Lögberg - 11.04.1957, Blaðsíða 8
8
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 11. APRÍL 1957
Úr borg og bygð
The Icelandic Canadian Club
will hold its next meeting
on Monday, April the 15th.
This time the members will
meet in the Assembly Room,
on the first floor of the C.B.C.
Studios at 541 Portage Ave.,
at 8 p.m. sharp.
Mr. Gustaf Kristjanson, a
member of the studio staff,
will then guide the group on
an inspection tour of the
stundios. This should take
about an hour. After that the
group will proceed, by cars, to
the Federated Church on
Banning St. where a short
meeting will be held.
Mr. Kristjanson will then
speak and briefly bring his
listeners up tb date on the
subject of television and radio.
Refreshments will be ser-
ved as usual. —L. V.
☆
Rödd frá Foam Lake. Sask.
30. marz 1957
Kæri vinur, Einar P. Jónsson,
ritstjóri Lögbergs:
Ég þakka þér fyrir Lögberg,
og góða viðkynningu í liðinni
tíð. „Án Lögbergs get ég ekki
lifað.“ Það hefi ég heyrt mann
segja, sem ég vissi að ekki
hafði borgað blaðið til fleiri
ára!!
Með þessum miða sendi ég
þér póstávísunar-snepil og
ljóðarugl, sem þú getur sett í
blaðið, ef þér sýnist — og ef
þú nennir að lesa „ruglið“ þá
lagar þú ritvillur og setur
lestrarmerki eftir þínu höfði.
Viltu senda blaðið til Box 28,
Foam Lake, Sask., þar til ég
geri þér aðvart. — Ég dreg
dám af fornmönnum sumum,
þeim sem höfðu fleiri en eitt
bú. Ég hefi búið í gamla land-
náminu mínu við Foam Lake
að undanförnu, og verð þar
að mestu þar til stjórn er upp-
stiginn, og þjóðvegir vel
þurrir: þá ríð ég á milli „stór-
búanna“ að fornmanna sið, þó
að meðreiðarsveinar verði
stundum færri.
Berðu konu þinni kveðju
mína með þökk fyrir hennar
hlutdeild í ritstjórn Lögbergs.
Lifið bæði lengi heil og sæl.
Vinsamlegast,
Jakob J. Norman
☆
Séra Valdimar J. Eylands,
kom heim s.l. laugardag frá
Columbus, Ohio, en þangað
hafði hann farið um fyrri
helgi og setið þar fund forseta
kirkjufélaganna, sem mynda
hina Sameinuðu lútersku
kirkju í Ameríku, en 'íslenzka
lúterska kirkjufélagið er eitt
þeirra félaga. Tíðarfar kvað
hann hafa verið mjög um-
hleypingasamt þar syðra, stór-
rigningar og hvassviðri flesta
dagana, og stórhríð á heim-
leiðinni frá Chicago til
Minneapolis.
☆
Þeir B. J. Lifman frá Ar-
borg og Árni Brandson frá
Hnausum komu til borgarinn-
ar á mánudaginn.
☆
Stefán Eiríksson frá Djúpa-
dal í Skagafjarðarsýslu, sem
árum saman hefir gefið sig að
hótelstörfum í Cypress River,
er í þann veginn að leggja af
stað alfari til íslands og siglir
frá New York hinn 19. með
Goðafossi. Stefán hefir eign^
ast hér fjölda vina, er þakka
honum góða samfylgd og árna
honum góðs brautargengis.
Sjónvarp fró
Reykjavík
Síðastliðið sunnudagskvöld
■gafst sjónvarpsáhorfendum og
hlustendum hér í borg kostur
á að njóta sjónvarpsviðtals
frá Reykjavík og kynnast í
frásögn og útliti þeim per-
sónum, sem áttu hlut að máli,
en það voru þeir herra Ásgeir
Ásgeirsson forseti, Bjarni
Benediktsson fyrrum utan-
ríkisráðherra og Hannibal
Valdimarsson ráðherra og al-
þingismaður.
Amerískur blaðamaður,
Gordon að nafni, stjórnaði
þessum þætti, og auk á-
minstra, íslenzkra leiðtoga,
lagði hann spurningar fyrir
yfirforingja setuliðsins á ís-
landi, er bar landi og þjóð hið
bezta söguna.
Maður, sem kann mikið af
erlendum málum, er kallaður
„polyglot.” Mezzofanti kardí-
náli, sem dó fyrir 100 árum,
er sagður hafa verið mesti
málamaður, sem uppi hefir
verið. Árið 1833 var hann
skipaður bókavörður við bóka
safn Vatikansins, og gat hann
þá lesið skrifað og talað yfir
60 tungumál. Margar mál-
lýzkur kunni hann og, en
taldi þær ekki með í mála-
fjöldanum. Segja mátti, að
hann gæti rætt við menn frá
hverju einasta landi jarðar-
innar.
* * *
Afkastamesti rithöfundur
síðari tíma er Georges Simen-
on. Hann hefir skrifað 350
skáldsögur, ýmist undir sínu
eigin nafni eða dulnefnum.
MESSUBOÐ
Fyrsta lúterska kirkja
Sr. V. J. Eylands, Dr. Theol.
Heimili 686 Banning Street.
Sími SUnset 3-0744.
Guðsþjónustur á hverjum
sunnudegi:
Á ensku kl. 11 f. h.
Á íslenzku kl. 7 e. h.
Allir ævinlega velkomnir
| ☆
Lúierska kirkjan í Selkirk
Sunnud. 14. apríl:
Ensk messa kl. 11 árd.
Sunnudagaskóli kl. 12
Islenzk messa kl. 7 síðd.
Fólk boðið velkomið.
S. Ólafsson
Ef menn koma úr dagsbirtu
niður í t. d. dimman kjallara,
víkkar sjáaldur augans það
mikið, að það hleypir 50 sinn-
um meira ljósmagni inn í aug-
að en áður.
Miss Jónína Johnson (dóttir
Mr. og Mrs. J. B. Johnson á
Gimli) lagði af stað til Banda-
ríkjanna 27. marz s.l. Hún er
ráðin skrifstofustúlka hjá Dr.
Jóhanni V. Johnson, bróður
sínum, í Marshalltown, Iowa.
Miss Johnson hefir unnið s.l.
sjö ár í pósthúsinu hjá The T.
EATON félaginu í Winnipeg-
borg. Heillaóskir fylgja Miss
Johnson frá vinum hennar á
Gimli.
----0----
Tuttugu og fimm ára gift-
ingarafmælis Mr. og Mrs.
Björgvins Albertson að Arnes,
Man., var minnst með samsæti
í samkomuhúsinu í Arnes að
kveldi hins 30. marz. — Mr. og
Mrs. Valdi Sveinsson leiddu
heiðursgestina til sætis. Mrs.
S. A. Sigurdson stjórnaði
samsætinu. Mrs. Leifi Peter-
son mælti fyrir minni brúð-
arinnar, Mr. Ágúst Elíasson
ávarpaði brúðgumann. Skemt
var með söng og ræðuhöldum.
Þeir sem ræður fluttu og af-
hentu gjafir voru: Mrs. S.
Thorkelsson fyrir hönd kven-
félagsins, Mrs. V. Sveinsson
fyrir hönd skyldfólks brúðar-
innar og Mrs. S. A. Sigurdson
fyrir hönd skyldfólks brúð-
gumans. Eftir rausnarlegar
veitingar var endað með dans.
Brúðhjónin þökkuðu fyrir
góðvild og góðar gjafir.
ÞÓRIR ÞÓRÐARSON. dóeeni:
Guð og
Þegar Pompejus kom til
Damaskusborgar vorið 63 f.
Kr., hófst í rauninni síðasti
þáttur þess leiks, sem nefna
mætti „guðveldið í Jerú-
salem“. Á ýmsa vegu hafði
framvinda leiksins verið, at-
burðarásin margþætt og litir
á leiktjöldum bæði dökkir og
bjartir, konungar og kenni-
menn, valdsmenn og guðs-
menn verið persónur leiksins,
kúgun, ofríki. manngæzka og
æðsta trúarsýn búið í and-
svörum leikenda og athöfnum.
Þegar hér er komið leiknum,
er að ljúka að fullu og öllu
sjálfstæði og sjálfræði, en
tjaldið fellur ekki fyrr en
Jerúsalem er lögð í rúst árið
70 e. Kr. og Rómverjar byggja
hana og hafa að heiðinni borg
með heiðnum musterum og
líkneskjum og banna Gyðing-
um vist innan múra árið 135
e. Kr. Þau eru leikslokin. Inn
í þau fléttast samt upphaf nýs
leiks, gleðileiksins um hina
nýju Jerúsalem, og er Kristur
konungur hennar og Drottinn.
Makkabear eða Hasmónear
hétu furstar og konungar
Gyðinga mestalla síðustu öld-
ina fyrir Krists burð. Þeir
höfðu leyst þjóðina undan
valdi Sýrlendinga á annarri
öldinni f. Kr. en voru nú leyst-
ir af hólmi af hinum kynlitla
Heródesi, sem var konungur
Gyðinga 37—4 f. Kr. Gyðing-
ar fyrirlitu Heródes, því hann
Djáknanefnd lútersku
kirkjunnar á Gimli, heimsótti
Betel s.l. fimtudag, með kaffi-
veizlu og kryddbakstri, auk
skemtiskrár, sem Miss S.
Hjartarson forstöðukona elli-
heimilisins stjórnaði, að til-
mælum Mrs. J. H. Stevens
forseta félagsins. Mrs. Stein-
unn Valgardson hafði fram-
sögn á gömlu kvæði, upplest-
ur höfðu þær Mrs. Emma von
Renessee, Mrs. Sigríður Good-
man, Miss Sigríður Sigmunds-
son, Miss Sæunn Bjarnason og
Mrs.< Kristín Thorsteinsson.
Milli upplestra var skemt með
söng og var Mrs. Helgi Stev-
ens við hljóðfærið. — Allir
skemtu sér hið bezta.
-----0----
Þau hjónin Guðmundur og
Kristín Johnson, 109 Garfield
St., Winniþeg, ásamt Mrs.
Stefaníu McRitchie (systur
Mr. Johnson) hemisóttu Betel
í gærkvöldi, 7. apríl. — Frú
Kristín sýndi góðar myndir,
teknar í San Francisco, Seattle
og fleiri stöðum. Var það mjög
ánægjuleg kvöldstund fyrír
alla, sem skemtunar þessarar
urðu aðnjótandi. — Forstöðu-
kona Betel og vistfólk þakkar
innilega vel fyrir báðar þessar
heimsóknir.
Mrs. Kristín Thorsteinsson
Heródes
var hvorki konungborinn né
af Gyðingakyni, en Heródes
endurgalt hatur þeirra í sömu
mynt, nema hvað stjórn-
kænska hans bauð honum að
koma sér í mjúkinn hjá lýðn-
um með verklegum umbótum.
Grimmd hans þekkti engin
takmörk, en slægð hans og
stjórnkænska vakti Kaj Munk
til þess að skrifa um hann eitt
sinna beztu leikrita, er hann
nefndi En Idealist, hugsjóna-
maðurinn. Heródes var hug-
sjónamaður, en hugsjón hans
var valdið, þess vegna varð
hún „eldur, sem eyðir ofan í
undirdjúpin". Það fór eins og
Jesaja hafði kennt sjö öldum
áður: „Hinn voldugi skal
verða að strýi og verk hans að
eldsneysta, og hvorttveggja
mun upp brenna, hvað með
öðru“.
Hatur logaði undir við
glaðan leik og fjölskrúðugt
hirðlíf í höllum Heródesar.
Önnur kona hans, Mariamne I.
var koungborgin, af kyni
Makkabea, og hefir Salóme,
systir Heródesar, hatazt við
hana og sáð tortryggni í henn-
ar garð og sona hennar í huga
bróður síns, konungsins, og
það ekki að ófyrirsynju. Synir
Mariamne tveir, Alexander
og Aristobulus brugga laun-
ráð gegn Heródesi, föður sín-
um, og hálfbræðrum sínum.
Heródes lætur taka þá báða af
lífi árið 7 f. Kr., en á í þeirra
stað við slægð Antipaters að
etja, sonar síns og Dórísar.
Segir á bókum, að Heródes
lægi þá banaleguna, er 'hann
lét taka Antipater son sinn af
lífi, fimm dögum fyrir andlát
sitt, og dæi hann í Jeríkó árið
4 „f. Kr.“, tveim eða þrem
árum eftir fæðingu Jesú frá
Nasaret.
Þannig mætast í annálum
-sögunnar þessi tvö líf, Jesú og
Heródesar. Það munar ekki
nema þrem áratugum eða svo,
að þeir hittist í Jerúsalem,
konungurinn, sem allir óttast,
og hinn þyrnumkrýndi, sem
allir spotta. Sá hinn síðar-
nefndi gekk um götur Jerú-
salem, eigi alllan^t þar frá,
sem Heródes hafði reist höll
sína, og bar stóran bjálka á
baki. Skyldi hann hafa rennt
augum upp á turninn Fhasael?
—Mbl., 10. marz
Kaupir fvær
farþegafiugvéiar
Flugfélargs Islands bætir við
flota sinn nú í ár tveimur nýj-
um millilandaflugvélum, sem
búnar verða öllum þeim ný-
tízku þægindum, sem frekast
verður völ á; þetta eru fjögra
hreyfla vélar, sem kosta stór-
fé. Alþingi hefir veitt flug-
félaginu ríkisábyrgð til flug-
vélakaupanna, er nemur 33
miljónum króna, og flýtir það
mjög fyrir því, að vélarnar
komist í notkun.
Subscription Blank
COLUMBIA PRESS LTD. 303 Kennedy Street, Winnipeg 2
I enclose $ for . * Icelandic weekly, Lögberg. subscription to the
NAME
ADDRESS
City Zone
Fréttir frá Gimli, 8. APRÍL, 1957