Lögberg - 28.10.1954, Side 7

Lögberg - 28.10.1954, Side 7
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 28. OKTÓBER 1954 7 UPPREISN I7INN af hinum alvarlegustu og ^ um leið hættulegustu at- burðum, sem komið gátu fyrir í langsiglingum í gamla daga, var ef til uppreisnar kom um borð í skipinu, þ. e. ef einhver hluti skipverja gerði samsæri gegn yfirmönnum skipsins og þeim, er friðsamir voru og ekki vildu vera með í slíku. Nú á dögum má slíkt kallazt afar sjaldgæft, en þó alls ekki útilokað. Alla tíð hefir verið tekið afar hart á þeim, er stofnað hafa til upp- reisnar, enda nauðsynlegt að hafa þar ströng lög um, vegna þess að ekki verður leitað að- stoðar mannsterks lögregluliðs og því undir hælinn lagt, hver nær yfirhöndinni, hinir lög- hlýðnu eða lögbrjótarnir. Hér fer á eftir frásaga R. Barry O’Brien, skipstjóra, af einni slíkri uppreisn, er gerðist á þessari öld, er hann var 2. stýrimaður á brezku flutninga- skipi. Ég var 2. stýrimaður á brezka flutningaskipinu Bisley, er ég lifði hina taugaæsandi atburði, er hér verður sagt frá. Skipið var leigt frönsku félagi til La Plata og aftur til Frakk- lands. Auk skipstjórans voru eftirtaldir yfirmenn á Bisley: Þrír stýrimenn, fjórir vélstjórar og tveir stýrimannslærlingar, sem allir mötuðust í borðsal yfirmanna. En er við komum til Le Havre, skráði félagið, sem leigði skipið, einn af starfs- mönnum sínum, sem stýrimann á skipið. Undirmennirnir, sem skráðir voru í Rotterdam, voru 20 manns frá 8 eða 9 þjóðum. Þar á meðal 2 Grikkir, 1 Múlatti og 1 Armeníumaður. Að undan- teknum einum manni, sem hét Swartz, var ekkert sérstakt við þessa skipshöfn, hvorki frá- hrindandi né aðlaðandi. Hún virtist ósköp venjuleg eða svipuð flestum öðrum skipshöfnum á flutningaskipum. Hvað Swartz snerti var allt öðru máli að gegna. Það var eitt- hvað í fari hans, sem strax hafði óþægileg áhrif á mann. Hann var fremur lítill vexti, og undir- leitur. Eitthvað um 40 ára að aldri, flatnefja með framstand- andi höku, eða yfirleitt sú teg- und manna, sem maður leitar ekki lags við. Strax við fyrstu sýn kallaði ég hann „púður- tunnuna“ í huganum og þóttist viss um, að hann myndi gera okkur erfitt fyrir. Fyrsta losunarhöfn okkar var Santos í Brasilíu, og á meðan iosunin fór fram, kom í ljós, að einum kassa með svissneskum úrum hafði verið stolið af farm- inum. Ennfremur hafði talsvert áfengi horfið. f fyrstu grunuðum við hafnar- verkamennina um græsku, en er hásetar okkar, við burtförina frá Santos til Montevideo og Bue- nois Aires, reyndust mjög örukknir, vissum við hvar leita skyldi sökudólganna. Skipstjórinn valdi mig og tyrsta stýrimann til þess, ásamt sór, að leita í íbúðum háseta. ^rammi fundum við fyrst all- ^iargar tæmdar vínflöskur og auk þess stóðu tvær hálftæmd- ar á borðinu hjá matardiskum hásetanna. Við sýn þessa reidd- lst skipstjóri mjög og tók að ^ita í kojunum. í þeirri fyrstu, sem leitað var í, fannst eitt hinna stolnu úra. Hann stakk því í yasann og ætlaði að fara að leita 1 annarri koju, er Swartz birtist °g tók sér stöðu fyrir framan hann. „Hver fjandinn hefir boðið yður hingað fram í“, hvæsti hann öskuvondur. „Burt með yður, ef þér ekki óskið eftir að verða fleygt á dyr“. „Einmitt, það eruð þá þér, Seín standið fyrir þessu“, svar- yði skipstjóri og hvessti augun a rnanninn. „Það er hörð refsing Vlð að stela af farminum, get ég sagt yður og ég skal sjá um að þér fáið slíka refsingu“. Skipstjórinn hafði varla sleppt orðinu, þegar tóm flaska kom þjóttndi í loftinu og^brotnaði á stoð um tvö fet frá höfði hans, og á næsta augnabliki þutu margir hásetar á hann, svo að hann féll við, en reis brátt á fætur og leitaði dyranna. Ein- hver barði mig í andlitið, en ég endurgalt það með hægri hand- ar höggi, svo að maðurinn lá í gólfinu. Fyrsti stýrimaður greip tóma flösku og sveiflaði henni í kringum sig og varðist þannig hinum drukknu hásetum, um leið og hann gat komið skipstjór- anum út á þilfarið. „Við skulum hörfa upp á stjórnpallinn, hér er of mikill liðsmunur“, hvíslaði hann. Háðsyrði fylgdu okkur aftur eftir þilfarinu og flaska kom þjótandi, en brotnaði á dekkinu, án þess að gera okkur tjón. Skipstjórinn náði ekki upp 1 nefið á sér fyrir vonzku. „Þetta er uppreisn“, muldraði hann, — „og þeir skulu fá þá hegningu, sem þeir munu seint gleyma“. Klukkutíma síðar tilkynnti fyrsti vélstjóri, að kyndararnir hefðu lagt niður vinnu og geng- ið í lið hásetanna. Þeir höfðu yfirgefið vélarúmið án þess að mæla orð við vélstjóra þann, sem var á verði. Vegna þessa at- burðar var eftir stutta ráðstefnu á stjórnpalli, en við hinir þrír stýrimennirnir með aðstoð báts- manns, timburmanns og dag- manns í vél, áttum að halda lif- andi undir kötlunum. Hinir tveir lærlingar skyldu skiptast á við stýrið. Áður en dimmdi lögðum við sjóslöngu til reiðu á efsta þilfar, þar eð við gátum búizt við árás í myrkrinu. Okkur kom og sam- an um, að eitt stutt merki frá eimflautu skipsins skyldi merkja að við, sem niðri vorum, áttum að setja sjódæluna af stað, en þeir okkar, sem ekki voru á verði, áttu að flýta sér upp á stjórnpall. Á meðan við störfuðum að þessum undir- búningi komu hásetarnir alla leið að lestaropi nr. 2, en skip- stjóri hafði varað þá við að voga sér lengra. „Við erum reiðubúnir að hefja vinnu aftur“, kallaði Swartz,- — „en með því skilyrði, skipstjóri, að þér gefið okkur skriflega yfir- lýsingu um að þér séuð þess fullviss, að það, sem þér funduð fram í, sé ekki af farmi skipsins“. „Fjandinn fjarri mér“, kallaði skipstjórinn. „Mér dettur ekki í hug að ganga að þeim skil- yrðum“.. Um kvöldið átti ég fyrstu vöku í vélarúmi. Allt var ró- legt, er ég kom upp á þilfar um miðnættið. Til stjórnboða sá að- eins grilla í brasilízku ströndina í tunglsljósinu. Franski stýri- maðurinn gekk fram og aftur á stjórnpalli og ég gekk þangað upp og ræddi stundarkorn við hann, áður en ég fór til her- bergis míns. Hann sagði mér, að skipstjórinn hefði ákveðið að halda áfram til Montevideo og ekki viljað fallast á uppástungu hans um að snúa aftur til Santos og láta taka skipverja fasta þar. „Ég vona bara að stífni hans kosti ekki blóðsúthellingar“, sagði franzkmaðurinn. Ég yfirgaf hann og hans svart- sýni og tók mér bað. Síðan lagð- ist ég fyrir og sofnaði brátt. Um klukkan 2 um nóttina vaknaði ég skyndilega við sker- andi hljóð eimpípunnar. Ég flýtti mér upp á stjórnpall, en þá var skipstjórinn kominn þangað. Brátt komu einnig fyrsti stýrimaður, timburmaðurinn og lærlingur sá, sem ekki var á verði. „Það er eitthvað á seiði“, sagði skipstjórinn, alvarlegur. „Hafið nú augun opin“. Á framþiljunum mátti sjá nokkra háseta vera að læðast um og brátt tóku þeir að skríða aftur eftir, mjög varlega, í skugganum frá lunningunni. Við renndum okkur niður á efra þil- far og gripum til sjóslöngunnar og biðum. Ég hélt um opið, en lærlingurinn hafði hendur á lokanum. Þá tóku mennirnir allt í einu undir sig stökk og ruddust til okkar með sannköll- uðu stríðsöskri. Lærlingurinn opnaði fyrir lokann og sjóbunan þeyttist úr slöngunni og skall á mönnunum með miklum krafti. Hóstandi og stynjandi hörfuðu hásetarnir undan og gátu varla staðið fyrir vatnsmagninu, en í gegnum hávaðann heyrðist Swartz hrópa: „Komið, nú drepum við undir kötlunum“. Og hásetarnir hlupu nú að vélar- rúmsstiganum, en létu okkur eftir þilfarið. Skipstjórinn rak upp skelli- hlátur. „Þeir fá heitar viðtökur þarna niðri“, sagði hann — „en komið nú, við skulum fara á eftir þeim“. Franski stýrimaðurinn var lát- ] inn gæta stjórnpallsins, en við hinir hlupum niður járnstigann að kyndingarrúminu. Þá heyrð- ist rödd fyrsta vélstjóra yfir- gnæfa hávaðann: „Smakkaðu á þessu, bannsettur uppreisnar- seggurinn, og þessu, og þessu“. Ég heyrði að barizt var með kolaskóflum og síðan sársauka- vein. Það var auðheyrt að upp- reisnarmennirnir fengu mjög heitar viðtökur. Tveir þeirra lágu á gólfinu, með svöðusár á höfði, en annar Grikkinn og Múlattinn voru að bisa við að raka eldinn undan kötlunum með járnstöng, en tókst ekki. vegna þrengsla. Vélstjórarnir, ásamt sjálfboðaliðunum af þil- farinu börðust nú þarna af miklum móð, og þrátt fyrir liðs- muninn tókst þeim að króa upp- reisnarmennina af í einu horn- inu, og er við komum þarna óvænt til hjálpar, leizt hásetun- um ekki á blikuna, sáu sitt ráð vænna og ruddust nú að upp- ganginum. Flestum tókst að komast undan upp á þilfarið, en Swartz og þrír aðrir voru hand- samaðir og járnaðir, en síðan lokaðir inni í verkfæraskáp vélarúmsins. Einn vélstjóranna var skipaður fangavörður, en annar skyldi gæta eldanna. Við hinir flýttum okkur upp á þil- farið, — en þar var allt með kyrru.m kjörum. Stríðsmennirnir höfðu nú flúið framm í og lokað sig inni í íbúðunum, en til frekara ör- yggis settum við slá og hengilás fyrir bakkann að utanverðu, án þess að þeir reyndu að hindra það. Þrjátíu og sex klukkustundum síðar sigldum við inn Maldona flóann með merkið „Uppreisn um borð“ við hún, en þar lá fall- byssubáturinn „Amethyst“, sem síðan gat sér frægð við Yangtse — Kiang. Báti var strax skotið út á herskipinu og nokkrum mínútum síðar kom sjóliðsfor- ingi og nokkrir sjóliðar um borð og tóku uppreisnarmennina höndum, en við héldum ferðinni áfram til Montevideo, með vopnaða verði á þilfari. Við yfirheyrzlurnar skýrðu uppreisnarmennirnir frá því, að tilgangurinn með því að slökkva Um 200 manns sátu vegSega afmælis- veizlu uppi á Öxnadalsheiði undir kötlum skipsins hefði verið sá, að stöðva skipið, en síðan yfirgefa það í skipsbátun- um. Sú staðreynd, að engin loft- skeytastöð var í skipinu og það all-nærri landi, hefir sennilega komið þessari heimskulegu hugsun inn hjá þeim. Swartz var dæmdur í tveggja ára hegningarvinnu, en hinir til misjafnlega langrar fangelsis- vistar, þó enginn í lengri en eitt ár. Kyndararnir, sem Swartz hafði neytt til fylgilags við sig, sluppu með þriggja mánaða fangelsisdóm hver, en allir voru þeir dæmdir til kaupmissis og sendir síðan í gæzlu til Eng- lands, þar sem þeir áttu að taka út refsinguna. Uppreisnin um borð í Bisley átti þó eftir að gleðja okkur hina. Tryggingarfélagið afhenti hverjum f.yrir sig velþegna pen- ingaávísun, sem laun fyrir að sigla skipinu heilu og höldnu til hafnar, við erfiðar og hættu- legar aðstæður. Rælt við kanadiskan sérfræðing, sem dvalið hefir hér um skeið hjá Sandgræðslunni Undanfarið hefir dvalið hér kanadískur sérfræðingur, J. B. Campbell, sem sendur er af Matvæla- og landbúnað- arstofun Sameinuðu þjóð- anna (FAO), og er hér á vegum Sandgræðslu Islands. Hefir hann ferðazt hér um landið undanfarnar 3 vikur og athugað sandgræðslu- svæðin og gróðrarstöðvar, látið í ljós álit sitt á þeim og gefið ráðleggingar. CAMPELL hefir farið um Rangárvallasýslu, Skaftafells sýslu og um Norðurland allt austur í Kelduhverfi og Axar- fjörð og norður á Hólmasand, sem er mesta uppblásturssvæði hér á landi. Hylliu þar sjötugan vegaverk- stjóra, sem er að leggja veg um skriðusvæði Norðurárdals. Frá fréttaritara Tímans á Sauðárkróki. Töluvert óvenjuleg afmælis- veizla var haldin hér í héraðinu miðvikudaginn 15. sept. s.l. Þá sóttu um 200 manns Rögnvald Jónsson, vegaverkstjóra á Sauð- árkrók heim í búðir hans vestan í Öxnadalsheiði á sjötugsafmæli hans, en hann dvelur þar nú við vegagerð yfir skriðurnar miklu, sem féllu í Norðurárdal í sumar. Rögnvaldur Jónsson er kunn- ur og vinsæll vegaverkstjóri. Hefir hann gegnt þessu starfi starfi síðan 1928, og séð um veg- inn í Norðurárdal og upp á Öxnadalsheiði, svo og nokkurn kafla í Blönduhlíð og Skaga- fjarðarbraut frá Sauðárkróki fram að Mælifelli. Aukning beitilandsins Nautgripir, sauðfé og hross vilja helzt þurrlendið til beitar, en sniðganga mýrarnar. En með uppþurrkun breytist mýrar- gróðurinn í þurrlendisgróður, og væri á þann hátt hægt að auka beitiland hér geysilega. Á Sámsstöðum hefir verið gerð til- raun með að þurrka einn hekt- ara lands og hefir komið í ljós, að eftir 8 ár fæst af því bæði margfalt magn og gæði. Gefur skýrslu um dvöl sína Þegar heim kemur mun Camp- bell rita skýrslu um dvöl sína hér, og tillögur þær, er hann hefir gert. Hann vill beina því til bænda, að skýrslur tilrauna- stöðvanna hér og skýrslur At- vinnudeildar Háskólans geti komið þeim að góðu haldi, og ráðleggur hann bændum ein- dregið að notfæra sér þær. Vegalagning í annað sinn Þótt Rögnvaldur sé nú sjö- tugur orðinn, hefir hann verk- stjórn enn á hendi, enda hraust- ur vel. Þegar skriðuhlaupin miklu urðu í Norðurárdalnum í sumar, var hann að viðgerð þar. Þann veg hafði hann einnig upp- haflega lagt. Nú lögðu örlögin honum það verkefni í hendur að leggja veginn þarna í annað1 sinn, og að því hefir hann unnið í sumar. 200 menn í heimsókn Skúrar vegavinnumannanna standa í svonefndri Skógarhlíð í Heiðarsporðinum, og þangað fékk Rögnvaldur hina fjöl- mennu heimsókn. Tók hann rausnarlega á móti gestum. Eru þar tveir skúrar rúmgóðir, og fóru kaffivéitingar fram í öðrum en aðrar veitingar fram í hinum. Þarna kom fjöldi bænda úr hér- aði og fólk frá Sauðárkrók, Siglu firði, Akureyri og jafnvel frá Reykjavík. Voru þarna á meðal fjölmargir samverkamenn Rögn valdar úr vegagerðinni. Var setzt að borðum þarna á Öxnadalsheiði um hádegi og stóð veizlan samfleytt til miðnættis. Vou þarna ræður fluttar, svo vart varð tölu á komið, kvæði flutt og mikið sungið. Afmælis- barinu voru færðar góðar gjafir. Verkstjórasambandið heiðraði Rögnvald með fögrum silfur- bikar, og mun hann vera fyrsti verkstjórinn, sem það heiðrar með þessum hætti. Karl Frið- riksson, vegaverkstjóri á Akur- eyri, gaf honum annan silfur- bikar. Samverkamenn Rögn- valdar í sumar gáfu honum stofu skáp fagran og fyrri samverka- menn ísskáp, og munu þó ekki allar gjafir upptaldar. Mun vart í annan tíma hafa verið haldin veglegri afmælis- veizla á heiðum uppi hér á landi. —TlMINÍf, 21. sept. Illllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll —VIKINGUR Saltsteinn getur beint beit að svæðum, er þola hann bezt Leizt vel á árangurinn Hvað tilraunir þær og fram- kvæmdir, er hér hafa verið gerðar til að koma í veg fyrir uppblástur, snertir, lét Camp- bell þess getið, að þær miðuðu í rétta átt og góður árangur hefði náðst en meiri reynsla og víðtækari rannsóknir væru nauðsynlegar. Allt land ófriðað Þar sem hér er allt land í sameign manna, er mjög erfitt um friðun einstakra svæða, án þess að þurfa að leggja í mikinn kostnað við að girða þau af. Campbell segir, að gott ráð til að beina'beitinni að þeim svæð- um, sem menn vilja helzt beita, sé að hafa saltstein á beitiland- inu. Gripirnir sækja mjög að saltsteininum og halda sig um- hverfis hann, einkum á haustin þegar grös eru tekin að sölna. Slíkan saltstein, sem sérstaklega er gerður í þessu augnamiði, má nú fá hér, og hefir t. d. SIS flutt hann inn. Með þessu má koma í veg fyrir, að gripirnir gangi hart að þeim landsvæð- um, sem þola illa mikla beit. Heimsótti gróðrarstöðvar Campbell hefir skoðað ýmsar gróðrarstöðvar hér og átt tal við marga menn, sem að þeim standa. Lét hann mjög vel af heimsóknum sínum á stöðvarn- ar og árangri þeim er þar hefði náðst. Að lokum lét Campbell þess getið, að dvölin hér hefði verið sér ánægjurík, gestrisni mikil og fólkið alúðlegt, og þætti sér verst að geta ekki staldrað við lengur. —TIMINN, 22. sept. Það er _borið fram FEIS-EL 1 þessu felast aukin þægindi, því þessir pappírs-klútar eru kunnir að mýkt og fara vel með nefið. KAUPIÐ KREFJIST! VINNUSOKKA THE WORD OF LOVE (KÆRLEIKSORÐIÐ eftir Steingrím Thorsieinsson) Með margstyrktum tám og hælum Þeir endast öðrum sokkum betur One word of love! I am alone And no one seems to care; No greater warmth to me is known Than love thy life does share. Without love’s warmth the sun seems cold And every flower pale, And heaven like a grave tent bold, And life a torture vale. One word of love, that sunray bright On cold and cloudy day, What comfort sweet it gives, and light Upon thy weary way. Penmans vinnusokkar endast lengur — veita yður aukin þægindi og eru meira virði. Gerð' og þykkt við allra hæfi — og sé tillit tekið til verðs, er hér um mestu kjörkaup að ræða. EINNIG NÆRFÖT OG YTRI SKJÓLFÖT Frægt firma síðan 1868 Translated by Kolbeinn Sæmundsson AVS-9-4

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.