Lögberg - 28.04.1955, Page 3
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 28. APRÍL 1955
3
þessu voru þrjú hundruð manns
og unnu þeir að teppahnýtingu
eftir fyrirmyndum. Var undra-
vert hversu hraðvirkir sumir
þeirra voru orðnir. Tyrkir bentu
á það með réttu, að ef fangelsis-
vist ætti ekki að vera tómur hé-
gómi og jafnvel annað verra
yrðu fangarnir að fá að vinna
og hreyfa sig utan húss. Fyrir
hvoru tveggju var vel séð á
þessum stað, því stór garður var
handa fólkinu að viðra sig og
vinna í.
Neðanjarðarborg
Áfram var haldið til ýmsra
borga og bæja og skulum við
næst staldra við í frásögninni í
fjallaborginni Göremík, en hún
er byggð í því sérkennilegasta
fjalllendi, sem ég hef séð. Fjöllin
eru úr eins konar leirkrít en
víða strýtu- og topplöguð svo
manni finnst helzt, að maður sé
kominn til tunglsins eða annarar
plánetu ólíkri vorri^jörð. Um 200
árum eftir Krist voru kristnir
menn ofsóttir á þessum slóðum,
þeir flýðu þá til fjallanna og
holuðu sig inn í hæðir og hóla,
grófu þar kirkjur og kapellur
auk íbúðarhúsa. Kirkjurnar eru
ótrúlega stórar og vel gerðar.
Þar eru grafin út ölturu, hvelf-
ingar og súlnaraðir en margar
hávelfingar eru skreyttar fresko
málverkum. Við eyddum heilum
degi í að skoða þessa undarlegu
borg og var áhugi okkar svo
mikill að við nærri gleymdum
hitanum.
Við vorum nú komin svo langt
inn í Litlu-Asíu að verulegar
ferðamannaleiðir voru þrotnar,
og kom það glögglega fram í
gestrisni fólksins. í næstu borg
bauð lögregluþjónn okkur í bíl-
ferð og sýndi okkur margt
nýstárlegt og að því loknu bauð
hann okkur í miðdegisverð.
Meðan við vorum með honum og
fólki hans dönsuðum við þjóð-
dansa og sungum tyrkneska og
norræna söngva. Daginn eftir
kom til okkar verkfræðingur,
sem numið hafði á Þýzkalandi,
og fékk okkur stóran bíl til um-
ráða svo við gátum skoðað það,
sem okkur lysti. Á því ferðalagi
sáum við meðal annars tvo
fjallabæi, sem voru að nokkru
leyti nýtízku leirhús, ef hægt er
að nefna leirhús þannig, en að
nokkru leyti jarðgrafnir kofar.
Hvar sem við fórum vöktum við
svo mikla athygli, að einn sagði
með áhyggjuhreim í röddinni:
„Hvernig eigum við að fara að,
þegar við vekjum ekki svona
mikla athygli Iengur?“ Meðal
þeirra, sem buðu okkur heim,
var borgarstjórinn í Orthahísar,
en í gestabókinni hans fann ég
fjögur íslenzk nöfn, voru það
nöfn Bergsfjölskyldunnar, en
Helgi Bergs var, eins og menn
vita, ráðunautur Tyrkja um
hríð og gat sér góðan orðstír.
Bolir handa
íþróttamönnum
ÓviíSjafnanleg Watson's gerð! Allir
Iþróttamenn kunna a6 fullu a8
meta hina ágætu Iþróttavasa,
teygjanleg mittisól, er styöur maga
holitS á þrjá vegu. SaumaS af sér-
fræCingum, auðþvegiö og þarfnast
ekki strokningar. Endist von úr
viti. ViSeigandi Jerey's.
W-ll-54
Næsta dag bilaði bíllinn, þeg-
ar við áttum ófarna átta kíló-
metra til áfangastaðar. Við tók-
um þá það ráð að gista undir
berum himni enda enginn vandi
að láta fara vel um sig í svefn-
pokunum undir beru lofti.
Skammt frá okkur voru hjarð-
menn með hjarðir sínar og
fannst mér ég þá vera komin
furðu nærri þeim hugmyndum,
sem ég gerði mér á barnsaldri
um fjármennsku þeirra, er getið
er um í Nýja testamentinu. Um
morguninn fórum við til hjarð-
mannanna og fengum að þvo
okkur úr brunninum þeirra.
Þeir tóku okkur vel og sungu
fyrir okkur hirðingjaljóð og
spiluðu á mjög óbrotin hljóð-
færi. Eigi að síður var hugblær-
inn á þessum stað með því
unaðslegasta, sem fyrir okkur
kom í ferðinni.
f lestinni á leiðinni til Ismir
hlotnaðist mér sá heiður að
Tyrki nokkur bað mín. En þar
eð formáli hans að bónorðinu
var örlítið öðruvísi en á íslandi
ætla ég að segja frá atburði
þessum. Sennilega hefir maður-
inn verið búinn að gefa mér
gætur án þess, að ég vissi af því.
Allt í einu snaraðist hann inn í
klefann til okkar og gaf vín-
berjaklasa á báða bóga. Þegar
allir voru orðnir mettir fór hann
að ræða bónorðið við mig. Ég
benti honum á giftingarhring-
inn, en það hafði engin áhrif.
Hann vildi ganga frá trúlofun-
inni strax svo við gætum búið í
sama herbergi í Ismír. Þegar ég
vildi ekki fallast á þetta, spurði
hann með hverjum ég ætlaði að
búa í Ismír. Ég benti á farar-
stjórann, sem hálfsvaf á bekk.
Eins og kólfi væri skotið kast-
aði Tyrkinn sér yfir fararstjór-
ann og fór að klappa honum öll-
um utan og bjóða honum falleg-
ustu vínberin, sem hann átti.
Fararstjórinn hafði ekki fylgzt
með forsögu þessara aðfara, svo
að hann varð hinn versti og rauk
út úr klefanum. Lauk þannig
viðskiptum mínum og Tyrkjans,
því ekki gat hann rætt við mig
frekar án samþykkis mannsins,
sem ég sagðist ætla að sofa hjá
í Ismír. Annars er réttarstaða
konunnar í Tyrklandi næsta
bágborin. T. d. fara konur aldrei
einar í veitingahús, margar
ganga með blæju fyrir andlitinu
og á einum stað í Liltu-Asíu
vakti það furðu að við skyldum
hafa bera handleggi. Slíkt fram-
ferði vakti svo mikla furðu kyn-
systra okkar, að þær komu til
okkar og flettu upp pilsföldum
okkar til þess að athuga hvort
við værum siðsamlega búnar
innan undir, en þær áttu sýni-
lega á öllu von þar sem við
vorum.
Haldið norður aflur
Þetta spjall er þegar orðið
fulllangt, enda ókleift að lýsa
nema litlu af því, sem fyrir aug-
un bar í Tyrklandi, þar sem allt
er svo ólíkt því sem við eigum
að venjast á Norðurlöndum.
Tyrkland er land mikilla and-
stæðna. Þar er sums staðar
mikill auður og skraut, fögur
listaverk, bæði mosaik, mynd-
vefnaður og málverk. En á hinn
bóginn er þjóðin félagslega
langt á eftir okkur og þótt okkur
þætti rómantískt að elda mat
við bál, þegar við gistum undir
berum himni í hjarðarhögum,
myndum við varla hafa sætt
okkur við það líf það sem eftir
er ævinnar.
Þegar við komum til Aþenu
hitti ég Ólöfu Pálsdóttur mynd-
höggvara, sem þá var nýkomin
úr Egyptalandsför og full hrifn-
ingar yfir því, sem á daga henn-
ar hafði drifið. Grikklandi mun
ég ekki segja frá að sinni, en að-
eins geta þess að við fórum það-
an til Feneyja, en þar dvöldum
við í tvo daga og gengum úr
skugga um að til þeirrar fögru
borgar yrðum við að koma
aftur. Að kvöldi hins 11. ágústs
var komið til Kaupmannahafnar
og hafði ferðin þá staðið í rúma
tvo mánuði.
—Jólablað VÍSIS 1954
Unga fólkið vill athuga hina
kristnu lífsleið
Samtal við dr. ARNOLD S. ALDIS um háskólalíf og krislindóm
Síðasta daginn, sem vor góði
gestur, dr. Aldis, dvaldist hér,
fékk ég tækifæri til að tala við
hann um ýmislegt, sem ekki
vannst tími til að ræða um með-
an hann átti í mesta annríkinu
með fundum fyrir háskólastúd-
enta og annað skólafólk í Reykja
vík.
— Þér eruð enn ungur að
aldri, dr. Aldis, eða er ekki svo?
— Ég er fæddur*árið 1910, í
Kína, þar sem faðir minn var
kristniboði. Sjö ára gamall fór
ég heim til Englands með for-
eldrum mínum. Við fórum þá
yfir Síberíu.
— Munið þér nokkuð úr kín-
versku?
— Já, ýmis orðatiltæki. Þegar
þér réttuð séra Friðrik hangi-
kjötið og sögðuð: „Yao-puh-yao“
þá skildi ég það undir eins. (Við
vorum þá að borða hangikjöt og
skyr, sem öllum þótti mjög gott,
ekki sízt gestinum).
— Hvar stunduðuð þér há-
skólanám?
— í London. Faðir minn var
þar í mörg ár framkvæmdar-
stjóri í heimastarfi China Inland
Mission. Ég lærði fyrst náttúru-
vísindi, en síðar nam ég læknis-
fræði við University College, en
eftir það gerði ég skurðlækning-
ar að sérgrein minni.
— Hvar hafið þér starfað
síðan?
— Hér um bil allan tímann í
Cardiff. Þar kenndi ég við
læknadeild háskólans í Hales,
sérstaklega skurðlæknisfræði.
— Hafa orðið breytingar í
andlegum viðhorfum meðal
ungra menntamanna í Bretlandi
eftir stríðið?
— Já, það er vaxandi áhugi
fyrir kristindómi meðal stúd-
enta eftir styrjöldina.
— En and-kristilegur áróður?
Gætir hans ekki ennþá í Bret-
landi?
— Hans gætir að vísu enn, þó
miklu minna en fyrir styrjöld-
ina og meðal menntamanna er
honum minni gaumur gefinn en
áður.
— Hvernig stendur á þessum
breytingum?
— Eftir stríðið urðu margir
ungir menn fyrir vonbrigðum.
Skynsemishyggjan og veraldleg
hugsjónakerfi höfðu flutt sinn
áróður og fengið sín tækifæri.
Hinum ungu mönnum hafði
verið sagt, að þeir væru að berj-
ast fyrir „betri heimi“, en þessi
betri heimur lætur ekki sjá sig.
Sá góði heimur húmanisma og
náttúruvísinda vildi ekki koma.
Kristlega stúdentahreyfingin
— Hvað er það rétta nafn á
I. F. V. skrifað fullum stöfum?
— Það er Intervarsity Fellow-
ship of Evangelicál Unions.
— Hefur þessi hreyfing náð
útbreiðslu?
— Já, hún er nú við alla há-
skóla Stóra-Bretlands og nú á
seinni árum í Kanada, Suður-
‘ Afríku, Ástralíu og Nýja-Sjá-
landi. Sams konar hreyfing er
einnig í Bandaríkjunum og á
Norðurlöndum varð til náskyld
stúdentahreyfing um 1921, rétt
um sama leyti og vor félags-
skapur var stofnaður. Þó þessar
hreyfingar séu sjálfstæðar, þá
eru náin tengsl milli þeirra, eins
og vér höfum samband við
Kristilegt stúdentafélag hér.
— Hvernig er þáttaka stúd-
enta í hreyfingunni?
— Hún var víða mikil. Sem
dæmi mætti nefna að í Cam-
bridge koma 3—400 stúdentar á
biblíulestra í miðri viku og allt
að 1000 stúdentar koma til
messu á sunnudagskvöldum, þar
sem stúdentar eru eingöngu.
Yfirleitt er aðsóknin vaxandi.
Er krislindómur
nauðsynlegur?
— Við erum sennilega sam-
mála um að kristindómurinn sé
nauðsynlegur. En hvers vegna
ættu ungir stúdentar að líta
þannig á málið, en það virðast
þeir gera, með því að vilja lesa
biblíuna og hlusta á kristinn
boðskap. Hver er ástæðan?
— Unga fólkinu finnst að
heimurinn hafi fallið í ófremd-
arástand og það er að leita að
lífsleið út úr því ásiandi, sem
það hefir verið leitt inn í. Eins
og ég sagði, hafa loforð hinna
veraldlegu hugsjóna um betri
heim brugðist. Unga fólkið sá
alvöru lífsins á styrjaldarárun-
um og það vill athuga hina
kristnu lífsleið. Margir vissu
alls ekki hvað kristindómurinn
var af því að þeir tóku rök-
semdir skynsemisstefnunnar
gildar og hættu að leita ann-
arrar lausnar. Það er getuleysi
veraldarhyggjunnar, sem veldur
því að margir vilja athuga
kristindóminn á ný.
— En meðal almennings? Er
þar nokkur samskonar áhugi?
— Fjöldi manns kemur aldrei
í kirkju, nema um jól og páska,
til að hafa annan fótinn innan
kirkjunnar til öryggis ....
— Um þetta eru menn hér á
íslandi alveg sammála Bretum
. . . . þótt ekki sé um samtök að
ræða.
— En það var annað, sem
sýnir að einhver breyting er að
verða meðal almennings í Bret-
landi. Þegar Billy Graham kom,
var honum yfirleitt illa tekið af
flestum blöðum, en þegar hann
fór, þá var ástandið gjörbreytt
bæði hjá blöðunum og almenn-
ingi. Allir töluðu þá um Billy
Graham, bæði í strætisvögnum
og járnbrautum ....
— Hvernig ættu ungir menn
að nálgast kristindóminn til að
kynnast honum?
— Við í I.V.F. lítum á biblíuna
sem lind hinnar heilögu trúar og
teljum að menn geti treyst
henni til að finna kjarna kristin-
dómsins, hjálpræðið. Hjá okkur
lesa menn biblíuna bæði í flokk-
um og í einrúmi. Hinni nei-
kvæðu gagnrýni á biblíunni hef-
ir að miklu leyti verið hnekkt
með síðari ára rannsóknum og
þessi gagnrýni er ekki eins nei-
kvæð né hávær eins og áður.
Stjórnmálamenn
— Eru enn uppi trúaðir,
kristnir stjórnmálamenn í Bret-
landi, eins og áður var?
— Já, í öllum flokkum. Það
eru reglulegar *bænasamkomur
í enska þinghúsinu og hafa verið
árum saman. Og þar hittast
þingmenn allra flokka til þess
eins að biðja ....
Sama er að segja um ýmis stór
fyrirtæki, tryggingafélög, póst-
menn, stórar verzlanir, Eng-
landsbanka. Kristileg félög eru
innan þessara stofnana; sjálfur
Iiefi ég t. d. talað í félagi póst-
manna.
— Hvernig hefir yður liðið
hér?
— Ég hef engum erfiðleikum
mætt, en alls staðar vináttu og
hjálpfýsi. Á almennu samkom-
unum hafa margir sýnt áhuga.
Ég er ánægður með dvölina hér.
Við þökkum dr. Aldis komuna
og góða viðkynningu og árnum
honum allra heilla.
J. Hannesson
—Mbl., 6. marz
Hestur kom upp að glugga
veðbankans á kappreiðunum og
óskaði að veðja á sjálfan sig.
Undrunarsvipur breiddist yfir
andlit afgreiðslumannsins.
— Þig furðar náttúrlega á því,
að ég skuli geta talað, sagði
hesturinn.
— Nei, sagði afgreiðslumaður-
inn, mig furðar meira á því, að
þú skulir láta þér detta í hug,
að þú getir unnið.
Business and Professional Cards
Phone 74-7855 ESTIMATES FREE J. M. Ingimundson Dr. P. H. T. Thorlakson
Re-Roofing — Asphalt Shingles Insul-Bric Siding Vents Installed to Help Eliminate Condensation 832 Simcoe St. Winnipeg, Man. WINNIPEG CLINIC St. Mary’s and Vaughan, Winnipeg PHONE 92-6441 j
Gilbarl Funeral Home J. J. Swanson & Co. LIMITED
Selkirk, Manltoba. 308 AVENUE BLDG. WINNIPEG
J. Roy Gilbart Llcensed Embalmer Phone 3271 Selklrk Fasteignasalar. Leigja hús. Út- vega peningalftn og eldsábyrgB, bifreiSaábyrgð o. s. frv. Phone 92-7538
Dr. ROBERT BLACK
Sérfræðingur í augna, eyrna, nef
og hál8sjökdómum.
401 MEDICAL ARTS BLDG.
Gr&ham and Kennedy St.
Skrifstofusími 92-3851
Heimasími 40-3794
SARGENT TAXI
PHONE 20-4845
For Quick, Reliable Service
Dunwoody Saul Smith DR. E. JOHNSON
& Company Chartered Accounlants . 304 Eveline Street SELKIRK, MANITOBA
Phone 92-2468
100 Princess St. Winnipeg, Man. Phones: Office 26 — Residence 230
And offices at: Office Hours: 2.30 - 6.01 p.m.
FORT WILLIAM - KENORA FORT FRANCES - ATIKOKAN
Hofið Thorvaldson, Eqgertson,
Höfn Bastin & Stringer
í huga Barristers and Solicitors 209 BANK OF NOVA SCOT1A Bldg. Portage og Garry St.
Heimili sólsetursbarnanna, Tcelandic Old Folks’ Home Soc ,
3498 Osler St„ Vancouver. B.C. PHONE 92-8291
ARLINGTON PHARMACY ' CANADIAN FISH
Prescriplion Specialisí PRODUCERS LTD.
Cor. Arlinglon and Sargenl J. H. PAGE, Managtng Dlrector
Phone 3-5550 Wholesale Distributors of Fresh and Frozen Fish 311 CHAMBERS STREET Office: 74-7451 Re*.: 72-3917
We collect light, water and phone bills. Post Office
Muir's Drug Store Ltd. Office Phone Res. Phone 92-4762 72-6115
J. CLUBB
FAMILY DRUGGIST Dr. L. A. Sigurdson
SERVING THE WEST END FOR 528 MEDICAL ARTS BUILDING
27 YEARS Office Hours: 4 p.m.—6 p.m.
Phone 74-4422 Ellice & Home and by appointment.
Thorarinson & Appleby Barristers and Solicitors S. A. Thorarinson, B.Sc., L.L.B. W. R. Appleby. B.A., L.L.M. 701 Somerset Bldg. Winnipeg, Man. Ph. 93-8391 A. S. BARDAL LTD. FUNERAL HOME 843 Sherbrook Street Selur líkkistur og annast um út- farir. Allur OtbúnaCur sá bezti. StofnaC 1894 SÍMI 74-7474
Phone 92-7025 H. J. H. PALMASON Chartered Acccuntant 505 Confederation Life Building WINNIPEG MANITOBA Minnist BETEL í erfðaskróm yðar.
PARKER, TALLIN, KRIST- JANSSON, PARKER AND MARTIN BARRISTERS — SOLICITORS Ben C. Parker, Q.C. (1910-1951) B. Stuart Parker. Clive K. Tallin, Q.C., A. F. Kristjansson, Hugh B. Parker, W. Steward Martin. 5th n. Canadian Bank of Commerce Building, 389 Maln Street Wlnnipeg 2, Man. Phone 92-3561 S. O. BJERRING Canadian Stamp Co. - RUBBER Sc METAL STAMPS NOTARY & CORPORATE SEALS CELLULOID BUTTONS 324 Smilh St. Wlnnlpeg PHONB 92-4424
G. F. Jonasson, Pres. & Man. Dir. Keystone Fisheries Limited Wholesale Distributors of FRESH AND FROZEN FISH 60 Louise Street Stmi 92-5227 Creators of Distinctive Printing Columbiq Press Ltd. 695 Sargenl Ave. Winnipeg PHONE 74-3411
EGGERTSON FUNERAL HOME Dauphin, Maniloba Eigandi ARNI EGGERTSON Jr. SELKIRK METAL PRODUCTS Reykháfar. öruggasta eldsvörn, og ávalt hreinlr. Hltaelnlngar- rör, ný uppfyndlng. Sparar eldi- viö, heldur hita frá a8 rjúka öt meC reyknum.—SkrifiC, slmiC tll KELLY SVEIN8SON 125 Wall St. Wlnnlpeg Just North of Portage Ave. Stmar 3-3744 — 3-4431
Van's Eíectric Ltd.
636 Sargenl Ave.
Authorized Home Appliance
Dealers
GENERAL ELECTRIC — ADMIRAL
McCLARY ELECTRIC — MOFTAT
Phone 3-4890
J. Wilfrid Swanson & Co.
Insurance in all its branches
Real Eitate - Mortgages - Rentali
210 POWER BUILDING
Telephone 93-1181 Res. 48-1480
LET US SERVE YOU