Lögberg - 02.09.1954, Blaðsíða 3
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 2. SEPTEMBER 1954
3
TÓNLIST
sem menningarsögulegur þátlur
lllEÐ þessu heiti hafa prófessar-
arnir dr. Paul Mies og
Norbert Schneider í Köln gefið
út nýtt verk hjá forlaginu
Tonger í Köln (Musik im Um-
kreis de Kulturgeschichte). Er
hér í ýtarlegu yfirliti dregin
fram þróun tónlistarinnar frá
allra fyrstu tímum í nánum
tengslum við bókmenntir, mynd-
úst, heimspeki og stjórnmála-
sögu Evrópu.
Er þetta hin auðugasta náma
skemmtilegasta fróðleiks. Er
gaman fyrir íslendinga að sjá
t- d;, að sama ár og Alþingi er
stofnað á Þingvöllum 930, þá
úeyr sá flæmski munkur
Hucbald, sem fyrstur manna
skráði og skýrði frá fornum tví-
söng, eins og norrænu víking-
arnir hafa flutt hann hingað í
npphafi landnámsaldar. Um
sama leyti skráir þýzki munkur-
inn Ekkehard hetjusöguna
Waltarius á latnesku hexametri,
en hún fjallar um dáðir Vest-
gota; og nokkru síðar skrifar
Wulfstan frá York hómilíubók
sína, iðrunarprédikanir, þar sem
syndin er útlögð sem orsök neyð-
arinnar á dögum hinna dönsku
víkinga, sem þá herjuðu strend-
ur Bretlands. í Frakklandi
festir sekvensinn rætur um líkt
leyti og er elzta bókmennta-
grein Frakka, en hann hafði
flutzt til Evrópu frá Austur-
lÖndum. Frönsk tunga var enn
' deiglunni, myndaðist smám
saman úr latínumáli leikmanna,
en ítalskan var enn verr á vegi
stödd, því hún átti sér alls eng-
ar bókmenntir fyrr en um 1230,
hvorki á tungumáli íbúanna né
a latínu. Franskir trúðar fluttu
úelzt kveðskap og sagnaskemmt
Ulr til ítalíu um þessar mundir.
Stofnsetningartími hins ís-
lenzka Alþingis er róstusamt
timabil á meginlandi Evrópu.
Heinrekur I. á í höggi við danska
vikinga, sem ráðast inn í ríki
hans og 933 ber hann sigur af
Ungverskum þjóðflokkum og
byggir varnarstöðvar í Merse-
berg 0g Meissen í Saxlandi.
Ef við gerðum svipaðan þver-
skurð yfir þann tíma, er Jón
biskup Arason var líflátinn 1550,
þá fáum við fjölbreytilega mynd
af menningarlífi meginlanda-
þjóðanna: Hans Sachs, skó-
srniðurinn og skáldið í Nurn-
berk yrkir í fullu fjöri. Þessi
^eistarasöngvari, sem alþekkt-
Ur er úr óperu Wagners, lætur
eftir sig 4000 meistarakvæði,
^TOO Spakmælaljóð, 85 föstu-
leika, 64 gamanleika og 61
harmleik. Latneskir og grískir
skólaleikar standa í miklum
blóma í Þýzkalandi; húmanismi,
renaissance og siðabót efla sið-
menningu borgarastéttarinnar.
Enska skáldið Edmund Spencer
yrkir sögukvæði. sitt „Álfa-
úrottningin“, sonnettur og hirð-
*ngjaljóð. í Frakklandi lifir
^nikill brautryðjandi frásagnar-
iistarinnar, Francois Rabelais og
ntar hamslausa ádeilur á tíðar-
andann, svo sem Garganta; þar
naeð ryður hann nýfranskri
tnngu braut og gerist helzti full-
trúi hins gallíska snjallyrðis
^>esprit gaulois“). — ítalía er
Seni óðast að verða hlutgeng á
Sviði bókmenntanna, eftir að
ante röskum tvö hundruð ár-
Um áður hafði fyrst byrjað að
skrifa á þjóðtungunni (dáinn
^21). Pietro Aretino birtir
stcuggahlið endurreisnartímans
með blygðunarlausri nautnasýki
J gamanleiknum Calandria og
narmleiknum Orazio. Mikið er
§ert að því að stæla forna harm-
eikahöfunda, svo sem Seneca.
Um þetta leyti er Karl V.
FOR SALE
°il Painting “Hekla” by
Emil Walters 2x21/2 gilt
frame. Halldor Halldorson
Estate, 353 Broadway Ave.
Ehone 923-055 or 924-758.
•^fornings only.
keisari með aðalsetri á Spáni.
Svíþjóð losnar undan yfirráðum
Danmerkur og Tyrkir hernema
Vín. Enska þjóðkirkjan segir
skilið við rómversku kirkjuna
og stórfurstinn í Moskvu Iwan
hinn ógurlegi verður zar yfir
öllum Rússum. — Málaralistin í
Þýzkalandi færist í aukana með
Lukas Cranach, þeim eldra og
yngra. Holland eignast Peter
Brueghel hinn eldra, sem málar
aðallega landlagsmyndir og
þjóðlífslýsingar. — Hárenais-
sancestefnan í Frakklandi fæðir
meistara eins og Pierre Bon-
temps og Jean Goujon, sem
mótar minnisvarða Louis de
Brésé í dómkirkjunni í Reims. —
Á Italíu starfa myndhöggvar-
arnir Michelangelo og Bene-
venuto Cellini og málararnir
Tizian og Tintoretto, sem
skreytti veggi og loft furstahall-
arinnar í Feneyjum. — Á sviði
heimspekinnar er Frakkinn
Petrus Ramus fyrstur í flokki,
sem skapaði nýja rökfræði og
kollvarpaði kreddusetningum
kirkjunnar, er síðscholatíkin í
aristótelískum anda studdist við.
Hann hneigðist fljótt að húgen-
ottum, gekk yfir til Kalvínstrúar
og var myrtur Bartólómeusar-
nóttina 26. ágúst 1572 í París.
16. öldin er einhver mesti um-
brotatími í sögu tónlistarinnar.
Árið 1550 fæðist Giulio Caccini,
sem átti mikinn þátt í því að
óperuformið var uppgötvað, því
sjálfur samdi hann fyrsta söng-
leik, er um getur, hirðingjaljóð-
flokkinn „Dafne“ eftir Ottavio
Rinuccini, í félagi við Jacopo
Peri. Allir voru þeir meðlimir í
„listamannaklúbb“ eða aka-
demíu þeirri er nefnist „Came-
rata“ Flórenzborgar, þeir háðu
miskunnarlausa baráttu gegn
einræði kontrapunktsins, er
Hollendingar höfðu iðkað af
mestri kunnáttu, þóttust hafa
stjórnvöl listasögunnar í hendi
sér og lögðu megin áherzlu á
það, sem þeir kölluðu „nobile
sprezzatura del canto“ (fyrir-
mannlegt frjálsræði í söng). Að
vísu eru skiptar skoðanir um
hlutdeild Caccinis í Dafne en ó-
peruna „Euridice“ samdi hann
einn og söng sjálfur aðalhlut-
verkið árið 1600. Caccini gaf út
hefti með aríum, kansónettum
og sonnettum fyrir eina rödd
með tölusettum bassa, sem þá
var algjör nýjung og olli bylt-
ingu á sviði tónlistarinnar. Hann
tekur fram, að aðeins góðskáld
hafi léð sér texta, en hann hafi
sniðgengið leirskáldin, er hann
kallar „rimatori a dozzina"
(smiðjurímara). Þetta verk
Caccinis er í fyrsta lagi frægt
fyrir titil sinn „nuove musiche“
(ný tónlist) og í öðru lagi fyrir
forspjall útgáfunnar, sem er hin
bezta leiðsögn til raddskólunar,
er fram kom á endurreisnar-
'■ímabilinu. Gerir hann þar ítar-
lega grein fyrir söngstíl þessara
tíma, gefur leiðbeiningar um
smekkvíslega og lifandi fram-
setningu, skýrir margvíslega
viðhöfn í söng svo sem punktana,
trillu, forslög og að síðustu
söngvenju, er hann kallar
„ribattuta“ (egl. eridurslag);
þessi viðhöfn er eftirtektarverð
sökum þess, að hún kemur á
íslandi fyrir í rímnalögum. Mun
Benedikt Sigurðsson á Höfn í
Hornafirði hafa verið fyrstur
manna til að leiða þennan
skemmtilega sönghátt í ljós í
kvæðalagi sínu:
Leiðist mér að liggja hér í
ljótum helli.
Betra er heima á Helgafelli
að hafa þar dans og glímuskelli.
Að öllu samanlögðu er verk
próf. Mies einstakt í sinni röð.
Er hér í fyrsta sinni sýnt fram á
víxlverkanir innan hinna ýmsu
listgreina; samþróun þeirra með
bókmenntum og heimspeki er
lýst á öllum markverðum tíma-
mótum sögunnar og þjóðfélags-
legar aðstæður dregnar fram í
stuttum einkennisorðum.
Hallgrímur Helgason
—Lesb. Mbl.
Hundrað ár frá fæðingu monnsins, er
fann upp Linotype setjaravelina
Um þessar mundir eru
hundrað ár liðin frá fæðingu
þess manns, er fann upp
setningarvélina. Olli til-
koma hennar algjörri bylt-
ingu í prentlistinni. Aldar-
afmæli þessa manns er því
hið merkasta, því setningar-
vélin hefir átt sinn stóra
þátt í aukinni upplýsingu
þjóðanna. Saga setningar-
vélarinnar hérlendis er þeg-
ar orðin nokkuð löng. Fyrsta
vélin kom hingað árið 1913
og er sú vél nú í eigu Félags
prentsmiðjunnar.
ITM MIÐJA fyrri öld var svo
komið að margt í prentiðn
var orðið fljótunnara en sjálf
setningin. Þá var handsetningin
við lýði, þegar stafur eftir staf
var settur upp úr leturkössun-
um. Var það sama aðferðin og
viðhöfð hafði verið allt frá því
Gutenberg fann upp lausu staf-
ina. Handsetningin þurfti mikils
mannafla við, sem setningar-
vélin hefir leyst af hólmi.
Á þessum árum var handsetn-
ingin orðin vandamál í stórum
útgáfufyrirtækjum og hjá dag-
blöðum. Margir reyndu að leysa
þennan vanda með einhverju
fljótvirkara en handsetningunni,
en lítið gekk.
Það var þýzkfæddur Banda-
ríkjamaður, er loksins leysti
þrautina. Hann hét Ottmar
Mergenthaler og fæddist 11.
maí 1854 í Wurtemberg í Þýzka-
landi. Lærði hann ungur hjá úr-
smið og hafði frá barnæsku
mikinn áhuga fyrir vélum. Eftir
fransk-þýzka stríðið fluttist
Mergenthaler til Bandaríkjanna.
Þar biðu hans þau örlög, að
síðan hefir nafn hans verið
órjúfanlega tengt Linotype
setningarvélinni.
Árið 1872 fékk Mergenthaler
vinnu á vélaverkstæði í Balti-
more. Unnu þar á sama tíma
menn, sem síðar urðu kunnir
fyrir uppfinningar sínar, svo
sem Clephane, er átti þátt í
gerð Remington ritvélarinnar.
Sagt er, að Mergenthaler hafi
fengið hugmyndina að setning-
arvél sinni, er hann var á ferð í
járnbrautarlest. Hafði hann áður
reynt við nokkur afbrigði af
þeirri setningarvél, sem hann
fullvann um síðir. Eftir þessa
járnbrautarferð á hann að hafa
gert setningarvélina í þeirri
mynd, sem hún er í dag. Fram-
leiðsla vélarinnar, línan, sem
við höfum fyrir augunum dag-
lega í bókum og blöðum gaf vél-
inni nafnið Line of Type, er
síðar breyttist í Linoiype. Line
of Type þýðir einfaldlega Lína
af letri og Linotype gæti hæg-
lega verið Línuletursvél á ís-
lenzku.
Fyrsia vélin
Hin fyrsta svokallaða Blower
Linotype var gerð árið 1885 og
fyrsta setningarvélin var tekin
í notkun af New York Herald
Tribune ári síðar. Vél þessi hefir
síðan farið sigurgöngu um heim-
inn. 1 febrúar 1890 var lokið við
að ganga frá vélinni, eins og hún
er í dag í meginatriðum. Merg-
enthaler græddist fé á vélinni
og níu árum síðar hafði honum
áskotnazt ein og hálf milljón
dollara. Fékk hann og fjölskylda
hans ákveðinn hundraðshluta af
hverri vél, sem seld var. Margt
hefir verið gert til að heiðra
minningu þessa manns á hundr-
aðasta árinu frá fæðingu hans.
Mergenthaler-félagið hefir nú
fundið upp setningarvél með
sjálfvirkri setningu og ennfrem-
ur myndamótavél. Virðist því
félagið halda fram þeirri stefnu,
sem stofnandi þess markaði, sem
sagt að vinha að aukinni tækni
á sviði prentlistarinnar.
Fyrsta setningarvélin hér
Tæpum sextíu árum eftir
íæðingu Mergenthaler kom
fyrstá setningarvélin hingað til
landsins. Var Prentsmiðjan Rún,
eigendur Pétur Halldórsson,
fyrrverandi bæjarstjóri og
Jakob Kristjánsson prentari,
stofnuð utan um þessa setning-
arvél. Kom Jakob Kristjánsson
með vélina með sér heim frá
Danmörku árið 1913, en hann
hafði dvalizt ytra við vélsetn-
ingarnám. Strax .var farið að
nota vélina og vakti hún mikla
forvitni. Komu margir til að sjá
þetta meistaraverk tækninnar.
Þorsteinn Thorlacius, fram-
kvæmdastjóri Prentsmiðjunnar
Eddu varð fyrstur til að læra
vélsetningu hér heima. Lærði
hann í Rún hjá Jakobi. Upp úr
þessu fóru setningarvélar að
flytjast inn til landsins. Ollu
þær gjörbyltingu hér sem ann-
ars staðar. Fyrir hendi voru
sæmilegar bóka- og blaðapress-
ur, en nú jókst hraði setningar-
innar. Eins og fyrr segir, þá á
Félagsprentsmiðjan vélina, sem
Jakob kom með í Rún. Ekki er
unnið á vélina, sem stendur, en
það á að gera hana upp og án efa
á hún eftir að endast lengi enn.
—TÍMINN, 14. júlí
Wl NNIPEG
8REWERY
IIMITIÍ
KAUPENDUR LÖGBERGS
Á ÍSLANDI
Gerið svo vel að senda mér sem fyrst greiðslu fyrir
yfirstandandi árgang Lögbergs, kr. 75.00. Dragið
ekki að greiða andvirðið. Það léttir innheimtuna.
Æskilegt að gjaldið sé sent í póstávísun. Þeir sem
eiga ógreidda eldri árganga, eru vinsamlega beðnir
að snúa sér til mín.
SINDRI SIGURJÓNSSON
LANGHOLTSVEGI 206 — REYKJAVÍK
Business and Professional Cards
Phone 74-7855
ESTIMATES
FREE
J. M. Ingimundson
Re-Roofing — Asphalt Shingles
Insul-Bric Siding
Vents Installed to Help Eliminate
Condensation
832 Slmcoe St.
Winnlpeg, Man.
~EEEEl\.NREEEF
SEWING MACHINES
Darn socks in a jiffy. Mend,
weave in holes and sew
beautifully.
474 Porlage Ave.
Winnipeg, Man. 74-3570
Dr. ROBERT BLACK
SérfraeCingur I augna, eyrna, nef
og hálssjúkdómum.
401 MEDICAL ARTS BLDG.
Graham and Kennedy St.
Skrifstofuslmi 92-3851
Heimasimi 40-3794
Dunwoody Saul Smiih
& Company
Chartered Accountanls
Phone 92-2468
100 Princess St. Winnipeg, Man.
And offices at:
FORT WILLIAM - KENORA
FORT FRANCES - ATIKOKAN
Hofið
Höfn
í huga
Heimili sólsetursbarnanna.
Icelandic Old Folks’ Home Soc
3498 Osler St„ Vancouver. B.C.
ARLINGTON PHARMACY
Prescription Specialist
Cor. Arlinglon and Sargent
Phone 3-5550
Films, Picnic Supplies and
Beach Novelties.
We collect light, water and
phone bills.
Post Office
Muir's Drug Siore Lid.
J. CLUBB
FAMILY DRUGGIST
SERVING THE WEST END FOR
27 YEARS
Phone 74-4422
Ellice & Home
Minnist
BETEL
í erfðaskrám yðar.
Phone 92-7025
H. J. H. PALMASON
Chartered Acco'intant
505 Confederation Liíe Bulldlng
WINNIPEG MANITOBA
Parker, Parker and
Kristjansson
Barristers - Solicitors
Ben C. Parker. Q.C.
B. Stuart Parker, A. F. Kristjansson
500 Csnadian Bank of Commerce
Chambers
Wlnnlpeg, Man. Phone 92-3561
G. F. Jonasson, Pres. & Man. Dir.
Keystone Fisheries
Limited
Wholesale Distributors of
FRESH AND FROZEN FISH
60 Louise Street Slmi 92-5227
EGGERTSON
FUNERAL HOME
DauphixL Manitoba
Eigandi ARNI EGGERTSON Jr.
Van's Electric Ltd.
636 Sargenl Ave.
Authorized Home Appliance
Dealers
GENERAL ELECTRIC — ADMIRAL
McCLARY ELECTRIC — MOFFAT
Phone 3-4890
Dr. P. H. T. Thorlakson
WINNIPEG CLINIC
St. Mary’s and Vaughan, Winnipeg
PHONE 92-6441
J. J. Swanson & Co.
LIMITED
308 AVENUE BLDG. WINNIPEG
Fasteignasalar. Leigja hús. Ct-
vega peningal&n og elds&byrgC,
bifreiBaábyrgC o. s. frv.
Phone 92-7538
SARGENT TAXI
PHONE 20-4845
For Quick, Reliable Service
DR. E. JOHNSON
304 Eveline Street
SELKIRK. MANITOBA
Phones: Office 26 — Residence 230
Office Hours: 2.30 - 6.0t p.m.
Thorvaldson, Eggertson,
Bastin & Stringer
Barristers and Solicitors
209 BANK OF NOVA SCOTIA Bldg.
Portage og Garry St.
PHONE 32-8291
CANADIAN FISH
PRODUCERS LTD.
J. H. PAGE, Managing Director
Wholesale Distributors of Fresh and
Frozen Fish
311 CHAMBERS STREET
Office: 74-7451 Res.: 72-3917
Offlce Phone
92-4762
Res. Fhone
72-6115
Dr. L. A. Sigurdson
528 MEDICAL ARTS BUILDING
Office Hours: 4 p.m.—6 p.m.
and by appointment.
A. S. BARDAL LTD.
FUNERAL HOME
843 Sherbrook Street
Selur llkkistur og annast um út-
farir. Allur útbúnaCur sá bezti.
StofnaC 1894
SfMI 74-7474
Phone 74-5257 700 Notre Dame Ave.
Opposite Matemity Pavilion
General Hospital
Nell's Flower Shop
Wedding Bouquets, Cut Flowers,
Funeral Designs, Corsages,
Bedding Plants
Neil Johnson
Res. Phone 74-6753
S. O. BJERRING
Canadian Stamp Co.
RUBBER & METAL STAMPS
NOTARY & CORPORATE SEALS
CELLULOID BUTTONS
324 Smilh St. Winnipeg
PHONE 92-4624
Gilbart Funeral Home
Selklrk, Manitoba.
J. Roy Gilbart
Licensed Embalmer
Phone 3271 Selkirk
SELKIRK METAL PRODUCTS
Reykháfar, öruggasta eldsvörn,
og ávaft hreinir. Hitapiningar-
rör. ný uppfynding. Sparar eldi-
viC, heldur hita frú aC rjúka flt
meC reyknum.—SkrifiC, sfmiC tll
KELLY SVEINSSON
625 Wall St. Wlnnlpeg
Just North of Portage Ave.
Slmar 3-3744 — 3-4431
J. Wilfrid Swanson & Co.
Insurance in all lts branches
Rcal Eatate • Mortgagea - Rentals
210 POWER BUILDING
Telephone 93-7181 Rcs. 46-5480
LET US SERVE YOU