Lögberg - 14.10.1954, Blaðsíða 4
4
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 14. OKTÓBER 1954
Lögberg
Ritstjóri: EINAR P. JÓNSSON
Gefið fit hvern fimtudag af
THE COLUMBIA PRESS LIMITED
695 SARGENT AVENtTE, WINNIPEO, MaNITOBA
J. T. BECK, Manager
Utanáskrlft ritstjórans:
EDITOR LÖGBERG, 695 SARGENT AVENUE, WINNIPEG, MAN.
PHONE 743-411
Verð $5.0U um árið — Borgist fyrirfram
The "Lögberg” is printed and published by The Columbia Press L<td.
695 Sargent Avenue, Winnipeg, Manitoba, Canada
Authorized as Second Class Mail, Post Office Department, Ottawa
Líf í skákinni
Aðsókn að bæjarstjórnarkosningunum í Winnipeg hefir
á undanförnum árum verið kjósendum til lítillar sæmdar,
því oftar en einu sinni hefir það brunnið við, að tæplega 40
af hundraði þeirra, er á kjörskrá stóðu teldi það ómaksins
vert, að bregða sér yfir götuna til að greiða atkvæði;*með
slíku háttalagi er lýðræðinu misboðið, eða réttara sagt
kjörseðlinum, sem réttilega hefir verið nefndur fjöregg
lýðræðisins; það er engin nýlunda, að þeir, sem einkum van-
rækja skyldur sínar varðandi kjörsókn, bölsótist yfir úr-
slitunum og úthúði þeim, sem kjörnir voru til að fara með
völd; slík hugarfarsaðstaða ber vitni alvarlegri öfugþróun,
ef ekki hreinni og beinni ómensku.
Við bæjarstjórnarkosningarnar, sem fram fara í Win-
nipeg þann 27. þ.m. bendir eitt og annað til þess, að nokkurt
líf sé að færast í skákina, og víst er um það, að borgarstjóra-
valið fer ekki alveg fram þegjandi og hljóðalaust, því
hvorki meira né minna en sex frambjóðendur keppa um
hnossið; um flesta þessa menn er kjósendum að miklu ljóst
vegna langvarandi þátttöku þeirra í opinberum málum,
að minsta kosti sumra hverra og stendur þar í fremstu röð
núverandi borgarstjóri Mr. Coulter, er gegnt hefir þessu
virðulega embætti öllum mönnum lengur við svo ágætan
orðstír, að þar komast fáir til jafns við.
Dagblaðið Winnipeg Free Press birti nýverið stutta
en skilmerkilega greinargerð varðandi hina sex frambjóð-
endur og eru upplýsingarnar um starfsferil þeirra, sem hér
fara á eftir, teknar úr því dókúmenti. —
Mr. Percival Brown rekur viðtækja- og sjónvarps-
verzlun á Ellice Avenue hér í borg; hann er fertugur að
aldri og er þetta í fyrsta skipið, sem hann leitar kosningar í
bæjarstjórn og ræðst þá heldur ekki á garðinn þar, sem
hann er lægstur; hann leitaði kosningar til fylkisþings í
fyrra undir merkjum Social Credit-sinna og komst skamt
áleiðis, vægast sagt.
Mr. Coulter er fæddur í Dominion City, útskrifaður í
lögum af Manitobaháskóla og gaf sig lengi að lögmanns-
störfum; hann átti árum saman sæti í skólaráði og bæjar-
stjórn sem fulltrúi 2. kjördeildar, auk síns langa borgar-
stjóraferils.
Mr. Draffin, er býður sig fram af hálfu C. C. F.-sinna,
er sterkur flokksmaður og tjáist fús á að bjóða sig fram
eins oft og flokkurinn vilji stinga upp á sér; hann er
fæddur í þessari borg og hefir að atvinnu símritun hjá
Canadian National járnbrautarfélaginu; hann sat á fylkis-
þingi eitt kjörtímabil fyrir Assiniboia kjördæmið.
Mr. Stpehen Juba er soriur Winnipegborgar og rekur
hér fyrirtæki, er hann sjálfur stofnaði og nefnist Keystone
Supply Company. í síðustu bæjarstjórnarkosningum kepti
Juba um borgarstjóraembættið gegn þeim Coulter og
Swailes og sópaði að sér 27 þúsund atkvæðum; ætlaði hann
þá að liðka svo til um áfengislöggjöfina, að svo yrði skamt í
kaupstað, að sem allra flestir háttvirtir kjósendur þyrftu
ekki að leggja á sig nein heljarátök til að ná í sopanri. Mr.
Juba var í fyrra kosinn á fylkisþing og þá varð það enn
sopinn, sem varð aðal stefnuskráratriðið.
Mr. William Kardash er síður en svo nýsveinn í pólitík
þó þetta sé í fyrsta sinn, sem hann hefir í hyggju að her-
nema borgarstjóraembættið; hann játar pólitísk trúarbrögð
kommúnista og hefir fyrir hönd skoðanabræðra sinna setið
samfleytt á fylkisþingi síðan 1941. Hann var sjálfboði í
Spánarstríðinu, en hefir nú með höndum forstjórastarf hjá
People’s Co-operative Limited á Dufferin Avenue.
Mr. George Sharpe hefir gegnt bæjarfulltrúasýslan
fyrir 1. kjördeild síðan 1947. Hann er 45 ára að aldri og út-
skrifaður í rafurmagnsverkfræði af háskóla þessa fylkis;
hann hefir látið samgöngumál borgarinnar mikið til sín
taka og er í þeim efnum talinn fyrsta flokks sérfræðingur.
Að þessu sinni leitast Mr. Sharpe við að feta í fótspor föður
síns, Mr. Thomasar Sharpe, er gegndi borgarstjóraembætti
frá 1904—1906.
Það kostar $21,000,000 á ári að stjórna Winnipegborg
og starfrækja bæjarfélagið. Mr. Sharpe tjáist þeirrar skoð-
unar, að málefni borgarinnar eigi að vera rekin á sama
grundvelli og einkafyrirtæki eða hlutafélag, þar sem íbúar
borgarinnar séu hluthafar og hagsmuna þeirra beri fyrst og
fremst að gæta.
Þótt vitaskuld sé úr nógu að velja að því er borgar-
stjóraembættinu viðkemur við næstu kosningar, verða kjós-
endur að vanda val sitt svo serri framast má verða; pólitískir
æfintýramenn eiga ekkert erindi upp í borgarstjórasess.
Coulter eða Sharpe? Aðrir geta naumast komið til
mála.
☆ ☆ ☆
Skýjarof eða hvað? ___
Þau tíðindi bárust út vítt um heim, sem vonandi fáir
harma en fleiri fagna, að Dr. Daniel Malan, forsætisráðherra
Suður-Afríkusambandsins, hefði ákveðið að leggja niður
völd í lok næsta mánaðar.
Dr. Malan hefir, svo sem kunnugt er, haldið uppi árum
saman kynþáttahatri í landinu og skipað svo fyrir, að
Negrarnir mættu helzt engin mök eiga við hvíta menn nema
þá helzt að því leyti einu, að þræla þeim í hag. Dr. Malan
hefir haldið sér við vöM lengur en flesta óraði fyrir með
látlausum gyllingum á yfirburðum hins hvíta manns, er
einn átti að vera til forustu fallinn og óskeikull í ráðstöf-
unum sínum varðandi lausn þeirra vandamála, er glíma
þurfti við í þann og þann svipinn.
Þeir áttu sammerkt um margt Hitler og Dr. Malan,
stærilætið það-samahjá báðum, og þjóðernisgorgeirinn hinn
sami hjá báðum; samtíðin hefir þegar kveðið upp dóm sinn
yfir Hitler og litlar líkur eru á, að dómurinn yfir Dr.
Malan verði miklu vægari.
Viðureignin um Quemoy
Hjálpa Bandaríkjamenn kín-
verskum þjóðernissinnum til
að halda henni?
SEINUSTU dagana hefir at-
hygli manna beinzt að lítilli
eyju, sem liggur við Kína-
strendur, og fáir munu hafa
heyrt nefnda áður. Ástæðan er
sú, að hún þykir nú ekki ólíkleg
til þess að verða þrætuepli, er
vel getur haft styrjöld í för með
sér.
Eyja þessi er Quemoy, en hún
liggur næst meginlandi Kína af
þeim eyjum í hafinu milli Kína
og Formósu, er þjóðernissinna-
stjórn Chiang Kai Sheks hefir
enn á valdi sínu. Allt síðan
Chiang Kai Shek yfirgaf Kína,
hefir hann lagt mikið kapp á að
halda Quemoy, enda er það
mikilvægt fyrir varnir Formósu,
að kommúnistar nái henni ekki.
Haustið 1949 gerðu kommúnist-
ar öfluga til raun til að ná eynni,
og segja þjóðernissinnar, að
kommúnistar hafi beitt 30 þús.
manna liði í þeirri viðureign.
Henni var samt hrundið og segja
þjóðernissinnar, að kommúnist-
ar hafi misst um 15 þúsund
manns í þeirri viðureign. Síðan
hefir verið hljótt um Quemoy
þangað til 23. ágúst s.l., er komm-
únistar gerðu þar strandhögg, en
síðan hafa þeir haldið uppi skot-
árásum á bækistöðvar þjóðernis-
sinna þar.
Eyjan Quemoy liggur 4—5
mílur undan Kínaströndum og
álíka langt frá stórborginni
Amoy, sem stendur á eyju, en
hún er stærsta hafnarborgin á
þessu svæði og hefir löngum
verið talið, að hún yrði aðalstöð
innrásarheré kommúnista, ef
þeir freistuðu að taka Formósu.
Af þeim ástæðum er mjög mikil-
vægt fyrir þjóðernissinna að
halda Quemoy, því að þaðan
geta þeir torveldað alla sjó- og
loftflutninga til og frá Amoy. Af
sömu ástæðum er það mikilvægt
fyrir kommúnista að ná Quemoy
áður en þeir ráðast á Formósu,
ef þeir hafa það í huga.
Quemoy er allstór eða um 30
km. á lengd og 20 km. á breidd.
íbúa rhennar voru um 40 þús.
fyrir styrjöldina. Áður fyrr var
hún miðstöð sjóræningja. Óvíst
er, hvað herafli þjóðernissinna
þar er mikill, en ágizkanir eru
frá 20—60 þús. manns. Talið er,
að þeir hafi komið sér þar upp
mjög traustum vörnum.
Seinustu mánuðina hafa borizt
fregnir af því, að kommúnistar
hefðu safnað saman liði miklu á
ströndinni í nánd við Quemoy.
Ýmsar getgátur voru þá um það,
hverjar fyrirætlanir þeirra væru
í sambandi við þessa liðssöfnun.
Úr þessu fékkst skorið, þegar
fyrsta árásin var gerð á Quemoy
23. f. m.
Árás þessi var í því formi, að
fámennt lið kommúnista gerði
strandhögg á Quemoy. Felldi það
11 hermenn þjóðernissinna en
hertók einn. í seinustu viku hófu
svo kommúnistar skothríð á
ýmsar stöðvar þjóðernissinna á
Quemoy bæði úr flugvélum og
strandvirkjum. Þjóðernissinnar
segja, að þeir hafi til þessa ekki
orðið fyrir neinu verulegu tjóni
af völdum þessara árása. Ber-
sýnilegt er þó, að mannfall hefir
orðið nokkurt í liði þeirra, þar
sem kunnugt er um, að tveir
amerískir liðsforingjar hafa
beðið bana af völdum árása, en
þeir voru í eftirlitsferð á
Quemoy.
Kommúnistar segja, að tjón
þjóðernissinna sé orðið mikið.
Þjóðernissinnar hafa nú svar-
að þessum árásum kommúnista
á Quemoy með því að gera nú í
vikunni miklar Ioftárásir á
Amoy og herstöðvar í nánd við
hana. Segjast þeir hafa unnið
miklar skemmdir á höfninni og
fleiri mannvirkjum og eyðilagt
mikinn fjölda innrásarskipa, er
kommúnistar hafa safnað þarna
saman. Svo virðist, að þar hafi
yfirleitt verið um smáskip að
ræða, enda mun heppilegast
fyrir kommúnista að nota mörg
skip við innrás á Quemoy, þar
sem þau gætu nær alls staðar
tekið land og dreift þannig
kröftum varnarhersins.
Þessi vopnaskipti milli komm-
únista og þjóðernissinna eru hin
mestu, er átt hafa sér stað milli
þeirra síðan haustið 1949,
kommúnistar freistuðu að ná
Quemoy, eins og sagt er frá hér
á undan.
Mikið er nú a ðsjálfsögðu um
það rætt, hvað kommúnistar
ætlist fyrir með því að hefja
árásir á Quemoy.
Sumir blaðamenn telja, að
ætlun kommúnista sé að ganga
úr skugga um, hve langt Banda-
ríkjamenn vilja ganga í stuðn-
ingi sínum við Chiang Kai
Shek. Bandaríkjastjórn hefir
nefnilega aldrei lýst yfir því, að
hún muni hjálpa til að verja
Quemoy eða nokkrar eyjar
aðrar, sem þjóðernissinnar halda
næst Kínaströndum. í yfirlýs-
ingu þeirri, sem Truman birti
eftir innrás kommúnista í Suður-
Kóreu, var aðeins tekið fram, að
7. flotadeild Bandaríkjanna hefði
fengið fyrirskipun um að verja
Formósu og Pescadoreseyjar,
sem liggja um 70 mílur undan
Kínaströndum og um 30 mílur
frá Formósu. Quemoy var ekki
nefnd á nafn í þessari yfirlýs-
ingu. Síðan Eisenhower kom til
valda hefir þessari yfirlýsingu
ekki verið neitt breytt að þessu
leyti. Hins vegar stóð það í yfir-
lýsingu Trumans, að 7. flota-
deildin ætti einnig að hindra, að
árásir væru gerðar frá Formósu
á meginland Kína, en það atriði
felldi Eisenhower úr gildi við
valdatöku sína. Sú ákvörðun
hans hefir verið mikið gagu
rýnd, enda breytti hún mjög
hlutverki 7. flotadeildarinnar á
þessum slóðum. Áður hafði hún
það hlutverk að hindra hvers
konar árásir og halda uppi alls-
herjarfriði, en nú hefir hún það
hlutverk að hindra aðeins árásir
annars aðilans.
Árásir kommúnista á Quemoy
gera það að verkum, að Banda-
ríkjastjórn stendur nú frammi
fyrir þeim vanda að ákveða,
hvort Bandaríkin skuli hjálpa
þjóðernissinnum að verja Que-
moy eða ekki. Ef hún tæki slíka
ákvörðun, myndu kommúnistar
geta túlkað það það sem aukinn
yfirgang af þeirra hálfu, þar sem
hér sé m. a. um eyju að ræða,
er alltaf hafi tilheyrt Kína. Allt
öðru máli gegnir um Formósu,
sem ekki hefir verið kínversk
land nema öðru hvoru og hefir
fullkomlega réttlætanlegt til-
kall til sjálfstæðis. Ef Banda-
ríkin láta hins vegar í það skína,
að þau muni ekki hjálpa þjóð-
ernissinnum til að verja Que-
moy, getur það orðið kommún-
istum hvatning til að reyna að
er ná henni, þar sem þeir þurfa þá
ekki að óttast neinar víðtækar
afleiðingar. Tækist þeim að ná
Quemoy, væri það örlagaríkur
sigur fyrir þá, þar sem það sýndi
styrk þeirra og vanmátt þjóð-
ernissinna. Slíkur atburðu rværi
líklegur til að veikja mjög bar-
áttuhug þjóðernissinnahersins á
Formósu.
Sennilegt er, að Bandaríkja-
stjórn dragi það sem mest á lang-
inn að segja nokkuð ákveðið um
þetta. Hins vegar er líklegt að
hún veiti þjóðernissinnum alla
þá óbeinu aðstoð, er hún getur í
té látið. Sum amerísk blöð hafa
látið í ljós, að viðureignin um
Quemoy geti nrðið góður mæli-
kvarði á það, hvað her þjóðernis-
sinna geti og hvort mikið se
leggjandi upp úr honum.
Ágizkanir herfræðinga eru
yfirleitt þær, að ólíklegt sé, að
kommúnistar reyni að gera inn-
rás á Formósu á þessu ári. Veður
séu nú farin að gerast ótrygg a
hafinu milli Kína og Formósu og
þá skorti enn ýmsan undirbun-
ing til þess að geta hafið innrás.
Að þessu sinni séu þeir aðeins
að þreifa fyri rsér, hvort þeir
hafi möguleika til að hertaka
Quemoy. Ef það heppnaðist, vseri
það líka verulegur áfangi að na
Formósu síðar.
Ýmsir blaðamenn segja, að
erfitt sé fyrir kommúnista að
hætta við að reyna að hertaka
Quemoy úr því sem komið er.
Þjóðernissinnar myndu telja það
sigur fyrir sig og það gæti vel
gefið mótspyrnuhreyfingunni i
Kína byr í seglin.
Þrátt fyrir það, þó að ekki sé
búizt við árás kommúnista a
Formósu í ár, hafa Bandaríkin
aukið undirbúning sinn til að
geta varið hana. Meðal annars
hefir flugher og landher verið
fluttur frá Kóreu í þeim tilgangi
m. a. að geta verið til taks, ef
ráðizt yrði á Formósu.
Líklegt er samt, að ekki komi
til slíkrar árásar að sinni. Kom-
múnistar munu í því sambandi
láta sér nægja taugastríð og það
myndi mjög styrkja aðstöðu
þeirra í því, ef þeim heppnaðist
að ná Quemoy. Hins vegar mun
það veikja aðstöðu þeirra, ef
þær fyrirætlanir þeirra fara ut
um þúfur.
—TÍMINN, 11. sept.
Veljið í öryggi hjá Tip Top Tailors
Gamlir og nýir viSskiptavinir njóta hinna sömu
kjörkaupa, hinnar sömu persönulegu afgreiöslu
hjá elztu og frægustu fatagerCarverzlun í Canada
eftir máli, jafnt fyrir konur sem karla. BútSir og
umboSsmenn í hverri borg frá strönd tii strandar.
r
Tip
Top
tailors
Hér fæst nýr bæklingur, sem
greiðir götu yðar í Canada
Með það fyrir augum, að fræða nýja innflytjendur um canadiska
lifnaðarháttu og skyldur, hefir deild þegnréttinda og innflytjendamála,
látið gefa út „Handbók til afnota nýjum innflytjendum“. Bókin útskýrir
nákvæmlega þegnréttindakröfur, bankareglur, hvernig kaupa skuli hús,
viðskiptafyrirtæki eða bújarðir; póstþjónustu, menntamálakerfi Canada,
öflun leyfa, atvinnuhætti, læknaþjónustu og heilbrigðismál og reglugerðir
um samfélagslegt öryggi; hún inniheldur margar aðrar nytsamar upp-
lýsingar varðandi Canada og canadiskar venjur.
Bókin er gefin út á fimm tungumálum, ensku, frönsku, þýzku, hollensku
og ítölsku og fæst ókeypis með því að fylla inn eyðublaðið hér að neðan og
senda The Citizenship Branch, Dept. of Citizenship and Immigration,
Ottawa. Látið ekki undir höfuð leggjast, að tilgreina tungumál þeirrar
bókar, er þér æskið að fá.
Gefið út til afnota nýjum innflytjendum til Canada af
DEPARTMENT OF CITIZENSHIP AND IMMIGRATION
HON. J. W. PICKERSGILL, P.C., M.P.
Minister
LAVAL FORTIER, O.B.E., Q.C.
Deputy Minister
CITIZENSHIP BRANCH,
1>EPARTMENT of citizenship ANI) immigration,
OTTAWA.
Gerið svo vel að senda mér eintak af (tiltakið tungumái) “Handbook for
Nexveomers.”
Nafn ............................................-........*..
Heimilisfang .........,.......................................
Bygðarlag ....................................................