Lögberg - 16.05.1957, Page 8
8
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 16. MAI 1957
Úr borg og bygð
— Sjálfslæðisminnlng —
Á mánudaginn 17. júní n.k.
m i n n i s t Þjóðræknisdeildin
Frón lýðveldisstofnunar ís-
lands í Sambandskirkjunni kl.
8.15 e. h. — Skemmtiskráin
verður auglýst síðar, en von-
ast er til að meðlimir og vel-
unnendur Fróns hafi þetta í
hyggju. Þess má geta að
kveðjur verða fluttar' frá ís-
landi og sveitum hér vestra,
en auk þess verður þarna
skemmt með ræðu, upplestri
og söng. í sambandi við upp-
lesturinn má geta þess að flutt
verður frumsamið kvæði.
☆
A chartered bus, taking
delegates to the Convention of
the Lutheran Women’s League
at Arborg, will leave the First
Lutheran Church, Victor St.,
Winnipeg, May 31st, at 9.30
a m. D. S. T. and will pick up
delegates at Selkirk and
Gimli. The bus will leave
Arborg, Sunday, June 2nd, to
attend the official opening of
the Betel Old Folks Home at
Gimli which commences at
2.30 p.m. D. S. T.
☆
Mr. Elías Elíasson trésmíða-
meistari frá Vancouver, B.C.,
lagði af stað til íslands að-
faranótt mánudagsins í fyrri
viku; ferðaðist hann með Pan
American Airways frá New
York til Reykjavíkur. Elías er
Vestur-Skaftfellingur að upp-
runa; hann ráðgerði að dvelja
á Islandi í fjóra til fimm mán-
uði; auk þess að heimsækja
æskustöðvar sínar, mun hann
dvelja alllengi í Reykjavík, en
þar á hann systur og systur-
son, Helga Elíasson fræðslu-
málastjóra.
Lögberg árnar Elíasi góðs
brautargengis og heillar heim-
komu.
☆
— DÁNARFREGNIR —
Thorsíeinn Oliver lézt á
föstudaginn 10. maí, 88 ára að
aldri. Hann stundaði búskap
um 32 ára skeið að Winni-
pegosis, Manitoba, en síðustu
árin dvaldi hann ásamt konu
sinni, Ingiríði, hjá syni þeirra,
Kristni Oliver, að Kirkfield
Park. Auk ekkju hans og
Kristins, lifa hann tveir synir,
Sigurður og Guðlaugur, sjö
barnabörn og 24 barna-barna-
börn. Útförin fór fram frá
Bardals á þriðjudaginn; séra
P. M. Pétursson jarðsöng.
Thorsteinn var ættaður af
Eyrarbakka, vinsæll maður og
góður drengur.
Frank L. Goodman, Super-
ior Avenue, Selkirk, Man., dó
á mánudaginn 6. maí að heim-
ili sínu, 83 ára. Hann var fyrr-
um kaupmaður. Hann lætur
eftir sig eitt sonarbarn og
tengdadóttur, Mrs. Chris
Goodman. Sonur hans, Chris,
lézt í Seattle, Wash., fyrir
mánuði síðan. Séra Sigurður
Ólafsson flutti kveðjumál.
KAUPIÐ og LESIÐ
—LÖGBERG!
fojwswiwn
THE THIRTY-THIRD CONVENTION
OF THE LUTHERAN WOMEN'S LEAGUE
OF MANITOBA (ICELANDIC)
will be held at
ARBORG, MANITOBA, May 31st, June lst and 2nd, 1957,
under the auspices- of the Ladies Aids of Arborg,
Vidir and Geysir.
Friday, May 31st—Opening of Convention at Arborg at 2 p.m.
Business session until 6 p.m.
EVENING PROGRAM AT ARBORG
Vocal Trio.............................The Johnson Trio
Address — “Contentment” ............. Mrs. Dora Johnson
Piano Solo .............................Carol Bardarson
Address — “Resist” ..............Mrs. Ingibjorg Olafsson
Choir Selections.....................Ardal Church Choir
Saturday, June lst—9.30 a.m. to 12.00 p.m. Business Session
1.30 p.m. to 3.00 p.m. Business Session
3.00 p.m. to 4.00 p.m. Handicraft Display
4.00 p.m. to 6.00 p.m. Business Session
í
EVENING PROGRAM AT VIDIR
Vocal Trio ...........................The Finnson Trio
Address — “Child Welfare in Manitoba,” Miss Asta Eggertson
Violin Solo ...........................Johannes Palsson
Address — “Pictures of Iceland” Miss Ingibjorg Bjarnason
Junior Choir Under direction of Lilja Martin and J. Palsson
Sunday, June 2nd—11.00 a.m. Divine Service conducted by
Pastor J. Larson.
/
A chartered bus will leave the First Lutheran Church,
Victor St., Winnipeg, at 9.30 a.m. D.S.T. May 31st and wiil
pick up delegates at Selkirk and Gimli.
Valdxne Scrymgeour, Secretary.
MESSUBOÐ
Fyrsta lúterska kirkja
Sr. V. J. Eylands, Dr. Theol.
Heimili 686 Banning Street.
Sími SUnset 3-0744.
Guðsþjónustur á hverjum
sunnudegi:
Á ensku kl. 11 f. h.
Á íslenzku kl. 7 e. h.
Allir ævinlega velkomnir
☆
Lúterska kirkjan í Selkirk
Sunnud. 19. maí:
Ensk messa kl. 11 árd. *
Sunnudagaskóli kl. 12.
íslenzk messa kl. 7 síðd.
Fólk boðið velkomið.
S. Ólafsson
VEITIÐ ATHYGLI!
Svo sem tilkynningin á öðr-
um stað í blaðinu skýrir frá,
verður hin nýja bygging við
Betel vígð og formlega tekin
til afnota á sunnudaginn 2.
júní kl. 2.30 e. h.
Allir eru boðnir og velkomnir.
— VEIZTU ÞETTA —
Qit er talað um eðlisþyngd
einhvers efnis, en menn eru
litlu nær, vegna^þess að þeir
vita ekki hvernig eðlisþyngd
er reiknuð. En hún er hlut-
fallið milli ákveðins rúmmáls
af vatni 4 stiga heitu (þá er
það þyngst). Eðlisþyngd kvika
silfurs er talin um 13 ¥2, en það
þýðir að kvikasilfur sé 13 Vz
sinnum þyngra en sama rúm-
mál vatns.
----0----
Stundum kemur það fyrir
að gler á myndum brotnar án
þess að neitt komi við það.
Þetta á sér þó eðlilega orsök.
Þegar mikill hiti er í stofuniíi
þenst glerið meira út heldur
en tréð í umgjörðinni. Og sé
umgjörðin þröng, er ekkert
rúm fyrir glerið, það svignar
og brotnar, og brotin þeytast
út á gólf.
----0----
Okkur er kennt að vatn
sjóði við 100 stiga hita á
Celsíus. En þetta á aðeins við
ef um meðal loftþunga er að
ræða. Uppi á háfjöllum, þar
sem loftið er miklu léttara,
sýður vatn við minni hita,
jafnvel 75 stig, þar sem loftið
er sérstaklega þunnt.
Ef hún Góa öll er góð,
öldin skal það muna,
þá mun Harpa, hennar jóð,
herða veðráttuna.
Ýmis stór villidýr að verða aldauða
á Indlandi
Frmahald af bls. 5
unda, svo sem nashyrningsins,
pardusdýrsins, svart-hafurs-
ins, gazellunnar o. fl. Einnig
þarf að friða hina stóru ind-
versku trappgæs.
Nefndarmenn létu fljótt í
ljós, að þeir vildu sérstaklega
láta hafa gát á tilteknum
landssvæðum. Furstinn af
ríkan þátt í fækkun dýra, að
Gwalior gat þess, að það ætti
það hefði tíðkast að bjóða
virðingamönnum sem væri í
heimsókn, að fara í veiði-
ferðir í veiðilöndum ýmissa
fursta.
Tító frá Júgóslavíu var ný-
lega í heimsókn hjá þessum
fursta. Honum var boðið út í
veiðilendurnar, en hann skaut
ekkert, hann tók aðeins
myndir.
Furstinn í Gwalior tilkynnti
líka, að hann vildi láta banna
veiðifélögin, svonefnda safar-
klúbba. Væri þau stofnun í
gróðaskyni og í þeim tilgangi,
að fá til landsins útlendinga,
sem hygðust veiða hin stóru
villidýr. Furstinn stakk upp á
því, að stjórnin leyfði ekki
skrásetningu slíkra dýra.
Þessar viðræður nefndar-
innar voru aðallega undir-
búningur, en gæzluráðið, sem
ber ábyrgð á vernd eða friðun
dýralífsins, mun hafa á dag-
skrá sinni, að benda á mögu-
leikana til þess að örva veiði-
mannastraum til landsins. —
Munu þá hafðar hömlur á
veiði og ekki leyfð meiri veiði
en verndun dýrastofna leyfir.
Dýraverndarráð suðurhluta
landsins leggur til, að trapp-
gæsin indverska sé algerlega
friðuð, einnig pardusdýrið,
svo og villigeit, er nefnist tahr,
hún er skegglaus og á heima
í Himalaya-fjöllum. Malabar-
íkornann vill dýraverndarráð-
ið láta friða, en hann er mjög
stórvaxinn. Dýraverndarvinir
á Suður-Indlandi vilja líka
láta friða fjórar sérstakar teg-
undir af hyrndum antílópum,
gazellur og svart-hafurinn.
Á Suður-Indlandi mun of-
veiði ekki vera að neinu leyti
ferðamönnum að kenna. Þar
stunda veiðina þjóðflokkar,
sem hafa hana að atvinnu, og
flytja sig stað úr stað.
Eitt af þeim dýrum, sem nú
eru orðin fágæt er nashyrn-
ingurinn, einhyrndur nas-
hyrningur. Hann er nú enn til
í Assamog Napal. Álíta menn
þar í landi, að einhver töfra-
kraftur fylgi horninu. Það er
mulið niður og notað í lyf. Er
því mikil eftirspurn eftir því.
<N. Y. Times)
—VÍSIR
Sönn ást er það, þegar
stúlka giftist yfirboðara sín-
um og vinnur kauplaust hjá
honum það sem eftir er
ævinnar.
☆
— Hafið þér ekki heitt og
kalt vatn hérna í veitinga-
húsinu?
— Jú, heitt á sumrin og
kalt á veturna.
BETEL
Qld Folks Home
GIMLI, MANITOBA
You are cordiálly invited to
attend The Deligation Service
and Official Opening of the
new building
Sunday, .Tune 2nd at 2:30 p.m.
bittf.l executxvf: board
KIRKJUÞING
Hið sjötugasta og þriðja ársþing hins evangeliska
lúterska kirkjufélags Islendinga í Vesturheimi verður
sett með opinberri guðsþjónustu að kvöldi sunnu-
dagsins 23. júní 1957 í kirkju Víkursafnaðar að
Mountain, N.D. Söfnuðir kirkjufélagsins hafa rétt, og
þeim ber Skylda til að senda einn fulltrúa á þing fyrir
hverja hundrað fermda meðlimi, eða brot af hundraði,
en þó þannig að enginn sö'fnuður hafi fleiri en fjóra
fulltrúa á þingi. Ennfremur er Bandalagi lúterskra
kvenna heimilt að senda tvo fulltrúa. Hlutaðeigendur
eru áminntir um að neyta réttar síns og senda fulltrúa
á þingið.
Embættismenn og fastanefndir leggja fram
skýrslur samkvæmt dagskrá, sem birt verður á þing-
staðnum.
t
Winnipeg, Manitoba, 6. maí 1957.
VALDIMAR J. EYLANDS, forsoti.