Lögberg - 01.03.1956, Page 8
8
LÖGBERG, FIMTMUDAGINN 1. MARZ 1956
Úr borg og bygð
— BRÚÐKAUP —
Á laugardaginn 11. febrúar
gaf séra Eiríkur S. Brynjólfs-
son saman í hjónaband á
prestssetrinu í Vancouver
þau Victoriu Olgu, elztu
dóttur Mr. og Mrs. S. H.
Sigurgeirson, Steveston, og
Lars, son Mr. og Mrs. L. Ellis
í Svíþjóð. Svaramenn brúð-
hjónanna voru systir brúðar-
innar og maður hennar, Mr.
og Mrs. Raymond Ross. —
Veizla var haldin í St. Anne’s
Hall, Steveston. Brúðhjónun-
um bárust heillaóskaskeyti
frá Svíþjóð, New York og
Manitoba. — Heimili þeirra
verður í Alaska, en þau hafa
í hyggju að fara síðarmeir í
heimsókn til Svíþjóðar.
☆
A meeting of the Jon Sig-
urdson Chapter I.O.D.E., will
be held on Friday Eve. March
2nd at 8 o’clock at the resi-
dence of Mrs. G. Gottfred
cor. Elm and Academy Rd.
Hostesses will be Mrs. G.
Gottfred and Mrs. E. Helga-
son^
☆
Meðal utanbæjargesta á
þjóðræknisþinginu voru Mrs.
Petrea Petersón, Mrs. Helga
Árnason, Mrs. Ásta Sigurd-
son, Mr. Walter Johannson,
Mr. Oscar Gíslason, Mr. Árni
Sigurdson og Mr. Bergur
Johnson.
☆
— DÁNARFREGN —
Á sunnudaginn 18. febrúar
lézt Stefán Ólafsson frá
Riverton á Almenna spítalan-
um hér í borginni. Hann var
60 ára að aldri og hafði lengi
átt við sjúkdóm að stríða, er
hann bar með karlmennsku.
Foreldrar hans voru Stefán
Ólafsson og Jóhanna María
Friðriksdóttir frá Víðidals-
tungu í Húnafirði, bæði
látin. Auk ekkju sinnar
Kristínar, lætur Stefán eftir
sig tvo sonu, Stefán og Harold;
fimm dætur, Mrs." George
Gerard, Mrs. B. Thordarson,
Mrs. L. Blaise, Mrs. J. Mark
og Connie; ennfremur stjúp-
föður sinn Soffanías Thor-
kelsson; þrjár hálfsystur, Mrs.
R. Flint, Mrs. M. Robinson og
Miss Sarah Thorkelson; tvo
hálfbræður, Paul og M. Thor-
kelson. Barnabörn hans eru
fimmtán. Útförin var gerð
frá lútersku kirkjunni í
Riverton. Séra Bragi Frið-
riksson flutti kveðjumál.
☆
Stúkan HEKLA I.O.G.T.
heldur næsta fund sinn
þriðjudaginn 6. marz n.k. á
venulegum stað og tíma.
MESSUBOÐ
Fyrsta lúterska kirkja
Sr. V. J. Eylands, Dr. Theol.
Heimili 686 Banning Street.
Sími 3-0744.
Guðsþjónustur á hverjum
sunnudegi:
Á ensku kl. 11 f. h.
Á íslenzku kl. 7 e. h.
Allir ævinlega velkomnir
☆
ST. STEPHEN'S
LUTHERAN CHURCH
— Silver Heighis —
Eric H. Sigmar, Pastor
Services in St. James
Y.M.C.A., Ferry Road South
(just off Portage).
Sunday March 4th:
Sunday School 9:45 A.M.
Worship Service 11 A.M.
☆
Lúterska kirkjan í Selkirk
Sunnud. 4. marz:
Ensk messa kl. 11 árd.
Sunnudagaskóli kl. 12.
íslenzk messa kl. 7 síðd.
Fólk boðið velkomið.
S. Ólafsson
☆
Langrulh Lutheran Church
Sunday March 4th:
Service at 7.30 P.M.
Rev. Eric H. Sigmar
Kvenfélagið Sólskin, sem
vinnur aðallega fyrir elli-
heimilið Höfn, hélt spilasam-
komu og sölu á heimatilbún-
um mat í febrúar.
Fundur var haldinn seinna
í mánuðinum og var samþykt
að kaupa Television fyrir
heimilið. $100.00 voru settir í
sjóð og ákveðið að hafa spila-
samkomu einu sinni í mánuði
þar til nægilegir peningar eru
fengnir til að borga fyrir T.V.
Embætf-ismenn
Þjóðræknisfélagsins
auk forseta og varaforseta
Ritari, Ingibjörg Jónsson
Vararitari,
Finnbogi Guðmundsson
Féhirðir, G. L. Johannson
Varaféhirðir,
Hólmfríður Danielson
Fjármálaritari,
Guðmann Levy
Aaðstoðarfjármálaritari,
Ólafur Hallsson
Skjalvörður,
Ragnar Stefánsson
Endurskoðendur:
J. Th. Beck
Davíð Björnsson.
Stórfelidasta tjón
Framhald af bls. 5
Gemlingarnir drukknuðu
Svartárdal í gær.
Þetta er eitthvert það mesta
rok, sem hér hefir komið. Á
Bollastöðum fauk jeppi niður
í gil við Blöndu og 23 geml-
ingar drukknuðu á Skegg-
stöðum í Svartárdal. Jeppinn,
sem fauk á Bollastöðum, stóð
í túninu. Bendir það nokkuð
til veðurhæðarinnar, að svo
þungt stykki skyldi fjúka
nokkurn veg og niður í gil,
sem liggur að Blöndu.
Samfara veðurofsanum
urðu flóð með þeim afleiðing-
um að tuttugu og þrjá geml-
inga flæddi inni í fjárhúsi á
Skeggstöðum og voru þeir
drukknaðir, þegar að var
komið.
í Þverárdal fauk um einn
þriðji af þaki íbúðarhússins.
Auk þessa fauku hey á stöku
stað, þótt ekki hafi það verið
mikið. Ekki fór að draga úr
veðurhæðinni hér fyrr en
klukkan að ganga tvö um
nóttina. —G.H.
Ekki einfært milli fjóss
og bæjar
Varmahlíð í gær.
Á Vatnsskarði fauk fjárhús
og ,lenti brak úr því á íbúðar-
húsinu og braut rúður í því.
Enn fremur slitnaði símalínan
heim að húsinu af sömu
ástæðu og raflían frá rafstöð
jarðarinnar. Þak fauk af fjár-
húsi á Fjalli í Sæmundarhlíð.
Skepnur þær, sem í húsunum
voru, mun ekki hafa sakað.
—TIMINN, 3. febr.
pwp
Æé
ím2
EATON'S of CANAC )A
’U'A
^ j I ■ í ‘ 0 v :
| ... J l
.. Á
Hvar, sem leið yðar liggur
í Canada
Býður EATON'S
yður þjónustu sína
Með hhðsjón af því, að við hendi eru 56
búðir að viðbættum 4 póstpantanamið-
stöðvum og yfir 260 pantanaskrifstofum
frá strönd til strandar, er EATON’s til
taks varðandi leiðbeiningar um val fyrsta
flokks vörutegunda, sem seljast við sann-
gjörnu verði. Þér getið verzlan í fullu
öryggi þar sem þér njótið trygginga vorra
síðan 1869.
"Vörur óaðfinnanlegar eða andvirði
endurgreilt"
^T. EATON C
WINNIPEG CANADA
Stærstu smásölusamtök í Canada
SPARIÐ MEÐ
$265 HRINGFERÐ
BEINT TIL
ÍSLANDS!
Lægsia far til Evrópu af hinum
skipulagsbundnu flugfélögum. —
Fljúgið á einni nóttu með IAL,
yðar eigin félagi . . . beint til
Reykjavíkur. Lending á áætlunar-
tíma. Douglas öryggi. Á hverri
flugvél eru sex ameríkulærðir
flugmenn, aðeins 52 farþegar . . .
en slíkt tryggir aukin þægindi og
fullkomnari þjónustu.
fCEl
25 Wcst 45f7; Street, New Tork 36, N. T.
Tel. Circle 7-1490