Lögberg - 28.04.1955, Síða 1
ANYTIME
— ANYWHERE
CALL
TRANSIT - SARGENT
SILVERLINE TAXI
5 Telephone Lines
20-4845
ANYTIME — ANYWHERE
CALL
TRANSIT - SARGENT
SILVERLINE TAXI
S Telephone Lines
20-4845
68. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 28. APRÍL 1955
NÚMER 17
Umferðafálmanir og leit í bílum valda
almenningi miklum óþægindum
Hópferðin
fil íslands
Bréf hafa nú borizt frá Islandi,
og segir þar, að talsverðar eftir-
spurnir hafi verið eftir ferðinni
þaðan og ekki ástæða til að ætla
annað en þátttaka. verði ágæt.
Þá segir ennfremur, að flogið
verði beint milli Reykjavíkur og
Winnipeg í júní, ef að minnsta
kosti 40 farþegar fáist hvora
leið, annars verði ferðin farin
um New York, sem sé, hópferð
verður farin, en leiðir látnar
ráðast eftir því, hver þátttakan
verður. Horfur eru á, að báðir
hópar fari heim um New York,
þar sem austanhópurinn kemur
til með að dveljast skemur
vestan hafs en vestanhópurinn
á Islandi.
Spurningin er nú aðeins sú,
hvort við hér vestra getum
drifið upp a. m. k. 40 manna hóp
og þannig tryggt beina ferð
milli Reykjavíkur og Winnipeg
í júní, þ. e. a. s. ef þeim þá
tekst það líka á íslandi.
Búizt er við bréfi á hverri
stundu með upplýsingum um
fargjöld, farangur og ýmislegt
annað, en vegna verkfallsins á
íslandi hafa póstsamgöngur
lamazt, svo að sum bréf eru
orðin 10 daga gömul, er hingað
kemur.
Óhætt mun þó að segja, að
kjör þau, er boðin munu, verði
mun hagkvæmari en ef menn
ferðuðust einir á áætlunarleið-
um, svo að enginn þyrfti að
hika þess vegna. Væri mjög
æskilegt, að allir, sem hyggja á
þátttöku í þessari ferð, gerðu
mér viðvart sem fyrst. Síðar, er
endanleg tilhögun hefir verið
auglýst, geta þeir annaðhvort
staðfest þátttöku sína eða dregið
sig í hlé. En aðalatriðið er að
koma skrið á málið, því að einn
hvetur annan og ekki að vita
nema hópurinn fáist fyrr en
nokkurn varir.
Vinsamlegast,
THOR VIKING,
515 Simcoe Street,
Winnipeg 10, Man.
Ferðasf um
Bandaríkin
Þórður Einarsson hagfræðing-
ur og starfsmaður Upplýsinga-
skrifstofu Bandaríkjanna í
Reykjavík er um þessar mundir
á kynnisför um Bandaríkin í
boði utanríkisráðuneytis þeirra.
Um fyrri helgi dvaldi hann
nokkra daga í Grand Forks, N.
Dakota, og heimsótti ríkishá-
skólann þar. Fyrir atbeina Dr.
Richards Beck prófessors flutti
hann sunnudagskvöldið þ. 17.
apríl erindi um ísland á sam-
komu lúterskra háskólastúd-
enta,og þótti erindi hans bæði
fróðlegt og skemmtilegt og vel
flutt.
Þórður hagfræðingur, sem
stundaði háskólanám sitt í Lun-
dúnum og Cambridge, hefir
síðastliðin fimm ár verið starfs-
maður Upplýsingaskrifstofu
Bandaríkjanna í Reykjavík.
Hann hefir ritað ýmsar blaða-
greinar og snúið á íslenzku Sögu
Bandaríkjanna, sem fengið hefir
mjög góða dóma, meðal annars í
„Eimreiðinni“. Hann er nú á
ferð vestur á Kyrrahafsströnd
til þess að kynna sér atvinnulíf
og menningarbrag og skoða
ýmsar menntastofnanir á þeim
slóðum.
Verkfallsstjórnin í Reykja-
vík hefir látið setja vega-
tálmanir á alla vegi, sem
liggja inn til Reykjavíkur.
Hafa þeir lokað vegunum á
eftirtöldum stöðum: á Krísu-
víkurleiðinni fyrir sunnan
Hafnarfjörð, Suðurlands-
braut við Geitháls og á Vest-
urlandsvegi í Smálöndum,
skammt frá afleggjaranum
að Keldum. Vegatálmarnir
þessar svo og leit verkfalls-
stjórnarinnar í bílum er með
öllu ólögmæt. Vegfarendur
verða fyrir miklu tjóni og
ágangi. Þeim er hótað hörðu
og bifreiðar sumra þeirra
hafa verið skemmdar.
Grjófhraukar
Vegatálmanirnar eru þannig
gerðar, að stórum hraukum af
hnullungsgrjóti hefir verið hlað-
ið við báðar vegabrúnir og milli
hraukanna eru staurar lagðir til
að stöðva umferðina. Þegar bíl-
ar nema staðar við tálmann,
ganga verkfallsverðir í þá og
framkvæma leit. En sem kunn-
ugt er þá er jafnvel lögreglunni
óheimilt að framkvæma leit í
bifreiðum, nema með sérstökum
úrskurði dómara. Verkfallsverð-
irnir beita hótunum til að þvinga
bílstjóra til að opna geymslu-
rúm í bílunum.
Benzín og kjöt
Það, sem þeir eru einkum að
leita að, er benzín og kjöt. Ef
þeir finna aðra hvora þessara
vörutegunda í bílunum, taka
þeir það tafarlaust með valdi.
Eigendur þess fá engar bætur
og ekkert er vitað, hvað verk-
fallsverðirnir gera við benzín
það eða kjöt, sem þeir taka. Þessi
taka virðist því vera ólögleg á
allan hátt. Fólk, sem er á ferð í
héruðum, þar sem bæði kjöt og
benzín er afgreitt hefir fyllsta
rétt til að taka það með sér til
bæjarins í sínum eigin bílum.
Bílar skemmdir
Verkfallsverðirnir hafa valdið
meiri og minni skemmdum á
bílum, sem þeir hafa stöðvað. —
Þannig var maður einn, Bjarni
Pálmason frá Reykjavík, á leið
ofan úr Mosfellssveit í bæinn,
þegar hann var stöðvaður í Smá
löndum. Hann neitaði að heimila
skoðun hjá sér. Verkfallsverðir
veltu þá stórum steini á hlið
bílsins og skemmdu hann all-
mikið. Hefir þetta verið kært til
lögreglunnar og mun lögregl-
unni hafa borizt allmikið af
Tvennar auka-
kosningar í aðsigi
Nú þykir nokkurn veginn
sýnt,. að aukakosningar til fylk-
isþingsins í Manitoba fari fram
í tveimur kjördæmum fyrripart
sumars; þingmannslausu kjör-
dæmin eru Mountain, en þar
var þingmaður í fjórðung aldar,
Ivan Schultz, fyrrum dóms-
málaráðherra, er skipaður var
eigi alls fyrir í dómaraembætti;
hitt kjördæmið er Deloraine-
Glenwood, er losnaði við fráfall
J. O. Argue á öndverðum síðast-
liðnum vetri; hann taldist til
íhaldsflokksins, en Mr. Schultz
fylgdi ávalt Liberalflokknum að
málum; telja má víst, að í báðum
tilfellum verði kosningarnar
sóttar af miklu kappi; auk fram-
bjóðenda af hálfu meginflokk-
anna tveggja, er engan veginn
ólíklegt, að C.C.F. og Social
Credit-sinnar freisti þar einnig
gæfunnar.
kærum vegna skemmda og
ágangs verkfallsvarða.
Sló í brýnu
Bílstjóri á langferðabíl með
fjölda skíðamanna neitaði að
leyfa bílskoðun við Geitháls. —
Þegar verkfallsverðir ætluðu að
framkvæma hana engu að síður,
þá snerust skíðamennirnir önd-
verðir við. Ruddu þeir vegar-
tálmunum af veginum, jöfnuðu
steinhraukana við jörðu og veltu
skúr fyrirsátrarmanna út af veg-
arbrúninni. Komust þeir síðan
til bæjarins.
Snemma í gærmorgun gerðu
verkfallsverðir aðför að bílstjóra
þessum.
Ulanaðkomandi menn?
Þá er eitt atriði, sem er mjög
athugavert í sambandi við fram-
kvæmd verkfallsins. Svo virðist
sem verkfallsverðir margir, þar
á meðal þeir, sem sitja fyrir
mönnum á vegunum, séu ekki í
hópi verkfallsmanna. — Þarna
stendur og stjórnar maður ekk-
ert viðkomandi verkalýðssam-
tökunum, lögfræðingur, sem
aðallega hefir getið sér orð fyrir
flokksáróður kommúnistaflokks-
ins og sumir þeirra manna, sem
kærðir hafa verið, eru verka-
lýðssamtökunum ekkert tengdir.
Hver kjölbiti snuðraður uppi
Undarlegt þykir einnig hve
mikla áherzlu verkfallsstjórnin
leggur á það að hindra að Reyk-
Framhald á bls. 8
GULLNA HLIÐIÐ
Leikfélag landans sýnir á ný
þætti úr Gullna hliðinu eftir
Davíð Stefánsson fimmtudags-
kvöldið 5. maí kl. 8.15 í neðri
sal Sambandskirkjunnar við
Banning.
Önnur sýning verður í sam-
komuhúsi Geysisbyggðar föstu-
dagskvöldið 6. maí kl. 8.30, ef
færð leyfir.
Aðgöngumiðar á $1.00 munu
fást við innganginn.
Segir skilið við
flokk sinn
Mr. Ross Thatcher sambands-
þingmaður fyrir Moose Jaw-
Lake Centre kjördæmið í Sask-
atchewan, er setið hefir á þingi
í allmörg ár fyrir hönd C.C.F.
flokksins, lýsti yfir því í þing-
inu síðastliðinn föstudag, að
hann hefði að fullu og öllu sagt
skilið við flokk sinn og sæti á
þingi það, sem eftir væri kjör-
tímabils sem utanflokka þing-
maður.
Mr. Thatcher hefir fyrir all-
löngu látið þá skoðun sína í ljós,
að flokkurinn hefði í ýmsum
mikilvægum stefnuskráratrið-
um gengið af trúnni og þar af
leiðandi hefði verið óhjákvæmi-
legt að slíta við hann samvistum.
Mr. Thatcher er aðsópsmikill
á þingi, mælskur vel og lætur
sér ekki alt fyrir brjósti brenna.
Fullveldisyfirlýsing
væntanleg
Opinber tilkynning var gefin
út í London hinn 22. þ.m., þess
efnis, að hinn 5. maí næstkom-
andi yrði Vestur-Þýzkaland við-
urkent sem fullvalda ríki með
því að þá hafi allar þær þjóðir,
er að París-London samningun-
um stóðu staðfest þá með undir-
skrift sinni og gerðist þá hið
nýja lýveldi með ákvæðum um
endurhervæðingu, fullgildur að-
ili að varnarsambandi Vestur-
Evrópu.
Lófa ekki að
sér hæða
í sögu Færeyinga ber hátt þá
Þránd í Götu og Sigmund
Brestisson og afkomendur
þeirra hafa öldum saman sannað
að þeir séu engar liðleskjur
heldur.
Að því er Reuters-fréttastof-
unni sagðist frá á mánudaginn,
hvílir ófriðarblika yfir Fær-
eyjum þessa dagana; orsakir eru
taldar þær, að dönsk stjórnar-
völd vildu hrekja þaðan lækni,
er þau höfðu sent til eyjanna og
skipuðu annan mann í hans stað;
þessum aðförum mótmæltu
eyjjaskeggjar, einkum íbúarnir
í Klaksvík, er ekkert vildu hafa
með læknaskiptin að gera.
Klaksvík liggur um 25 mílur
frá Þórshöfn.
Dönsku stjórnarvöldin, sem
hafa vildu sitt fram, sendu skip
til Klaksvíkur með 130 vopnaða
lögreglumenn innan borðs, er
gerðu þar tilraun til lendingar,
sem örðugri reyndist en til var
ætlast; sórust þorpsbúar í fóst-
bræðralag um það, að koma í
veg fyrir landgöngu hinna
dönsku, borðaklæddu aðkomu-
manna og kváðust beita mundu
byssum sínum og öðrum til-
tækum vopnum ætti þeir eigi
annars úrkosta; nánari fregnir
enn eigi við hendi.
Róðhcrrafundur
í Offawa
Á mánudaginn komu til fund-
ar við forsætisráðherra sam-
bandsstjórnarinnar, Mr. St.
Laurent, forsætisráðherrar allra
canadísku fylkjanna til undir-
búnings hliðstæðum, en um-
fangsmeiri fundi, sem búist er
við að haldinn verði í Ottawa
seinnipart yfirstandandi árs,
en sá fundur mun einkum fjalla
um endurskoðun núgildandi
skattgreiðslusamninga milli Ot-
tawa og hinna einstöku fylkja.
A yfirstandandi fundi hefir
atvinnuleysismálið og hugsanleg
lausn þess, fyrst og fremst kom-
ið til umræðu, og er nú svo að
sjá sem sambandsstjórn sé
nokkru fúsari en áður til að
leggja fram aukið fjármagn til
úrbóta í þessum efnum.
Frægur lög-
spekingur lófinn
Á þriðjudagsmorguninn var
lézt í Ottawa Sir Lyman Duff,
fyrrum dómsforseti í hæztarétti
Canada, freklega níræður að
aldri; var hann af mörgum tal-
inn einn allra lærðasti og á-
hrifamesti lögspekingur sinnar
tíðar á meginlandi Norður-
Ameríku. Auk sérfræðigreinar
sinnar, var Sir Lyman kunnur
heimspekingur og þaulfróður í
fagurfræðilegum bókmentum.
Læfur hvergi bilbug
ó sér finna
Svo að segja rétt á eftir að Sir
Winston Churchill lét af stjórn-
arforustu, tók hann sér ferð á
hendur til Sikileyjar ásamt frú
sinni til að njóta þar nokkurra
daga hvíldar; en nú eftir þing-
rofið, er hann þegar tekinn að
hugsa til heimferðar og verður
sennilega kominn til London í
byrjun næsta mánaðar til að
taka þátt í kosningahríðinni, því
sjálfur er hann staðráðinn í að
leita endurkosningar í sínu
gamla kjördæmi og mun auk
þess fús á að rétta flokksbræðr-
um sínum annars staðar hjálpar-
hönd.
Vikið fró völdum
Kommúnistaflokkurinn ung-
verski gerði heyrinkunnugt í
fyrri viku, að hann hefði vikið
frá völdum forsætisráðherra
Ungverjalands Imre Nagy, en
skipað í hans stað Andras
Negedus, er áður gegndi em-
bætti sem varaforsætisráðherra;
í opinberri tilkynningu til þjóð-
arinnar létu forustumenn
flokksins svo ummælt, að frá-
vikning Nagy’s hefði verið óum-
flýjanleg vegna þess, að hann
hefði með flysjungshætti og
loddaraskap spilt stórkostlega
fyrir flokknum og felt hann í
áliti hjá þjóðinni; hann hefði
stofnað í háska hinu tiltölulega
unga lýðveldi fólksins og grafið
ræturnar undan félagsmála-
þroska þess; hvort Nagy hafi að
fullu og öllu verið tekinn úr
umferð, er enn eigi vitað.
Á þeim 29 árum, sem veður-
stofan hefur starfrækt jarð-
skjálftamæla, hafa aldrei
mælst eins margir jarð-
skjálftar og á síðastliðnu ári.
Aðalástæða þess er sú, að
veðurstofan fékk á árunum
1951—’52 nýja mæla, sem
eru miklu næmari en þeir,
sem notaðir voru áður.
Alls mældust um 500 jarð-
hræringar á árinu og af þeim
áttu um 150 upptök sín í meira
en 500 kílómetra fjarlægð frá
Reykjavík.
Langmest tjón af landskjálfta
á árinu varð í Alsír 9. september,
þar sem 1600 manns fórust, en
mjög mikið tjón varð einnig í
Grikklandi 30. apríl, en þar fór-
ust 24 menn, á Filippseyjum 2.
júlí og Trinidad 4. desember.
Þetta eru þó ekki þeir jarð-
skjálftar, sem mælarnir sýna
mesta. Samkvæmt mælingum
varð mesti jarðskjálfti ársins 29.
apríl í Kaliforníuflóa. Olli hann
nokkru tjóni í Vestur-Mexíkó.
Jarðskjálftarnir í Alsír og Grikk
landi, sem mestu tjóni ollu,
koma sem 12. og 13. í röðinni.
Hér á landi komu engir miklir
landskjálftar á árinu, enda þótt
mælarnir sýndu um 350 hrær-
ingar. Mestir voru landskjálft-
arnir 29. október, en upptök
þeirra voru um 10 km. í norð-
vestur frá Hveragerði. Þann dag
fundust um 60 hræringar í
Hveradölum, en mælarnir sýndu
enn fleiri kippi.
Alls er kunnugt um, að jarð-
skjálftar hafi fundizt einhvers
staðar á landinu 22 daga ársins,
þar af þrisvar á Norðurlandi, en
19 sinnum á Suðurlandi.
Á árinu var settur upp jarð-
skjálftamælir á Akureyri og
hefir hann komið að miklum
notum við ákvörðun á upptökum
jarðskjálfta. Nokkrir jarðskjálft-
ar hafa átt upptök sín í norð-
vesturhluta Vatnajökuls, m. a.
við Grímsvötn 17. júlí, þegar
Skeiðarárhlaupið stóð sem hæst,
og tveir jarðskjálftar 22. desem-
ber áttu upptök sín nálægt Ei-
ríksjökli. Ef ekki hefði verið
jarðskjálftamælir á Akureyri,
hefði ekki verið unnt að ákveða
upptök þessara jarðskjálfta, en
þetta er í fyrsta skipti, sem vitað
er um upptök á þessum slóðum,
þegar undan er skilinn lítill jarð
skjálfti með upptök í Gríms-
vötnum, er gosið hófst þar 1934.
Jarðskjálftamælingar eru erf-
To Hold
Special Services
The Rev. Frank K. Efird
of ' Salisbury, North Carolina,
will preach in the Gimli Luth-
eran Church, daily, May 8th to
15th. Services will be held Sun-
day at 11 a.m. and 7 p.m. and
week nights at 8.30 p.m. day-
light saving time.
iðari viðfangs hér á landi en
víðasthvar annars staðar, en það
stafar af því, að alltaf verður
vart nokkurrar hreyfingar, eins
konar öldugangs, þar sem jörðin
gengur í bylgjum. Þessi stöðuga
hreyfing er á erlendum málum
nefnd „mikroseismar". Það. sem
orskar þessa hreyfingu, er m. a.
brim við klettótta strönd, en
einnig hafa stormar á rúmsjó
áhrif, sem gætir á landi í mörg
hundruð km. fjarlægð. Þessir
mikroseismar eru meiri í Reykja
vík en nokkurs staðar annars
staðar á jörðinni, þar sem jarð-
skjálftamælar eru, en þeir valda
því, að mjög sjaldan er hægt að
ákveða upptök jarðskjálfta með
því að nota einungis mælingar
jarðskjálftamælanna í Reykja-
vík. —VÍSIR, 3. marz
Verkfallsdeila
hafnarborganna
leysf
Kornhlöðu- og útskipunar-
þjónaverkfallið, sem Lögberg
skýrði frá í fyrri viku, að hafist
hefði í Fort William og Port
Arthur, hefir nú verið til lykta
leitt með þeim hætti, að hvorir-
tveggja aðiljar mega nokkurn
veginn vel við una; verkfallið
stóð yfir í fimm daga og má það
að miklu leyti þakka Mr. Eric
Taylor vinnudeilumiðlara sam-
bandsstjórnar og Mr. Hull for-
manni hlutaðeigandi verkalýðs-
samtaka hve skjótt og giftusam-
lega deilan var leyst. Verkfalls-
menn höfðu farið fram á 30
centa kauphækkun á klukku-
stund, aukið öryggi gegn heilsu-
tjóni af völdum kornryks og
fjölgun frídaga með fullu kaupi;
það varð að samkomulagi að
þeir fengi þegar í stað 12 centa
hækkun um klukkutímann, átta
frídaga í stað sjö og ákveðið lof-
orð um aukna heilsuvernd af
áminstum ástæðum Samningar
þessir gilda til þriggja ára.
Lausn áminstrar vinnudeilu
hefir verið fagnað um land alt,
og þá vitaskuld ekki hvað sízt
hjá bændum vestan lands, er að
svo rniklu- leyti eiga efnahags-
lega afkomu sína undir flutn-
ingum og sölu þess korns, er
þeir framleiða.
Nú er verið í óða önn að drekk
hlaða skip, er flytja kornið til
sjávarsíðunnar.
500 jarðhræringar mældust á
íslandi síðastliðið ór