Lögberg - 18.04.1957, Síða 4
4
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 18. APRIL 1957
*" ' ' ......................
Lögberg
Gefið út hvem fimtudag aí
THE COLUMBIA PRESS LIMITED
303 KENNEDY STRBET, WINNIPEG 2, MANITOBA
Utanáskrift ritstjórans:'
EDITOR LÖGBERG, 303 Kennedy Stree, Winnipeg 2, Manitoba
Ritstjóri: EINAR P. JÓNSSOfo
Skrifstofustjóri: INGIBJÖRG JÓNSSON
Verð $5.00 um árið — Borgist fyrirfram
“Lögberg” is publishéd by Columbia Press Limited,
303 Kennedy Street, Winnipeg 2, Maniy^ba, Canada
Printed by Columbia Printers
Authorized as Second Class Mail, Post Office Department, Ottawa
PTIOVE 93-9931 ______
Aðvörun f’il Canada
Stórblaðið Manchester Guardian, eitt hið áhrifamesta
dagblað, sem gefið er út í hinum enskumælandi heimi, birti
um helgina ritstjórnargrein, sem í sér felur aðvörun til
Canada um að láta ekki sjálfsmorð hihs canadiska sendiherra
í Cairo veikja svo hið rótgróna vináttusamband milli Canada
og Bandaríkjanna, að til stórtjóns geti leitt á vettvangi al-
þjóðamála; blaðið er engan veginn mjúkyrt í garð rann-
sóknarnefndar öldungadeildarinnar í Washington, er tók sér
fyrir hendur að stimpla Mr. Norman sem kommúnista; ekki
telur blaðið það neitt undrunarefni, þó canadisku þjóðinni
sé þungt innan brjósts vegna óverðskuldaðrar árásar á
mannsæmd eins af hennar ágætustu sonum; en telur á hinn
bóginn æskilegt að þess sé gætt, hve Eisenhower forseti hefir
lagt sig í líma um að bera smyrsl í sárin og draga úr þeirri
skiljanlegu andúð, sem skapast hefir norðan landamæranna.
Manchester Guardian lýkur áminstri ritstjórnargrein
sinni með svofeldum orðum: .
„Mr. Lester Pearson, utanríkisráðherra canadisku þjóðar-
innar, einn hinna glöggskygnustu og gætnustu manna, hefir
verið knúður til þess vegna hitnandi almenningsálits þjóð-
bræðra sinna, að lýsa yfir að svo geti farið, að Canada eigi
ekki annars úrkosta, en að fella úr gildi þau gagnskipti um
öryggisupplýsingar milli Canada og Bandaríkjanna, sem nú
eru við líði nema því aðeins, að Bandaríkjastjórn fullvissi
canadisk stjórnarvöld um, að þingnefndir í Washington geti
ekki gert sér mat úr slíkum upplýsingum.“
Með áminstum kröfum telur Manchester Guardian að
Canada hafi gengið feti framar en góðu <hófi gegndi og þess
vegna sé frekari yfirvegunar þörf. —
★ ★ ★
Þingrof og nýjar kosningar
Svo sem talið var nokkurn veginn víst, síðustu vikur
þingtímans, var sambandsþing rofið síðastliðinn föstudag og
nýjar kosningar fyrirskipaðar þann 10. júní næstkomandi;
þingstörf gengu að heita mátti stórslysalítið; með hinu öfluga
þingfylgi, fékk stjórnin hrundið í framkvæmd svo að segja
hverju einasta og einu máli, er hún taldi ómaksins vert að
næði fram að ganga og mátti helzt svo að orði kveða, að
stjórnarandastaðan kæmist helzt ekki upp með nokkurn
skapaðan hlut, jafnvel þótt aðfinslur hennar væri á lítt vé-
fengjanlegum rökum bygðar, en slíkt er alt annað en holt,
og lítt samboðið sönnu lýðræði.
Til sérstakra tíðinda mátti það teljast, að á þingi tók sæti
sem forústumaður íhaldsflokksins, John D. Diefenbaker,
þingmaður Prince Albert kjördæmisins í Saskatchewan, gáfu-
maður mikill og þjóðkunnur lögspekingur; hann tók við
flokksforustunni af George Drew, er láta varð af henni og
þingmenskunni jafnframt sakir heilsubrests. Mr. Diefenbaker
er mælskumaður mikill, og víst er um það, að hann verður
hér eftir eins og hingað til öflugur málsvari Vesturfylkjanna.
Við þingslit dundi það hvarvetna við, að sjálfsmorð
Normans sendiherra og afskipti sambandsstjórnar af málinu/
myndi koma til alvarlegra umræðna í kosningahríðinni af
hálfu stjórnarandstöðunnar; það mál á ekkert erindi inn í
kosningadeilur og grípur að engu inn í sannmat eða vanmat
á þeirri umboðsstjórn, sem far,ið hefir með völd í þessu landi
síðastliðin fjögur ár.
Flokksforingjarnir allir eru þjóðkunnir áhrifamenn;
aldursforseti þeirra, Mr. St. Laurent, er mikill vitsmuna-
maður og bardagahetja svo af ber, og það væri líka synd að
segja, að hinir forustumennirnir, þeir Diefenbaker, Coldwell
og Low væri væskilmenni á vettvangi stjórnmálanna; þeir
eru allir viðurkendir hæfileikamenn.
Viðskiptamálaráðherrann, C. D. Howe, spáir því, að
að stjórnarandstaðan muni beita hvers konar þrælatökum
meðan á kosningahríðinni standi.
Additions to Betei Building Fund
In loving memory of our
dear husband and father
Lárus Björnsson:
Mrs. Margaret Björnsson,
Fraserwood, Man. $30.00
Mr. & Mrs. E. D. Stanley,
Fraserwöod, Man. 5.00
Mr. & Mrs. Grant Schappert,
Shellbrooke, Sask., 5.00
Mr. Richard Björnsson,
Fraserwood, Man., 5.00
Miss Aldís Björnsson,
Fraserwood Man., 5.00
Miss Elizabeth Björnsson,
Fraserwood, Man., 5.00
--------------0-—
In loving memory of our
loving brother-in-law and
friend, Lárus Björnsson:
Mr. & Mrs. Bill Stasnik,
Pontiac, Mich., $5.00
Mr. & Mrs. Bill Barry,
Lum, Mich. 5.00
Mr. & Mrs. Wilmar Olson,
Harwood, N.D., 5.00
Mr. & Mrs. Tote Olson,
Vita, Manitoba, 2.00
----0----
Mr. & Mrs. Magnús Elíasson,
2159 Osler St.,
Regina, Sask. $10.00
In memory of Margrét
Sigurðardóttir, who passed
away at “Betel” in 1942.
----0----
Dr. B. N. Arnason,
2975 Angus St.,
Regina, Sask. $25.00
----0----
Mrs. Jona Halvorson and
Miss Ruth Halvorson,
2343 Rae St.,
Regina, Sask. $25.00
In loving memory of parents
and grandparents, Bjarni and
Thorunn Jónasson, formerly
of Selkirk, Manitoba.
—0-------
Walter S. Thorlakson and
Grace^ M. Johnson,.
381 Oakland Ave.,
Oakland, Calif., $10.00
Ih loving memory of Mrs.
S. O. Thorlakson and Mrs.
Bertha (Búason) MacLeod.
--------------0----
Federated Ladies Aid,
Hecla, Manitoba, $10.00
----0----
Mr. H. Sigurdsson,
1^40—6 Ave.,
San Francisco, Calif. $10.00
-----------0-—
Mrs. Oddfríður Johannson,
Gimli, Manitoba, $10.00
í kærri minningum um
manninn minn Jón Ólaf Jo-
hannson og kæran tengda-
bróður Sigurpálma Johann-
son.
----0---
W. J. Arnason,
72 — 6th Ave. Gimli $10.00
In loving memory of Hannes
Kristjanson and Palmi Jo--
hannson. -
—0------
Mr. Peter Karowchuk,
Gimli, $3.00
—-0-----
Mr. & Mrs. Helgi Eyolfson,
Foam Lake, Sask.
Mr. & Mrs. Fred Borgford,
Cloverdale, B.C.,
Mrs. Lottie Jenson,
Elfros, Sask.,
Miss Octavia Borgford,
Vancouver, B.C.,
Mr. & Mrs. Joseph Finn-
bogason, Elfros, Sask.,
The grandchildren & Great
grandchildren, $15.00
In loving memory of our
Þokkarbréf til
íslenzkra
Goddtemplara
Winnipeg, 15. apríl 1957
Miss Stefanía Eydal,
Ste., 19, Vinborg Apts.,
Agnes Street, Winnipeg.
Kæra Miss Eydal:
Mér er það mikið ánægju-
efni, að senda þér sem skrifara
íslenzku Goodtemplarasam-
takanna þessar línur og biðja
þig að koma á framfæri við
meðnefndarmenn þína inni-
legu hjartans þakklæti fyrir
hið mikla drengskaparbragð
íslenzku stúknanna Heklu og
og Skuldar, að gefa í bygg-
ingarsjóð Betel $10.800.00. —
Slík höfðingslund ber fagurt
vitni norrænni skapgerð, sem
þorir að hugsa hátt og horfast
í augu við framtíðina.
íslenzkir Goodtemplarar. —
Stórtækni ykkar varðandi hið
mikla metnaðar- og mannúð-
armál okkar allra, Betel, mun
lýsa langt inn 1 ókomin ár
sem minnisvarði framtaks og
fórnarlundar.
í umboði byggingarsjóðs-
nefndar Betel,
Greliir Eggerison, formaður
f j ár söf nunarnef ndar.
dear parents and grand-
parents Mr. & Mrs. Magnús
Borgford of Gimli, Manitoba.
----0----
From the associates and city
emplayees of the City of
Berkeley, California $50.00
In loving memory of Bertha
MacLeod (Mrs. John MacLeod,
1438 Edith Street, Berkeley,
California), who passed away
on March 9, 1957.
----0----
Mr. & Mrs. I. Oddleifson,
•-■130 5th Ave. N.E.,
Dauphin, Man. $25.00
Mr. & Mrs. J. M. Barr,
124 — 3rd Ave. N.E.,
Dauphin, Man., 5.00
Mrs. C. O. Odell,
Ste. 10, Breslow Blk.,
Dauphin, Man., 1.00
Mr. Arni Sveinbjornson,
124 — 3rd Ave. N.E.,
Dauphin, Man. 1.00
" Befe 17' $180,000.00
Building
Campaign Fund
---—180
i_
—160
Make your donalions to ihe
"Beiel" Campaign Fund.
123 Princess Sireet,
Winnipeg 2.
Sendið peninga á öruggan hótt
Hvenær, sem þér hafið í hyggju að senda peninga til ættlands yðar,
eða hvar, sem vera vill í Canada, skuluð þér syrjast fyrir í The
Royal Bank of Canada. Engu máli skiptir um upphæðir, vér
sendum þær á öruggan hátt, vafningalaust og með litlum tilkostnaði.
Viðskipti yðar eru kærkomin
THE ROYAL BANK OF CANADA
Hveri úlibú nýiur trygginga allra eigna bankans,
sem nema yfir $3,500,000,000.