýta óhreinu vatni á
Mannsæfin
Hve löng er mannleg æfi?
Það fer eftir því hvernig á
það er litið. Það er komist svo
að orði í Sálmum Davíðs: Æfi-
dagar vorir eru sjötíu ár, og þeg-
ar bezt lætur áttatíu ár. Með
þessu er talað um aldurstak-
mark æfinnar að því er kemur
til árafjölda, en til að skilja
gildi æfinnar að fullu, verður
að meta hana og mæla eftir orð-
um og athöfnum, og þá getur
aldur manna orðið all-langur.
Þetta sanna orð sálmsins, sem
ég gat um. Orð hans hafa nær
því ævarandi gildi.
Mörg æfin er skammvinn að
árum, en getur þó enzt lengi að
áhrifum.
Orð töluð fyrir þúsundum
ára, staðfest af reynslunni, eru
sígildur sannleikur. Má komast
svo að orði, að sá, sem talaði
þau sé vel lifandi. Mannvirki
fynnast um heim allan svo
gömul, að enginn veit hver þau
vann, því nöfnin eru gleymd
fyrir löngu. „Arkarsmiðirnir
unnu gagn, en aðrir nutu“. Þetta
má heimfæra upp á margt. Má
sannlega segja, að þeir sem hafa
skilið eftir slík verk séu vel lif-
andi, þótt langt sé um liðið.
Fæstir munu neita því, að at-
hafnir og áhrif í lífi þeirra munu
iðulega rakin í fortíð; það eru
ávextir af hugsunarhætti þeirra,
sem jörðin er búin að geyma um
langa tíð.
Menn halda uppi minningu
ágætismanna meðal þjóðanna
vegna fyrirmyndanna, sem þeir
skildu eftir. Nákvæmlega má
segja það sama um hin hvers-
dagslegu atriði. Hvað eru upp-
eldisáhrif foreldranna annað en
arfur, sem tæmist börnunum?
Æfiár foreldranna verða ýmist
mörg eða fá, en áhrifin verða
eftir hjá börnunum. Þau áhrif
geta gengið í erfiðir. Geta þó oft
dulist.
„Mörg látlaus æfin lífsglaum
fjær,
sér leynir einatt góð og fögur.
En Guði er hún alt eins kær,
þó engar fari af henni sögur“.
Það er hin mesta eyðslusemi
að verja arði síunm og kröftum
í eigin þarfir og nautnir, án þess
skólanum í N. Dakota og út-
skrifaðist þaðan með mennta-
stiginu “Bachelor of Science in
Education” 1939 og hafði íþrótta
fræði verið aðalnámsgrein
hennar.
Árið áður hafði hún gifst
Thomasi Thorleifson, kennara
(Assistant Professor) í verzlun-
arfræðum á ríkisháskólanum,
órengskapar og gáfumanni, er
naut mikilla vinsælda stúdenta
°g samkennara sinna. Hann lézt
um aldur fram 1947. Þau hjón
attu eina dóttur barna, Leslie,
nú 10 ára að aldri, sem er í
heimahúsum hjá móður sinni.
Eftir að hafa kennt í skólum
Grand Forks borgar og öðru
hvoru á ríkisháskólanum í N.
Eakota, varð Mrs. Thorleifson
astur kennari í fræðigrein sinni
a ríkisháskólanum 1948, og hefir
naerri samfleytt kennt þaf síðan.
^nn kennir sérstaklega nú-
1 ar og samkvæmisdansa og
Ploðdansa ýmiskonar, enda hef-
lr hún lagt sérstaka stund á þá
grein íþróttafræðinnar. Þykir
enni farast kennslan prýðilega
Ur hendi.
Richard Beck
hreinsa það. Skal þá láta í það
4 til 6 únzur af vatni og tvær
matskeiðar af ediki; hita það
síðan þangað til gufan kemur,
og láta svo þessa blöndu vera í
járninu yfir nótt, og skola svo
úr því margoft, þar til öll
óhreinindi eru horfin.
☆
Ef olíudúkurinn er farinn að
láta á sjá er auðvelt að endur-
nýja hann með því að mála hann
með gólf-enamél, sem þornar
fljótt. Ef að dúkurinn er dopp-
aður á eftir með öðrum litum •—
til þess er svampur notaður —
þá ber ekki eins mikið á blett-
um og sporum.
☆
Opinberu bókasöfnin viðhalda
kápunum á bókum safnsins með
því að bera á þær shellac. Ef til
vill er það gott ráð að verja
þannig kápur heimilisbóka, sem
mikið eru notaðar.
ú
Ef þú hefir í hyggju að lita
föt eða dúka skaltu, áður en þú
byrjar, klóra sápustykki þannig
að þú hafir sápu undir öllum
nöglum. Hún þvæst auðveldlega
í burtu á eftir, og varnar því að
að leitast til við að láta aðra
hafa gott af því. Menn geta haft
fé á vöxtum með það eitt fyrir
augum að auka eignir sínar. Um
það má segja ,að menn grafi
pund sitt í jörðu. Ánægjan af
þeirri eign er bygð á ímyndun.
Samkvæmt þessari hugarstefnu
verður mönnum lítið úr efnum
sínum. Þeir tíma ekki að afla
sér blessunar og ánægju með
því að láta aðra njóta þeirra
með því að láta aðra njóta þeirra
með sér. Menn þessir lifa fátæk-
legu lífi ,og þannig deyja þeir,
hvort sem æfiár þeirra verða
mörg eða fá.
Sannast það löngum, að
„Ýmsir skifta auði þá út er bor-
inn sá dauði“. -
Þennan sannleika er Frelsar-
inn að kenna í dæmisögunni um
pundin í 19. kapítula Lúkasar
Guðspjalls.
Þar er mönnum boðið að á-
vaxta eigur sínar samkvæmt til-
gangi Drottins. Tveir af mönn-
um þessum reyndust trúir til-
gangi hans. j
Einn gróf pund sitt, án þess
að ávaxta það, og gekk svo
snauður frá borði. Hann var fá-
tækur um æfina alla, þótt efn-
aðúr væri. Hugsunarháttur hans
leyfði honum ekki að njóta þess,
sem honum var leyft að hafa
undir höndum sem lán af al-
heims skapara og eiganda.
Það er mikill vandi að verja
rétt láni því, sem menn veita
viðtöku af eiganda himins og
jarðar. Ýmsum virðist yfirsjást í
þessu.
Menn fara með umboð sitt al-
veg eins og það sé þeirra eigið.
Þó dugar ekki að hreyfa mót-
mælum, þegar þeir eru sviftir
ráðsmenskunni.
Tilgangur alls þessa er að
njóta þess með allri greind og
gætni, og fyrir hvern mann að
stunda sinn „reit“ þannig, að
aðrir menn fái notið þess einnig
meðan lífið endist ,og jafnvel að
það geti orðið til blessunar að
loknu lífi. Með þessu mótf má
mannsæfin reynast löng og
blessunarrík, hvort heldur að
árin verða fá eða mörg.
„Gæt vel, sem mestu varðar,
meðan tíminn tæpi líður“.
s. s. c.
Tvöfalt meiri uppskera af fóðurkáli en
grasi af hektara
Geiur orðið svo hávaxið. að kýr,
sem beill er á það að hauslinu,
nálega hverfi
Tilraunir hafa á undanförn-
um árum verið gerðar hér á
landi með ræktun fóðurkáls,
en það er mikið ræktað
sums staðar erlendis til fóð-
urs fyrir gripi. Tilraunirnar
hér á landi hafa gefið góða
raun, að því er Gísli Krist-
jánsson ritstjóri hefur skýrt
blaðinu frá, en hins vegar
hefur þeim þó ekki verið
mikill gaumur gefinn.
Fyrst mun hafa verið reynt
að rækta fóðurkál hér um 1920.
Síðan var það fyrir 8 árum, að
ýmsir byrjuðu þessar tilraunir,
en sumir hættu. Nú er þessi
ræktun komin á góðan rekspöl
hjá sumum.
Við ræktun fóðurkáls þarf
mikinn áburð, og betra er að
rækta það í rakri jörð, a. m. k.
þar sem er þurrlent. Fóðurkál
er geysi stórvaxið, og segir Gísli,
að ekki sé vel sprottið, ef það
er ekki metri á hæð, og svo
mikil spretta hefir verið , hjá
Sigurjóni bónda Kristjánssyni
að Brautarhóli í Svarfaðardal,
að heita mátti, að kýrnar hyrfu,
er þeim var beitt í það að hausti
til. Er eðlilegt að svo vaxtar-
mikil jurt þurfi ríkulegan áburð.
Sigurjón á Brautarhóli beitir
kúm sínum í kálið fram í nóv-
ember, ef veður spillist ekki til
muna fyrir þann tíma. Girðir
hann af skákir af garðræktar-
spildunni og lætur kýrnar éta
kálið alveg upp á hverri skák,
áður en hann færir þær. Mun
auðveldast að nota það þannig
til haustbeitar og sparar það þá
auðvitað annað fóður. En af
hverjum hektara má fá tvöíalt
fleiri fóðureiningar af fóður-
káli en af venjulegu túngresi.
Heilbrigðisþættir
Hjúkrun og slysahjálp
Hlutverk sjúkrahúsa er tví-
þætt. Þau veita veiku fólki að-
hlynningu og læknishjálp, en
auk þess eru þau kennslustofn-
anir. Þar stunda lækna- og
hjúkrunarnemar verklegt nám
sitt. Sjúkrahúsin eru einnig
skólar almennings að vissu leyti.
Með sjúklingum, sem þar hafa
dvalizt dreifist út mikið af hag-
nýtri þekkingu í hjúkrunar-
fræði. Þar kynnist fólk réttum
handtökum og öðrum vinnu-
brögðum í sjúkrastofu, og það
eru ekki hvað sízt konurnar,
sem síðar notfæra sér þau kynni
á heimilum sínum.
Til alls þarf rétt tök. Það er
ekki sama, hvernig sjúklingi er
hagrætt eða búið er um rúm
hans. Þegar um næman sjúk-
dóm er að ræða, er mikilsvert
að kunna skil á að verja heil-
brigða fólkið á heimilinu, og
skiptir þar nákvæmt hreinlæti í
allri umgengni við sjúklinginn
meginmáli. Það er einnig mikil-
vægt, að sá, sem sjúkling ann-
ast, gefi nánar gætur að sjúk-
dómseinkennum hans og öllum
Dreytingum, er á honum verða,
og láti síðan lækni í té vitneskju
sína. Þetta er aðeins dæmi þess,
sem menn kynnast og læra inn-
an sjúkrahúsveggjanna, en sú
Dekking síast síðan út til al-
mennings og kemur heimilunum
að notum. Hún er að vísu nokk-
uð dýrkeypt, og væri æskilegra
að geta veitt fólki hana, án þess
að þurfa að vista það sem sjúkl-
inga í sjúkrahús.
Sú hjálp, sem slösuðum manni
er fyrst veitt, er alltaf mikils
virði, og stundum veltur það á
henni, hvort hann lifir eða
deyr. Skýrast kemur þetta í
ljós, þegar manni er bjargað
Framhald á bls. 8
Vélavinna auðveld
Auðvelt er að nota vélar við
sáningu kálfræsins. Og þótt
hentugast virðist að nota það til
haustfóðurs, má einnig sýra það
og geyma í súrheyshlöðum Sig-
urjón á Brautarhóli sáir því
jafnan í annars árs nýrækt.
—Alþbl., 13. maí
Aihyglisveri uppeldissiarf í barnaskólunum tekið upp:
Frjóls sparifjórsöfnun barna, Landsbankinn gefur
hverju barni sparisjóðsbók með 10 kr.
Snorri Sigfússon, námsstjóri,
brauiryðjandi þessarar siarf-
semi hér á landi
Með næsta skólaári er á-
kveðið að gera tilraun til
athyglisverðrar starfsemi í
barnaskólum landsins. Er
það frjáls sparifjársöfnun
barnanna. Snorri Sigfússon,
námsstjóri, mun annast um-
kjón þessa starfs í umboði
Landsbanka íslands, sem
gefa mun hverju því barni
í barnaskóla, sem taka vill
þátt í þessu, sparisjóðsbók
með 10 kr. Björn Tryggva-
son, fulltrúi bankans, Snorri
Sigfússon, fræðslumálastjóri
og fræðslu-fulltrúi Reykja-
víkur ræddu þetta mál við
blaðamenn í gær.
Það er alkunna, að sparsemi
og skynsamleg meðferð fjár-
muna er dyggð, sem allmjög er
ábótavant hér á landi, ekki sízt
meðal barna og unglinga. Mörg
börn hafa nú allmikil auraráð,
en hafa fengið lítið uppeldi eða
tilsögn um hagsýna og sparsam-
lega meðferð þeirra aura. Vilja
þeir því oft fara í fánýtt stund-
argaman, sem oft er fremur til
þú fáir dökkar rendur undir
neglurnar. Ennfremur er gott að
fylgja þessari reglu, þegar vinna
þarf í mold við að planta blóm-
um eða ávöxtum.
ills én góðs fyrir barnið. Hér á
landi hefir ekki verið um að
ræða skipulagt uppeldisstarf eða
fræðslu í skólunum til úrbóta á
þessu sviði, en þó verið gerðar
einstakar tilraunir í sumum
héruðum landsins og hafa yfir-
leitt gefizt vel. Erlendis er hins
vegar um allmikla sparisjóðs-
starfsemi að ræða víða í skólum.
Braulin rudd
Snorri Sigfússon, sem sjálfur
reyndi þetta með góðum árangri
í skóla sínum á Akureyri, hefir
lengi haft hug á að vinna mál-
inu brautargengi hér á landi,
hreyft því í riti og flutt um það
útvarpsþætti. Ræddi hann málið
við Eystein Jónsson, fjármála-
ráðherra, og Björn Ólafsson, þá-
verandi menntamálaráðherra,
sem hóf viðræður við Lands-
bankann. Þá ræddi Snorri og
málið við fræðslumálastjóra og
bankastjóra Búnaðarbankans og
Útvegsbankans, og fékk alls
staðar hinar beztu undirtektif.
En mestan áhuga á framgangi
málsins segir hann að Jón
Árnason, bankastjóri Lands-
bankans, hafi sýnt, og fyrir
hans forgöngu lögðu bankastjór-
arnir það fyrir bankaráðið.
Skyldi bankinn gefa hverju sjö
ára barni, sem þátt tekur í þessu,
sparisjóðsbók með 10 kr. inn-
stæðu. Þetta samþykkti banka-
ráðið. Er þetta hin markverðasta
samþykkt.
Fyrst og fremst uppeldisstarf
Snorri lagði á það höfuð
áherzlu, að hér væri fyrst og
fremst um uppeldislegt atriði að
ræða til að efla með þjóðinni
dyggð, sem væri henni lífsnauð
synleg til velfarnaðar, en ekki
gert í því augnamiði að auka
sparifé þjóðarinnar. Hér er
heldur ekki um neitt valdboð að
ræða, heldur frjálst starf. Kenn-
arasamtökin og núverandi
menntamálaráðherra hafa heit-
ið málinu fullum stuðningi. Þótt
þjóðbankinn hafi forgÖngu um
þetta mál, er stuðningur og
fyrirgreiðsla annarra banka og
sparisjóða vel þegin, þegar til
framkvæmda kemur.
—TÍMINN, 11. maí
■
tf^^fPOLIO
iim* M>* UIIU
THIS
space
CONTRIBUTED
DREWRYS
MANITOBA
D I V I S I 0 N
WESTERN
CANADA
BREWERIES
L I M I T E D
TILKYNNING
Þeir lögfræðingarnir LAMONT og BURIAK 510 Childs
Building hér í borg, hafa ákveðið að setja á fót lögmanns-
skrifstofu í Árborg, Man., snemma í júnímánuði næstk.
Mr. Arthur Kristján Swainson, L.L.B., sem er meðlimur
áminsts lögfræðingafélags, mun veita þessari nýju skrif-
stofu forstöðu, eða ef svo ber undir, annar starfsmaður
félagsins. Lögfræðinginn verður að hitta vikulega í Arborg
á föstudögum og laugardögum og ef þörf gerist aðra daga
vikunnar.