Lögberg - 02.09.1954, Page 8
8
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 2. SEPTEMBER 1954
Á AUÐUM AKRI
Úr borg og bygð
Gefin saman í hjónaband í
Selkirk 28. ágúst Alexander
Lloyd Rotte, Selkirk, Man., og
Sophie Gwendolyn Stranger,
sama staðar. Við giftinguna að-
stoðuðu Miss Helen Doris
Stranger og Mr. Joe Rotte. —
Sóknarprestur gifti.
☆
— GIFTING —
Sunnudaginn þann 22. ágúst
voru gefin saman í hjónaband í
Fríkirkjunni að Brú Evelyn
Irene dóttir Mr. og Mrs. H. S.
Johnson frá Cypress River og
Ellis Arthur sonur Mr. og Mrs.
G. A. Tuvander frá Tower,
Minn. Brúðurin var leidd til
altaris af föður sínum. Aðstoðar-
meyjar voru systur brúðarinnar
Ruth, Lois og Beverley. Aðstoð-
armaður brúðgumans var bróðir
hans George, og þjónar Leonard
Johnson og Russel Tuvander. —
Miss Nancy Peterson frá Hal-
lock, Minnesota, lék á orgelið og
Miss Cathrine Graham frá Win-
nipeg söng tvo einsöngva, “The
Lords Prayer” og “Because”. —
Systkini og frændfólk Mr. og
Mrs. H. S. Johnson frá Ivanhoe,
Minn., voru við giftinguna,
einnig kunningjar frá Hallock,
Minn. — Fjölmenn veizla var
setin í samkomuhúsinu að Brú.
Ungu hjónin verða búsett í Hal-
lock, Minnesota. Sóknarprestur-
inn gifti.
☆
Til félaga Siúkunnar
Heklu I. O. G. T.
Fundir hefjast nú aftur í stúk-
unni eftir sumarfríið. Fyrsti
fundur verður n. k. þriðjudag,
þann 7. sept., kl. 7.30 e. h. á
venjulegum stað. — Fjölmennið.
☆
Hinn 24. ágúst síðastliðinn
lézt að heimili sínu, 2017 North
Park Blvd., Santa Ana, Cali-
fornia, Mr. S. W. Jónasson, 75
ára að aldri; hann var fæddur í
Minneota, Minn., en hafði í full
þrjátíu ár rekið í stórum stíl
byggingariðnað í bænum Aber-
deen í South Dakota-ríkinu og
getið sér mikinn orðstír vegna
margra stórhýsa, er hann reisti;
hann flutti til Santa Ana fyrir
freklega sex árum.
Mr. Jónasson lætur eftir sig
konu sína, Virginíu, og eina
dóttur, Dorothy (Mrs. Dwight
Duncan) og tvö dótturbörn, pilt
og stúlku, sem eiga heima í
Santa Ana. Einnig lifa hann
tvær systur, Mrs. F. C. Zeuthen,
Minneapolis, Minn., og Mrs.
Joseph Polson í Winnipeg;
þriðja systirin, Mrs. Sprout, er
látin fyrir nokkrum árum.
Útför þessa merka athafna-
manns var gerð að Santa Ana
hinn 26. ágúst.
☆
Guðrún Parker lagði af stað
heimleiðis til Ottawa, ásamt
dóttur sinni Sigrid, síðastliðinn
föstudag eftir þriggja vikna dvöl
hjá foreldrum sínum, Mr. og
Mrs. S. O. Bjerring, 550 Banning
St. Guðrún og maður hennar eru
bæði í þjónustu National Film
Board við kvikmyndagerð og
framleiðslu.
SONGS OF THE NORTH
By S. K. HALL, Bac. Mus.
JUST PUBLISHED—
Volume III—Ten Icelandic Songs
with English Translation and
Piano Accompaniment.
Price per copy—$2.00
On Sale by—
S. K. HALL, Wynyard, Sask.
WEDDING INVITATIONS,
ANNOUNCEMENTS, etc.,
GREETING CARDS
FOR ALL OCCASIONS
PERSONALIZED
XMAS CARDS
Subscriptions taken
for all occasions
Courteous and Prompt Service.
Call in — Telephone, or write:
Subscriplion Centre
204 Affleck Building
317 Porfage Ave.
Phone 93-2830 - Winnipeg 2, Man.
Mr. og Mrs. Sigurþór Sigurðs-
son, Mr. og Mrs. R. Vopni og
Mrs. B. E. Johnson, lögðu af
stað síðastliðinn laugardags-
morgun í mánaðarferðalag vest-
ur um Kyrrahafsströnd; ætlaði
ferðafólk þetta að heimsækja
Victoria, Vancouver og Seattle,
og sennilega ýmissa fleiri staði.
☆
Mr. Hjálmar Kristjánsson,
sem átt hefir heima í British
Columbia-fylki í allmörg undan-
farin ár, hefir dvalið hér um
slóðir í rúman vikutíma. Hjálm-
ar er gáfaður maður og skemt-
inn í viðræðu; hann er sonur
þeirra séra Alberts Kristjáns-
sonar og frú Önnu Kristjánsson
í Blaine, Wash.
Auk vina sinna hér í borg,
heimsótti Hjálmar föðurbróður
sinn, Hannes Kristjánsson, fyrr-
um kaupmann á Gimli, og fjöl-
skyldu hans.
☆
Á miðvikudaginn í fyrri viku
komu snögga ferð hingað til
borgarinnar séra B. Theodore
Sigurdson, frú og sonur frá
Mountain, North Dakota; í för
með þeim var móðir prestsins,
Mrs. Jónas A. Sigurðsson frá
New York, en hún hafði dvalið
hjá Jóni lækni syni sínum í
Los Angeles frá því í maímán-
uði síðastliðnum.
☆
Mr. Sigurður Sigurðsson frá
Ashern, Man., var staddur í
borginni um miðja fyrri viku;
hann sagði alt gott í fréttum úr
bygðarlagi sínu.
☆
Mrs. H. G. Hinrickson 205
Lenore Street, er nýlega komin
heim úr ferðalagi um Alberta-
fylki, og heimsótti meðal annars
Edmontonborg og Athabaska.
☆
Miss Theodora Herman er ný-
komin heim vestan af Kyrra-
hafsströnd, og dvaldi um hríð
bæði í Victoria og Vancouver.
☆
Mr. og Mrs. H. Hopkins, sem
búið hafa fjöldamörg ár í Win-
nipeg, eru nú alflutt til Victoria,
B.C. Mr. Hopkins hefir verið í
þjónustu Hudson Bay félagsins
hér í borg í 26 ár og mun starfa
hjá því félagi þar vestra. Mrs.
Hopkins — Rúna — er dóttir
Mr. og Mrs. Ágúst Sædal, sem
búsett eru hér í borg. Systkini
hennar komu víðsvegar að til
að kveðja hana, Mr. og Mrs.
Kenneth Lee frá Ottawa; Mr.
og Mrs. Leonard Sædal frá
Regina og Mrs. Frank Longley
frá Virden, Man. Þau hjónin
lögðu af stað vestur á mánu-
dagsmorguninn ásamt tveimur
sonum Boða Sædal sjóliðsfor-
ingja í Victoria, er hafa dvalið
hér í nokkrar vikur.
☆
Látin er nýlega á Johnson
Memorial Hospital á Gimli
Brynjólfur I. Sveinsson fiski-
maður 71 árs að aldri; hans
verður frekar minst síðar.
☆
Dr. Valdimar J. Eylands kom
heim austan frá Ottawa í lok
fyrri viku, en þar dvaldi hann í
nokkra daga vegna veikinda
konu sinnar, sem legið hefir þar
á sjúkrahúsi um hríð; hún er
nú að sögn á góðum batavegi og
er það hinum mörgu vinum
hennar og fjölskyldunnar mikið
fagnaðarefni.
☆
Mr. Mundi Sigurbjörnsson frá
Wynyard, Sask., var í borginni
á þriðjudaginn; kom hann hing-
að úr tveggja vikna heimsókn
til systkina sinna að Mountain,
North Dakota.
☆
Tvær ungar og glæsilegar
systur frá Toronto, Ont., þær
Stefanía og Signý Poulson, litu
inn á skrifstofu Lögbergs í fyrri
viku; höfðu þær dvalið hér um
slóðir um nokkurt skeið í heim-
sókn til ættingja og annara vina:
þær eru dætur þeirra Mr. og
Mrs. Magnús Paulson í Toronto,
en þau Magnús og frú Signý
Eaton eru systrabörn.
Framhald af bls. 5
lega fínt og stirnir á það sem
væri það ofið úr fíngerðasta
silki, líkast því að það væri
himinblá sóley eða vel þroskuð
Gleym mér ei. Svo hverfur
blómið til jarðarinnar en örlítill
brúnn hnappur stendur eftir á
stönginni, er þroskaður geymir
í sér mörg smákorn brún á lit,
dásamlega fáguð, svo mjúk,
slétt, fín að vart mun framar
finnast að þessum. kostum. —
Þessi undursmáu og fínu korn.
Þráður af ýmsum gerðum, lín,
olía, pappír, fóður, meðöl og
hver veit hvað? Svo ótal margt.
Já, víst var það dásamlegt.
Þá átti hafra-akurinn sína
dýrð. Stöngin skartaði kornun-
um í skrúfum, skrautlegum,
reglulega röðuðum á hverja ör-
fína grein út frá aðalstráinu. Og
þegar vindurinn fór í gegnum
akurinn skrjáfaði í honum „eins
og silkifötum kvenna“. Þar var
líka margt geymt, fæði fyrir
manninn, fóður fyrir skepnurn-
ar og fjölda margt annað.
Við eina jurt annari fremur,
hreyfði sér eitthvað það í sál
Jóns, er var svipað hugsun
Hannesar í ljóðinu:
Væri ég blómstur, þá veit það
mín trú,
að vildi ég fjallblóm lifa sem þú,
heldur en kvikna hjá kotum og
seljum,
Og kviðfylli gerast í nautum og
beljum.
Já, Alfa-Alfa-jurtin var svo
yndislega fögur, að það lá við
að Jóni þætti fyrir því, að hún
skyldi vera dýrafóður. Og hon-
um var það eðlilegt, að hann
óskaði að hún klæddi íslenzk
fjöll. — En Jón vissi að þar yrði
hún nú máske upp étin af skepn-
unum, þrátt fyrir draum skálds-
ins og óskir Jóns. Jóni þótti
Gefið til Sunrise Lutheran
Camp
Mrs. Guðrún Parker, Ottawa,
$10.00; Mrs. J. S. Gillies, Wpg.,
$4.00; Mr. Lincoln Johnson,
Wpg., $5.00; Mr. McComb, $2.00;
Kvenf. Bræðrasafnaðar, River-
ton, $25.00; Kvenfélagið Baldurs
brá, Baldur, $25.00; Kvenfélag
Fríkirkjusafnaðar, Brú, $25.00;
Kvenfélagið Sigurvon, Húsavík,
$10.00; Kvenfélagið Freyja.
Geysir, $100.00; Kvenf. Herðu-
breiðar-safnaðar, Langruth,
$25.00; Junior Ladies Aid, Sel-
kirk, $25.00; Dorcas Society,
Langruth, $5.40; Mr. og Mrs. L.
S. Gibson, Wpg., $5.00; Mr. og
Mrs. D. C. Henrickson, Wpg.,
$5.00; Mr. og Mrs. J. A. Head;
$5.00; Mrs. H. G. Henrikson,
Wpg., $5.00; Kvenfélag Bræðra-
safnaðar, Riverton, $40.00; Ice-
landic Ev. Lutheran Synod
$334.52; Rev. S. O. Thorlakson
$10.00; Betel Ladies Aid, Silver
Bay, $10.00; Ardal Sunday
School, Árborg, $10.00; Kven-
félagið Undína, Hecla, $25.00;
Kvenfélagið Fjólan, Brown,
$25.00; John D. ísfeld, Minne-
sota, $10.00; Mr. W. A. Clark,
Petersfield, $10.00; Kvenfélag
Árdals-safnaðar, $25.00; Mrs. C.
Paulson, Gerald, Sask., $30.00;
Mrs. O. G. Oddleifsson $2.00;
Mrs. Joe Guðmundsson, $2.00;
Mrs. Sivertsen, Wpg., $10.00;
Mrs. Pennycock, Glenboro,
$15.25; Mrs. Margrét Josephson,
Glenboro, $5.00; Kvenfélag
Langruth $27.00; Mrs. Magný
Helgason, Wpg., $10.00; Mrs. B.
Bjarnarson,Langruth $5.00; Mrs.
Emma Magnússon, Selkirk,
$5.00; Dorcas Society, Langruth,
$20.00; Mr. Grettir Jóhannsson,
Wpg., $10.00; Mrs. B. S. Benson,
Winnipeg, $5.00; Kvenfélag Ár-
dalssafnaðar $15.00; Kvenfélag
Herðubreiðarsafnaðar, Langruth
$64.00; Páll Stefánsson, Árborg.
$5.00; Mrs. O. Markússon, Gimli,
$5.00; Mr. og Mrs. K. H. Bjer-
ring, Wpg., $10.00.
Meðtekið með innilegu þakklæti
ANNA MAGNÚSSON
Box 296, Selkirk, Man.
vænt um kálfana hans Víglund-
ar, svo það var þá bezt að alt
væri sem var. Og þegar Víg-
lundur blótaði þeim sem misk-
unnarlausast, þá þótti Jóni vænt
um að hafa þetta fóður að gefa
þeim.
„Maður á að selja þetta
gripadót óg setjast að í bænum
og vinna akrana þaðan“, sagði
Víglundur.
Jón lagði undir flatt og
strauk skeggið, kumraði dálítið,
horfði svo með góðlátlegu brosi
á Víglund um leið og hann sagði
í hikandi, afsakandi rómi: —
„Hvað myndi þá húsbóndinn
hafa fyrir heimilið, mjólkina,
smérið, eggin, kétið, allan þenn-
an blessaða, góða mat, sem berst
upp í hendur manns út á
landinu?"
Piltarnir, sem hjá stóðu, sner-
ust á hæl og hlógu dátt að virð-
ingarkeimnum í rödd og lát-
bragði Jóns, er hann talaði um
„húsbónda“. Þeir kölluðu hann
altaf „Lunda“. Voru þeir ekki al-
veg eins miklir menn og hann?
Og hvað gat hann svo sem gert
án þeirra eða það, sem þeir gátu
ekki gert?
Ef til vill hefði verið hægt að
sortéra þetta alt í sundur að
sumu leyti, en það var ekki eyð-
andi tíma og kröftum í slíkt.
Jón bar sig æfinlega kurteislega
en alveg sérstaklega virðulega
frammi fyrir húsbóndanum. Það
var eins og öldur af dugnaði og
framtaki Víglundar framkölluðu
þessa virðingu í sál Jóns, þó ekki
væri hægt að segja, að hann
sjálfur væri gæddur þessum
gáfum í nærri eins stórum stíl
og Víglundur Þórsson. Uppeldi
Jóns hafði kent honum að meta
það sem vel var um, hvort sem
hann var gæddur því eða ekki.
Já, strákarnir hlógu oft að
Jóni, ekki af því þeir væru
slæmir menn, langt því frá, held-
ur af því að andi „gamla skól-
ans“, sem Jón var alinn upp í,
en þeir höfðu ekki kynst á sama
hátt og Jón, snart þá einkenni-
lega.
„Maður kaupir sér mat í kaup-
staðnum“, sagði Víglundur. „Það
eru að koma alveg nýjar vélar.
Maður selur klárana fianda tóf-
unum og tekur nýju vélarnar.
að má komast yfir margfalt
meira land, meiri vinnu með
þeim hætti!“
Jón kipptist við. — I bæ. —
Vélavinna. — Gefa tófunum
hestana. — Þessar blessuðu,
fallegu, síþrælandi skepnur. —
Selja allar skepnurnar!
„Ójá“, var alt sem Jón gat
sagt í bili. Það bókstaflega hring-
snerist í höfðinu á honum, þó
hann sjálfur hefði selt sitt litla
bú og flutt í kauptúnið. Það var
neyðarsala. Hér var svo mikið
til af öllu, svo auðugt og fagurt.
Og Víglundur þessi „forkur“ að
vinna og stjórna. Stemma alt
svo sem vera bar, að því er
virtist.
„Húsbóndinn ætti ekki að
selja allar skepnurnar — sízt
núna þegar alt lítur svo vel út“,
stundi Jón upp og greip í
skeggið.
„O, ekki í dag, Jón. En það er
nú einmitt tíminn til að selja og
taka góða uppskeru, þegar góð-
ærið er, en eyða ekki öllum tím-
anum yfir gripadrasli, sem lítið
fæst fýrir nú sem stendur“,
sagði Víglundur um leið og hann
steig upp í stóra og falega bif-
reið og ók af stað til bæjar.
En breytingin kom fyrr en
varði. — Nýju vélarnar byrjuðu
að koma í hlaðið hjá Víglundi.
Vinnumönnunum fækkaði, —
gÖmlu vélarnar stóðu út í horni,
ryðguðu, hrundu, hurfu.
Jón smávandist breytingunni.
Hann sá þau geysimiklu störf,
sem nýju vélarnar afköstuðu.
Undir eins manns stjórn og með
tveggja manna vinnu, urðu af-
köst meiri en áður höfðu verið
með alt upp í tuttugu manns og
á mikið skemmri tíma. Þetta var
sérstaklega svo með uppskeruna.
Undravélin “Combine”, sló og
þreskti alt í einu. Tók upp í sig
kornið fast á akrinum, eins og
lifandi vera, aðskildi það frá
hálminum, tók kornið inn í mið-
hylki búks síns en þeytti sundur-
tættum hálminum aftur undan
sér. — Aðeins EINN maður við
stýrið á bákninu fríða og vinnu-
mikla.
Eftir að Jón hafði glápt á þetta
eins og naut á nývirki, fyrst í
stað og dáðst að þyggingu þess
og töfrandi afköstum við vinn-
una, þá tók hann að venjast
þessari nýju aðferð. Það var
meir en lítið tignarlegt, að sjá
slíka reið „sigla“ um akurinn í
góðu veðri og leggja það fríða
heimsveldi undir sig á téðan
hátt. Rauðmáluð, skartbúin ýms-
um öðrum litum, ljósgulum,
grænum og rauðum dreglum. —
Já, það var tign í þessu.
Svo kom vörubíllinn nýi, sem
Víglundur hafði „bætt á sig“.
Bíllinn minti Jón á skrautlegt
hafskip. Bíllinn var litaður rauð-
um, gulum og silfruðum litum.
Þó var dýrðin mest á honum, er
skyggja tók og bíllinn sigldi af
stað með ko^nið með grænum,
rauðum og gulum ljósum að
framan og aftan og á „bæði
borð“. Og ekki var dráttarvélin
smálegri á svipinn í alt og eitt.
Marglitu ljósin hennar breiddu
úr sér eins og „ragettur“, út um
jörðina að minsta kosti.
Jón vandist þessu öllu. Honum
þótti líka fullgott að hvílast frá
erfiðustu akurstörfunum. Hann
hafði svo sem oft „stúkkað“ með
sveittan skalla. (Skrýfa kornið).
Hann var oft lúinn þá, því ekki
var hann nú ungur þegar hann
byrjaði á þessu. En þó það væri
viðbót við útivinnu, að hirða
kýrnar og kálfana, þegar heim
var komið, kálfana sér í lagi, þá
var Jóni fremur hvíld í því en
lúi, því honum þótti svo vænt
um þessar skepnur og hafði
mikið gaman af að dekra við
þær. Og nú gat hann sint þeim
ennþá betur.
Einn dag varð Jóni meir en
lítið bylt við, er hann kom út frá
miðdegisverði. Þá var kominn
einn þessi gífurlegi vörubíll —
og bara ekkert skrautlegur,
heldur rykugur og slitinn og að
öllu þesslegur, að hann hefði
verið í erfiðinu meir en lítið. Og
Víglundur, bílstjórinn og vinnu-
maður, voru að láta kálfana upp
í bílinn!
Jón trúði vart sínum eigin
augum, þó vel hefði hann mátt
gera það, þar sem Víglundur
hafði sagst myndi selja skepn-
urnar. En Jón hafði ekki tekið
það nema svona að nokkru í
alvöru. Nú varð Jóni bókstaflega
ilt fyrir hjartanu.
Hann stiklaði út að bílnum,
greip um skeggið, mændi sínum
stóru, bláu augum á Víglund:
„Húsbóndinn er ekki að selja
kálfana?“ stundi hann upp.
„Jú, Jón. Það er einmitt það,
sem ég er að gera. I haust seinna
ætla ég að selja beljurnar“.
Um nokkurt augnablik tók
eitthvað fyrir kverkarnar á Jóni.
Rétt í þessum svifum komu hin-
ir mennirnir út með sjö mánaða
gamla kvígu, dumb-rauða, feita
og vel vaxna.
Jón áttaði sig. Hann mundi
það, að honum hafði ekki verið
trúað fyrir því, að skæla út af
smámunum. Hann greip í skegg-
ið eins og nú skyldi þangað
sækja þann hinn mikla og sér-
staka styrk, er á þurfti að halda
rétt núna.
„Vill ekki húsbóndinn selja
mér þessa kvígu?“
„Þér! Hvað ætlar þú að gera
með hana?“
Víglundur var ekki afundinn.
Hann var aðeins undrandi.
„Gera með hana! Nú, ég ætla
að ala hana upp fyrir kú“.
„Ég var búinn að semja við
Bjössa, að selja honum alla
kálfana. Þú átt þá við hann um
þetta“.
„Mér er sama þó ég selji þér
einn kálfinn“, sagði Björn bíl-
stjóri.
Sr. V. J. Eylands, Dr. Theol.
Heimili 686 Banning Street.
Sími 30 744.
Guðsþjónustur á hverjum
sunnudegi:
Á ensku kl. 11 f. h.
Á íslenzku kl. 7 e. h.
☆
Messur í Norður-Nýja-íslandi
Sunnud. 5. sept.:
Árborg, kl. 11, á ensku.
Geysir, kl. 2, ferming.
Riverton, kl. 8.30.
Afhending fermingarskírteina
og verðlauna.
Foreldrar vinsamlega mæti.
Ávörp, forseti prestakalls-
nefndar og fleiri.
Robert Jack
☆
— MESSUBOÐ —
Lundar preslakall
Sunnudaginn 5. sept.:
Vogar, kl. 1.30 e. h. Barna-
guðsþjónusta. Kl. 2 Guðsþjón-
usta (enska og íslenzka).
Silver Bay, kl. 4. e. h., Guðs-
þjónusta á ensku og íslenzku.
Lundar kl. 7.30 e. h. (á ensku).
Bragi Friðriksson
☆
Lúterska kirkjan í Selkirk
Sunnud. 5. sept.:
Ensk messa kl. 11 árd. Séra
S. O. Thorlakson prédikar.
Að kveldi, kl. 7, íslenzk messa.
Fólk boðið velkomið.
S. ólafsson
☆
— VATNABYGÐIN —
Rev. J. Fredriksson
Kandahar, 11 a.m.
Foam Lake, in The United
Church, 2 p.m.
Wynyard, Sambandskirkjunni
7 p.m.
Þeir sömdu um verðið og Víg-
lundur tók það með í reikning-
inn.
Jón fór léttbrýnn með Dumbu
í fjósið.
-—Niðurlag í næsta blaði
— TIL SÖLU —
Sameiningin í sjötíu ár.
Elzta kirkjulegt tímarit á
íslenzku frá upphafi; þrjá-
tíu og tvær bækur vel
bundnar, tölusettar og
gyltar á kjöl.
Frekari upplýsingar hjá
Mrs. FLORA BENSON
Columbia Press Ltd.
Winnipeg.
PERSONAL
Elderly semi-invalid woman
requires Board and Room and
Care. Willing to pay $90 to
$100 per month. Telephone
either of these numbers,
40-2366 or 43-3087— Winnipeg-
C0PENHAGIN
Bezta munntóbak
Keimsins