Lögberg - 08.07.1954, Síða 4
4
Lögberg
Ritstjóri: EINAR P. JÓNSSON
Gefið fit hvern fimtudag af
THE COLUMBIA PRESS LIMITED
695 SAEGENT AVENUE, WINNIPEG, MANITOBA
J. T. BECK, Manager
Utanáakrift rltstjðrans:
EDITOR LÖGBERG, 695 SARGENT AVENUE, WINNIPEG, MAN.
PHONE 743-411
Verð $5.0U um árið — Borgist fyrirfram
The “Liögbergr” ia printed and published by The Columbia Press Ltd.
695 Sargent Avenue, Winnipeg, Manitoba, Canada
Authorized as Second Class Mail, Post Oífice Department, Ottawa
Sauðfjárrækf- á fallanda fæfri
Arið 1871 var tala sauðfjár hér í landi tvisvar sinnum
hærri en í fyrra.
Meðan á síðustu heimsstyrjöld stóð var geisimikil
áherzla lögð á sauðfjárræktina, eigi aðeins vegna kjötsins,
heldur og engu síður vegna ullarinnar, því svo sem vænta
mátti gekk ullarefni þá mjög í súginn.
Árið 1871 nam tala sauðfjár freklega þremur miljón-
um og var canadiska þjóðin þá sjálfbirg að öllu um sauða-
kjöt, lambakjöt og ull; nú er svo komið, að frá þeim tíma
hefir sauðfé í landinu fækkað um helming, eða jafnvel
meira en það; það sýnist því liggja nokkurn veginn í augum
uppi, að við svo búið megi ekki lengur standa, eigi ekki
þessi mikilvæga framleiðslugrein að fara í kalda kol.
Á því tímabili, sem nú var sagt frá, voru ræktaðar
bújarðir í landinu miklu færri en nú á dögum, fé í meiri
hættu af völdum úlfa, er kalla mátti að léki lausum hala
um land alt; þá var lítið um ullarverksmiðjur og þröngt um
markaði; þó töldu bændur það ómaksins vert, að koma á
fót stórum sauðahjörðum og var þó beitiland hvergi nándar
nærri jafn víðtækt og það nú er vegna hinna miklu skóga,
er þöktu landið og eigi hafði tekist nema að litlu leyti
að ryðja.
Það er eitthvað meira en lítið bogið við búnaðarháttu
vora, er vér verðum til þess knúðir að flytja inn kynstrin
öll af ull, mestmegnis frá Astralíu, að viðbættum inn-
flutningi lambakjöts víðsvegar að.
Tímarnir breytast og mennirnir með, og fataefnin taka
einnig breytingum; þó verður sú staðreynd eigi umflúin,
að fallegustu fötin og þau endingarbeztu séu jafnan unnin
úr ull.
Þegar maður hlustar á markaðsfréttirnar á morgnana
og sagt er frá tölu þess stofns, sem kemur í gripakvíarnar
í St. Boniface til slátrunar, eru nautgripir þar jafnan efstir
á blaði, en næst þeim að höfðatölu koma svínin; það er
engin ný bóla, að þulurinn komist þannig að orði í útvarps-
fréttunum varðandi markaðinn frá degi til dags: No Sheep
or Lamb — enginn sauður eða lamb.
Lítt munu skiptar skoðanir um það, að sauðakjöt sé
holl og ljúffeng fæða, og þá ekki síður dilkakjötið, sem er
flestum fæðutegundum auðugra að bætiefnum; og það er
óneitanlega hálfvegis andhælislegt ef íbúum þessa lands
verður meinaður aðgangur að þessari ágætu fæðu nema
þá vegna innflutnings slíks kjötmetis um óravegu frá öðrum
þjóðum.
☆ ☆ ☆
Kynþáttaflokkun
Forsætisráðherra Suður-Afríkusambandsins, Dr. Malan,
er ekki alveg á því að slaka til varðandi hina illræmdu
kynþáttaflokkun í landi sínu; er hæztiréttur landsins í fyrra
komst að þeirri niðurstöðu, að slík flokkun bryti í bága við
stjórnarskrána, var hann ekki lengi að velta því fyrir sér
hvað taka skyldi til bragðs, og niðurstaðan varð engin
önnur en sú, að sjálfsagt væri að nema hæztarétt úr gildi
með þingsamþykt, eða þá að nafninu til með lögum. Dr.
Malan telur sig eftir sem áður lýðræðissinna, en sé hér
ekki um Fasistabrennimark að ræða, hvað er það þá?
Naumast verður annað réttilega sagt, en í ríki Dr.
Malans séu blökkumenn í raun og veru lítið annað en út-
skúfuð peð, óferjandi og óalandi öllum bjargráðum; þeir
mega ekki stíga upp í sama vagn og hvítir menn og þeir
mega vitaskuld heldur ekki sitja til borðs með hvítum
mönnum, en í járnbrautarstöðvum eru þeir aðskildir með
köðlum; og þetta er þá mannfrelsið, þó komið sé fram yfir
miðbik tuttugustu aldar, sem ýmsir burgeisar státa svo
mikið af og ráða ekki við sig af sjálfsdýrkun.
Góðu heilli kvað ekki alls fyrir löngu við annan tón í
Bandaríkjunum þar sem hæztiréttur þeirrar voldugu þjóð-
ar úrskurðaði í einu hljóði, að framvegis skyldu börn
Negra og annara þjóðfélagsþegna sitja á sama bekk í öllum
skólum landsins; yfir höfuð að tala verður ekki annað sagt,
en dómsúrskurðinum væri vel fagnað, þó nokkurs úlfaþyts
yrði fyrst í stað vart í Suðurríkjunum, eða að minsta kosti
sumum þeirra, en þar voru Negrar hafðir útundan og kosti
þeirra þjakað í meira en hálfa aðra öld; telja má þó víst,
að Suðurríkin sætti sig við orðinn hlut og taki áminstum
úrskurði með jafnaðargeði, enda hafa ýmsir forustumenn
þeirra, svo sem ríkisstjórinn í Georgíu, skorað á samþegna
sína, að virða að öllu lög landsins og láta ekki tilfinningarnar
hlaupa með þá í gönur.
Ætla mætti að Dr. Malan hefði látið sér sérmál Banda-
ríkjanna í þessu efni alveg óviðkomandi, en svo varð þó
ekki; svo ríkt var Negrahatrið í blóði hans og vitund, að
hann lét sér sæma að úthúða Bandaríkjunum fyrir þá sjálf-
sögðu mannréttindaákvörðun þeirra, er hæztiréttur fyrir
hönd þeirra tók, og ekki þoldi lengri bið.
Engin hugsjón er fri^arhugsjóninni fegurri; óspiltir,
rétthugsandi menn þrá frið og vilja mikið á sig leggja þvi
háleita markmiði til fulltingis; en því miður eru ekki allir
menn rétthugsandi, og þá allra sízt þeir, er synja vilja sam-
þegnum sínum um almenn mannréttindi vegna þjóðernis-
legs uppruna eða litarháttar.
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 8. JÚLl 1954
SÓLMYRKVINN: —
Stórkosf-legasta náttúrufyrirbrigði
síðan Hekla gaus
Á Skógasandi féll myrkur yfir
landið og stjörnur skinu á himni
Þeir, sem sáu sólina al-
myrkvast í gær voru vitni
að einu stórkostlegasta nátt-
úrufyrirbæri, sesn augum
getur að líta. Um hádaginn
féll myrkur yfir landið,
napur gnjóstur næddi um
menn og skepnur, og stjörn-
ur skinu á himni eins og á
vetrarnóttu. Þar sem frétta-
menn Mbl. voru staddir á
Skógasandi undir Eyja-
fjöllum, stóð hinn algeri sól-
myrkvi í rúmlega'eina mín-
útu. Að þeim tíma liðnum
kom örlítil rönd af sólinni
fram undan tunglinu og inn-
an skamms skein hún glatt
í heiði. Heimurinn varð á
ný bjartur og hlýr, þar sem
fyrir örskammri stundu
hafði ríkt hrollvekjandi
myrkur og kuldi.
Sólmyrkvaflug með Snæfaxa
Gærdagurinn rann upp heiður
og bjartur hér sunnanlands. Var
það mjög mikils virði fyrir vís-
indalegar rannsóknir á sól-
myrkvanum. Flugfélag íslands
vildi gera sitt til þess að auð-
velda blaðamönnum að fylgjast
með þessu merkilega náttúru-
fyrirbrigði og bauð þeim þess
vegna með í sólmyrkvaflug (sbr.
miðnætursólarflug) til Vest-
mannaeyja. Skyldi sú ferð hefj-
ast laust fyrir kl. 11 árdegis. En
vindur gerðist þá of hvass til
þess að unnt væri að lenda á
flugvellinum í Eyjum. Var þess
vegna stefnt austur á Skógasand
undir Eyjafjöllum, sem einnig
var á því svæði, þar sem al-
myrkvi mundi verða á sólu.
Fararkosturinn var Snæfaxi,
hin nýja Douglas-Dakotavél
Flugfélagsins. Var hún fullskip-
uð farþegum, ungum og göml-
um, konum og körlum. Yngsti
farþeginn mun hafa verió innan
við 10 ára en hinn elzti á átt-
ræðisaldri.
Fögur fjallasýn
Þegar flogið var austur með
landinu var útsýni hið fegursta.
Suðurlandsundirlendið breiddi
úr sér með nýslegnum túnum,
stórfljótum sínum, ægisöýndum
og brimfextri strönd. Inn í land-
inu blöstu við eldfjöll og jöklar,
úti í hafi risu Vestmannaeyjar
upp úr Djúpinu. Yfir þetta svip-
mikla land skein júnísólin, heit
og sterk. En innan skamms mun
hún sortna og dimmur skuggi
sólmyrkvans fara með ægihraða
yfir allbreitt belti af suðurhluta
landsins. Fjöldi bifreiða sást á
austurleið á þjóðveginum.
Á Skógasandi
Þrjátíu og sex mínútum eftir
að lagt var af stað úr Reykjavík
erum við lentir á Skógasandi.
Klukkuna vantar nú rúmlega 20
mínútur í tólf. Við bregðum
þykku dökklituðu gleri fyrir
augun og horfum til sólar. Jú,
sólmyrkvinn gengur samkvæmt
áætlun. Vísindamönnunum hef-
ir ekki skjátlast. Tunglið er að
þoka sér fyrir sólina. Það er rétt
eins og það sé að smáéta af
henni hægra megin.
Byrjað að skyggja
Kl. er 11.50. Það er greinilega
farið að skyggja og kólna. Þarna
á sandinum eru nú 6 flugvélar,
þar af tvær stórar Dakotavélar.
Hitt eru litlar einkaflugvélar.
Samtals munu vera þarna 70 til
80 manns. Fólkið er flest í ná-
munda við vélarnar. Allir eru
með gler fyrir augum og horfa
til himins. Gegnum glerið sést
hin minnkandi sólskífa. Nú er
svo komið að ef horft er andar-
tak til sólar með berum augum
þá sést skarðið í hana greinilega.
Við erum að verða hálf loppin.
Veður er kyrrt en andvarinn
verður að kaldri og óhugnan-
legri nepju. Svartur sandurinn,
sem við stöndum á, verður þung-
búnari á svipinn og skrúðgrænt
landið upp af honum missir
smám saman lit sinn. Það skygg-
ir smám saman meira. Sólskífan
er orðin örmjó. Útsýnið þreng-
ist. Nú sést varla orðið til Vest-
mannaeyja. Út við sjóndeildar-
hringinn bregður kvöldroða á
himininn, eins og rétt eftir
sólarlag.
Tilrandi sólmyrkvarákir
býlgjasi yfir landið
Nú er kl. orðin rúmlega 12.
Titrandi sólmyrkvarákir bylgj- i gerast.
ast yfir landið og gefa umhverf-
inu einhvern dularfullan og
annarlegan svip. Fólkið stendur
flest grafkyrrt eins og í ofvæni.
Ljósmyndararnir hafa komið sér
upp nokkurs konar „rannsókn-
arstöðvum“ á víð og dreif í ná-
grenninu. Nú er þess örskammt
að bíða að sólin almyrkvist.
Tunglið hefir gert jarðarbúum
þann grikk að leyfa sér að
skyggja á hinn mikla orkugjafa
þeirra, sem öllu mannlegu lífi
ræður.
dimm ský bera við sjóndeildar-
hringinn. Allir litir eru horfnir
úr landslaginu, túnin eru ekki
lengur græn og fólkið á sandin-
um en álengdar séð eins og
dökkur skuggi. Manni verður
hrollkalt. Örstutta stund, fyrst
eftir almyrkvan, er óhætt að
horfa berum augum á hina
svörtu kringlu, sem milljónir
manna beina nú athygli sinni
að. Undir Eyjafjöllum blikar
rafmagnsljós í glugga.
Þessi sýn er engu öðru lík,
sem nokkru sinni hefir borið
fyrir augu okkar, sem þarna
stöndum. Þetta er stórfengleg-
asta náttúrufyrirbrigði, sem ég
hefi séð, að fráskildu Heklugosi.
Það er sannarlega ómaksins
vert að þakka vísindamönnum,
sem hafa reiknað það út upp á
mínútu, hvenær þessi undur
„Sól ter sortna"
Kl. er rúmlega 5 mínútur yfir
tólf á hádegi. Sólin hefir al-
myrkvast. Nokkrar undrandi og
lítilsmegandi verur horfa til
himins upp frá Skógasandi á Is-
landi. I sólarstað sjá þær nú að-
ein svarta kringlu. En um-
hverfis hana er örmjór glóandi
hringur, sem fögrum geisla-
krans stafar út frá.
Nú er sem^nótt hafi fallið yfit.
Stjörnurnar tindra á himni,
Birtir á ný
Hinn algeri sólmyrkvi stendur
yfir í rúma mínútu á Skóga-
sandi. Að þeim tíma loknum
tekur rönd af sólinni að sjást á
ný. Og þá birtir undra fljótt.
Stjörnurnar dofna og hverfa.
Það verður aftur hlýtt og hið
myrkvaða belti jarðarinnar nýt-
ur dags og sólar.
Það er upphafningar- og gleði-
svipur á fólkinu, sem horft hefir
á sólmyrkvann. Við höfum verið
vitni að undursamlegu fyrir-
brigði, séð myrkur og ljós víkja
hvort fyrir öðru á örskömmum
tíma, dag og nótt takast í hend-
ur og skilja á ný með furðu-
legum hætti.
Heimsókninni á Skógasand er
lokið. Snæfaxi lyftir sér til flugs
og leiðin liggur um loftin blá til
Reykjavíkur. Svo bíðum við
næsta almyrkva á sólu rólegir í
svo sem eitt hundrað og þrjátíu
ár!! S. Bj.
—Mbl., 24. júní
Fréttir fró rékisútvarpi íslands
Framhald af bls. 1
Sambandsráðsfundur Ung-
mennafélags Islands hófst í
Reykjavík í gær og er þar m. a.
rætt um norræna æskulýðsmót-
ið að Laugarvatni, sem Ung-
mennafélag Islands gengst fyrir.
Mótið hefst á miðvikudaginn
kemur og eru þátttakendur um
50, þar af 30 útlendingar, sem
koma með skipinu/Heklu. Eru
þar menn frá Norðurlöndum öll-
um nema Færeyjum. Mótið
stendur til þriðjudagskvölds 6.
júlí.
☆
Prestastefna Islands var hald-
in í Reykjavík í vikunni, sem
leið, og sóttu hana 112 vígðir
menn. Hún hófst með guðsþjón-
ustu í dómkirkjunni í Reykja-
vík á mánudaginn og vígði
biskup þar sex guðfræði-
kandídata. Síðar um daginn
flutti biskup skýrslu um störf og
hag kirkjunnar á liðnu synodus-
ári. Á árinu höfðu látist 5 prest-
ar og 5 fengið lausn frá prests-
skap, en sjö bætzt í hóp presta.
Óveitt eru 10 prestaköll, í fjór-
um þeirra eru settir prestar en
6 er þjónað af nágrannaprestum.
Tala þjónandi presta er nú 110,
en embættin eru 116 að lögum.
Stofnaðir voru 9 kirkjukórar á
árinu og eru þeir nú samtals 175
á landinu. Á árinu voru sett lög
um Kirkjubyggingasjóð, er taka
skal til starfa 1955. Leggur ríkið
sjóðnum til hálfa milljón króna
á ári í næstu 20 ár. Úr sjóðnum
skal veita vaxtalaus lán til bygg-
ingar kirkna og endurbóta á
kirkjum. Ennfremur tekur sjóð-
urinn að sér að greiða vexti af
lánum, sem söfnuðir hafa tekið
á seinni árum til kirkjubygg-
inga eða meiri háttar endurbóta
á kirkjum. — Aðalmál Presta-
stefnunnar var Kirkjan og
líknarmálin. Meðal ályktana
voru þessar: Æskilegt var talið,
að skipaður verði sérstakur
prestur í Reykjavík fyrir sjúkra
húsin, er vinní þar einkum sál-
gæzlustarf. Því var fagnað, að
Brjóstmynd af
Svcini Björnssyni
forseta
Hinn 16. júní s.l. var afhent á
Bessastöðum brjóstmynd af
Sveini Björnssyni, forseta. Lík-
anið er steypt í eir eftir frum-
mynd Einars Jónssonar.
Er hér um að ræða gjöf til
Bessastaða frá mönnum af ís-
lenzkum stofni í Bandaríkjunum
svo og frá öðrum vinum íslands
þar.
Prófessor Richard Beck, ræðis
maður Islands í Norður-Dakota,
afhenti gjöfina fyrir hönd gef-
enda, en forseti Islands, herra
Ásgeir Ásgeirsson, veitti henni
viðtöku.
Viðstaddir athöfnina voru
ýmsir Vestur-Islendingar, sem
staddir eru hér á landi, utan-
ríkisráðherra og börn Sveins
Björnssonar og tengdabörn, sem
hér eru.
—Mbl., 17. júní
„lceland", mynda-
bók MaImbergs og
Helga P. Briem
Komin er út ný útgáfa af
íslandsmyndabók Hans Malm-
bergs með formála á ensku
eftir Helga P. Briem, sendiherra,
og enkum skýringartextum með
myndum, og hefir Helgi P-
Briem einnig samið þá.
Bók þessi hefir komið út áður
með sænskum texta og vakti þá
mikla athygli. Myndirnar hefir
Malmberg tekið á ferðum sínum
víðsvegar um landið, úr bæjum
og sveitum, af atvinnulífi og
landslagi, á heimilum og víðar.
Þá er textinn með ágætum.
Bókin er í aðalatriðum með
sömu myndum og áður, en þó
eru þar nokkrar nýjar myndir,
allt að 20. — Bókaverzlun ísa-
foldarprentsmiðju hefir aðal-
útsölu bókarinnar hér á landi.
—Mbl., 1. júlí
Reykjavíkurbær mun nú hafa í
undirbúningi að koma upp tóm-
stundaheimilum fyrir æskulýð
bæjarins, og væntir kirkjan
þess að samstarfs verði leitað
við presta bæjarins, er til fram-
kvæmda kemur. Brýn nauðsyn
var talin bera til þess að komið
verði upp á næsta hausti viðun-
andi hæli fyrir þá, sem verst eru
staddir vegna ofdrykkju, og var
biskupi falið að ræða þetta mál
við dómsmálaráðuneytið. Æski-
legt var talið að kirkjan helgi
einn sunnudag á ári málefni
kristniboðsins eftir frekari fyrir-
mælum biskups.
☆
Þingvallanefnd hefur nú með
höndum margvíslegar fram-
kvæmdir eða undirbúning fram-
kvæmda í þjóðgarðinum á Þing-
völlum. Nenfdin hefur m. a.
samþykkt að beita sér fyrir al-
mennri fjársöfnun til þess að
koma upp nýrri kirkju á Þing-
völlum, er jafnframt verði
minnismerki um þann merka at-
burð sögunnar, er kristni var
lögtekin þar. Allmikið hefur
verið gert að því að auka gróður
í þjóðgarðinum og hafa alls
verið gróðursettar þar um
200.000 trjáplöntur.
☆
Stjórnir Norræna félagsins og
sænsk-íslenzka félagsins í Sví-
þjóð hafa ákveðið að veita 5 ís-
lenkum leikurum styrk til
kynnisdvalar í Svíþjóð. Fá fjórir
þeirra 1400 krónur hver, en einn
700 krónur.
Norski píanóleikarinn Rief-
ling hélt þrisvar sinnum tón-
leika í Reykjavík í vikunni, sem
leið, tvisvar sinnum á vegum
Tónlistarfélagsins og einu sinni
fyrir almenning. — Ameríski
organleikarinn Power Biggs
heldur hljómleika í dómkirkj-
unni í Reykjavík annað kvöld.
Hann heldur hljómleika þessa á
vegum Félags íslenzkra organ-
leikara og Tónlistarfélagsins.
☆
Flokkur fimleikamanna írá
Finnlandi sýnir um þessar
mundir áhaldaleikfimi í Reykja
vík og víðar. Flokkurinn er hér
á vegum Glímufélagsins Ár-
manns.
☆
Snemma í næsta mánuði fer
fram í Halden í Noregi 15. lands-
mót Norðmanna í fimleikum og
hefur þangað verið boðið flokk-
um frá Norðurlöndum öllum. Af
Islands hálfu sýnir þar 10 manna
flokkur frá K.R., er æft hefur
áhaldáleikfimi síðan 1949. Kenn-
ari og fararstjóri er Benedikt
Jakobsson.
☆
I gær lauk í Prag svæðismóti
í skák og kepptu þar 20 beztu
skákmenn Norðurlanda, Mið-
Evrópu og fleiri landa. Friðrik
Ólafsson og Guðmundur Pálma-
son kepptu af hálfu lslendinga>
og varð Friðrik sjötti í röðinni
með III/2 vinning, og þykir vel
gert af svo ungum pilti í svo
harðri keppni. — Guðmundur
Pálmason hafði sjö vinninga.
TILKYNNING
Þeir lögfræðingarnir LAMONT og BURIAK 510 Childs
Building hér í borg, hafa ákveðið að setja á fót lögmanns-
skrifstofu í Árborg, Man., snemma í júnímánuði næstk.
Mr. Arthur Kristján Swainson, L.L.B., sem er meðlimur
áminsts lögfræðingafélags, mun veita þessari nýju skrif-
stofu forstöðu, eða ef svo ber undir, annar starfsmaður
félagsins. Lögfræðinginn verður að hitta vikulega í Arborg
á föstudögum og laugardögum og ef þörf gerist aðra daga
vikunnar.