Lögberg - 10.11.1955, Síða 3
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 10. NÓVEMBER 1955
3
Prestur settur í embætti
Ef til vill hafa margir veitt
því eftirtekt að á þessu sumri
eða hausti, hefir verið sagt
frá innsetning í embætti,
tveggja ungra og glæsilegra
presta innan vébanda Hins
Ev. Lút. Kirkjufélags Islend-
inga í Vesturheimi. Bæði
prestaköllin, sem þar um
ræðir, eru merk og mikils-
metin — Norður-Dakota og
Gimli.
Níunda dag októbermánað-
ar nutum við hjónin þeirrar
'miklu virðingar og ánægju að
vera viðstödd innsetningu ís-
lenzks prests í embætti í
prestakalli, sem hann hafði
alveg nýverið tekið að sér að
þjóna. Að sönnu er það presta
kall ekki innan vébanda okk-
ar kæra Kirkjufélags. En þar
sem presturinn er íslenzkur,
langaði mig að segja frá því.
Prestakallið er í bænum
Kelso í Washingtonríki; heitir
kirkjan Gloria Dei kirkja, og
tilheyrir Pacific Sýnódunni í
U.L.C.A. Presturinn, sem þá
var settur í embætti, er séra
Haraldur S. Sigmar, sem ný-
lega hafði sagt lausu presta-
kalli sínu á Gimli fyrir þær
ástæður sem kunnar eru.
Þessi innsetningar-athöfn
fór fram í Gloria Dei kirkj-
unni, sunnudaginn 9. október
kl. 8.30 að kveldinu. Athöfnin
var í alla staði mjög hátíðleg
og skemmtileg. í þessari at-
höfn tóku þátt fimm prestar,
auk heimaprestsins. Voru
það Dr. L. H. Steinhoff, for-
seti Pacific Synod, og fram-
kvæmdi hann vitanlega inn-
setninguna sjálfa, auk þess að
ávarpa heimaprestinn; Pastor
Anderson, sem hafði á sínum
tíma stofnað söfnuðinn;
Pastor Kunzmann, sem um
tímabil hafði þjónað þessum
söfnuði, meðan þeir biðu
komu þess prests, er söfnuð-
urinn kallaði; Pastor Stanley
Holman, embættismaður í
Kirkjufélaginu og nágranna-
prestur; og séra H. Sigmar
frá Blaine, faðir heimaprests-
ins. Pastor Kunzmann þjónaði
fyrir altari; Pastor Anderson
las biblíulexíu dagsins; Pastor
Holman ávarpaði söfnuðinn
sérstaklega í prédikun sinni;
og Séra Haraldur ávarpaði
prestinn sérstaklega í sinni
prédikun. Vitanlega voru öll
erindin hæfilega takmörkuð
að lengd. I lok athafnarinnar
flutti heimapresturinn, séra
H. S. Sigmar, stutta prédikun
ásamt þakkarorðum til fólks-
ins. Ef ég skyldi nú segja, að
prédikun heimaprestsins hefði
verið glóandi fögur, mundi
kannske mörgum hugsast, að
þau orð væru mælt af tilfinn-
ingu fremur en af dómgreind.
En hvað sem því líður, fannst
mér svo vera. Við það er mér
og kært að bæta, áð mér
fundust öll ávörpin og pré-
dikanirnar ágætar, þó vitan-
lega dæmi ég ekki um það,
sem ég flutti.
Mikið fjölmenni var við
þessa hátíðlegu guðsþjónustu.
Eins margir og frekast kom-
Séra H. S. Sigmar
ust þar fyrir. En söfnuðurinn
þar er mjög mikið að hugsa
fyrir því að stækka kirkju
sína sem fyrst.
Söngsveitin, sem beitti sér
fyrir í kirkjusöngnum, var
ekki mjög fjölmenn, en söng-
urinn mikill og ágætur.
Að því er ég bezt veit voru
16 íslendingar við messuna,
9 frá Seattle, 5 úr heimaborg-
inni og tveir frá Blaine. Mr.
og Mrs. Paul Björnson og
eitthvað af börnum þeirra til-
heyra söfnuðinum. Paul er
sonur Sveins Björnssonar,
bróður Dr. O. Björnssonar sál.
og þeirra systkina, sem svo
margir þekkja að góðu.
Eins og þegar er sagt, munu
hafa verið þarna um 16 Is-
lendingar. En af þeim voru
þrír, sem nutu þeirrar ánægju
að taka sérstakan þátt í þess-
ari guðsþjónustu: Tani Björns
son, sólóisti og söngstjóri,
heimapresturinn og faðir
hans. Tani söng með söng^
sveitinni við athöfnina, en
auk þess söng hann tvo ein-
söngva: “Bless this House” og
“The Lords Prayer.” Gjörði
hann þetta af hrífandi snild.
Mun heimapresturinn hafa
beðið „gamlan“ söngstjóra
sinn að gjöra þetta fyrir sig
og fólkið. Og þó engan veginn
væri það auðvelt að sinná
þeirri bón, þá gjörði hann það
samt. Fór hann heldur enga
„fýluför“! Ef ég héti Einar
Páll mundi ég segja um Tana:
„Hann kom, sá og sigraði!“
Því má ég til að bæta við,
að við hjónin áttum þriggja
daga unaðslega dvöl hjá börn-
um okkar og barnabörnum á
prestsheimilinu lúterska í
Kelso. Þau sýndu okkur „tví-
bura-borgirnar,“ Kelso og
Longview, sem í flestu tilliti
eru nú eins og ein borg; þar
er mjög fagurt og björgulegt
um að litast, við Columbia-
fljótið mikla, sem þar er
merkjalínan milli Washington
og Oregon.
Það ætti við að óska prests-
hjónunum og börnum þeirra
Drottins blessunar nú og
áfram. Við höfum gjört það,
bæði upphátt og í hljóði. Það
þykist ég og vita, að þeir séu
margir, f jær og nær, sem bæði
úpphátt og í hljóði, hafa líka
borið fram slíkar óskir þeim
til handa. H. Sigmar
Business and Professional Cards
SELKIRK METAL PRODUCTS
Reykháfar, öruggasta eldsvörn,
og ávalt hreinir. Hitaeiningar-
rör, ný uppfynding. Sparar eldi-
vi8, heldur hita frá a8 rjúka út
me8 reyknum.—Skrifi8, simi8 til
KELLY SVEINSSON
625 Wall St. Winnipeg
Just North of Portage Ave.
SUnset 3-3744 — SUnset 3-4431
CANADIAN FISH
PRODUCERS LTD.
J. H. PAGE, Managing Director
Wholesale Distributors of Fresh and
Frozen Fish
311 CHAMBERS STREET %
Office: 74-7451 Res.: 72-3917
PARKER. TALLIN, KRIST-
JANSSON, PARKER AND
MARTIN
BARRISTERS — SOLICITORS
Ben C. Parker, Q.C.
(1910-1951)
B. Stuart Parker, Clive K. Tallin,
Q.C., A. F. Kristjansson, Hugh B.
Parker, W. Steward Martin
5th H. Canadian Bank of Commcrce
Building, 389 Main Street
Winnipeg 2, Man. Phone 92-3561
Day Call Evenings
SUnset 3-3961 50-9803 74-6620
Broadland Service Labs
Qualified Technicians
Complete Radio and T-V Service
John Turner 226 Maryland St.
Victor Thordarson WINNIPEG
Leitað eiganda
landsspildu vestur
í Manitoba
Hver á landspildu ná-
lægt Amaranth í Mani-
toba? Þannig er mál með
vexti, að yfirvöld þar í
héraði eru í hálfgerðum
vandræðum með land-
spildu þessa og finna ekki
þinglýstan eiganda henn-
ar, telja þó, að hann sé
eitthvað við Islan’d riðinn.
Kona nokkur að nafni Brita
Elizabeth Beckman, ekkja
Charles Peters Beckmans,
sem bjó um 1919 nálægt
Amaranth í Manitoba, er tal-
inn löggiltur og þinglýstur
eigandi að landspildu þar.
Frú Beckman bjó um skeið
nálægt Westborne í Manitoba,
en álitið er, að hún hafi flutzt
til íslands á árunum milli
1930—1940, en ekki mun hafa
tekizt að hafa upp á neinum
hér á landi, sem þekkir hana
eða til hennar.
Ragnar Ólafsson, hrl., Von-
arstræti 12, Reykjavík, sem
hefir þessa eftirgrennslan
með höndum, hefir beðið
blaðið að koma þeim tilmæl-
um áleiðis til ættingja eða
annarra, sem þekkja til frú
Beckman, að þeir gefi sig
fram við hann, eða hún sjálf,
ef hún skyldi vera á lífi og
dveljast hér á landi.
—TÍMINN, 23. sept.
Erfiðleikar frétiaritara
Fyrir nokkru var bæjar-
blaðið í Albana í Bandaríkj-
unum sektað um 350 dali fyrir
eftirfarandi frétt: Meðborgari
vor, frú Susan Swyer, 52 ára,
hefur trúlofast herra Fred
Ostins frá Chicago. Hann er
þekktur fyrir söfnun fornra
gripa.
Minnist BETEL í erfðaskróm yðar
Dr. ROBERT BLACK Sérfræ8ingur í augna, eyrna, nef og hálssjúkdömum. 401 MEDICAL ARTS BLDG. Graham and Kennedy St. Skrifstofusími 92-3851 Heimasími 40-3794
G. F. Jonasson, Pres. & Man. Dir. Keystone Fisheries Limited Wholesale Distributors of FRESH AND FROZEN FISH 60 Louioj Street Sfmi 92-5227
Van's Electric Ltd. 636 Sargeni Ave. Authorized Home Appliav.ee Dealers GENERAL ELECTRIC — ADMIRAL McCLARÝ ELECTRIC — MOFFAT SUnsel 3-4890
Dr. P. H T. Thorlakson WINNIPEG CLINIC St. Mary s and Vaughan, Winnipeg Phone 92-6441
Office Phone Res. Phone 92-4762 72-6115 Dr. L. A. Sigurdson 528 MEDICAL ARTS BUILDING Office Hours: 4 p.m.—6 p.m. and by appointment.
Creators oj Distinctive Printing Columbia Press Ltd. 695 Sargenl Ave. Winnipeg PHONE 74-3411
DR. E. JOHNSON 304 Eveline Street SELKIRK, MANITOBA Phones: Office 26 — Residence 230 Office Hours: 2.30 - 6.00 p.m.
Thorvaldson. Eggerison, Baslin & Siringer Barristers and Solicitors 209 BANK OF NOVA SCOTIA Bldg. Portage and Garry St. PHONE 92-8291
A. S. BARDAL LTD. FUNERAL HOME 843 Sherbrook Street Selur líkkistur og annast um út- farir. AUur útbúnaSur sá bezti. Stofna8 1894 SlMI 74-7474
J. J. Swanson & Co. LIMITED 308 AVENUE BLDG. WINNIPEG Fasteignasalar. Ueigja hús. út- vega peningalán og eldsábyrgS, bifreiðaábyrgB o.s. frv. Phone 92-7538
S. O. BJERRING Canadian Stamp Co. RUBBER & METAL STAMPS NOTARY & CORPORATE SEALS CELLULOID BUTTONS 324 Smiih St. Winnipeg PHONE 92-4624
J. Wilfrid Swanson & Co. Insurance in all its branches Real Estate - Mortgages - Rentals 210 POWER BUILDING Telephone 93-7181 Res. 40-3480 LET US SERVE YOU
EGGERTSON FUNERAL HOME Dauphin, Manitoba Eigandi ARNI EGGERTSON, Jr.
Phone 74-7855 ESTIMATES FREE J. M. Ingimundson Re-Roofing — Asphalt Shingles Insul-Bric Siding Vents Installed to Help Eliminate Condensation 632 Simcoe St. Winnipcg, Man.
Gilbart Funeral Home Selkirk, Manitoba J. ROY GILBART Phone 3271 Selkirk
Muir's Drug Store Ltd. J. CLUBB FAMILY DRUGGIST SERVING THE WEST END FOR 27 YEARS Phone 74-4422 ElUce & Home
Dr. G. KRISTJANSSON 102 Osbome Medical Bldg. Phone 74-0222 Weston Office: Logan&Quelch Phone 74-5818 — Res. 74-0118
Phone 92-7025 H. J. H. PALMASON Chartered Accountant 505 Confederation Life Building WINNIPEG MANITOBA
Dunwoody Saul Smiih & Company Chartered Accountants Phone 92-2468 100 Princess St. Winnipeg, Man. And offices at: FORT WILLIAM - KENORA FORT FRANCES - ATIKOKAN
Hofið H öf n í huga Heimili sólsetursbarnanna, Icelandic Old Folks’ Home Soc., 3498 Osler St„ Vancouver, B.C.
Arlington Pharmacy Prescription Specialist Cor. Axlington and Sargent SUnset 3-5550 We collect light, water and phone bills. Post Office