Lögberg - 14.10.1954, Blaðsíða 1

Lögberg - 14.10.1954, Blaðsíða 1
ANYTIME ANYTIME — ANYWHERE CALL TRANSIT - SARGENT SILVERLINE TAXI 5 Telephone Lines 20-4845 — ANYWHERE CALL TRANSIT - SARGENT SILVERLINE TAXI 5 Telephone Lines 20-4845 67. ÁRGANGUR WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 14. OKTÓBER 1954 NÚMER 41 Attlee segir frá Moskvudvölinni: Við verðum að vona, að hægt sé að vera ósammála á friðsamlegan hátt Clement Attlee er nú byrj- aður að skrifa greinarflokk um för sína til Sovétríkj- anna og Kína. Fyrsta greinin fjallar um komu hans til Moskvu. Aðalefni hennar er endursagt í styttu máli hér á eftir: — Það eru 18 ár síðan ég kom hæstseinast til Moskvu. Moskva hefir mjög breytzt síðan. Ég kannaðist við fátt aftur, nema Kreml. Svo miklar hafa breyt- ingarnar orðið í miðhverfi borg- arinnar. Bílar voru nú miklu fleiri og fólkið betur klætt. Eng- inn efi er á því, að lífskjörin hafa batnað. Einkum virðast börnin hraustleg. Búðirnar virt- nst fullar af vörum, en vörugæði virtust lítil og vörurnar mjög einhæfar. Það er mikill munur á því gamla og nýja í Moskvu. Stórar búsasamstæður, ýmist með í- búðum eða skrifstofum, hafa risið meðfram aðalgötunum, en a bak við í hliðargötunum eru gamlar byggingar, sem eru að falli komnar og naumast er hægt að lappa upp á lengur. Húsnæðis ástandið virtist í fyllsta ólagi og eftir þeim áætlunum, sem okkur yoru sýndar, mun það taka mörg ár að bæta það. Ép komst á þá skoðun ,að valú- bafarnir gerðu sér far um að sanna fólkinu mátt sinn. Þessa ályktun dró ég af hinum miklu stórbyggingum, eins og hinum ^aikla skýjakljúfi utanríkisráðu- neytisins. Þessar framkvæmdir stungu mjög í stúf við hið börmulega ástand í húsnæðis- ^aálunum. Frá mínum bæjar- öyrum séð hefði verið þjóðfé- iagslega réttara að láta íbúðar- byggingar ganga fyrir þessum stórbyggingum. Þeir, sem ég tal- aði við í Moskvu, réttlættu þetta hieð því, að þessar stórbygging- ar ykju metnað fólksins og bjálpuðu því til að finna mátt sinn. Hin mikla landbúnaðarsýn- lng, sem nýlega hefir verið °pnuð í Moskvu, virðist byggð á Sama sjónarmiði. Framkoma fólks virtis t mér Vera frjálslegri nú en hún var fyrir 18 árum. Fólkið virtist vera úþvingaðra en það var þá og ó- ragara við að láta álit sitt í ljós. % er sannfærður um, að auð- Velt væri að koma á persónuleg- Urn kynnum við hina óbreyttu borgara, ef aukin ferðalög væru leyfð til landsins. Kvöldið, sem við komum til Moskvu, sátum við miðdegisverð bjá Molotoff í bústað utan Moskvu. Hér hitti ég þá Molo- b)ff 0g Vishinsky, sem ég hafði kynnzt áður, og einnig þá Malen- koff, Krusheff, Mikoyan og ybvernik, sem ég hafði ekki séð aður. Það voru margir túlkar vMstaddir, en oft var skálað samkvæmt rússneskri venju og slejt það samtölin nokkuð í sundur. Samræður voru óþving- a®ar, en ég komst samt að þeirri niðurstöðu, að þótt Malenkoff Segði ekki mikið, væri hann sá, Sem mestu réði. Mér fannst enn remur, að Genfarráðstefnan efði létt andrúmsloftið. f veizlu, sem enski sendiherr- ann hélt daginn eftir, hafði ég mkifæri til að ræða allmikið við Mikoyan um frelsi og lýðræði. Það kom brátt í ljós, að við gát- um ekki skilið hvorn annan. Ég reyndi að útskýra, hvað við í Bretlandi teldum frelsi og lýð- ræði, en fékk það svar, að þetta væri alt einskisvert og ófull- nægjandi, því að okkur vantaði efnahagslegt lýðræði. Ég gat jafn illa fallizt á röksemdir Mikoyan og hann á mínar. Það er vel þess vert, að festa þetta vel í minni. Milli ákveðins kommúnista og lýðræðissinna Vesturlanda er andlegt djúp. Við tölum ekki og skiljum ekki sama mál. Maður verður hins vegar að vona, að við getum verið ósammála á friðsamlegan hátt eins og við vorum við þetta tækifæri. Ég skildi þetta enn betur, þeg- ar ég skoðaði Kreml nokkru síðar og kom þar m. a. í sal, sem helzt átti að vera hliðstæður fundarsal neðri málstofu brezka þingsins. Fátt minnti öllu minna á þingsal. Þetta var langur salur með um 2000 sætum, með upp- hækkuðum palli innst og ræðu- stól. Hingað koma menn ekki til að ræða um málin, heldur til að taka á móti fyrirskipunum. Ekki ein einasta rödd stjórnarand- stöðu lét til sín heyra í þessum sal. Við yfirgáfum Moskvu í þeirri trú, að mikil nauðsyn væri fyrir aukin gagnkvæm kynni Breta og Rússa og þó einkum, að fleiri Rússar gætu komið til Bretlands og séð með eigin augum, hvernig ástandið þar er. Við létum í ljós ákveðna ósk um, að Malenkoff kæmi til London. Við verðum að gera okkur ljósa þá alvarlegu staðreynd, að núverandi valda- menn Rússa hafa vaxið upp í einangrun og skortir kynni af vestrænum þjóðum. Við urðum varir mikillar andúðar í garð Bandaríkjamanna, en við gerð- um það ljóst, að við vildum góða sambúð við Rússa og Kínverja, án þess að slíta tengslum við okkar gömlu bandamenn. Við óskuðum vinsamlegrar sambúð- ar við allar þjóðir. —TÍMINN, 12. sept. Nýr dócent í guðfræði Frétt hefir borizt frá séra Braga Friðrikssyni á Lundar þess efnis að hr. Þórir Kr. Þórðarson í Chicago, hafi frá 1. þ. m. verið skipaður dócent við guðfræðideild Háskpla Islands. Þórir á óvenjulega glæsilegan menntaferil að baki. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólan- um í Reykjavík með mjög hárri einkunn, stundaði síðan fram- haldsnám í semetískum málum í Danmörku og Svíþjóð, og tók próf í þeim fræðum við Háskól- ann í Lundi. Síðan stundaði hann guðfræðinám við Háskóla íslands og lauk þar embættis- prófi 1951 með lofsamlegum vitnisburði; einkum þótti sér- efnisritgerð hans um gamla testamentisfræðin bera vott um mikinn lærdóm og vísindalega nákvæmni. Fór hann síðan til Chicago og hefir stundað þar guðfræðinám og heimspeki. — Þórir hefir í tvö skipti flutt er- indi á þingum lúterska kirkju- félagsins hér vestra og er því mörgum Vestur-íslendingum að góðu kunnur. Mun hann nú inn- an skamms fara heimleiðis, á- samt konu sinni Inger Schiöth, ag taka við störfum. Býður sig fram í bæjarsf jórn Bændum í Múlasýslum leyft að veiða 600 hreindýr á þessu ári Sk'pulagðar hreindýraveiðar í fyrsta sinn í sögu hreindýra- ræktunar hér Mr. S. E. Johnson Svo hefir skipast til fyrir at- beina hinnar borgaralegu kosn- inganefndar — Civic Election Committ'ee, að Mr. Stefán E. Johnson, leiti kosningar í 2. kjördeild við bæjarstjórnar- kosningarnar í Winnipeg, sem fram fara þann 27. yfirstandandi mánaðar; kjörtímabilið verður til tveggja ára. Mr. Johnson er fæddur í þess- ari borg árið 1905 og voru for- eldrar hans þau Magnús Johnson og Jórunn kona hans; hér naut hann alþýðuskólamentunar, en tók ungur að gefa sig við at- vinnurekstri. Fyrir fullum 25 árum stofnaði hann fyrirtækið S. E. Johnson Plumbing & Heating, sem hann hefir starf- rækt með mikilli elju og við góðum árangri; auk þess hefir Mr. Johnson gefið sig við bygg- ingum búða og fjölbýiishúsa; hann er félagi í Shriners og Eagles reglunum og telst einnig til Karlaklúbbs Fyrsta lúterska safnaðar. Mr. Johnson er kvæntur Thor- björgu Johnson, ættaðri frá Gimli, hinni ágætustu konu og eiga þau þrjú mannvænleg börn. Islendingar í 2. kjördeild geta allmiklu áorkað um bæjarfull- trúaval þar, fylki þeir einhuga liði, svo sem þeir vonandi gera, á kosninga daginn. Mr. Johnson þarf á forgangsatkvæðum þeirra að halda. Taugaveikibróðir frá smurðu brauði í Danmörku NTB—Kaupmannahöfn, 9. sept. Taugaveikibróðir er kominn upp í Danmörku og hafa um 50 manns tekið veikina. Talið er nú víst, að smitberinn að tauga- veikinni sé verksmiðja ein í Kaupmannahöfn sem framleiðir smurt brauð, sú stærsta í land- inu. Tíu af hinum sýktu vinna í verksmiðjunni, en komið hefir í ljós, að nálega allir sjúkling- arnir höfðu nýlega neytt brauðs frá verksmiðjunni. Fundarhald að Vogar Síðastliðinn laugardag var haldinn fjölsóttur fundur að Vogar, er tók til umræðu vanda- mál það, sem skapast hefði í bygðarlögunum við Manitoba- vatn vegna áflæðis, er mjög hefði þjakað kosti fjölda bænda í námunda við vatnið; forsæti skipaði Mr. Óli Johnson, einn hinna mestu áhuga- og athafna- manna í Vogarhéraði; fundurinn krafðist þess að gerðar yrðu þegar róttækar ráðstafanir til lausnar þessu vandamáli, en kostnaði yrði skipt niður milli sambandsstjórnar og fylkis- stjórnarinnar. v Á fundinum var mættur Chris Halldórsson þingmaður St. George kjördæmis. í gærkvöldi tilkynnti mennta- málaráðuneytið, að ákveðið hafi verið að leyfa í ár hreindýra- veiðar í allstórum stíl. Eru veið- arnar leyfðar frá 10. ágúst til septemberloka n.k. og á þeim tíma er heimilt að veiða 600 dýr. Er þetta í fyrsta sinn síðan hrein dýrin yoru flutt til landsins fyrir rúmlega 180 árum, að veið- ar þeirra eru leyfðar í svo stór- um stíl til nytja fyrir bændur. Reglugerðin, sem ráðuneytið hefir sett varðandi hreindýra- veiðarnar, er ítarleg. — Sem kunnugt er hefir hreindýrunum fjölgað gífurlega á undanförn- um árum, þar eð tekizt hefir að halda réttu hlutfalli milli karl- dýranna og kvendýranna. Al- varleg röskun á hlutfalli þessu var talin höfuðorsök þess, hve dýrunum fækkaði gífurlega hér fyrr á árum. Voru þau talin vera um eða lítið yfir 100 árið 1939. Hafa 20—60 tarfar verið skotnir árlega til þess að við- halda réttu hlutfalli milli dýr- anna. — I reglugerðinni er svo kveðið á, að hreindýraveiðarnar skuli fram fara undir umsjá hrein- dýraeftirlitsmanns. Þessu starfi hefir gegnt með stakri prýði um margra ára skeið Friðrik Ste- Fengu 7-800 funnur síldar í einu „kasti" Töluverð síldargengd hefir verið í Mjóafirði síðustu vikur. Hafa menn reynt að veiða síld- ina í lagnet og fengið allt að tveim tunnum í net. Tangavik full af síld Svo bar það við á fimmtudag- inn 16. ágúst, að bændurnir í Firði, þeir Benedikt Sveinsson og Magnús Tómasson, urðu þess varir, að síld var gengin inn í svonefnda Tangavík. Sást gerla að þetta var mjög stór og þykk torfa. Víkinni lokað Hugðust þeir bændur nú að reyna að króa síldina inni. Ekki höfðu þeir þó tiltæka nógu stóra og góða nót, en er þeir höfðu orðið sér úti um hana, fóru þeir ásamt heimilisfólki sínu og köst- uðu fyrir torfuna 60 faðma langri landnót og settu í „lás“ þar í víkinni. N 700 tunur í lásnum Þessa, daga, sem síðan eru liðnir, hafa þeir verið að háfa síldina úr lásnum og flytja til Neskaupstaðar. Hafa þeir flutt á einum bát, sem tekur um 100 tunnur í ferð. I Neskaupstað hefir síldin verið fryst til beitu þar á staðnum og einnig til út- flutnings. Þegar síðast fréttist höfðu verið fluttar um 600 tunnur úr lásnum, og virtist þá enn eftir verulegt magn síldar, svo að telja má víst að þarna hafi þeir bændur í Firði veitt að minnsta kosti 7—800 tunnur síldar í einu kasti. Gera má ráð fyrir, að fyrir hverja tunnu af þessari síld fáist um 100 krónur að minnsta kosti, og er því „kast“ þetta um 70—80 þúsund króna virði og því all- góð búbót. Síld hefir ekki veiðst í Mjóa- firði svo heitið geti nú um árabil, en fyrir nokkrum árum var það altítt. —TÍMINN, 8. sept. fánsson bóndi á Fljótsdal. Hefir hann meðal annars séð um vöxt og viðgang hreindýrastofnsins á Brúaröræfum með jafngóðum árangri og raun ber vitni. Hreindýraveiðisvæðið n æ r yfir Múlasýslurnar báðar. Hverjum 12 hreppa sýslnanna er leyft að veiða vissa tölu hrein dýra og er talan mjög misjöfn eða frá 7 dýrum upp í 160. Bændurnir njóti arðsins Ef í ljós kemur, að á sjálfu veiðitímabilinu hafi ekki tekizt að ná þeirri tölu hreindýra, sem heimilt er, þá getur ráðuneytið veitt leyfi síðar á árinu til veiða. Skulu hreppsnefndirnar sjá um veiði hreindýranna. Fyrst og frémst eru það bændur, sem verða fyrir mestum ágangi dýr- anna á beitilönd, sem njóta eiga arðs af veiðunum. 10.000 kr. sekt. ef . . . Aðeins þeir menn geta stund- að hreindýraveiðar, sem hrein- dýraeftirlitsmaðurinn hefir sam- þykkt. Ekki má veiða hreindýr- in á þeim stöðum, þar sem þau eru að nema ný lönd og talið æskilegt að þau hagvenjist. Brot gegn reglunum varðar 10,000 kr. sekt, en fyrir hvert dýr, sem veiðist, skal greiða 40 krónur. Hreindýr voru flutt hingað til landsins fyrstu árin eftir 1770. —Mbl., 13. ágúst Three Bursaries Duncan McWhirter Duncan McWhirter, son of Mr. and Mrs. R. J. McWhirter af 742 Jessie Avenue, who has been awarded three university en- trance bursaries. A graduate of the Fort William Collegiate Institute this year with high standing, the Port Arthur-Fort William Kiwanis clube have chosen him to receive the Kiwanis bursary of $300 for each of the two years of university attendance Word has been re- ceived from Toronto that Dun- can has also been awarded a $300 University College en- trance bursary and a $400 At- kinson Foundation bursary. In addition to the high academic standing he received at the Col- legiate, Duncan was prominent in the extra curricular program of the school. He was associate editor of the Oracle, the school year book, member of the Boys’ Athletic Society executive and the Drama Club, and a member of the senior football team. Duncan is registered in the Honor Arts course at the Uni- versity of Toronto. Duncans mother is Gudrun daughter of the late Thomas Benjamínsson and his widow Mrs. Soffía Benjamínsson. The family farmed at Arborg, Elfros, and during the later years at Lundar. Silfurbrúðkaup Préstshjónin í Argyle presta- kalli, Tína María og Jóhann Fredriksson voru gefin saman í hjónaband 7. september 1929 af séra Oliver Seim í Ev. lútersku kirkjunni í Bottineau, N. Dak. Argyle-búar, ættingjar og vinir prestshjónanna komu saman í neðri sal kirkjunnar í Glenboro þann 25. sept. s.l. til að halda upp á 25 ára giftingarafmæli þeirra. Mrs. J. Nordal spilaði brúðar- sálminn “Here Comes The Bride.” Brúðurin var leidd til sætis af Mrs. Ellis Sigurdson og brúðguminn af frænda sínum Fred. Frederickson. Börn hjón- anna og tengdasonur, George Walis, sátu í öndvegissæti með foreldrum sínum. Björn S. Jöhnson stýrði sam- komunni af rausn sem honum er lagin, bauð fólk velkomið, skýrði tilgang mannfagnaðarins og flutti kveðju frá G. J. Oleson, sem ekki gat komið sökum veik- inda. Það söknuðu allir þess mæta manns á þessu gleði- kvöldi, því hanji hefir lengi ver- ið forstjóri alls mannfagnaðar í bygðinni. Sonur hans, Dr. T. J. Oleson, flutti snjalt erindi fyrir hönd prestakallsins. Svo rak hver ræðumaðurinn annan; Ben Anderson bar kveðju frá Frí- kirkjusöfnuðinum, Jónas Oliver frá Immanúelsöfnuði, Björn S. Johnson frá Frelsissöfnuði og Fred Frederickson frá Glenboro söfnuði. Rev. R. Stewart mælti fyrir hönd United kirkjunnar og þakkaði prestshjónunum fyrir innilega samvinnu. Halldór S. Johnson afhenti prestshjónunum 58 stk. silfur- borðbúnað í mahoganí-kassa frá prestakallinu. Kvenfélög presta- kallsins þökkuðu Mrs. Fredriks- son fyrir starf hennar í öllum kvenfélögunum. Mrs. Albert Sigmar bar kveðju frá Glen- boro, Mrs. B. K. Johnson frá Brú, Mrs. R. H. Helgason frá Grund og Baldur. Mrs. C. Nordman af- henti gjöf, silfurgafla, frá Brú, Mrs. T. E. Olson silfurskeiðar frá Glenboro og Mrs. Árni Björns- son silfurbakka, sykurker og rjómakönnu frá Baldur og Grund. Bróðir Mrs. Frendriks- son, Albert Larson, afhenti pen- ingagjöf frá skyldfólki í Bot- tineau, silfursmjördisk og hníf. Churchbridge-prestakall, sem séra Jóhann hefir þjónað lengi, sendi peningagjöf. Mrs. J. Nordal spilaði á orgel og sungnir voru viðeigandi söngvar. Nordals-systur, þær Dianne og Carol, sungu tvísöng; ennfremur söng Dianne ein- söng, samkvæmt sérstakri beiðni prestshjónanna. — Prestshjónin þökkuðu fyrir sig og svo var setzt að rausnarlegum veiting- um frambornum af kvenfélögum safnaðanna. Aðkomnir gestir voru: Mrs. Lauga Jóhannesson frá Winni- peg, Mr. George Jóhannesson frá Edmonton, Mr. Nels Larson, faðir Mrs. Fredriksson, Mr. og Mrs. Albert Larson, Mr. og Mrs. Orlando Larson, Mr. og Mrs. Harold Larson, Mr. og Mrs. Lloyd Moe, Gloria, Virginia og Bud Larson, öll frá Bottineau, North Dakota. Því miður gátu ekki öll börn hjónanna komið heim. Einn sonur þeirra er í herþjónustu í Kóreu, og annar sonur og dóttir norður í Snow Lake, Man., en þau verða öll heima um jólin. Prestakallið, vinir og kunn- ingjar fjær og nær óska prests- hjónunum allra heilla í fram- tíðinni.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.