Lögberg - 15.07.1954, Side 6

Lögberg - 15.07.1954, Side 6
6 LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 15. JÚLÍ 1954 „Er það ekki eitthvað fleira, sem ég get gert fyrir þig?“ spurði Jón og laut niður að gamla manninum. Hann bjóst við, að nú væri hver síðastur. „Ef þú vildir lofa mér að vera nærri honum pabba þínum í garðinum, þá þætti mér vænt um það. Og svo langar mig til þess að þú sitjir hérna hjá mér. Mér finnst mér líða betur“. „Ég skal gera eins og þú óskar“, sagði Jón. Þetta var það síðasta^ sem Finnur gamli talaði. Hann sofnaði bráðlega. Jón sat aleinn í baðstofunni, þegar aðrir gengu til náða. Stúlkurnar sváfu úti í hlöðu. Borghildur færði stól að rúminu og settist á hann þegar hún hafði lokið við niðriverkin. Hún gat ekki hugsað til þess, að Jón væri einn á þessari alvörustundu. Þó að það væri ekki sorgarefni, að örvasa gamalmenni fengi hvíld frá ömurleika ellinnar, þá er dauðinn alltaf ægilegur fyrir þá, sem eru í návist hans, hvern sem hann hefur á brott með sér. Hinn fábreytti æviferill þessa einkennilega manns var nægi- legt umhugsunarefni fyrir þennan lífsglaða mann, sem hataði allt, er tilheyrði alvörunni. Hér á þessu heimili hafði þessi vesalingur verið alinn upp eins og þurfalingur — unnið kauplaust beztu ár ævinnar. Það lítið, sem hann hafði eignazt, var hann nú búinn að gefa inn í Nautaflatabúið. Þó var þetta allt, jörðin og búið, hans eign, því að hann var eldri sonur óðalsbóndans. Og þegar þessi veiki lífsþráður slitnaði, var víst Nautaflata-ættin algerlega ú^ dauð. Eftir því sem séra Hallgrímur hafði gefið honum í skyn í það eina skipti, sem þeir höfðu sézt, var hann sjálfur eins og hver annar óviðkomandi fugl, sem hafði verið búið um í þessu mjúka, hlýja hreiðri, sem þessi vesalingur hafði átt að búa í. En sönnur á því vissi hann engar. Oft hafði hann óskað þess, að þann mann hefði hann aldrei séð eða ætti eftir að sjá hann aftur. Samt hafði hann sagt, að hann væri velkominn á sit.t heimili til dvalar í ell- inni. En það hefði hann einnig sagt við sérhvern þann, sem hefði óskað þess, hvort sem hann hefði verið skyldur eða vandalaus. Það hefði móðir hans gert, og það ætlaði hann sér líka að gera. Og hann hafði lofað honum því, að hann mætti hvíla í garðinum. Það var náttúrlega sjálfsagt, ef hann dæi á hans heimili. En vonandi þyrfti hann aldrei að velja það grafarstæði. Það yrði að minnsta kosti að vera langt frá Nautaflatagrafreitnum. Hann gat ekki hugsað sér að eiga annan föður en dagsfarsprúða alvöru- manninn Jakob Jónsson. Hjá honum ætlaði hann að hvíla. Og Finnur hafði líka óskað þess, að mega sameinast moldinni við hliðina á honum, eina manninum, sem hafði sýnt honum alúð á æskuárunum. Anna vaknaði óvenju snemma næsta morgun. Gott var, að þessi nótt var liðin. Borghildur hafði setið fyrir innan hjá henni kvöldið áður, þangað til hún var sofnuð. Hún hafði verið svo hrædd við að vera ein, vegna þess að hún bjóst við, að dauðinn væri á næstu grösum. Hún hlustaði eftir einhverju hljóði framan úr baðstofunni, en heyrði ekkert. Þó sýndi klukkan venjulegan fótaferðartíma. Skyldu þau sitja ennþá við rúm aumingja Finns? hugsaði hún og fór fram úr, læddist að hurðinni og opnaði hana varlega, Þarna sat Borghildur í rúminu sínu, en rúmið hans Finns var autt, sængurnar voru ekki einu sinni í því. Nú var búið að bera hann fram í stofu, og sængurfötin voru sjálfsagt komin út. En hvar var Jón eiginlega? Þarna lá hann alklæddur í sængur- fatalausu rúmi, og hafði ekki einu sinni kodda undir höfðinu. Hvað skyldi þetta eiga að þýða? Líklega hafði Borghildur ekki þorað að sofa ein í baðstofunni, þar sem maður var nýlega dáinn, og hafði því beðið hann að sofa fyrir framan. Hún lét hurðina síga hljóðlaust oftur og fór upp í rúmið. Snöggvast datt henni í hug að hita morgunkaffið, svo að Borghildur mætti sofa út. En það var svo geigvænleg þögn yfir heimilinu, eldhúsið kalt og lík þarna frammi í stofunni. Það var ólíkt notalegra að fara undir glóðvolga sængina. Nokkru seinna heyrði hún, að Borghildur var farin að klæða sig. Alltaf gat • hún vaknað, þessi duglega kona, hvernig sem á stóð. Það var gott, að þessi grafarkyrrð var ekki lengur í kringum hana. Hún heyrði umgang og samtal framan úr eldhús- inu. Vinnufólkið var að koma til að drekka kaffið. Rétt þar á eftir kom maður hennar inn og bauð henni góðan dag með kossi. Hann var alvarlegur á svip; það hafði hann alltaf verið síðan Finnur veiktist. Hún settist upp og tók biblíuna, sem lá ofan á sænginni, og blaðaði í henni meðan hún talaði. „Ég veit, að Finni er dáinn. Ég leit fram fyrir áðan. En því í ósköpunum háttaðirðu ekki, heldur en að sofa rúmfatalaus frammi í baðstofu. Ertu reiður við mig ennþá?“ „Það var komið fram undir morgun, þegar lokið var við að búa um líkið og bera það fram. Ég vildi ekki vekja þig“. Hún aðgætti svip hans vandlega. Hann var ekki líkur því, að hann væri reiður. Samt endurtók hún spurninguna, sem aldrei hafði verið svarað: „Ertu reiður við mig ennþá?“ „Hvers vegna ætti ég að vera reiður?“ spurði hann. „Ég finn það, að ég breytti illa, þegar ég lét hann borða inni í búrinu um daginn“, sagði hún dapurlega. „En af hverju gerðirðu það þá?“ „Ég var hrædd um, að Jakob smitaðist af honum vegna þess að hann hafði þennan leiðinlega ávana, að leika sér við hundana". „Þetta hefur Ketilríður talið þér trú um. Það er gremjulegt, hvað hún getur haft áhrif á þig, og alltaf er það einhverjum til llls. Ég hef þó talað um það við þig oft, að vara þig á þeirri ill- málgu konu“, sagði hann fálega. „Hún hefur nú meint gott með þessu, viljað Jakobi vel“. „Nei, það máttu vera viss um, að henni stendur algerlega á sama um, hvort hann er heilbrigður eða ekki. Hún hefur bara vitað, að aumingja gamli maðurinn angraðist af þessu ,og þá hefur henni verið skemmt“, sagði hann og gekk út að glugganum. Hann horfði yfir grænt túnið og hugsaði um það, sem Finnur gamli var vanur að segja þegar veðrið var svona gott: „Það er dýrðlegt veður núna. Drottni sé lof“. Skyldi hann ekki sjá, hvað dalurinn er fallegur núna, eða vera horfinn svo langt strax? Anna vakti hann af þessum hugsunum: „Heldurðu að Guð loki mig úti, þegar ég kem yfir um, fyrir þetta?“ spurði hún hik- andi. „Ég meina, hvort hann muni ekki vilja opna dyrnar fyrir mér, þótt mér færist svona illa við aumingja Finn?“ Hann brosti dauflega að þessari barnalegu spurningu. „Það er víst nær að spyrja biblíuna að því en mig. Ég sé, að þú ert með hana“, sagði hann. „Ég hef gert það“, sagði hún, „en fæ ekki viðeigandi svar“. „Ekki það?“ sagði hann. „Ég er ekki kunnugur gestrisni himnaföðursins, en mér finnst hann muni meta biblíulesturinn þinn lítils, ef hann tekur ekki sæmilega á móti þér, þegar þú flytur yfir um“. Hún stundi mæðulega. „Þú talar alltaf svo gáleysislega um guðsorð og himnaföður- inn, ekki ólíkt því, að þú sért að hæðast að því. Það var það, sem pabba sáluga líkaði svo illa“. Hann kom til hennar og kyssti hana. „Samt kvíði ég ekkert fyrir að koma yfir um, og áreiðanlega þarft þú þess ennþá síður, þó að þetta kæmi fyrir. Finnur var sáttur við þig, og hefur víst alltaf verið það. Hann gaf þér meira að segja allt, sem hann átti, nema hrossin“, sagði hann. „Hvers vegna gerði hann það?“ spurði hún hissa. „Vegna þess, að hann sagði að þú hefðir einu sinni ætlað að gefa sér aleigu þína, en hún var víst heldur lítil þá“. „Já, ég man það. Það yar þegar Sigga var búin að segja mér söguna hans. Aumingja Finni minn. Hvað hann átti bágt, þegar hann var barn“, sagði hún. „Og hvað þú hlýtur að vera ánægður yfir því, að hafa alltaf verið jafn góður við hann“. „Nú skaltu hætta þessu væli, góða mín, og fara að klæða þig. Það er áreiðanlega heilsusamlegra heldur en biblíulestur að koma út og sjá indælan vormorgun í fallegum dal“, sagði hann og tók biblíuna og lét hana upp á hillu. Næsta sunnudag var fjölmennt við kirkjuna. Það átti að jarð- syngja gamla manninn eftir messu. Á milli leiðisgrinda Jakobs hreppstjóra og Jóns föður hans var gröfin hans tekin. Hún var hlaðin innan eins og gröfin þeirra, Jakobs og konu hans, og kistan var í sama lit og þeirra kistur, prýdd gylltu handabandi og englamyndum. Svo var stór tréflegi látinn yfir gröfina, svo að moldin skyldi ekki hrynja yfir kistuna, og stóran fallegan kranz, sem búinn var til úr fallegum dala- blómum og lyngi. Þegar fólkið gekk frá gröfinni heim til bæjar, sló Sigurður gamli á Hóli á herðarnar á Jóni hreppstjóra og kallaði svo hátt að allir heyrðu, sem viðstaddir voru: „Mikil andsk . . . gersemi ertu, Jón minn. Það hef ég alltaf séð, en þó aldrei eins og núna. Þetta var aðdáunarvert, að láta hann þarna við hliðina á karlinum honum afa þínum, og í jafn fallega kistu og hinn soninn, sem tekinn var fram yfir hann í einu og öllu“. „Dauðinn gerir alla jafna, Sigurður minn“, kallaði Jón við heyrnarlítið eyra gamla mannsins. „Nú getur hann ekki afneitað honum lengur. í lífinu var honum sýnt óréttlæti; hví skyldi ekki mega bæta úr því í garðinum, þó að seint sé“. „Hann var bölvaður heigull, að gangast ekki við því, sem allir vissu að hann átti. Það eru allir heiglar, sem svoleiðis haga sér. Ekki gerði ég það, þótt ég væri ekki hreppstjóri eða hreppstjóra- sonur. Ég gekkst við stelpunni, hvað sem kerlingarskassið hamaðist og bölsótaðist. Já, víst gerði ég það“, kallaði Sigurður gamli. „Já, já, þú gerðir það Sigurður minn. En það getur öllum yfirsézt. Og ekkert er ég að stríða afa mínum með því að taka gröfina þarna. Heldur var það síðasta ósk gamla mannsins, að mega hvíla hjá pabba sáluga. Svo skulum við lofa þeim dauðu að liggja í friði, og koma heim og fá okkur kaffi“, sagði Jón, sem alltaf fékk ónot hjá sinni eigin samvizku, þegar hann hugsaði til þess, hvernig farið hafði verið með Finn gamla. Hún var vön að minna hann á lítinn dreng, langt í burtu, í sólríku landi, sem aldrei hefði fengið að sjá föður sinn né föðurlandið, sem honum bar að eiga, vegna þess að faðirinn var jafn huglaus og faðir burtsofnaðs gamalmennisins. En það var ekki af ótta við heiminn, því að hann mátti vita, að hann var barnið hans, heldur eina bjarthærða konu. Á ást hennar og tilbeiðslu mátti enginn skuggi falla. Og þessa síðustu daga hafði hún verið óvenju erfið við hann, þess vegna langaði hann ekkert til að heyra meira um Jón afa sinn. Sigga gamla hafði sagt honum sögu hans oftar en einu sinni. Þegar kirkjufólkið sá tvö borð dúkuð í stofunni, alsett fínustu brauðfötum og glansandi postulínspörum, hnippti Helga á Hóli í Ketilríði, sína gömlu nágrannakonu, og bað hana að koma með sér afsíðis. Þær gengu út fyrir bæinn. Nú voru þær orðnar jafn góðar kunningjakonur og þær höfðu verið, svona þegar þær töluðu hvor við aðra. Helga byrjaði samtalið: „Mér þykir vera viðhöfn hér í dag. Hver skyldi nú hafa trúað öðru eins, að hann fengi svona fallega kistu og hlaðna gröf, hann Finnur gamli?“ „Það er nú ekki að spyrja að því, sem hann gerir, blessaður húsbóndinn. Það er alltaf jafn rausnarlegt“, sagði Ketilríður. „Ekki má draga það af honum, sem hann á með réttu. Hann var framúrskarandi góður við karlvesalinginn“. Þá kom þessi vanalega umhyggja, sem fólk hefur fyrir því, sem hver og einn lætur eftir sig, þegar hann flytur burtu úr heim- inum, upp hjá Helgu: „Auðvitað hefur hann átt fyrir útförinni sinni hann Finnur heitinn. Átti hann ekki skepnur. Mér heyrist sumir álíta, að hann hafi átt peninga. Hver fær þetta eiginlega?“ „Ó, blessuð vertu, — það fer líklega ekki langt“, sagði Ketil- ríður hálf kímileit. „Ég heyri sagt, að hann hafi gefið Önnu það allt saman, nema hrossin. Sigurður á að fá þau“. „Ja, þeim gaf sem þurfti“, sagði Helga fálega. „Já, þetta er svo sem nógu kænlega útbúið. Honum er goldið kaup, og það látið heita svo, að hann eigi svo og svo margar skepnur, sem hann náttúrlega vann aldrei fyrir að hálfu leyti, og svo rennur þetta allt inn í búið aftur. Það þarf þó nokkra út- sjón eða hrekkjavit til að koma þessu svona laglega fyrir. En af því hefur þeim verið gefið nóg, Jóni og móður hans. Það var ólíkt myndarlegra, að láta það berast út, að honum væri goldið hátt kaup, en að hann væri matvinnungur; en útkoman verður sú sama“. „Hver samdi þessa erfðaskrá?“ spurði Helga með vaxandi forvitni. „Auðvitað gerði Jón það sjálfur. Bárður á Ásólfsstöðum var sóttur til að vera vottur. Ekki hef ég hugmynd um, hvort hann var með réttu ráði, karlskepnan, eða ekki. Hann var oftastnær með einhverju rutli, þegar ég kom inn til hans. En hvað er að tala um það. Hver svo sem annar hefði átt að fá þessar reytur? Það hefði sjálfsagt verið erfitt að finna nákomnari ættingja þessa vesalings. Og svo geta þau sjálfsagt reiknað með því, að fá laglega fúlgu eftir Borghildi. Varla lendir það annars staðar“. „Það getur víst verið, að hún giftist, hún er ekki svo gömul“, sagði Helga. Henni fannst það alveg blöskranlegt, ef hver arfurinn eftir annan ætti að hrúgast að þessu alsnægta heimili. En hún sjálf fengi aldrei svoleiðis höpp, nema það, sem karlinn og kerl- ingin létu eftir sig, en það leit út fyrir að það yrði ekki strax, sem hún losnaði við þau. „Það lifir lengst, sem lýðum er leiðast“. „Það þykir mér ólíklegt, að hún fari að gifta sig“, sagði Ketil- ríður. „Hún hefur ekki haft hlýju til þess að elska neinn karlmann, kaldlyndisskjóðan sú arna. Svo býst ég nú við, að karlmönnunum finnist hún vera búin að lifa sitt sitt fegursta; hún er víst farin að potast upp á fimmtugsaldurinn. Enda mundi ég kenna í brjósti um þann mann, sem hreppti slíkt kvenskass, þó að ég sé víst ekkí álitin neitt sérlega brjóstgóð". „Ekki vantar myndarskapinn á öllu hjá henni“, skaut Helga hálfhikandi inn í. „Já,.ég gef nú ekki svo mjög mikið fyrir hann, hef aldrei gert það, sízt síðan ég kom á þetta heimili. Það lítur út fyrir, að það fylgi honum dálítið, sem dregur úr mestu aðdáuninni, þegar maður er farinn að skilja hlutina rétt. Fyrir gestsauganu er þetta allt dásamlegt“, sagði Ketilríður dularfull á svip. Þá stakk Helga höfðinu fast að eyranu á Ketilríði og spurði ísmeygilega: „Situr hún nú á henni Önnu vesalingnum?“ Ketilríður glotti háðslega. „Það sýnist mér. Það sér það víst enginn annar eða vill ekki sjá það. Það er orðið svo alvanlegt, að Borghildur ráði og „regeri“ í öllu með húsbóndanum“. „Og Anna lætur það gott heita. Þykir náttúrlega gott, að fá að hafa það náðugt? Enda sést það á henni, að hún hefur góða daga. Hún er hvít og fín eins og kaupstaðarfrú“, sagði Helga með öfundarhreim í röddinni. Ketilríður varð ennþá dularfyllri á svipinn. „Það er bezt að segja sem fæst um það allt saman.^Henni hefur líklega verið inn- prentað það í æsku, að hún væri þurfalingur, og mætti vera þakk- lát fyrir hvað eina, sem að henni væri rétt“, sagði hún. „Það fór orð af því, að hún væri mikið eftirlætisbarn á þessu heimili, og ég sá ekki annað en að hún væri það, þetta eina ár, sem ég átti hér heima", sagði Helga. ,Já, sei-sei. Það fór orð af flestu, sem gert var á þessu heimili- Ekki vantaði það. Það hafði lag á því og hefur það ennþá. Hún var öfunduð og talin lánsöm, en hefur þó líklega ekki verið öfunds- verð af neinu, aumingja manneskjan“. Þetta voru dularfull orð, sem gerðu Helgu fram úr hófi forvitna. „Ekki það?“ sagði hún. „Mér sýnist það fara heldur vel uffl hana, og líklega þætti þér munur að sitja í hennar sæti en að þræla eins og þú gerir á þessu heimili?“ „Ég hef alls staðar unnið vel, hvar sem ég hef verið, ekki meira hér en annars staðar. En það verð ég að segja, að enginn hefur goldið mér annað eins kaup og Jón. Ég ætla mér ekki að draga það af honum. Hann tekur ekkert með Dísu, og Anna klæðir hana alveg. Svo að ég hef yfir engu að kvarta. Mér hefur aldrei dottið í hug, að mér væru gefnir kraftarnir til þess að nota þá ekki“. „Jæja, þarna standið þið þá, kjaftatæfurnar ykkar“, sagði Erlendur allt í einu rétt hjá þeim. „Ég er búinn að leita að þér um allt, svo að þú getir farið að hvolfa í þig kaffinu og komast heim. Það sér ekki á, að þig langi í kaffi, að taka fram yfir að þvaðra við Ketilríði úti undir bæjarvegg“. Hann hafði fengið sér vel út í kaffið og hafði gaman af að stríða Ketilríði. Hún leit á hann allt annað en vingjarnlega. Hún átti margt enn ósagt við Helgu, því að hénni var þungt í skapi við húsbónda sinn. Anna forðaðist að tala við hana einslega, síðan hún hafði komið henni til að ýta karlskepnunni inn í búrið síðustu dagana, sem hann var á róli. Og hún var búin að hugsa sér að gefa Helgu upplýsingar, sem ekki yrðu honum í vil. En þá þurfti Erlendur að rekast á þær. „Það er naumast að þú hefur túlann á réttum stað. Það er ekki von, að þú vandir mér kveðjurnar, fyrst þú talar svona til konunnar þinnar, orðhákurinn þinn“, sagði Ketilríður og leit til Helgu samúðarfullum augum. „Það er nú bæjarbragurinn að tala svona“, sagði Helga klökk af samúð Ketilríðar. „Já, það er ættarfylgja og æskubragur, að tala eins og mér býr í brjósti við hvern sem ég tala“, sagði Erlendur. Helga hefur annað að gera en að standa á snakki við þig. Það er svo aldrei neitt út úr þér að hafa nema óhróður um einhvern, sem þig langar til að berist út um sveitina. Helgu er vel treystandi til þess, það þekkirðu af gamalli reynslu. En nú er víst nóg komið af frétta- lestrinum. Þú getur skotizt yfir einhvern sunnudag, ef þú átt mikið eftir ósagt, gamla mín“, sagði hann hlæjandi og sneri við. án þess að kveðja. Helga var komin heim á hlaðið. „Þú vandar honum líklega ekki kveðjuxnar, þessum vesalings dreng mínum, sem þú bauðst til að taka í fyrra, líklega til að geta kvalið hann“, þrumaði Ketilríður á eftir honum. „Það er víst engin sældarævi, sem þau eiga þessi böm mín, hjá ykkur hrepps' nefndardjöflunum". Erlendur sneri í áttina til hennar: „Það er óþarfi fyrir þJS> að látast hafa áhyggjur út af krökkunum, þeim líður áreiðanlegs skár en hjá þér sjálfri, tæfan þín. Auðvitað veiztu, að það er ekki hægt að búa rétt vel við þau, því að þetta eru óartar-gemsar, sem von er, út af ykkur Páli komin. En hann á ekkert slsemt þessi angi, sem er hjá okkur, enda er hann einna skárstur af þeirn- Helga gerir ekki upp á milli hans og sinna drengja“, sagði hann. „Hann lítur svo sem heldur ekki illa út, skinnið“, sagði Ketil' ríður mildari. „Og hvað illa sem mér er við þig, verð ég þó segja það, að þú ert þó talsvert skárri en ætla mætti eftir ÞV1 sem þú lætur út úr þér“. „Ojá, ég hef ekki verið alinn upp við*neina blíðmælgí- Og V1 höfum talazt við fyrr en í dag, og eigum sjálfsagt eftir að hriísa saman hér eftir“, sagði Erlendur, kastaði til hennar kveðju gekk burtu.

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.