Lögberg - 02.09.1954, Side 4

Lögberg - 02.09.1954, Side 4
4 LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 2. SEPTEMBER 1954 Lögberg Ritstjórir EINAR P. JÓNSSON Gefið 8t hvern fimtudag aí THE COLUMBIA PRESS LIMITED 695 SARGENT AVENUE, WINNIPEG, MANITOBA J. T. BECK, Manager Utanáskrift ritstjórans: EDITOR LÖGBERG, 695 SARGENT AVENUE, WINNIPEG, MAN. PHONE 743-411 Verð $5.0U um árið — Borgist fyrirfram The “Lögberg” is printed and published by The Columbia Press Ltd. 695 Sargent Avenue, Winnipeg, Manitoba, Canada Authorized as Second Class Mail, Post Office Department, Ottawa Or ríki bókmentanna i. Vilhjálmur Þ. Gíslason: FACTS ABOUT REYKJAVÍK. Bókaútgáfa Menningarsjóðs. Alþýðuprentsmiðjan. Reykjavík 1954. Fyrir nokkru kom út á vegum Menningarsjóðs falleg og fróðleg bók, er gekk undir nafninu Facts aboul Iceland og naut hún slíkra vinsælda, að ein útgáfan rak aðra; þessa nýju bók mætti kalla systurbók við hina; hún fjallar um menningarlega þróun Reykjavíkur, er gefin út af sama fyrirtæki, og að ytra útliti hliðstæð að lögun. Innihald Facts aboul Reykjavík er sem hér segir: Why come to Reykjavík? The Size and Surroundings. Climate and Seasons. A Thousand Years of History. Ad- ministration and Local Government. Religion and Church. Industry and Commerce. Communications. Accommodation and Food. Sport. Social Affairs. Miscellaneous Information. Can we help you? The Neigbourhood of Reykjavík. Tourist Bureaus. „ Af innihaldi bókarinnar má ljóslega ráða hve víða er komið við og miklum fróðleik þjappað saman í tiltölulega stuttu máli, því bókin telur ekki nema 88 blaðsíður; hún er skreytt kortum og mörgum ágætum myndum, er hafa margháttað menningarsögulegt gildi til brunns að bera. Reykjavík nútímans er hreint engin smáræðisborg; hún telur um sextíu og tvær þúsundir íbúa og hefir innan takmarka sinna fjölda mikinn glæsilegra stórhýsa og hún er eina borgin í víðri veröld, sem hituð er með hveravatni; nú er þar fögur og fullkomin höfn, iðjuver mörg og svo mikil mergð bifreiða, að fáar borgir hafa í þeim efnum hlutfallslega hærri tölu; háskólinn hefir sett sérstæðan menningarsvip á borgina og slíkt hið sama má segja um Þjóðleikhúsið, Listasafn Einars Jónssonar frá Galtafelli og hið veglega húsnæði Sjómannaskólans. Með lestri bókar þessarar eiga menn þess kost, að kynnast höfuðborg Islands eins og hún nú kemur almenn- ingi fyrir sjónir með nýtízku svip í hvaða átt, sem litið er. Bók þessi ætti að komast inn á sem allra flest íslenzk heimili vestan hafs, því hún bregður eigi aðeins upp glögg- um myndum af hinni risavöxnu þróun Ingólfsborgar frá því um síðustu aldamót heldur og íslenzku þjóðarinnar í heild. Áminst bók í skrautlegri kápu kostar aðeins $1.25 og fæst í Björnsson’s Book Store, 702 Sargent Ave., Winnipeg. ☆ ☆ ☆ II. Sveinn Sigurðsson: EIMREIÐIN LX. ár. Apríl—júní 1954. — 2. hefii. Alt það, sem mennirnir hugsa og framkvæma, er jafn- aðarlegast ærið mismunandi að gæðum, og í því efni eru tímaritin vitaskuld engin undantekning; þannig hefir það verið með Eimreiðina, er að öllu samanlögðu hefir verið eitt jafnbezta tímaritið, sem út hefir verið gefið á Islandi; núverandi ritstjóri, Sveinn Sigurðsson, sem er víðsýnn al- vörumaður, ritar að jafnaði um menn og málefni af meiri hófstillingu, en alment gerist um samtíðarmenn hans á Fróni og þar af leiðandi verður meira mark tekið á orðum hans en ýmissa þeirra ,er meira berast á og hærra láta. Undanfarin tvö hefti Eimreiðarinnar voru, að því er oss fanst, með daufara móti, en nú er þessu farið öldungis á annan veg, því í þessu hefti skiptast á ágætar ritgerðir og óvenjulega góð kvæði. Forustugrein ritstjórans, sem helguð er tíu ára afmæli íslenzka lýðveldisins, ber á sér öll einkenni sannleikselsk- andi manns, er segir hiklaust og hlutdrægnislaust frá þeim viðhorfum, sem skapast hafa vegna hersetunnar og breyttr- ar afstöðu íslenzku þjóðarinnar á öðrum sviðum gagnvart umheiminum; er í þessari ritgerð vitnað í ummæli helztu íslenzku blaðanna í tilefni afmælisins, og jafnframt þeirrar spurningar spurt: Höfum vér gengið til góðs, götuna fram eftir veg? I langflestum tilfellum verður svarið jákvætt. Fagurlega minnist ritstjórinn áttræðisafmælis Einars frá Galtafelli; máli sínu lýkur greinarhöfundur með svo- feldum orðum: „íslenzka þjóðin hyllir listamanninn Einar Jónsson áttræðan að árum, en ungan í andá. Bezta afmælisgjöfin, sem hún getur gefið honum — og um leið sjálfri sér — er, að hún tileinki sér í orði og athöfn það, sem hann hefir sífelt verið að boða og boðar enn. Þá mun þjóðlíf vort í sannleika verða „heimur hvítra töfra“. Stórfróðleg og lærdómsrík er ritgerðin „Ríki og kirkja“, en höfundur hennar er hinn spaki stjórnmála- maður, Gísli Sveinsspn, fyrrum sendiherra Islands í Noregi; hann rekur gaumgæfilega afstöðu ríkisvaldsins gagnvart kirkjunni og kirkjunnar gagnvart því og skýrir frá helztu löggjafaratriðum varðandi Þjóðkirkju Islands. Greinarhöfundur hefir árum saman átt sæti í Kirkjuráði og látið málefni kirkjunnar jafnan mikið til sín taka. Þrjú verulega góð kvæði birtir Eimreiðin að þessu sinni eftir Grétar Fells, Landið helga, Minni tilverunnar og Tvísöng; síðasta erindi annars kvæðisins, er á þenna veg: „Og þó að mörgum sé lífið leitt og lýðir á slíku klifi, — að alt saman verði ekki neitt, vill enginn — Tilveran lifi! Skemmtileg og fræðandi er ritgerðin um arabiskar bók- Séra BJÖRN O. BJÖRNSSON: EINA ÖRYGGIÐ ER GUÐ Hálíðarprédikun flutt í Akureyrarkirkju 17. júní s.l. Akureyringar! Blessaður er sá háttur yðar að byrja þjóðhátíðarhald með sam- komu í helgidómnum. Hvílíkt tóm — hvílíkur svipur giftu- leysis á örlagaþrúgnum tíma, ef þjóðin byrjaði ekki yfirleitt þjóðhátíðarhald sitt með lofgerð til Gjafarans, Föðursins, og bæn um fyrirgefningu o§ blessun! Á þeirri undurstöðu, hins vegar, verður hátíð haldin án áhyggju, af fjöri og framtíðarvon barns- legrar gleði og barnslegs trún- aðartrausts. Hátíð, sem þá undir- stöðu vantar, vill verða annað af tvennu: tómahljóðs-uppgerð eða heillum horfinn óvitaháttur. Allar þjóðir hafa allt, sem þær þurfa til batnandi framtíðar — ef þær skortir ekki blessun Drotiins. En fyrsta skilyrðið, til að öðlast hana, er að gera sér Ijóst, að hún skipti máli — hún ein skipti máli: Allt gott komi, hvað á sínum tjma, í hennar kjölfar, þar sem hennar njóti við; allt, sem kallað er gott, reynist sjónhverfing ein og gabb þar, sem hana skorti. Þar, sem menn hafa gert sér þessi undir- stöðusannindi ljós, þar munu menn biðja um náðargjöf þeirra og þakka Guði eins og börn þær gjafir lífsins, sem þeim hafa hlotnazt, og þeir myndu sakna sárt, ef vantaði. — Við, sem hér erum stödd, erum (þótt fá séum) með Guðs hjálp að byrja, fyrir Akureyringa hönd— ef svo má segja — þjóð- hátíð Akureyrar á þessu ári. Á þjóðhátíð er viðhorf einstakling- anna fyrst og fremst þjóðrænt: Einstaklingurinn lítur þá á sjálf- an sig fyrst og fremst sem hluta og nokkurs konar fulltrúa þjóð- ar sinnar; endurminningar- og umhyggjuefnin — og áhyggju- efnin, eftir því sem þau geta átt við — snúast þá fyrst og fremst að þjóðinni, hennar sögu og heill í nútíð og framtíð. Á þjóð- hátíð — og þá einkum sérstakri helgistund hennar — lofum vér Guð fyrir þær stórgjafir, sem þjóðinni hafa hlotnast; á helgi- stund þjóðhátíðar játum vér syndir, sem þjóðin hefur drýgt, og biðjum henni — og þar með öllum, sem vér unnum mest — vægðar. miskunnar, handleiðslu, náðar, blessunar. Á þjóðhátíð höfum vér — ef oss er Ijóst, hvað til friðar horfir — meiri metnað en ella, meiri ábyrgðartilfinn- ing, en annars, um mannsæmi- lega framkomu í galsa gleðinnar og skemmtunarinnar. Gjafir hefur þjóð okkar þegið — undanfarna öld — það sem liðið er af þessari öld, síðasta áratuginn — meiri en flestar aðrar þjóðir á sama tíma — meiri en nokkru sinni fyrr í sögu vorri (ef til vill að elleftu öld- inni undantekinni og kristni- tökuárinu). Fyrir rúmri öld átt- um vér einhver dýrlegustu skáld vorrar sögu. Alla tíð síðan hefur verið dásamleg grózka í bók- menntum vorum, en alla tíð upp úr aldamótunum einnig í öðrum listgreinum, meir og meir. Sama þjóðarvakningin, sem bar þá undursamlegu á- vexti, framleiddi úr djúpi krafta sinna sjálfsbjargarþrótt á sviði efnahagslegrar afkomu, al- mennrar og félagslegrar menn- mgar og þjóðfélagslegrar sjálfs- stjórnar. Hvorug heimsstyrjöld- ín lagðist þungt á þjóð okkar, miðað við hlutskipti flestra ann- arra vestrænna þjóða, en upp úr lokum hinnar fyrri öðluðumst vér viðurkenning sem frjálst og fullvalda ríki, en endurreisn lýð- veldisins í miðri heimsstyrjöld- inni síðari. Síðan þjóðin fékk heimastjórn, en þó einkum síð- asta áratuginn, rúmlega, hefur efnahagur hennar og aðbúð fólks í hvívetna batnað svo, að til fádæma má telja í mannkyns- sögunni, gæti ég trúað. í dag eru tíu ár liðin, síðan íslenzka lýðveldið var endur- reist. Hvers höfum við að minn- ast á tíu ára afmæli lýðveldisins? Áframhald hinna stórstígu svo- nefndu framfara — stundlegra gæða; tækja til enn batnandi af- komu, — ef fyrst og fremst er sótzt eftir blessun Drottins. En óhjákvæmilegt er að minnast einnig atriða, sem þessu eru ólík, en þó nátengd þeim í eitt og sama kerfi hinnar sögulegu þróunarframvindu. Allar þjóðir eru í dag staddar í hræðilegri hættu. Sú hætta stafar bæði frá vissum áttum og svo að segja úr öllum áttum. Ég ætla ekki að ræða hér hið fyrr- nefnda — fram yfir hinar ákaf- lega lauslegu ábendingar undan- farins máls. Hins vegar verður með engu móti undan því komist að minna með fleiri og skýrari orðum á hina hræðilegu al- mennu hættu, sem öllum þjóð- um okkar daga stafar af of- þroska náltúruvísinda, tækni og félagslegrar skiplagningar. „Of- þroski" er ekki of fast að orði kveðið, því að allt verður að dæmast út frá 'samböndum sín- um og hlutföllum. „Eldur er beztur með ýta sonum“, segir í íslenzku fornkvæði, — en samt ei „eldur í óvita höndum“ eitt- hvað hið versta, sem til er. Kjarnorkuvísindin og sú tækni, sem á þeim byggir, og það al- mennt stig náttúruvísinda og tækni, sem kjarnorkufræðin eru svo sem toppurinn á, er allt fram komið við einsýnt ofur- kapp, sem valdið hefur stór- kostlegum misvexti í fari mann- kynsins, þar sem hinar svo- nefndu framfarir hafa kostað vanrækslu þess, sem andlegt er. En kjarnorkufræðin og allt það kerfi er sá „eldur“, sem þurft hefði sambærilega aukningu andlegs þroska til að fara með, svo að ekki stofnaði gervöllum mannheimi í þann voða, sem ekkert á sér sambærilegt í mann- kynssögunni. Enda eru á hvers manns vitorði dylgjur og heit- ingar „Austurs“ og „Vesturs“ sín í milli. Kynslóð, er tekur því nærri sem sjálfsögðum hlut, að ráðgert sé að henda og skjóta sprengjum, er eyðileggi allt kvikt í heilli borg í einu skoti — skjóta þeim í þúsundatali — sprengjum, er eitri síðan löndin, svo að ekkert lifandi megi þar við hafast lengi á eftir — slík kynslóð hefur þegar dæmt sig sjálf til þess hlutskiptis, því að hún hefur, að kalla, gerþurrkað kærleikann úr fari sínu og er til þess hæfust, bæti hún ekki ráð sitt, að verða afmáð af jörðinni. Sú kynslóð, er leyfir sér að nola undirslöðukrafla sjálfrar Sköp- unarinnar til eyðingar öllu lífi á síórum svæðum Jarðar, hefur cgrað Skaparanum á háll, sem engin fordæmi eru fyrir. og hlýl- ur að íramkalla andsvar, sem er einsdæmi. Óviðeigandi umræðuefni á þjóðhátíðardegi — tíu ára af- mæli fullveldisins? Er þá sjálf- stæðis- og þjóðhátíð íslendinga rétt haldin í anda sjálfsblekk- inga? Á Fjallkonan að dansa sjálfstæðishátíðardans, drukkin á blábrún hengiflugsins? Eða á hún að hafa þá trú — á Föðurn- um, sem Jesús Kristur flutti trúna á inn í Mannheim, að hún hafi kjark til að horfast í augu við sannleikann um aðstöðu sína í heiminum á tíu-ára-afmæli mentir og kvæðið Bók bókanna eftir Sigurð Sveinbjörnsson má teljast til snildarljóða. Margt fleira en það, sem nú hefir nefnt verið ágæts les- máls, flytur áminst Eimreiðarhefti, þó eigi verði frekar út í þá sálma farið. sjálfstæðis síns? — Kjark hins litla barns, sem veit, að það á Föður — og trúir takmarkalaust á stóra, góða, sterka pabba? Hvað getum vér svo gert, hin örlitla íslenzka þjóð, sjálfum oss og heiminum til lífs og bjargar, annað en þetta eina: Flýja eins cg lítið barn á náðir vors eilífa Föður — Skaparans, Viðhaldara og tilvonandi Fullkomnara lífs- ins? Trúnaðarmenn þjóðarinnar hafa látið hana ganga í Alanz- hafsbandalagið — látið hana kalla erlendan her inn í landið. Hér er hvorki staður né stund til að ræða stjórnmál. En hér, í helgidómi þessa byggðarlags, verður að segja það skýrt og af- dráttarlaust á þessum hátíðis- degi, að stjórnmálaleiðtogar vor- ir geta aldrei mdð stjórnmála- legum ráðstöfunum einum tryggt öryggi þjóðarinnar né sjálfra okkar — þeir hafa yfir- leitt litla aðstöðu til að vita, hvað þeir eru raunverulega að gera með stjórnmálalegum ráð- stöfunum í öryggismálum* þjóð- arinnar, enda þótt þeir komist illa hjá því að gera þær, og þjóð- in hafi, með vissum aðalviðhorf- um, beint þeim í eína átt ann- arri fremur. Hið eina, sem menn- irnir og þjóðirnar gela gerl, með óbrigðulli vissu um að vinna markvissi að raunverulegu ör- yggi sínu og annarra, er það að gefa sig allshugar Guði á vald í nafni Jesú Krisls .... Ég veit, að þið, kristnir kirkju- gestir, eruð mér sammála um, að „án Guðs náðar er allt vort traust óstöðugt, veikt og hjálp- arlaust“, — en þið segið kannske samt sem svo: Þetta þýðir ekki að segja fólki yfirleitt — heimur- inn þykist hafa reynt aðferðir Jesú Krists og trúna á hann í nítján aldir — með lélegum ár- angri. — Við kristnir kirkju- gestir, vitum betur: Við vitum, að hættan, sem heimurinn er í á tíu ára afmælisdegi hins ís- lenzka lýðveldis, stafar af því, að trúin á Jesú Krist hefur al- drei, enn sem komið er, verið reynd í helgri alvöru af heilum þjóðfélögum og sízt á síðustu tímum, eftir að unnt er þó orðið að vinna hið upprunalega og ei- lífa úr kreddu-umbúðunum bet- ur en áður var hægt. Við vitum, að eina skjólið er Guð, og við vitum, að Jesús Kristur er sá, er gefur okkur Guð. Og athug- um, að hlífa átti Sódómu, finnd- ust í henni þó að ekki væru nema tíu réttlátir! Þannig mun heiminum verða hlíft, þó að ekki verði nema lítill minnihluti, sem biður fyrir hon- um daglega af öllu hjarta. Og þannig munu stafa óumræðileg- ar heillir af því fyrir þjóð okkar, þó að ekki væri nema þúsund manns, sem bæði daglega og innilega fyrir henni og heimin- um. Og þannig mundi Akureyri að því ófyrirsjáanleg blessun, ef fyrir henni og þjóð okkar og heiminum bæði daglega og inni- lega þó ekki væri stærri hópur en staddur er hér í kirkjunni núna og það enda þótt níu tí- undu hóps þessa mæltu ekki nema örfáum bænarorðum dag- lega í þessu skyni — að eins væri gert í innilegu, barnslegu trúnaðartrausti. Það er ekki vika síðan ég frétti, milliliðalaust, um dásamlega ávexti bænarstarf- semi kristins kærleika hér í þessum bæ .... Þökkum Guði, bræður og syst- ur, fyrir allar hinar undursam- legu gjafir, sem Hann, gjafarinn allra góðra hluta, hefur gefið þjóð okkar á umliðinni öld; fyrir dásamlega vernd í heimsstyrj- öldinni; fyrir allsnægtir — ef að- eins hver þegn vinnur af þjóð- hollustu ; fyrir uppfyllingu alda- langrar þrár endurheimtar eigin, fullvalda ríki. Þökkum Guði allt þetta almennar og innilegar, með opinberri þátttöku ríkis- valdsins sjálfs — og játum synd- ir vorar — játum, að vér höfum ekki þakkað Guði sem skyldi. Og biðjum Föðurinn almennar og innilegar en hingað til — með opinberri þátttöku ríkis- valdsins sjálfs á „hinum al- menna bænadegi“ — fyrir heim- inum, þjóð okkar, bae okkar, ást- vinum okkar, sjálfum okkur. „Biðjið og yður mun veitast!" Þeir, sem slíkt gera og þvílíkt, í nafni Jesú Krists, geta lifað líf- inu glaðir og reifir, þó að óveð- urslegt sé allt í kring. Þeir, sem lifa í trú á Gleðiboðskapinn, eru glaðir, — einnig í heiminum. Þvi Endurlausarinn kom — ekki til að niðurbrjóta lögmál Skapar- ans, Náttúruna, heldur til að fullkomna það — með Heilögum Anda, — þess að trúa af hjarta á Föðurinn, gerast bróðir náung- ans, læra að þekkja af byrjandi eigin reynd, hvað það er að vera erfingi — eilífs lífs og allra hluta. Jesús Kristur kom — til að stofna guðsríki á jörðinni. Heim- urinn sýnist ekki vera á þeim veginum, en — „ekki er allt, sem sýnist“. — „Mínir vegir eru ekki yðar vegir“, segir Drottinn. En: — „Veikur maður! hræðstu eigi, hlýddu; hreyk þér eigi, þoldu, stríddu; þú ert strá, en stórt er Drottins vald. Hel og fár þér finnst á þínum vegi, — fávís maður! vittu: svo er eigi; hald þér fast í Herrans klæðafald. Lát svo geysa lögmál fárs og nauða, — lífið hvorki skilur þú né hel; írúðu:. Upp úr djúpi dauða Drottins rennur fagrahvel“. Amen —DAGUR, 5. ágúst Fréttir frá ríkisútvarpi íslands Framhald af bls. 1 ræðuna flutti Vilhjálmur Þ. Gíslason útvarpsstjóri og komst meðal annars svo að orði, að hér væri minnst hvorttveggja> öndvegismanns og aldahvarfa i islenzkri sögu. Skúli fógeti hefði verið oddviti þeirra aldamóta. Reykjavík, sem hann lagði grundvöllinn að, varð tákn nýs tíma í landinu, en Skúli sjálfur væri enn 1 dag ímynd tveggja höfuðeiginleika í íslenzkri trú a landið, frelsisins og fram- kvæmdaþreksins. ☆ Fegrunarfélag Reykjavíkur keypti á sínum tíma höggmynd- ina Vatnsberann eftir Ásmund Sveinsson og gaf Reykjavíkurbse afsteypu af henni. Myndinni var nú í vikunni komið fyrir á mót- um Sigtúns og Reykjavegar 1 Laugarneshverfi, gegnt fyrir- huguðu íþróttasvæði í Laugar" dalnum. Nokkur félög, stofnanir og einstaklingar í Reykjavík hafa ákveðið að bindast sam- tökum um að kynna lands- mönnum listaverk Ásmundar Sveinssonar myndhöggvara me því að gera afsteypur af þeim, koma þeim fyrir, þar sem menningur getur notið þeirra, Framhald á bls. 5 "A Realistic Approach to the Hereafter" by Winnipeg aulhor Edith Hansson Bjornsson's Book Store 702 Sargent Ave. Winnipeg OILNIT •srovt Cobble and Stove for hand-fired furnaces. Booker Nut for Bookers. Stoker Size for Stokers. All Oil Treated. HAGBORG FUE^^ PHOME 74-5451 John Olafson, Representative. PHONE 3-7340

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.