Lögberg - 24.03.1955, Blaðsíða 1
ANYTIME
ANYTIME
— ANYWHERE
CALL
TRANSIT - SARGENT
SILVERLINE TAXI
5 Telephone Lines
20-4845
— ANYWHERE
CALL
TRANSIT - SARGENT
SILVERLINE TAXI
5 Telephone Lines
20-4845
68. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 24. MARZ 1955
NÚMER 12
Ungur íslendingur kennir bændum í
Pakistan búnaðartækni
‘ r-vnniNgi
SIR WINSTON CHURCHILL
Mikill fjöldi brezkra blaða staðhæfir um þessar mundir að
Sir Winston muni láta af stjórnarforustu þann 5. apríl
næstkomandi og fá stjórnartaumana Sir Anthony Eden í
hendur; það fylgir sögu, að þing verði rofið snemma
sumars og almennar kosningar fyrirskipaðar; þykjast
íhaldsmenn sjá sér leik á borði vegna hins alvarlega
klofnings verkamannaflokksins, sem þegar hefir verið
skýrt frá.
Þjóðverjar veita íslenzkum sjómönum
viðurkenningi* íyrir björgun
Hafís fyrir Vestfjörðum
Enn fer héðan frá íslandi
sérfræðingur, sem ráðinn
hefur verið í þjónustu FAO,
Landbúnaðar- og matvæla-
stofunar Sameinuðu þjóð-
anna. Er það Eirik Eylands
vélfræðingur, sem fer alla
leið til Pakistan og verður
þar um eins árs skeið í
héraðinu Baluchistan.
Erik Eylands fer í dag til
Kaupmannahafnar með flugvél
Loftleiða, en þaðan leggur hann
síðan leið sína til aðalbæki-
stöðva FAO suður í Rómaborg.
Þar mun hann hafa skamma við-
dvöl áður en hann heldur austur
á bóginn til höfuðborgarinnar í
V.-Pakistan, Karachi.
Störf þau, sem Erik er ætlað
að leysa af hendi þar eystra, er
að skipuleggja notkun stærri
jarðvinnsluvéla og kenna mönn-
um í Baluchistan-héraði með-
ferð vinnuvélanna, en einmitt
þetta er sérgrein Eirík Eylands.
Við nám í Noregi
Þegar hann lauk stúdentsprófi
hér í Reykjavík (1945) fór hann
til framhaldsnáms í Noregi, þar
sem hann að loknu námi við
tekniska skólann í Osló hóf nám
við norsku búnaðartæknistofn-
unina. Síðastliðið ár var hann
um tíma í Bandaríkjunum til að
kynna sér nýjungar í meðferð
díselvéla. Hér á landi hefur
hann einnig starfað, er hann á
árunum 1950—’54 starfaði sem
eftirlitsmaður með vélakosti
ræktunarsambandanna og hélt
hann þá námskeið víða um land
til að kenna bændum meðferð
traktora og viðgerðir á þeim.
Vel undirbúinn
Þess má geta, að á mennta-
skólaárum sínum vann Eirík á
sumrin með skurðgröfur og jarð
ýtur, og hann mun fyrsti mað-
urinn hér á landi, sem vann að
vegagerð og framræslu með
Rekinn úr
þingflokknum
í fyrri viku vék Lögberg að
þeim ágreiningi, sem grafið
hefði um sig innan vébanda
verkamannaflokksins í brezka
þinginu vegna andstöðu Areuin
Bevans við ýms mikilvæg
stefnuskráratriði, er mikill meiri
hluti flokksins undir forustu Mr.
Attlee’s, taldi óhjákvæmilegt að
fylgja fram; allar tilraunir til
sátta fóru út um þúfur, en niður-
staðan varð sú, að Mr. Bevan var
rekinn úr þingflokknum eftir
þjark og þóf, sem staðið hafði
yfir í marga daga og stundum
langt fram á nætur; með brott-
vikningunni greiddu atkvæði 142
þingmenn en gegn henni 112.
Ekki var nú mismunurinn meiri
en það, og ber slíkt þess órækan
vott hve þingflokkurinn var
háskalega klofinn, enda líklegt
að hann bíði þess eigi bætur
fyrst um sinn.
1 miðstjórn flokksins eiga sæti
29 menn og það er á þeirra valdi
að kveða á um það, hvort Mr.
Bevan skuli rekinn úr allsherj-
arflokknum eða ekki. Mr. Attlee
og fylgifiskar hans eru í meiri
- hluta í miðstjórninni og verður
naumast dregið í efa að þeir
einnig þar láti kné fylgja kviði.
þessum afkastamiklu tækjum.
Er Eirík Eylands þannig mjög
vel undir það búinn að taka slíkt
starf að sér, sem nú bíður hans
í hinu fjarlæga landi.
---0----
Ótrúleg forspá hefði það þótt
fyrir svo sem 15 árum, að hingað
til lands yrði leitað eftir manni
til að kenna búnaðartækni á
vegum slíkrar stofunar, sem
FAO er og senda slíkan sérfræð-
ing til starfa meðal milljóna
þjóðar lengst austur í S.-Asíu.
—Mbl., 16. marz
Embættisafsagnar
krafisf
Við umræður í sambandsþing-
inu um atvinnuleysið í landinu,
krafðist J. Wilfrid Dufresne,
íhaldsþingmaður fyrir Quebec
West kjördæmið, að Mr. St.
Laurent léti þegar af stjórnar-
forustu vegna þess hve átakan-
lega hann hefði brugðist þjóð-
inni varðandi hið víðtæka at-
vinnuleysi, er um þessar mundir
þjakaði kosti hennar; snarpar
umræður í þinginu um atvinnu-
leysið og hugsanlega úrlausn
þess standa enn yfir með daufar
horfur um, að róttækra ráðstaf-
ana megi vænta.
Tvennar tillögur liggja fyrir
um vantraust á hendur stjórn-
inni, önnur frá íhaldsmönnum,
en hin frá C. C. F.-sinnum. Af-
drif þeirra eru fyrirfram ákveð-
in, þvr stjórnin hefir, svo sem
vitað er, nægilegu þingfylgi á
að skipa til að gera að höfuð-
verk þeirra.
Tíu óra gamalt
leyndarmól
opinberað
Á miðvikudaginn í vikunni,
sem leið, opinberaði utanríkis-
ráðuneyti Bandaríkjanna skjöl
og skilríki frá Yaltafundinum
fræga 1945, er þeir Roosevelt,
Churchill og Stalín stóðu að;
kennir þar svo sem vænta mátti
margra grasa og eru umrædd
skjöl gefin út í tveimur bindum,
er samtals telja 834 blaðsíður;
utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, Mr. Dulles, kvað óhjá-
kvæmilegt sögulegra heimilda
vegna, að almenningur fengi
fullan aðgang að þessum dókú-
mentum, enda ekkert í þeim
þess eðlis, er halda þyrfti leyndu
um aldur og ævi.
Jafnskjótt og hljóðbært varð
um útgáfu heimildarskjalanna
flutti Mr. Churchill ræðu um
málið í brezka þinginu, viður-
kendi hann að ,opinberunin‘ væri
að vísu sérmál Bandaríkjanna
þótt hann ætti örðugt með að
sætta sig við þá aðferð, að slík
skjöl yrði birt, meðan enn væri
á lífi aðiljar að Yaltafundinum
svo sem hann sjálfur; á hinn
bóginn lét Mr. Churchill þess
getið, að ef stjórn sín yrði
óánægð með lýsingu mikilvægra
atriða, eða teldi þau villandi, þá
myndi hún takast á hendur að
semja og birta leiðrétta útgáfu.
Af skjölum þessum má ráða,
hversu Rosevelt vildi mikið
vinna til að Rússar segði Japön-
um stríð á hendur og gerðust
aðiljar að Kyrrahafsstríðinu;
vildi hann að Bretar fengi Kín-
um Hong Kong í hendur, en að
Rússar fengi til eignar og um-
ráða eyjar nokkrar í Kyrrahafi
og nokkra fótfestu á meginlandi
Asíu í staðinn.
Yfirmenn af Hafslein, sem
bjargaði skipshöfn Bahia
Blanca, fá minjagripi
Þýzki sendiherrann hér á
landi, Dr. Kurt Oppler, af-
henti s.l. föstudag yfirmönn-
um þeim, er voru á togar-
anum Hafsteini, þegar hann
bjargaði skipshöfninni af
þ ý z k a flutningsskipinu
Bahia Blanca fyrir 15 árum,
minjagripi úr silfri frá ríkis-
stjórn Sambandslýðveldisins
Vestur-Þýzkalands.
Dr. Oppler sendiherra rakti
nokkuð aðdraganda þessarar
heiðursgjafar, en hann var sá,
að 10. janúar 1940 var þýzka
flutningaskipið Bahia Blanca á
leið til Þýzkalands með kaffi frá
Brazilíu, er það rakst á ísjaka
norð-vestur af Islandi. Kom tog-
arinn Hafsteinn á vettvang og
tókst að bjarga allri áhöfninni,
62 mönnum. Síðan sagði sendi-
herrann:
„Ég hefi þá persónulegu á-
nægju fyrir hönd ríkisstjórnar
minnar, að afhenda yður hverj-
um fyrir sig, minjagrip um
þennan atburð, með svofelldri
áletrun:
„Með þökk og viðurkenningu
fyrir björgun skipshafnarinnar
á „Bahia Blanca“. — Frá ríkis-
stjórn Sambandslýðveldis Þýzka
lands.“
Skipstjóranum, ólafi Ófeigs-
Inflúensa
breiðist út
Að því er nýjustu fregnir
herma, hefir Inflúensa í British
Columbia færst mjög í aukana
upp á síðkastið; er tala sjúk-
dómstilfella komin upp í þrjú
þúsund eða freklega það; ekki
hefir veikin fram að þessu verið
raunverulega mannskæð, því að
því er vitað verður hafa einungis
tvö ungmenni látist af hennar
völdum; talsvert hefir veikinnar
einnig gætt í Alberta og Saskat-
chewan, en tiltölulega lítið í
Manitoba fram að þessu.
syni, stýrimanni Þórarni Gunn-
laugssyni, loftskeytamanni Hall-
dóri Jónssyni, 1. vélstjóra Stein-
dóri Nikulássyni, 2. vélstjóra
Guðjóni Þorkelssyni, bátsmanni
Zófusi Hálfdánarsyni og jafn-
framt fylgja þakkir til allra
annarra, sem um borð voru“.
Ólafur Ófeigsson skipstjóri
þakkaði sóma þann, er skips-
höfninni á Hafsteini væri sýnd-
ur með þessu, og bað hann sendi-
herrann um að koma á framfæri
við ríkisstjórn sambandslýð-
veldisins þakklæti sínu og skips-
hafnarinnar fyrir þann heiður,
er þeim væri veittur.
—Alþbl., 18. jan.
Vinsæl bók um
íslendinga
Þann 28. febrúar s.l. flutti
Chrislian Science Moniior, hið
mikilsvirta og víðlesna vikublað,
langa kafla í Heimilisdálkum
sínum, úr bók Thorstinu Jack-
son Walters, Inlroduction to
Modern Sagms. Þetta blað flutti
tveggja og hálfs dálks ritdóm um
þessa bók, sem var birtur í Lög-
bergi á sínum tíma. Eins og Dr.
Leach, heiðursforseti American
Scandinavian Foundation sagði,
er það næsta óvenjulegt að blað,
sem fær þúsundir bóka á ári til
umsagnar, gefi umsögn um eina
bók svo mikið rúm í dálkum
sfnum.
Fjöldi annara blaða hefir og
birt ágæta ritdóma um bókina,
enda hefir höfundurinn, frú
Thorstína, fengið margar beiðn-
ir um að semja ritgerðir, þá síð-
ustu frá hinu merka tímariti,
American Heritage. Er vonandi,
að henni veitist kraftar til að
sinna ritstörfum enn um langt
skeið. Hún er frábærum rit-
hæfileikum gædd, og hefir borið
hróður íslendinga vítt um megin
landið og í öðrum löndum með
ofannefndri bók sinni. Þetta
ættum við íslendingar að meta
að makleikum með því að kaupa
bók hennar og útbreiða hana;
hún er þess virði.
Talsverður hafís er fyrir Vest-
fjörðum og er hann landfastur
við Barða og Bolungarvík. —
annars um 1 sjómílu undan landi
Samfelld hafísbreiða er nú
úti fyrir Súgandafirði og
Önundafirði og nær hún allt
sunnan frá Barða og norður
undir Skálavík og í norður
fyrir ísafjarðardjúpi. Nær
landi er ísbreiðan 6—7 sjó-
mílur á breidd, en fjær
alveg samfelld. — Morgun-
blaðið hafði í gær samband
við fréttaritara sína fvrir
vestan og fékk eftirfarandi
upplýsingar hjá þeim:
Frá Suðureyri símaði frétta-
ritari Mbl. í gær:
AÐFARANÓTT sunnudagsins
var M.b. Friðbert Guðmundsson
staddur skammt héðan frá Suð-
ureyri og hafði lagt þar 26 lóð-
um. Voru bátsverjar að draga
þær og höfðu lokið við að draga
23 lóðir, þegar þeir gættu þess,
að þeir voru orðnir innilokaðir í
ísnum. Skáru þeir því á þrjár
lóðir, sem eftir voru og tóku að
mjaka sér út úr ísnum. Tók það
þá um hálfa klukkustund, unz
þeir komu á auðan sjó. Við þetta
laskaðist báturinn nokkuð, og
varð að fara til ísafjarðar til við-
gerðar á skrúfunni. Héðan hefur
ekki verið róið síðan á laugar-
dag.
Hafís virðist vera hér allt í
kring og sést hann greinilega frá
Suðureyri og er enn um eina
sjómílu undan landi. Mun ísinn
vera landfastur við Barðann, en
jaka rekið að landi, bæði við
Sauðanes og Galtarvita, einnig
er þar mikið íshröngl. Eru sumir
borgarjakarnir allstórir.
Fastlega er búizt við því, að
veiðar teppist fyrst um sinn
vegna íssins.
Bátar fóru til ísafjarðar
Frá Bolungarvík símar
fréttaritari Mbl. í gær:
Um miðnætti í gær sást til ís-
spangar héðan og var hún út
með Stigahlíð og rak til lands.
Leist formönnum þeirra báta,
sem héðan eru gerðir út svo á
sem heppilegast væri að fara
með báta sína til ísafjarðar áður
en ísinn kæmi nær landi og lok-
aði þá inni hér á höfninni. Lögðu
þeir hið bráðasta af stað, en kom
ust ekki nema skammt, því ísinn
var þá kominn að landi handan
við Ósvíkina á móts við Ósvit-
ann. Sneru bátarnir því aftur við
svo búið.
í morgun kl. 7 lögðu bátarnir
svo af stað aftur. Hafði þá breytt
um átt og komust bátarnir fram
hjá ísnum til Isfjarðar og eru
þeir þar nú.
Landfastur ís
ísspöngin, sem var út með
Stigahlíðinni var í morgun orðin
landföst og komin upp í fjöruna
fyrir utan brimbrjótinn hér og
náði um 200 m. út frá landi.
Talsvert er einnig af ísjökum
inni á höfninni. Isinn nær einnig
inn á miðja Ósvíkina.
ís þessi er brotinn lagnaðarís
og háir jakar innan um, safír-
bláir og sumir furðulegir í lögun
og fagrir.
Frá Flateyri
Fréttaritari Mbl. á Flateyri
skýrði blaðinu frá eftirfar-
andi í gær:
Bændur á Ingjaldssandi sáu
allmikla ísspöng skammt út af
Barða í morgun. Virtist hún
liggja í bugðu fyrir Önundar-
fjörð að Sauðanesi. Aðra spöng
sáu þeir, sem virtist hverfa
norður fyrir Súgandafjörð. En
milli þessara ísspanga var laust
íshrafl og sumir jakar allstórir.
Báturinn sneri aftur
I fyrrinótt fóru tveir bátar
héðan á sjó, en annar þeirra m.b
Barði, sneri aftur vegna íssins.
Hinn báturinn, m.b. Andvari,
lagði eitthvað af lóðum sínum
út af Arnarfirði og bjóst hann
við að koma að landi um 10 leyt-
ið í kvöld, ef allt gengi að von-
um. M.b. Barði fór svo aftur á
sjó í dag og ætlaði suður fyrir
Bjarg, ef hann kæmist fyrir
Barðann vegna íss.
Héðan frá Flateyri sjáum við
íshrafl við Sauðanes, og hefur
það verðið hreyfingarlaust síðan
í morgun. Hér er norðaustan
kaldi og snjóél af og til.
ís frá Barða að Galtarvita
M.s. Litlafell, sem fór í fyrri-
nótt frá Isafirði ,sendi skeyti til
Viðurstofunnar kl. 8 í gærmorg-
un, þar sem segir, að samföst ís-
breiða sé um 1 sjómílu undan
landi frá Barða og norður fyrir
Galtarvita eða um 7 sjómílna-
leið. Segir einnig í skeytinu að
samkvæmt radarmælingum,
virðist ísbreiðan ná 7—8 sjó-
mílur á haf út.
ísþoka yfir breiðunni
Samkvæmt upplýsingum, sem
blaðið fékk hjá Magnúsi Guð-
brandssyni flugstjóra, en hann
flaug Katalínaflugbát Flugfé-
lags fslands til ísafjarðar í gær-
dag, var rekís frá Skálavík og
suður á móts viðBarða, en þar
fjarlægðist ísinn landið. 1 þess-
um rekís voru samfelldar ís-
spangir og ísinn allur á siglinga-
leið; ekki var gott að sjá hve ís-
breiðan var víðáttumikil vegna
ísþoku, en svo virtist sem ís-
breiðan væri samfelld fyrir utan
eða 10—15 sjómílur undan landi.
—Mbl., 16. marz
Tilkynning um
samkomur
Eins og áður hefur verið skýrt
frá, munu borgarstjórahjónin
frá Reykjavík, Vala og Gunnar
Thoroddsen, ferðast nokkuð um
íslendingabyggðir hér í Mani-
toba og Gunnar flytja erindi á
samkomum um Reykjavík og
sýna kvikmynd þaðan.
Þessar samkomur hafa verið
ákveðnar:
Að Ashern sunnudagskvöldið
27. marz kl. 7. Hefst sú samkoma
með guðsþjónustu, sr. Bragi
Friðriksson prédikar. Verður að
henni lokinni farið yfir í sam-
komuhús bæjarins og samkom-
unni þar haldið áfram.
í Árborg. í lúlersku kirkjunni,
þriðjudagskvöldið 29. marz kl.
8.30.
Að Gimli, í samkomuhúsi
bæjarins (Parish Hall), miðviku-
dagskvöldið 30. marz kl. 8.30.
í Winnipeg, Fyrstu lútersku
kirkju, föstudagskvöldið 1. apríl
kl. 8.00.
Á öllum þessum samkomum
verða auk erindis Gunnars um
Reykjavík og kvikmyndasýn-
ingarinnar ýmis atriði önnur til
skemmtunar, söngur, kvæða-
flutningur (barna) o. fl., er
byggðirnar hafa undirbúið hver
á sínum stað og vonandi mun
verða getið, er frásagnir berast
af hinum einstöku samkomum
að þeim loknum. Það eitt er
víst, að allir hafa verið samtaka
’um að undirbúa þessar samkom-
ur sem bezt, svo að heimsókn
hinna góðu gesta megi verða
þeim og okkur öllum til sem
mestrar ánægju.
I