Lögberg - 10.11.1955, Page 2
2
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 10. NÓVEMBER 1955
STEINGRÍMUR J. ÞORSTEINSSON. prófessor:
Sigurlaun listarinnar
Góðir Islendingar:
Mér er mikil ánægja að
verða við þeim tilmælum
Ríkisútvarpsins að segja hér
nokkur orð vegna þeirra tíð-
inda, sem hingað bárust frá
Stokkhólmi fyrir fáeinum
klukkustundum og útvarps-
hlustendum eru nú þegar
kunnug, að sænska akademían
hefur í dag veitt bókmennta-
verðlaun Nóbels Halldóri
Kiljan Laxness.
Það er alkunna, að Nóbels-
verðlaun í bókmenntum eru
talin mesta opinber viður-
kenning, sem skáldi eða rit-
höfundi getur hlotnazt. Til-
lögurétt um þau hafa með-
limir sænsku akademíunnar,
forsetar fyrir nokkrum mest
háttar akademíum öðrum og
rithöfundafélögum, fyrrver-
andi Nóbelsverðlaunahafar í
bókmenntum, fagurfræði og
tungumálum. Ekki verða
greidd atkvæði um aðra en
þá, sem tillögur hafa borizt
um hverju sinni frá einhverj-
um þessara aðila. Og þeir,
sem sænsku akademíuna
skipa, greiða atkvæði um
veitinguna.
Hitt er þarfleysa, að segja
Islendingum frá Halldóri
Kiljan Laxness, enda eru
þessi fáu orð hér sögð í sam-
fagnaðarskyni, en ekki til
kynningar. Halldór er há-
menntaður, íslenzkur sveita-
maður, fágaður og fjölkunnur
alheimsborgari og mikill og
sérlundaður Islendingur. En
um fram allt er hann rithöf-
undur. Hann er ekki aðeins
fyrsti íslenzki rithöfundurinn,
sem hefur getað lifað á skáld-
skapariðkunum sínum, heldur
hefur hann og einvörðungu
lifað fyrir þær. Og þeim
rammíslenzku efnum, sem
hann hefur oftast valið sér,
hefur hann getað veitt hið al-
menna gildi þess sammann-
lega og símannlega, með
þeirri skáldskapargáfu sinni
BUSES FOR SALE
21, 25, and 31 Passenger
Excellent for use as school buses or
for short line work. Selling below
actual value. Write, wire or phone
Grey Goose Bus Lines Ltd.
Bns Depot Wlnnlpeg, Man.
______ Phone 92-3579
og frásagnarlist, sem fengið
hefur heiminn til að hlusta.
Þótt vitaskuld hafi honum
tekizt misjafnlega vel eins og
öðrum mönnum, held ég að
fullyrða megi, að hann hafi
aldrei kastað höndum til
neins, sem er skáldskapar-
kyns — heldur lagt sig þar
allan fram, agað ríka og ó-
stýriláta sköpunargáfu sína
af þrotlausri viljafestu og
auðmjúkri lotningu fyrir list-
inni. Og forðazt hefur hann
að leita oft í sama farið og
yrkja sjálfan sig upp. Þvert á
móti heldur hann á nýjar
leiðir um efni og stíl með
hverju nýju verki. Sú fjöl-
hæfni er undraverð. En þótt
verk hans nái yfir víðustu og
ólíkustu svið í tíma og rúmi,
menningarháttum og um-
hverfi, þá spenna þau yfir
mestar víddir í mannlýsing-
um, svo margháttaðar eru
þær manngerðir, svo ólíkir
eru þeir einstaklingar, sem
hann hefur dregið upp, oft
nokkuð grófum og gildum
dráttum, og gætt því lífs-
magni síns sköpunarafls, að
margir hverjir hafa þeir stigið
fram af bókablöðunum og
ganga um ljóslifandi á meðal
okkar — og munu áreiðanlega
um langan aldur verða meðal
kunnustu persóna í sögu ís-
lendinga. Og þó er eitt, sem
flestir þessara manna eiga
sameiginlegt — þeir eiga sér
hetjusögu, hver á sinn hátt,
— ekki aðeins þar, sem það
nafn stendur á titilblaði, eins
og fyrir sögu Bjarts í Sumar-
húsum, heldur einnig og ekki
síður, þar sem lýst er af fín-
gerðastri nærfærni sjúklingi
undir súð og skáldsnillingi,
sem hlotnaðist aldrei skáld-
þroski, eins og í sögu Ljós-
víkingsins. Þetta eru hetju-
sögur — um baráttu manna
við umhverfi og aðstæður,
baráttu manna við sjálfa sig
— um baráttu manna í lífinu.
Halldór Kiljan Laxness er um
fram annað mannsins og lífs-
ins skáld — höfundur hetju-
sagna lífsbaráttunnar í sigr-
um manna og ósigrum. — Það
er því vel til fallið,..að sænska
LÆGSTA FLUGFAR TIL
með Douglas Skymasters, er
hver um sig hefir 7 skandi-
naviskra manna áhöfn, sem
fengið hafa flugæfingu í
Bandaríkjunum.
C. A. B. skrásettar, reglu-
bundnar flugferðir frá New
York.
ÍSLANDS
$265°°
BAÐAR LEIÐIR
Kaupið far hjá nœatu ferðaskrlfsíofu.
n /71 n
ICELANDICl AIRLINES
UzA\L±j
15 West 47th Street, New Yerk 36
Pl 7*8585
akademían kemst svo að orði
í greinargerð sinni í dag, að
Laxness séu veitt bókmennta-
verðlaun Nóbels „för sin
malande epik, som förnyat
den stora islandska berattar-
konsten" — sem er raunar
erfitt að þýða á íslenzku —
en hér eru fram dregnar
lýsingar Kiljans í sögulegum
eða hetjukenndum skáldsög-
um — eða litauðugur hetju-
sagnastíll hans, sem endur-
nýjað hafi hina miklu, ís-
lenzku frásagnarlist.
Við Islendingar erum ein
fámennust, sjálfstæð þjóð
veraldar. Við eigum þrennt —
aðeins þrennt — sjálfstæði
okkar til réttlætingar: lsgu
landsins fjarri öðrum þjóð-
löndum, en þó einkum lungu
okkar og bókmennlir. Engin
þjóð önnur hefur varðveitt
tungu sína svo lítt breytta, að
barn, sem lært hefur að lesa,
getur skilið það, er samið var
fyrir 800 árum. Á 13. öld
sköpuðu Islendingar merk-
ustu bókmenntir í allri Ev-
rópu. Og nú höfum við enn í
eina öld og aldarþriðjungi
betur átt nýtt blómaskeið
bókmennta okkar, sem hófst
með miklum ljóðskáldum,
Bjarna og Jónasi, en síðasta
aldarfjórðung hafa höfundar
óbundins máls haft þar for-
ustu, þótt lengri væri að-
dragandinn. Vissulega verða
íslendingar þar lengi minn-
ugir stórskálda sinna og beztu
rithöfunda. En — líkt og segir
í greinargerð akademíunnar
sænsku — hefur Halldór
Kiljan Laxness hafið aftur
til vegs — á grundvelli fornr-
ar og órofinnar arfleifðar —
hina miklu, íslenzku sagnalist,
til þeirrar fullnustu, að fyrir
hana og þá hetjusögu, sem
hann hefur nú þegar — vænt-
anlega nærri miðjum starfs-
aldri — samið með list sinni
og lífi sínu, hafa honum í dag
verið veitt æðstu opinberu
bókmenntaverðlaun veraldar.
Við Islendingar hljótum flest-
um fremur að fagna því, að
andleg afrek ein — án nokk-
urs tillits til höfðatölu, heims-
yfirráða eða ríkidæmis —
hafa hér ráðið þessu mati.
Enda er Laxness tvímæla-
laust meðal fjölhæfustu og
fremstu rithöfunda okkar á
óbundið mál frá upphafi vega
til þessa dags — og einn af
ágætustu skáldsagnahöfund-
um, sem nú eru uppi í heim-
inum.
öllum sönnum Islendingum
hlýtur að þykja vænt um, að
Laxness hefur með þessum
hætti aukið hróður þjóðar
sinnar út um allar jarðir. En
vænst þykir okkur þó um
hann fyrir það, sem hann er
okkur og verður okkur
sjálfum.
Ég vil ljúka þessu máli með
því að votta þakkir og virð-
ingu sænsku akademíunni og
Halldóri Kiljan Laxness og
árna honum og íslenzku þjóð-
inni heilla vegna þessarar
verðskulduðu viðurkenningar.
—Þjóðviljinn, 29. okt.
BÓKARFREGN
We Loved Them Once . By Ronda Rivers (Solveig Sveinsson)
Vantage Press, New York . 135 pp . $2.75
Þetta er saga ástar og af-
brýðis, í nokkurn veginn
vanalegum þríhyrnings stíl
(“the eternal triangle”), á lát-
lausu en þó ágætu máli, og er
söguþráðurinn þannig spunn-
inn, að forvitni lesarans —
neiti hann sér um að gægjast í
endalok um skör fram —
eykst þess meira sem lengur
er lesið, þar til allt fellur í
samt og rétt lag á öftustu
blaðsíðunni. En þetta er ein-
mitt mælikvarði á ágæti
slíkra sagna, sem hrein-
skilnislega ganga að því verki
að skemmta lesaranum, frem-
ur en að bæta hann eða
fræða, að forvitni hans hald-
ist í háspennu, og að loknum
lestri leggi hann bóknia frá
sér saddur og ánægður.
Það má óhikað segja um
þessa sögu Solveigar, að hún
nái þessu takmarki, og það
án þess að fara út í þær gön-
ur, sem lýta svo margar nú-
tíðar skáldsögur, að við hafa
klám og klúryrði og óvirðu-
lega hegðan sögupersónanna.
En þess konar er sagt, að
hækki sölubauginn, og kallar
enskurinn það stundum
“paydirt.” Þrátt fyrir þetta
má virðast að sala bókarinn-
ar sé í það minsta bærileg,
því nú (þegar þetta er ritað)
er höfundurinn í þann veginn
að fara til New York í boði
útgefanda bókarinnar.
Á undanförnum árum hefur
Solveig birt margar smásögur
og önnur rit í bandarískum
tímaritum, en þetta mun vera
fyrsta stór-skáldsaga hennar.
Nú er mér sagt að hún sé
langt komin með smíði á nýrri
skáldsögu, enn veigameiri. Er
höfundurinn því stórtækur,
þótt kominn sé við aldur,
enda spriklandi af fjöri og
lífsgleði. Hún hefur og átt
fjölvirkan æviferil, fyrst og
fremst sem kona og móðir
(hún er ekkja eftir Símon
Sveinsson trésmið, fyrrum í
Wynyard og Chicago), sem
leikkona með afbrigðum (í
Reykjavík, Winnipeg og víð-
ar), sem kennari, sem (social
worker), og sem ferðalangur,
því hún mun hafa gist flest
lönd norðurálfunnar, og ís-
land nokkrum sinnum.
Solveig er dóttir Sveins
Kristjánssonar frá Bjarna-
stöðum í Bárðardal, en móðir
hennar var Verónika Þorkels-
dóttir, systir Jóhanns fyrrum
dómkirkjuprests í Reykjavík,
bæði löngu dáin. Hún býr nú
í fögru eigin heimili í Blaine
í Washingtonríki, en börn
hennar fjögur: Veronica,
Wynyard (tannlæknir), Kelly
og Valdo, í Chicago, eða á
þeim slóðum.
Mér er ljúft að mæla með
þessari skáldsögu Solveigar
og árna henni heilla með þá
næstu, sem nú er kannske
ekki svo langt undan stafni-
—L. F.
B. E. M.
Television Service
• Factory Trained
Technicians.
• All Work Guaranteed.
• Swift Efficient Service.
Phone 75-2875
1786 Logan Ave.
WINNIPEG 3
ENDAST ÖLLUM
VINNUSOKKUM BETUR
Þér getið fengið
hvaða stærð og
þykt, sem vera vill
og óþrjótandi úrval
af Penmans vinnu-
/
sokkum. Það stend-
ur á sama hvað þér
veljið, þér fáið ávalt
beztu vöruna á
sanngjarnasta og
bezta verðinu.
Einnig nærföt og ytri skjólföt
Frægt firma síðan 1886
WS-10-4