Lögberg - 30.05.1957, Page 1

Lögberg - 30.05.1957, Page 1
SAVE MONEYI use LALLEMAND quick rising DRY YEAST In V< Lb. Tlns Makes the Flnest Bread Avallable at Your Favorlte Grocer SAVE MONEYI use LALLEMAND quick rising DRY YEAST In Ví Lb. Tlns Makes the Finest Bread Avallable at Tonr Favorlte Grocer 70. ÁRGANGUR WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 30. MAI 1957 NÚMER 22 Samkoma að Geysir 17. maí Flytur fjölda af raeðum Komnir til íslands Það var gaman að vera að Geysir um daginn, því gleðinnar ríktu þar veizluhöld, — og það var hvert einasta sæti setið í salnum þetta umrædda kvöld. Það var leikið og sungið af lífi og fjöri svo ljómuðu andlit af hrifning og þrá, er íslenzku ljóðin og „ylhýra málið“ ómaði barnanna vörum frá. Og" æskunnar framsögn í ljóði var lipur og lýsti ekki glötunarsýki né kröm, — og mér er til efs, að á Islandi sjálfu áhrifin verði eins hamingjusöm. Það kann nú að álítast öfg- ar, að halda því fram sem felst í þessum erindum. Því fer þó fjærri. Skemtunin var ein sú yndislegasta sem ég hefi verið á af þessu tagi um margra ára skeið. Flestum er Ijóst, að hreinar og fagrar barna og ungling^ raddir, vel þjálfaðar í fram- sögn og söng, eru hrífandi. Þegar við hjónin fórum á samkomuna að Geysir þann 17. maí, var ég sannfærður um, að við mundum skemta okkur vel, en að til eyrna okkar bærist svona hrífandi skemtun, dreymdi okkur ekkl um. Það er ekki mögulegt, sök- um takmarkaðs rúms í blöð- unum okkar, að segja hér allt sem mig langar til, eða lýsa hverju atriði á skemtiskránni. Verð því að stikla á steinum og stinga við fót. Þess skal getið, að þarna sungu tveir kórar, barna- og unglingakór. I öðrum voru 36 börn á aldrinum frá 3ja til 10 ára og söng þessi lög. „Fuglinn í fjörunni“, „Krakkar úti kátir hoppa“, „Siggi var úti með ærnar í haga“ og „Fyrst allir aðrir þegja.“ I unglingakórnum voru 32 á aldrinum frá 9—16 ára, kom tvisvar fram um kvöldið og söng þrjú lög í hvert sinn, þessi: „Fífilbrekka gróin grund“, „Ó, blessuð vertu sumarsól“, „Nú yfir heiði háa“, „Á Sprengisandi“, „Svíf þú nú sæta“ og „Island! ís- land!“ Og þið ættuð bara að sjá og heyra h'vað þessir kórar sungu vel. Gayle, Irene og Faye, Finns- sons systurnar, 4—11 ára, sungu þessi lög: „Fyrr var oft í koti kátt“ og „Tíðin blíða lífi ljær.“ Kristín, Herdís, ólöf og Lilja, Johnsons systurnar, á aldrinum frá 11—17 ára, sungu þrjú lög: „Sú rödd var svo fögur“, „Hreðavatns-vals- inn“ og „Vögguljóð“, undir laginu “All Through the Night.“ 1 sambandi við söng þessara systra skal þess getið, að fyrir ekki löngu síðan hlustaði ég á skemtiskrá yfir TV-kerfið, sem heitir “Happy- land“, þar sem hinn vinsæli og góði söngvari, Kerr Wilson skemtir oft, og heyrði ég þar þrjár systur syngja. Þær sungu vel, en þegar ég bar þær í huganum saman við söng systranna í Nýja-lslandi, fann ég að Johnsons systurnar stóðu hinum talsvert framar. Það voru átta börn með framsögn í ljóði, og fprst þeim það svo vel, að ég reyni ekki að útlista það með orðum, því þau mundu ekki ná að túlka það rétt. En í þess stað vil ég hvetja alla, sem geta, að sann- færast um það sjálfir með því að fara norður til Geysir og hlusta á skemtiskrána, sem verður endurtekin, föstudags- kvöldið 7. júní næstkomandi. Tvö systkini, Valdina og Jón Martin, léku samspil á píanó og skemtu öllum ágæt- lega. Þá var sýndur gamanleikur, „Lási trúlofast,“ svo spreng- hlægilegur og vel leikinn, að það ætti enginn að sleppa tækifærinu að sjá hann 7. júní, því það mun engan iðra. Próf. Haraldur Bessason var síðgst á skemtiskránni með ræðu, sem var bæði vel samin og prýðilega flutt, og veit ég að margir hefðu ekkert á móti því, að heyra þá ræðu oftar en einu sinni. Geysilega mikið verk hefur verið lagt í að undirbúa þessa löngu og góðu skemtiskrá, er sýnir ljóslega fram á hver ár- angurinn verður, þegar vel og trúlega er unnið að íslenzkum málefnum, á hvaða sviði sem er. Festið í minni stund og stað og fjölmennið til Geysir 7. júní n.k., þegar þessi prýði- lega skemtiskrá verður endur- tekin. Það er gaman að gleðjast og hlæja með æskunni. Davíð Björnsson Dr. Richard Beck hefir und- anfarið flutt fjölda af ræðum við ýmis tækifæri. Miðviku- dagskvöldið þ. 8. maí var hann f u 111 r ú i ríkisháskólans í Norður-Dakota (University of N. Dakota) og aðalræðumaður í ársveizlu Félags fyrrv. há- skólastúdenta (Alumni Asso- ciation) í Williston, N.D. I ræðu sinni rakti hann sögu háskólans og ræddi framtíðar- horfur hans, en hann á bráð- lega 75 ára afmæli. Um há- degið sama dag hélt dr. Beck ræðu um alþjóðasamvinnu á fundi Kiwanis-klúbbsins í Williston. Þann 17. maí, á þjóðhátíðar- degi Norðmanna, flutti hann tvær ræður í Grand Forks, aðra í útvarp ríkisháskólans, en hina á fjölmennri samkomu í Sameinuðu kirkjunni lút- ersku þar í borg. Fjölluðu ræðurnar báðar um sjálf- stæðis- og framsóknarbaráttu norsku frændþjóðarinnar. Föstudagskvöldið þ. 24. maí hélt hann aðalræðuna við upp- sögn miðskólans í Bowesmont, N. Dak. Umræðuefni hans var „Lögeggjan samtíðarinnar“ (The Challenge of Today) og tók hann sérstaklega til með- ferðar alþjóða- og friðarmálin og þær kröfur, sem þau gera til hugsandi manna og kvenna. Arni G. Eggerison, Q.C. Síðastl. sunnudagsmorgun lögðu þeir bræður Arni G. Eggertson, Q.C. og Grettir Eggertson rafmagnsverkfræð- ingur af stað austur til New York áleiðis til íslands til að sitja ársfund Eimskipafélags- ins, sem haldinn verður í Reykjavík 1. júní; fer Arni með umboð vestur-íslenzkra hluthafa á fundinum, en Grettir situr jafnframt fund- inn, sem einn af stjórnar- nefndarmönnum; þeir bræður höfðu við orð að bregða sér til Danmerkur og Þýzkalands og munu verða hálfa þriðju viku að heiman. Greliir Eggertson, raffraeðingur Vatnsleiðsla í Gimli-bæ Á þriðjudaginn 21. maí var haldinn fjölsóttur fundur skattgjaldenda Gimlibæjar til að ræða um vatnsleiðslu og lokræsi fyrir bæinn. Hefir íbúum staðarins, sem nú er orðinn meir en 80 ára gamall, lengi leikið hugur á að koma þessu nauðsynjaverki í fram- kvæmd, ekki einungis vegna aukinna þæginda heldur og vegna heilbrigðis bæjarbúa. Nokkurrar mótspyrnu varð þá vart, sérstaklega meðal borg- arbúa er greiða skatta af sumarheimilum sínum á Gimli og dvelja þar aðeins tvo til þrjá mánuði ársins. Talið er að hér um bil hver einasti skattgreiðandi, sem hefir var- anlega búsetu á Gimli, hafi sótt fundinn og einnig margir borgarbúar, Sem eiga þar sumarheimili lögðu á sig ferð norður til að greiða atkvæði sitt. Úrslitin urðu þau, að samþykkt var af yfirgnæfandi meirihluta, 400 gegn 85 at- kvæðum, að hefjast þegar handa við að koma verkinu í framkvæmd. Bærinn selur skuldabréf upp á $350,000 til framkvæmdanna. Frá íslandi Dr. Jón Jóhannesson pró- fessor lézt í Reykjavík 4. maí, 47 ára að aldri. ----0---- 13. MAÍ Forseti íslands, herra Ás- geir Ásgeirsson, er staddur í Lundúnum. I gær átti for- setinn afmæli, og í dag gengur hann á fund Elísabetar Breta- drottningar. í konungsríki Klettafjalla (Ferðavísur) , Eftir RICHARD BECK Hlakkar mér hugur í barmi, háfjöll við sjón minni skína; er sem mér hefjist úr hafi, með heiðjökla tignina sína, ættjörðin ógleymanlega. FögnuðUr fyllir mér hjarta, er fjallblærinn vanga minn strýkur, „ frjálsborinn frammi á heiðum » og frændanum íslenzka^líkur; hugkærir söngvar mér hljóma. Heillar mig heiðblámans veldi í háfjalla dásemda ríki; tindar með höfuðin hvítu og hvolfþök í musteris líki sál mína hefja til hæða. Svífur hún svifléttum vængjum um sólheim frá hverfleikans ströndum, bláhimins brúar hún djúpin að blikandi draumanna löndum, fjarri í útsævi alda. —EIMREIÐIN

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.