Lögberg - 23.09.1954, Blaðsíða 3
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 23. SEPTEMBER 1954
3
hernámi, en síðari atburðir virt-
ust benda til þess, að Bandaríkin
hafi viljað styrkja þennan veika
hlekk í varnarkeðju vestursins.
Hverjar svo sem hvatirnar hafa
verið, þá hófu Bandaríkjamenn
alhliða umbótastarf í landinu.
Gjörbreyting varð í heilbrigðis-
uiálunum og landsbúar lærðu
sumar algengustu reglur í
þrifnaði.
En hernámið var ekki vinsælt
og Haitimenn vildu ekki ,ástand‘
í landi sínu undir nokkrum
kringumstæðum. Sundrungar-
öflin innanlands sameinuðust í
baráttu gegn hinum erlenda
stjórnara og fengu því loks til
leiðar komið að herinn hvarf á
brott til fulls árið 1933. Banda-
n'kjamenn hættu öllum afskipt-
um af málefnum landsins og má
gera ráð fyrir, að þeir hafi verið
búnir að fá sig fullsadda.
Því miður vildi fljótt sækja í
sama horfið með marga hluti,
sem herinn hafði komið í betra
horf. Máske má að einhverju
leyti rekja orsakirnar til þeirrar
staðreyndar að í raun og veru
fyrirlíta Haitimenn hvíta kyn-
stofninn og flestar hans tiltektir.
Fram til ársins 1889 gat enginn
hvítur maður fengið borgara-
réttindi á Haiti og enn gagnar
Það þeim lítt til mannvirðinga
að eiga mikið fé eða stórar lend-
ur. Hvítir menn komast ekkert
afram í pólitík. Þannig eru metin
jöfnuð í þessu litla eyríki, fyrir
htað fólk um allan heim.
Það furðulega er þó, að það
eru ekki svertingjarnir, sem
uiesta virðingu hafa á Haiti
heldur kynblendingar, fólk, sem
hefir hörundslit eins og kaffi,
blandað til helminga með mjólk.
Um 300 fjölskyldur með þennan
htarhátt mynda lokaðan hring í
Hort au Prince. Kynblending-
arnir eru laglegri en svertingj-
urnir, eftir okkar smekk. Þeir
eru eðlisgreindir og glaðlyndir
°g þeir, sem eru í lokaða hringn-
um, sækja menntun sína til
Parísarborgar. Fáir komast inn
á heimili aðalsins, þó er forset-
anum stundum boðið í veizlur,
með nokkurri tregðu. En for-
setar eru flestir eins og kaffið
svart.
20. öldin
Mjög virtist mér hreinlætis-
°g hollustuháttum ábótavant í
Port au Prince og vildi ég þó
gjarnan sjá það sem betur fór.
Peir hafa ekki byggt þar yfir
lækinn ennþá og víða má sjá
°pin skolpræsi. Geta allir
THIS
SPACI
CONTRIIUTID
B Y
DREWRYS
MANITOBA
O I V I S I ON
WESTERN
CANADA
BREWERIES
IIMITID
ímyndað sér hversu slíkt er
þokkalegt í hita brunabeltisins.
Ástandið kvað þó vera barna-
leikur hjá því, sem var fyrir her-
námið. Þá gerðu Port au Prinsar
sér lítið fyrir og fleygðu öllum
úrgangi út á göturnar. Illfært
var frá höfninni upp í bæinn
fyrir skarnhaugum.
Sárafáir eru læsir eða skrif-
andi. Ég sá af hendingu á hótel-
inu einfalt dagblað, sem mér var
sagt að væri aðalblaðið í bænum,
en fáir læsu nema menntamenn.
Ég fór um bæinn þveran og
endilangan til þess að ná í ein-
tak af þessu blaði, en það lukk-
aðist ekki. Tilraun til þess að
finna ritstjórnarskrifstofurnar
tókst ekki heldur. Heimsfréttirn-
ar skipta litlu máli fyrir þetta
fólk og ég held að fáir hafi
nokkra hugmynd um hvað gerist
erlendis.
Það virðist eins og árin og ald-
irnar hér hafi runnið saman í
eitt, mér fannst ég vera horfinn
inn í löngu liðna tíð.
Landið er vel fallið til rækt-
unar, en jarðvegurinn er víða
orðinn rýr af margra alda rán-
yrkju. Svo stendur kunnáttu-
leysið landsbúum fyrir þrifum
og fátækt er mikil.
UNESCO hefir á síðustu árum
reynt að efla sjálfsbjargarvið-
leitni Haitimanna og draga úr
hinum útbreiddustu sjúkdóm-
um. Einföld hollráð, eins og til
dæmis það að kasta ekki úr-
gangi í vatnsbólin, hafa stórum
bætt heilsufarið. Ekki trúðu dala
bændur því að UNESCO væri
stofnun. „Hvað er stofnun?“
sögðu þeir. En Monsieur
UNESCO á auknum vinsældum
að fagna og börnin eru skírð
eftir honum.
Göturnar í Port au Prince iða
af gangandi fólki, en lítið er um
farartæki. Tæplega er hægt að
tala þar um verzlunargötur og
fáar byggingar vekja athygli.
Það skal þó játað, að húsakynni
café-au-lait aðalsins sá ég ekki.
Húsin eru yfirleitt mjög óvönd-
uð. Mörg hvíla á hrörlegum
staurum og sýnist manni að ekki
þurfi mikinn jarðskjátakipp til
að kollvorpa þeim eða vindgust
til að feykja þeim burtu.
Um eina götu varð mér reikað,
þar sem ég sá inn í fangelsis-
garð. Var ömurlegt að sjá svert-
ingjana húka þar í hitanum,
suma í hlekkjum. Verðir spík-
sporuðu þar um á milli fang-
anna með byssur við öxl.
Ekki sá ég nema eitt kvik-
myndahús, þó þau kunni að
vera fleiri. Einn „næturklúbbur“
er í Port au Prince eða raunar
útborginni Petionville. Þar er
dansað í hringmynduðu bambus-
húsi — Cabane Choucoune —
opið aðeins á laugardögum.
Svo sem geta má nærri, státar
Port au Prince af myndastyttum
gömlu konunganna og keisar-
anna. Sérstaklega er stytta
Dessalines eftirtektarverð. And-
litsfallið er alls ekki líkt því
sem er á negrum. Dessalines
heldur sverði sínu hátt á loft og
er hinn vígalegasti. En sagan
segir, að þetta sé alls ekki hans
eftirmynd.
Stjórnin gerði út sendimann
til Parísar til þess að láta steypa
styttu Dessalines, en það fór fyr-
ir honum eins og svo mörgum
öðrum, að heimsborgin glapti
hann. Svo vaknaði hann einn
morgun og það rann upp fyrir
honum, að hann var bæði styttu-
laus og peningalaus. Hinn svarti
embættismaður fór í öngum sín-
um til styttusteypara og var þá
svo heppinn, að hann gat fengið
franskan admirál fyrir slikk.
Þessa styttu sendi hann heim,
með nýrri áletrun. — Stjórninni
fannst styttan svo tilkomumikil,
að hún tók við henni í þeirri von,
að ekki yrði um of hugað að and-
litsfallinu.
Ég spurði einn Port au Prins-
búa hvort hann tryði þessari
sögu.
„Já, ákveðið“, svaraði hann.
„Þetta er ekki frekar Dessalines
en ég eða þú“. — Lesb. Mbl.
Sigvaldi Guömundsson Nordal
Fæddur 15. ágúst 1857 — Dáinn 28. marz 1954
SIGVALDI Guðmundsson Nor-
dal var fæddur í Kirkjubæ í
Norðurdal í Húnavatnssýslu,
15. ágúst 1857. Foreldar hans
voru Guðmundur Ólafsson, af
eyfirzkum ættum kominn, og
Margrét kona hans Jónsdóttir
hreppstjóra og trésmiðs á Breiða
bólsstað í Vatnsdal, Illugasonar
og konu hans Rósu Grímsdóttur
frá Koti í Eyjafirði, er var
föðursystir séra Odds V. Gísla-
sonar. Systkini Sigvalda voru
níu að tölu, er til fullorðins-
aldurs komust. Sum þeirra
fluttu vestur um haf, urðu hér
landnemar og leiðtogar, er koma
víða við sögu vora. Börn þeirra,
sem hafa til góðra mennta
komist og eru kunn á því sviði,
Dr. Sigurður Nordal, núverandi
sendiherra íslands í Kaupmanna-
höfn, er bróðursonur Sigvalda.
Árla ævidags síns hóf Sig-
valdi lífsbaráttuna. Hann var
yngstur allra systkina sinna, og
enn í bernsku er faðir hans dó.
Um hríð dvaldi hann með móður
sinni, en fór brátt að vinna hjá
vandalausum, og var hann
snemma kjarkmikill og áræðinn.
Ungur að aldri kvæntist hann
Sigurbjörgu Björnsdóttur, merk-
iskonu og velgefinni. Þau fluttu
vestur um haf 1887, í fylgd með
Ólafi Nordal bróður Sigvalda, er
þá fór vestur á ný eftir stutta
dvöl í heimahögum sínum.
Sigvaldi settist að í Selkirk,—
má segja að hann ætti þar heima
óslitið í meira en 66 ár, utan
þess að hann dvaldi á Betel á
annað ár. — Sigurbjörg kona
Sigvalda andaðist 15. marz 1910.
Börn þeirra éru:
Björn, d. 24 ára að aldri.
Steinunn, gift Capt. J. Sigurð-
ur, Selkirk.
Ágúst, Winnipeg, kvæntur
Susie Oliver.
Jónas (John), Winnipeg,
kvæntur Maud Pruden.
Guðrún Sigríður, Mrs. H.
Helgason, Toronto.
Valdina Margrét, Mrs. J.
Conde, New York.
Önnur kona Sigvalda var
Sigfríður Jónsdóttir, er andaðist
eftir fárra ára sambúð þeirra. —
Þann 23. janúar 1942 kvæntist
Sigvaldi Elínu Kjartansdóttur
prests Einarssonar að Holti undir
Eyjafjöllum, og fyrri konu hans
Guðbjargar Sveinbjarnardóttur
prests Guðmundssonar. Elín lifir
mann sinn.
Það er ærið vandasamt verk
fyrir síðari tíðarmann, þótt full-
orðinn sé, að gera fullnægjandi
skil á baráttu frumlandnemanna
íslenzku hér í landi, en í þeirri
fylkingu stóð hann, þessi aldur-
hnigni ættfaðir, er hér skal stutt-
lega getið.
Það lifir í minni barna hans,
hve dugandi baráttu að foreldrar
þeirra háðu. Áræði og bjartsýni,
samfara miklu lífsfjöri, átti Sig-
valdi í óvenjulega ríkum mæli —
virtist honum jafnan flestir
vegir færir. — Árum saman
starfræktu Sigvaldi og kona
hans gistihús fyrir ferðafólk —
en afarmikil umferð var um Sel-
kirkbæ á hinum fvrri árum,
einkum þó á vetrum. Um nokkur
ár stundaði hann verzlun. Mörg
störf og mismunandi hafði hann
með höndum. Hann naut sín
betur að starfa á eigin spýtur
en í annara þágu. Ávalt var
hann skyldurækinn heimilis-
faðir, er þráði mjög menntun og
framsókn barna sinna, sem öll
eru vel gefin, þrekmikið og dug-
andi fólk, er barist hefir sigr-
andi baráttu á vettvangi lífsins.
Sigvaldi var félagslyndur
maður, er ávalt tók virkan þátt í
félagsmálum umhverfis síns, en
einnig flestum þeim málum ís-
lenzkum, er til heilla miðuðu
fyrir þjóðarbrotið hér vestra —
og heimaþjóðina, er hann unni
af óskiptum hug. — Hann unni
canadísku þjóðinni og hinu nýja
fósturlandi sínu af hug og
hjarta.
Sigvaldi Guðmundsson Nordal
Sigvaldi var einn af frum-
stofnendum ísienzka-lúterska
safnaðarins í Selkirk; ævilangt
unni hann þeim félagsskap hug-
ástum og var ábyggilegur stuðn-
ingsmaður hans; sat oft í safn-
aðarstjórn og var erindreki
safnaðarins á kirkjuþingum. —
Hann átti marga og stóra
drauma um vaxtarmöguleika
þess félagsskapar, og sýndi jafn-
an mikla trúfesti við guðsþjón-
ustur safnaðarins meðan heilsa
og kraftar leyfðu. Mikils hlýleika
nutu og prestar safnaðarins af
hans hálfu — og hjálpsemi, þeg-
ar það var á hans valdi að veita
hana. Áræði og kjark átti hann
í ríkulegum mæli; það sýndi sig
meðal annars í því, er hann rosk-
inn að aldri og þreyttur, tók að
stunda matreiðslustörf á skipum
á Winnipegvatni á sumrum. —
Lengi vel virtist svo sem ellin
næði lítt að lama krafta hans og
ofurhug. Víkingshugurinn ent-
ist honum langt fram á ævi-
kvöldið. Hann var baráttumaður,
ef því var að skipta, og lét þá
lítt hlut sinn, hver sem í hlut
átti, en var jafnan fús til sátta.
Við lát hans minnast eftir-
skildir ástvinir hans með hjart-
ans þökk og geyma margar góðar
minningar um hann. Steinunn,
dóttir hans, hins eina af dætrum
hans, er bjó í grend við föður
sinn, gerði sitt ítrasta til að vitja
hans í hinzta stríði hans, — þrátt
fyrir örðugar eigin kringum-
stæður. Guðrún, dóttir hans,
kom frá Toronto til að heim-
sækja hann í sjúkdómi hans. —
Elín kona hans bar byrði elli
hans og sjúkleika með honum af
stakri þolinmæði og af fremsta
megni til hinzta ævidags hans.
Margir vinir hans og samferða-
menn minnast þessa fjörmikla
aldurhnigna manns, er átti svo
margt í eigin skapgerð og per-
sónu, sem gerði sérstæðan þenn-
an víking með barnshjartað. —
Fólk fjölmennti mjög við útför
hans, er gerð var frá kirkju Sel-
kirksafnaðar 31. marz s.l. Sókn-
arprestur flutti kveðjumál. Og
nú er þessi þreytti farmaður, er
svo lengi sigldi á sæ tímans — og
mætti oft mótbyr og andstreymi,
kominn í friðsæla höfn — og
allir stormar lægðir!
Drottinn minn gef þú dánum
ró, en hinum líkn, sem lifa.
S. Ólafsson
"A Realislic Approach to the
Hereafier"
by
Winnipeg author Edith Hansson
Bjornsson’s Book Store
702 Sargent Ave.
Winnipeg
Kaupið Lögberg
VIÐLESNESTA
ISLENZKA BLAÐIÐ
Business and Professional Cards
Phone 74-7855 ESTIMATES
FREE
J. M. Ingimundson
Re-Roofing — Asphalt Shingles
Insul-Bric Siding
Vents Installed to Help Eliminate
Condensation
132 Simcoe St. Winnipeg, Man.
SEWING^MACHINES
Darn socks in a jiffy. Mend,
weave in holes and sew
beautifully.
474 Poriage Ave.
Winnipeg, Man. 74-3570
Dr. ROBERT BLACK
SérfrœBingur 1 augna, eyrna, nef
og hálssjúkdömum.
401 MEDICAL ARTS BLDG.
Graham and Kennedy St.
Skrifstofusimi 92-3851
Heimasími 40-3794
Dr. P. H. T. Thorlakson
WINNIPEG CLINIC
St. Mary’s and Vaughan, Wlnnipeg
PHONE 92-6441
J. J. Swanson & Co.
LIMITED
308 AVENUE BLDG. WINNIPEG
Fasteignasalar. Leigja hús. Öt-
vega penlngal&n og elds&byrgB,
bifreiöaábyrgC o. s. frv.
Phone 92-7538
SARGENT TAXI
PHONE 20-4845
For Quick, Reliable Service
Dunwoody Saul Smith
& Company
Chartered Accountanis
Phone 92-2468
100 Princess St. Winnipeg, Man.
And offices at:
FORT WILLIAM - KENORA
FORT FRANCES - ATIKOKAN
DR. E. JOHNSON
304 Eveline Street
SELKIRK, MANITOBA
Phones: Office 26 — Residence 230
Office Hours: 2.30 - 6.01 p.m.
Hafið Höfn í huga Heimili sölsetursbarnanna, Icelandíc Old Foiks' Home Soc , 3498 Osler St„ Vancouver, B.C. Thorvaldson. Eggertson. Baslin & Slringer Barristers and Sol.icitors * 209 BANK OF NOVA SCOTIA Bldg. Portage og Garry St. PHONE 32-8291 9
ARLINGTON PHARMACY CANADIAN FISH
Prescription Specialist Cor. Arlington and Sargent PRODUCERS LTD.
Phone 3-5550 J. H. PAGE, Managing Dlrector
We Handle School Supplies Wholesale Distributors of Fresh and
We collect light, water and Frozen Fish
phone bills. 311 CHAMBERS STREET
Post Office Offlce: 74-7451 Re«.: 72-3917
Muir's Drug Store Ltd.
J. CLUBB
FAMILY DRUGGIST
SERVING THE WEST END FOR
27 YEARS
Phone 74-4422 EUice & Home
Minnist
BETEL
í erfðaskrám yðar.
Office Phone Res. Phone
92-4762 72-6115
Dr. L. A. Sigurdson
528 MEDICAL ARTS BUILDING
Office Hours: 4 p.m.—6 p.m.
and by appointment.
A. S. BARDAL LTD.
FUNERAL HOME
843 Sherbrook Street
Selur líkkistur og annast um út-
farir. Allur útbúnaCur s& bezti.
StofnaC 1894 SlMI 74-7474
Phone 92-7025 H. J. H. PALMASON Chartered Acccmtant 505 Confederation Life Bulldlng WINNIPEG MANITOBA Phone 74-5257 700 Notre Dame Ave. Opposite Maternity Pavllion General Hospltal Nell's Flower Shop Wedding Bouquets, Cut Flowers, Funeral Designs, Corsages, Bedding Plants Nell Johnson Res. Phone 74-6753
Parker, Parker and Kristjansson Barristers - Solicitors Ben C. Parker, Q.C. B. Stuart Parker, A. F. Kristjansson 500 Canadian Bank of Commerce Chambers Wlnnipeg, Man. Phone 92-3561 S. O. BJERRING Canadian Stamp Co. RUBBER & METAL STAMPS NOTARY & CORPORATE SEALS CELLULOID BUTTONS 324 Smith Sl. Winnipeg PHONE 92-Ú624
G. F. Jonasson, Pres. & Man. Dir.
Keystone Fisheries Gilbart Funeral Home
Limited Selklrk, Manitoba,
Wholesale Distributors of J. Roy Gilbart
FRESH AND FROZEN FISH Licensed Embalmer
60 Loulse Street Slmi 92-6227 Phone 3271 Selkirk
EGGERTSON
FUNERAL HOME
Dauphin, Manitoba
Eigandi ARNI EGGERTSON Jr.
SELKIRK METAL PRODUCTS
Reykh&far, öruggasta eldsvörn,
og &valt hreinir. Hitaelningar-
rör, ný uppfynding. Sparar eldl-
vitS, heldur hita fr& aC rjúka út
meC reyknum.—SkrlfiC, slmlC til
KELLT 8VEIN8SON
121 Wall 8t Wtnnlpe*
Just North of Portage Ave.
Slmar 8-3744 — 3-4431
Van's Efectric Ltd.
636 Sargent Ave.
Authorized Home Appliance
Dealers
GENERAL K1JBC*FRIC —- ADMiKAL
McCLARY ELECTRIC — MOFFAT
Phone 3-4890
J. Wilfrid Swanson & Co.
Insurance ln ali lts branches
Beal Estate - Mortgagei - RentaU
210 POWEB BUILDING
Telephone 93-7181 Rei. 40-2480
LET US SERVE YOU