Lögberg - 24.03.1955, Síða 7
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 24. MARZ 1955
7
HALLDÓRA GRÍMSON, 2314 Ellioíí Ave., Seaiile, Wash.:
HIÐ MIKLA AFL
Guð er aflið og afl mannsins
kemur frá Guði.
Guð skapaði manninn og kon-
una með andlegu orði og ljósi,
sem er afl hans, og maðurinn
vex í skilning og hugsun smám
saman frá aflinu og getur náð í
gnægð af skilningi og skynsemi,
sem kemur frá afli Guðs.
Við vitum að aflið er fyrst, af
því að maðurinn hefur kraft til
þess að hljóða og hreyfa sig,
löngu áður en hann fer að nota
skilning og skynsemi.
Guðs kraftur fer með þeim
orðum, sem eru notuð og orðin
eru okkar hugsun, sem við
brúkum. Stafirnir í orðinu eru
andlegir og hafa mynd, og eru
leiddir af hinu lifandi lífsins
orði, sem er Guð, því að í Guði
lifum og hrærumst vér og Guð
gjörir alla hluti.
Hugsun og skynsemi eru því
ekki aðalaflið, heldur eru frá
barni meðfæddir hæfileikar,
sem eru milliliðir og koma frá
orðinu og ljósinu, og eru þessir
milliliðir altaf á milli tilefnis og
gildis framkvæmda og einnig
sýnir aflið með skynseminni or-
sök og afleiðing, sem fylgja at-
höfnum, og aflið en ekki skyn-
semin sýnir og færir oss hinn
sýnilega ávöxt af verkunum, því
að ef við höfum engan þrótt til
þess að gjöra verkið, þá gjörum
við það ekki.
Alls konar hvatir og hug-
myndir, sem eru ekki frá Guði,
koma oft inn í hugann, sem þá
stýra hugsun og skynsemi og
fer þá afl og ljós aðeins með
hugsun og verki, því það þarf
kraft og þrótt til þess að vinna
verkið.
Lífsins orðið og ljósið, sem er
með manninum kennir honum
alla hluti, því að aflið er fyrst
og seinast og gjörir alla hluti
eins þó hugsunin sé ekki frá
Guði.
Guð hefur úthlutað öllu mann-
kyninu mæli af trú, sem er lífs-
ins orð og ljós í leyndum í
hjarta og munni, anda og sál
sérhverrar persónu. Orðið er
nærri þér í munni þínum og
hjarta þínu. — Það er orð trúar-
innar, er vér prédikum, — því
Guð hefur úthlutað sérhverjum
mæli af trú, svo að sérhver geti
hugsað skynsamlega.
Kjarninn er frá Guði, og er
Guð, og er í hverjum einstakling
meðfætt afl, sem kann alla hluti
og vinnur jafnt fyrir alla. En
það er mismunur á uppeldi og
svo hvernig gáfur eru notaðar.
Kjarninn tekur orðin inn og
lætur þau út. Og maðurinn
hugsar og talar og tekur alls
konar misjafnar hugsanir og
verk inn í hugskotið og tekur
einnig líka inn góðar hugsanir og
geðfelt verk og kjarninn byggir
með þessum hugsunum og verk-
um upp hugann. Og kjarninn
gefur einnig skilning og þekk-
ingu hvernig eigi að gjöra verk-
ið. Sérhver er það, sem honum
er kennt og hann hugsar og
trúir í hjarta sínu fyrir sjálfum
sér að sé satt.
Orðið og ljósið, sem allir hafa
mæli af, byggir með mannsins
æfingu upp hugann og allir
verða að læra að hugsa, og einn
velur sér að gjöra það sem hon-
um lýst og annar gefur sína út-
skýringu á hinu og þessu, sem
hann girnist að hugsa um og
sem fyrir hans eigin hugskots-
sjónum sýnist vera rétt.
Krafturinn fer með hugsun-
inni, svo ef maðurinn, ef til vill,
sækist eftir að nota hið illa og
hann fer á móti sannleikanum og
svo trúir hinu og þessu og stað-
hæfir að það sé satt og honum
finnist það vera virkilegt af því
að hann hefur lesið það og vís-
. indin segja það, þá er aflið það
sama og gjörir verkið, því að
það vinnur með því lög-máli, að
eins og einn hugsar svo er hann.
Maðurinn rífur og brýtur í
sundur með hugsun, munni og
vopnum og það alt tilheyrir
manninum en ekki Guði, en
Guðs afl og þróttur, sem er með
manninum vinnur verkið.
Guð skapaði manninn og kon-
una eftir sinni mynd og líkingu,
og Guð skapaði þau með anda
og sál og lét ódauðlega lífsins orð
og ljós í hjarta og munn í anda
og sál þeirra, og maðurinn er
því sérstaklega fyrst andlegur
og svo líkamlegur. „Þafi er and-
inn, sem lífgar, holdið gjörir
ekkert“.
Börnin fæðast og læra að
hugsa og tala, af því að þau hafa
meðfætt afl og frá því fá þau
skilning og gáfur til þess að geta
lært. í anda og sál mannsins,
(en ekki í líkamanum) er skiln-
ingurinn, hugsunin, skynsemin,
minnið, vitsmunirnir og skiln-
ingarvitin, og eru þetta alt á-
gætis hæfileikar, sem koma frá
aflinu.
Lífsins orð og ljós, er trúin,
sem kann alla hluti og byggir
upp manninn. Maðurinn er
fæddur í synd og hefur hugsun
sína því að mörgu leyti ekki frá
Guði, af því að hann hlýðir ekki
Guði og hefur hann því litla
trú. Það er margt af þeim orð-
um og hugsunum, sem maðurinn
brúkar, tekið frá hinum andlega
staðnum og heiminum og frá
þessum svæðum koma alls konar
hvatir, hugmyndir og trúarleysi,
hugsanir, sem hann frá sjálfum
sér vill trúa og lifa í.
Hvatir og hugsun fara saman
og fara oft rangar leiðir og hugs-
unin stýrir þá skynseminni, en
afilð ekki. En aflið fer með
hugsuninni og gjörir verkið. Og
maðurinn hefur aðeins vald yfir
hvatalífinu að því leyti, sem
hann viíl nota hina góðu hugsun
og gjöra góðverk, því að aflið
fer alltaf með hugsuninni eins
og hún er, góð eða vond, því að
án orku getur enginn hugsað og
unnið.
Ef við förum hinn rétta góða
veg, þá verður Guðs afl og ljós
verulega mikið stærra og meira í
oss og skilningur og skynsemi
vinnur þá með afli og ljósi og
andi Guðs, sem er með oss, leiðir
sína á hinn góða veg.
Líkaminn er bara nauðsynlegt
verkfæri, sem hefur lífsblóð og
sem þarf nákvæmlega að næra
og viðhalda. „Þegar silfurþráð-
urinn slitnar og holdið hverfur
til jarðarinnar, þá fer andinn
upp“. Maðurinn er andlegur og
í einni heild á meðan hann lifir
á jörðinni, og hann er mjög
fagurlega og yndislega saman
settur.
Maðurinn tekur ýmsar og
allra handa hugmyndir eftir
sniði þessarar aldar og flóð
gengur út af munni margra, því
að margir misbrúka oft skilning
°g skynsemi, og sumir, er rann-
saka náttúruna, grasafræði,
málma og dýrin, fá frá þeirri
skynsemis-athugun þá frávita
hugmynd, að maðurinn hafi í
fyrstunni fæðst frá dýrum og
var hann svo gegnum aldirnar
að stríða við að komast frá
skepnunni, og nú hefur hann
öðlast hugann og skynsemina og
betri skilning á því hvernig
hann eigi að nota siðavitund
sína og á hann nú að geta ákveð-
ið með rannsókn og rökvísi
skynseminnar og náttúruvísind-
anna hvernig allir hlutir komu
fyrst á jörðina og á maðurinn að
hafa gegnum mannsaldrana með
æfingu einni lært að gjöra alt
sjálfur og fengið margar sínar
hugmyndir frá dýrunum.
Sumir staðhæfa, að Guð sé
náttúran og Guð í náttúrunni
skapaði alla hluti, og maðurinn
kom smám saman til meðvit-
undar á því, að hann varð við-
skila við dýrin og gat gengið
uppréttur, og svo var hann gegn
um aldirnar smám saman að
þroskast upp á við, og hann
komst upp úr skeiði dýralífsins
og erfðahvatirnar, sem hann
þykist hafa tekið frá dýrunum
og hann segir tilheyra líkamslífi
hans, hefur hann þó eftir allar
þessar aldir ennþá ekki vald
yíir. Og á fyrri öldum fundu
sumir upp á þeirri hugmynd, að
tilbiðja himneskan andlegan
Guð, sem gjörði alla hluti fyrir
þá og það átti að hjálpa mann-
inum til þess að þroskast og fá
vald og yfirráð yfir tilver'U sinni.
Og sumir hafa manninn skapað-
an í Guðs mynd, en þeir afneita
algjörlega syndafallinu og þeim
finnst það vera mjög torvelt að
trúa því, að Jesú sé fæddur af
heilögum anda og halda að Jesú
sé fæddur af Jósep, en Jesú reis
þó upp — og lifir með Guði.
Þeim finnst að maðurinn geti
ekki trúað því, sem sé í beinni
mótsögn við skynsemi hans.
Hann hefur nú öðlast hina vís-
indalegu gagnrýni og hefur því
fengið dýpri skilning á eðli sínu,
en þá finnur hann þörf á því að
fanga hærra líf og allir ættu að
nota hinar ágætu siðakenningar
og hugsjónir Krists og láta þær
ljóma í sál sinni, því að þær
hjálpa til að öðlast hærri siðavit-
und og meiri sálarþroska, og þeir
fá betri þekkingu á sálfræðis-
legri mentun, Og einnig nú hef-
ur maðurinn með menningunni
síðan kristindómurinn kom í
heiminn vaxið og þroskast og er
farinn að skilja að hann getur
hafist uppúr hinu vonda hvata-
lífi og hefur fengið skilning á
því að það er miklu betra að
breyta vel óg brúka hina rök-
vissu skynsemi og mentun til
þess að eignast sjálfur og svo
einnig hjálpa öðrum til þess að
öðlast æðri hugsjónir og þekk-
ingu og er nú farinn að skilja
að hann er hluti af heildinni. Og
þetta er að vaxa og endurfæðast
pg frelsa sjálfan sig og á þennan
hátt fær hann eilift líf. Og sér-
staklega finnst þeim að hin svo
kallaða þröngsýna bókstafstrú
vera í mótsögn við skynsemina,
og enginn getur neitað þekkingu
og gagnrýni nútímans, því frá
henni vex hin andlega sjón og
þekking. Og það er skýrt að
skynsemi mannsins getur ekki
áttað sig á því, sem er í mótsögn
og ósamræmi við skilning hans.
Og þeir halda það fastlega að hin
kreddufulla bókstafstrú, sem hef-
ur reynst svo mörgum svo tor-
veld að trúa, sé um það bil búin
að lifa sitt hið fegursta á meðal
þjóðanna.
Hinn fyrsti maður og kona féllu
og syndguðu og allir hafa synd.
Þau þurftu að eta og við þurfum
að eta, svo að við getum lifað í
líkamanum, og þau höfðu líf í
anda og sál. og gátu andað, eins
og við líka höfum í dag og getum.
Efnið í mér, er þér eigi hulið
þegar ég er gjörður í leyni sem
er í samfeldri sögu.“ Adam hafði
einnig strax mikla og góða þekk-
ing, skilning og skynsemi áður
en hann var settur á jörðina, því
að hann gaf öllum dýrunum
nafn, sitt af hvoru kyni, sem er
það sama er þau hafa nú í dag.
Guð skapaði skepnurnar hverja
eftir sinni tegund, eins og við
sjáum þær í dag, og maðurinn
kom ekki útrennandi út af þeim
og skreið ekki smám saman, sem
ávöxtur frá þeim, því að maður-
inn er andlegur og gat því ekki
komið frá dýrunum, og hann
lærði ekki að tala gegn um ald-
irnar af því áð heyra fuglana
skrækja, því að hið heilaga orð,
sem að hann er skapaður með
kennir honum alla hluti, enda
þótt hann sé bundinn ástandi, af
því að hann hefur synd.
Dýrin hafa aldrei gegn um
aldaraðirnar gengið upprétt og
geta ekki hugsað, talað og sagt
setningar. Öll dýrin hafa bara
enga sál og hafa ekki lífsins fjár-
sjón og ljós, og þau hafa aðeins
líkama af sínu eigin kyni og hafa
ósjálfráðar eðlishvatir, sem eru
eftir þeirra tegund og þau deyja
út eins og grasið. Það að maður-
inn hafi fæðst í fyrstunni frá
dýrunum og svo lært smám
saman að hljóða og tala frá fugla
kvaki er fjarstæða. Og að hann
sé ávöxtur frá hans eigin huga
og skynsemi og hann hafi kraft
af sjálfum sér, þær hugmyndir
eru fjarskalega mikið hugsunar
ólag, því að maðurinn og konan
voru sköpuð í Guðs mynd og lík-
ingu alveg eins og þau eru í dag
og mannkynið er andlegt.
Jesús Kristur er getinn af hei-
lögum anda og Jesú er lífsins
andi, og sál hans er lífsins orð og
hann hefur í hjarta og munni í
anda og sál, sama kjarna og við
höfum, því þar í honum erum
við ein heild í Guði. „Og faðir
þinn sem er og sér í leyndum
mun endurgjalda þér opinber-
lega.“
„Trúið á Guð og trúið á mig,“
Jesús Kristur er hið óendanlega
eilífa lifsins orð og við erum
grein af honum, sem við höfum
í hjarta og munni, í anda og sál,
„Ég er vínviðurinn þér eruð
greinarnar.“ Jesú hefur lífið í
sjálfum sér, en Guð heldur
okkur í lífinu eins lengi og við
erum hér á jörðinni. Ef við
deyjum í okkar synd, þá erum
við skorin frá lífinu og dauðinn
kemur og það sem honum fylgir.
Jósep var syndugur maður,
eins og við erum og gat því ekki
Jesú verið afsprengi hans, og
Jósep þurfti að endurfæðast af
Jesú lífsins anda, vatni og blóði,
eins og við öll þurfum, til þess
að geta eignast Eilift líf.
Enginn er endurfæddur af því
þó að hann hafi öðlast þá ment-
un að geta haldið hvatalífi sínu
í skorðum, og enginn getur
endurfæðst eftir dauðann, því að
allir sem frelsast verða að fá hið
liíanda lífsins sæði frá Jesú
Krists lífi og blóði á krossinum.
„En er ég verð hafinn frá
jörðu mun ég draga alla til mín.
Guð lagði á Jesú okkar misgjörð-
ir og hann bar okkar syndir og
gaf líf sitt í dauðann á krossin-
um, svo að við mættum öðlast
eilift líf.
,Ef þér etið ekki hold mitt og
drekkið ekki blóð mitt hafið þér
ekki lífið í yður.“ Sæðið verður
að deyja svo að það lifni og beri
ávöxt, og Jesú Kristur dó og gaf
okkur sitt líf og lifsins sæði á
krossinum. Þegar við trúum á
Guð og Jesú Krist og höfum
enga löngun til þess að gera
rangt og höldum hvatalífinu í
skorðum.
v Allir nota kjarnann, sem þeir
hafa og fer með lögmálinu og
hugsuninni og gefur einnig að
nota andans sjón, svo að við get-
um veitt því eftirtekt og greint
í sundur og gagnrýnt það, sem
hin mannlega skynsemi áhvarð-
ar að sé satt og frá kjarnanum,
en ekki skynseminni, skynjar
maðurinn á milli góðs og ílls.
Hin mannlega skynsemi rang-
færir oft málefni, sem er frá
mannsins eigin visku og kunn-
áttu, og hann getur líka auðvitað
notað á öllum tímum skynsem-
ina og skilningarvitin, til þess að
eyða kröftum sínum á ósiðferðis
legann hátt og það er ekki frá
Guði, heldur frá því vonda, sem
hann velur sér. Menn drápu
hver annan til forna og gjöra
það en í dag. Og það er virkilega
satt að hvatalífið hefur lítið
batnað gegn um aldirnar.
Og maðurinn hefur synd, og
mannlegar hugmyndir innan frá
hugskoti mannsins, því að hann
er andlegur og hefur því margt
andlegt með sér og svo líka tek-
ur hann allskonar hugmyndir
kraftinn til þéss að útskýra þær
eftir sínum eigin skilningi og
skynsemi, og hugsunin leiðir
altaf skynsemina, sem er bara
hæfileiki og sem hefur ekki mátt
til þess að auka hið andlega afl
hans, og hann virkilega þroskast
ekki frá sinni eigin náttúrlegri
mentun, heldur vex og þroskast
hann frá kraftinum er gefur
afleiðinguna.
Mannsins misjöfnu hvatir
koma ekki í byrjun frá dýrun-
um, heldur frá syndafallinu.
Það er á þessum tímum nóg
til af ósæmilegu hvatalífi, og
skynsemin, sem er bara hæfi-
leiki og milliliður, hefur ekki
kraft til þess að uppræta vondar
hvatir úr huga mannsins.
Margs konar hvatir leiða
manninn og hann brúkar skyn-
semina til þess að hugsa um
hvernig hann eigi að fram-
kvæma hvötina.
Skynsemin getur verið al-
gjörlega á valdi hugvits, skoðun
þeirra manna, sem rannsaka
náttúruna, því hvatir geta stýrt
hugsuninni. Andans svæði, sem
er á milli anda og sál og líkama
er oft notað með skynseminni
og frá því tekur maðurinn oft
ýmsar hugsanir og hneigist til
þess að brúka frá því sitt ímynd-
unarafl og eigin ályktun er
snerta hans málefni.
Andans svæðið næst líkam-
anum er á þessum tímum mikið
notað með skynseminni, því að
maðurinn hneigist mikið til þess
að gjöra það, sem hrífur huga
hans og sem tilheyrir verald-
legum hugmyndum hans.
Við getum ekki lært neitt frá
huganum og skynseminni, held-
ur lærum við alla hluti, er við
kunnum, frá því lífsins orði og
ljósi, sem við höfum og þess
meira er við höfum af ljósi þess
meira höfum við af réttri skyn-
semi og fáum betri skilning til
þess að gjöra hið góða, sem er
altaf frá Guði, og ef við höfum
lítið af því ljósi, sem fer með
hugsuninni, þá þess minna höf-
um við af réttum skilningi til
þess að brúka lífið.
Og eins og orð hugsunarinnar
er, svo koma milliliðir inn og
fyrst í það ytra og svo í það
innra. "**
—Niðurlag í naesta blaði
Þjóðirnar mun skiptast á
sjónvarpskvikmyndum
Alþjóðasamslarf 30 þjóða er
fyrirhugað og síðan 60
Af vettvangi Sameinuðu
þjóðanna í New York hefir
borizt fregn um alþjóðlega
sjónvarpssamvinnu, og þyk-
ir uppástungan um tilhögun
allnýstárleg. Henry Cassier,
forstöðumaður sjónvarps-
deildar Menningar-, vísinda-
og fræðslustofnunar Sam-
einuðu þjóðanna, hefir gert
grein fyrir áforminu.
Samkvæmt því er gert ráð
fyrir samvinnu um heim allan,
þar sem sjónvarp er komið á
laggirnar, eða undirbúningur að
sjónvarpsrekstri hafinn. Gert er
ráð fyrir, að samstarfsþátttak-
endur leggi til sjónvarpsefni, og
er gert ráð fyrir þátttöku jafnt
austan tjalds sem vestan. Sam-
starfið á að vera þáttur í enn
víðtækara samstarfi, til þess að
þjóðirnar kynnist hugsjónum,
áhugamálum, listum, hvers kon-
ar framförum og öðrum við-
burðum í öðrum löndum, —
öllu, sem til nytsamrar fræðslu
og fróðleiks og góðrar skemmt-
unar má vera. Samkvæmt at-
hugunum, sem Cassirer hefir
gert, hafa 30 þjóðir nú þegar
skilyrði til þess að hagnýta sér
sjónvarpsefni og álíka mörg
önnur hafa í undirbúningi fram
kvæmdir, sem munu veita slík
skilyrði.
Það, sem fyrir mönnum vakir,
er í stuttu máli, að í hverju
landi verði framleiddar sjón-
varpskvikmyndir, sem fjalla til
dæmis um daglegt líf manna í
borgum o'g sveitum, íþróttir,
barnaleiki og ótal margt fleira.
Þannig yrði gengið frá fjöl-
mörgum 5 mínútna þáttum, sem
sýndir yrðu í löndum allra þátt-
tökuþjóða. Cassirer gerir sér
vonir um, að unnt verði að hefj-
ast handa um þetta samstarf
þegar á næsta ári, enda býst
hann við auknum fjárframlög-
um til sjónvarpsdeildar S. Þ., er
þannig getur fært verulega út
kvíarnar.
Mikill áhugi
fyrir hugmyndinni ríkir með-
al útvarps- og sjónvarpsmanna
í Bretlandi, Frakklandi Hol-
landi og fleiri löndum. Cassirer
kveðst og fullviss um, að hug-
myndin muni fá góðar undir-
tektir í Þýzkalandi, ítalíu og
víðar. Starfsemin verður eins
víðtæk og unnt er og mjög hvatt
til þátttöku Bandaríkjanna, Mið-
og Suður-Ameríkuríkja, Ráð-
stjórnarríkjanna, Japans og
fleiri landa. — Cassirer kveðst
hafa rætt við tvo fulltrúa Ráð-
stjórnarríkjanna um þetta mál.
Annar þeirra er frá Moskvu,
hinn frá Kiev. Báðir létu þeir í
ljósi mikinn áhuga fyrir hug-
myndinni, en vildu ræða málið
heima fyrir, áður en þeir undir-
gengjust nokkrar skuldbinding-
ar um þátttöku.
—VÍSIR, 15. des.
HI-SUGAR
New Hybrid
Tómata
Svo auCug a8 sykurefni, aS bragtSiB
minnir á vinþrúgur. StærC á viC golf-
bolta, dökkrauCar, hraustar og bráC-
þroska; alveg óviCjafnanleg
fyrir niCursoCna
ávexti, ávaxta-
mauk, eftirmat
og fleira þess
háttar. Þetta eru
stórar plöntur alt
aC sex fetum um-
máls. Einstakar
plöntur gefa oft
af sér bushel af
þroskuCum ávöxt
um. Ný tegund,
sem prýCir hvaCa
garC sem er. —
Pakki af S5 fræ-
um á 35c póst-
frítt.
Ökeypis stór 1955
fræ- og blóma-
ræktunarbók.
Maður, sem holt er að kynnast
Forstjórinn við bankaútibú yðar er maður, sem holt er að kynnast;
hann er þaulkunnugur öllum aðstæðum í bygðarlagi yðar og hann
getur veitt yður mikilvægar leiðbeiningar varðandi fjárhagsmál.
Hikið eigi að hitta hann að máli nær, sem vera vill.
Viðskipli yðar eru kærkomin!
THE ROYAL BANK OF CANADA
Sérhvert útibú nýtur trygginga allra eigna bankans,
sem nema yfir $2,675,000.000