Lögberg - 24.11.1955, Page 8
8
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 24. NÓVEMBER 1955
Úr borg og bygð
ÁRSFUNDUR „FRÓNS"
Eins og áður hefur verið
auglýst, verður ársfundur
deildarinnar Frón haldinn í
G. T.-húsinu á Sargent Ave.
og McGee St. mánudags-
kvöldið 28. nóv. 1955; byrjar
kl. 8.15. Dagskrá fundarins
verður sem hér segir:
Fundur settur.
Lesin fundargerð síðasta
fundar.
Skýrslur embættismanna.
Kosning nýrrar fram-
kvæmdarnefndar fyrir næsta
ár.
Síðast en ekki sízt flytur
frú Marja Björnson mjög fróð
legt erindi um Háskóla
íslands.
Inngangur ókeypis en sam-
skota verður leitað.
FRÓNS-nefndin
☆
— HLÍN —
Vegna þess að margar
konur, er hafa HLÍN til sölu
hérna megin hafsins, liöfðu
fengið ritið og selt það á hinu
gamia verði, 50 cents heftið,
áður en þær vissu um að það
hefði hækkað, biður Mrs. J. B.
Skaþtason að láta þess getið,
að það verði selt fyrir 50 cents
þetta ár, en hækkað upp í
75 cents næsta ár.
Laugardaginn hinn 29. októ-
ber síðastliðinn voru gefin
saman í hjónaband í kirkju
Bræðrasafnaðar í Riverton
Josephine Pauline Hokanson
og Björgvin Anderson. Brúð-
urin er dóttir Mrs. Evelyn
Hokanson, en brúðguminn er
sonur Mr. og Mrs. M. O.
Anderson, Riverton. — Séra
Bragi Friðriksson gifti; ein-
söngvari var Miss Geraldtine
Björnsson.
Að vígsluathöfn lokinni
var setin fjölmenn brúð-
kaupsveizla í samkomuhúsi
bæjarins.
☆
Mr. og Mrs. G. B. Johnson
frá Long Beach, Cal., og Mr.
W. B. Johannson frá Cavalier,
North Dakota, og Mr. og Mrs.
Frank Johannson, Langdon,
N. Dak., hafa dvalið í borg-
inni undanfarna daga í heim-
sókn til ættingja og vina.
☆
Þeir B. Egilsson, Stefán
Stefánsson, Guðm. Magnús-
son og Valdimar Árnason frá
Gimli, sátu fund í Betel-
söfnunarnefndinni hér í borg
á sunnudaginn var.
' 'Cr
Mr. Friðrik Nordal, frá Sel-
kirk var staddur í borginni
síðastliðinn fimtudag ásamt
syni sínum.
MESSUBOÐ
Fyrsta lúterska kirkja
Sr. V. J. Eylands, Dr. Theol.
Heimili 686 Banning Street.
Sími 3-0744.
Guðsþjónustur á hverjum
sunnudegi: •
Á ensku kl. 11 f. h.
Á íslenzku kl. 7 e. h.
Allir ævinlega velkomnir
☆
Lúierska kirkjan í Selkirk
Sunnud. 27. nóv.:
(1. sunnud. í Aðventu)
Ensk messa kl. 11 árd.
Altarisganga.
Sunnudagaskóli kl. 12
Islenzk messa og altaris-
ganga kl. 7 síðd.
Fólk boðið velkomið.
☆ S. Ólafsson
BETEL OLD FOLKS HOME
BUILDING CAMPAIGN
Winnipeg Commiifee—For
general canvass in Greater
Winnipeg. ,
Mr. Victor Jonasson,
Chairman.
Mr. Skuli Backman
Mr. Niel O. Bardal
Mr. Johann T. Beck
Mrs. B. S. Benson
Mr. S. O. Bjerring
Mrs. S. O. Bjerring
Mrs. Gudrun Blondal
Mrs. Holmfridur Dánielson
Mr. Erlingur Eggertson
Mr. Grettir Eggertson
Mr. Gus Gottfred
Mrs. Steindor Jakobson
Mr. K. W. Johannson
Mrs. Ingibjorg Jonsson
Mrs. Christine Johnson
Mr. Jakob Kristjanson
Mr. Wilhelm Kristjanson
Mr. Kristjan Oliver
Miss Margaret Petursson
Rev. Eric Sigmar
Dr. Larus Sigurdson
Mrs. Paul Sigurdson
Mrs. Sigurjon Sigurdson
Mr. Alex Thorarinson
Mr. S. Sigurdson.
☆
For the Betel Old Folks
Home building Campaign the
following persons have been
added to the Advisory Com-
mittee:
Mrs. O. Stephenson,
Winnipeg
Mrs. Anna Stephenson,
Winnipeg
Mrs. Sigurjon Sigurdson,
Winnipeg
Mr. Valdimar Arnason,
Gimli
Mr. Gudm. Magnussson,
Gimli
Mr. Stefan Stefansson,
Gimli.
Látin er að St. Boniface
Hospital 16. nóv. Mrs. Lena
Evans, 32 Carriere Ave., St.
Vital, Man.
Útför hennar fór fram frá
Gilberts útfararstofu í Sel-
kirk, þann 19. nóv. Auk eigin-
mannsins Mr. Alfred Evans,
syrgja hana 4 dætur og 4 synir
og 4 barnabörn; einnig systir,
og bróðir. Jarðað var í Lút-
erska grafreitnum í Mapleton.
Séra Sigurður Ólafsson þjón-
aði við útförina.
☆
Dr. Richard Beck, prófessor
við ríkisháskólann í North
Dakota, var staddur í borg-
inni um miðja fyrri viku.
☆
Mr. Sigbjörn Sigbjörnsson
frá Leslie, Sask., er nýlega
kominn til borgarinnar og
dvelst hér í vetur hjá dóttur
sinni frú Önnu Wood, 706
Home Street.
☆
Mr. Bergur Johnson, vist-
maður á Betel, kom til borgar-
innar fyrripart vikunnar, sem
leið, ásamt frú sinni.
☆
Mr. Daníel Sigmundsson á
Gimli vann splunkurnýjan bíl
í bingokepni, sem nýlega var
háð í íþróttahöll Winnipeg-
borgar fyrir atbeina Lions
klúbbanna; ágóðanum er varið
til aðhlynningar fötluðum
börnum.
Gleðileg nýjung
í mannkynssögunni
Hin geysivíðtæku samtök
þjóða til líknar og hjálpar
þurfandi og þjáðum ,er ein
gleðlegasta nýjungin í sögu
mannkynsins. Árið 1954 veitti
barnahjálparsjóður Samein-
uðu þjóðanna 31 milljón
barna og mæðra hjálp í 88
löndum. Til þess var varið 18
milljónum dollara og lögðu 60
þjóðir fram þetta fé.
Þessi samtök þjóðanna
vinna kappsamlega að alls
konar líknarstarfi, heilsu-
vernd, upplýsingu og menn-
ingarrækt. Hinn þekkti klerk-
ur, dr. Norman Vincent Peale,
var spurður eitt sinn, hvort
honum veittist ekki erfitt að
trúa á Guð í þessum heimi
vandræðanna.
Klerkurinn svaraði því, að
sér veittist mjög auðvelt að
trúa á Guð sökum þess, að
heimurinn væri svo auðugur
af því, er leysti vandræðin og
sigraðist á hörmungunum.
Það er hollt fyrir heilsu
okkar, bæði sálar og líkama,
að horfa fremur á þessa hlið
mannlífsins og hugleiða hana,
en að dvelja um of við skugga-
hliðina.
. . . . Maðurinn getur gert
meira ei) hann heldur að
hann geti, en hann gerir
vanlega minna en hann held-
ur að hann hafi gjört . . • •
Owing to wealher conditions, the performances
of the play
"IN THE WAKE OF THE STORM"
scheduled for Lundar, Gimli and Arborg,
will be announced later.
VINNUSOKKAR
Margstyrktir hælar og tær með
NYLON
Beztu kjörkaup
vegna endingar, auka
þæginda og auka-
sparnaðar. Endingar-
góðir PENMANS
vinnusokkar af stærð
og þykt, sem til-
heyra hvaða vinnu
sem er.
EINNIG NÆRFÖT og YTRI SKJÓLFÖT
Frægt firma síðan 1868
ws
-U-4