Lögberg - 30.05.1957, Side 8
8
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 30. MAÍ 1957
....... i . ... — U ■ , __ ■ ■■
Úr borg og bygð
"BUS" fer til Gimli
á sunnudaginn
frá Fyrstu lútersku kirkju
kl. 12.30 e. h. Þeir sem vilja
notfæra sér þetta farartæki
til að vera viðstaddir vígslu-
hátíð Betels, geri svo vel að
tilkynna það þessutn:
Dr. Valdimar J. Eylands,
Sími: SUnset 3-0744.
K. W. Johannson,
Sími: SPruce 2-1135.
Paul Goodman,
Sími: SUnset 3-5105.
Lögberg, Sími: 93-9931.
Farið fram og til baka $1.50.
☆
VEITIÐ ATHYGLII
Sökum fjölda tilmæla víðs-
vegar að verður hin alíslenzka
skemtiskrá, er fram fór á afar
fjölmennri samkomu að
Geysir, Man., þann séytjánda
þessa mánaðar, — og sem áður
var auglýst í íslenzku blöðun-
um, — endurtekin á sama stað,
föstudagskveldið 7. júní. Látið
ekki hjá líða að sækja þessa
skemtun, er svo einróma hefir
verið lofuð af öllum er hennar
nutu.
☆
G. (Lou) Stephenson lézt í
Vancouver, B.C. á föstudag-
inn, 24. maí. Hann rak um
langt skeið allmikil ‘plumbing’
viðskipti hér í borg.
— DÁNARFREGNIR —
Nýlega eru látin í Islend-
ingabyggðunum í Norður-
Dakota hjónin Helgi og Jarð-
þrúður Johnson. Áttu þau
heima skammt frá Akra og
voru meðlimir í Vídalín söfn-
uðinum. Bæði voru þau fædd
á Islandi, en héldu á unga
aldri vestur um haf, og ekki
sáu þau gamla landið aftur.
Helgi og Jarðþrúður giftust
1896 og eignuðust þau átta
börn, en einungis þrjú eru
eftir á lífi: Guðjón, sem býr á
landi foreldra sinna; Dóra,
Mrs. Grímsi Thorlakson, sem
heima á í White Bear Lake,
Minn., og Emma, Mrs. Frank
Mahar, Cavalier.
Einungis skildu þau tæpir
tveir mánuðir í dauða. Helgi
lézt 11. marz s.l. og Jarðþrúð-
ur 7. maí. Séra Ólafur Skúla-
son jarðsöng þau bæði að við-
stöddu fjölmenni. Helgi var
fæddur 3. jan., 1863 á Fagra-
nesi, en Jarðþrúður 1976 á
Egilsstöðum. Voru þau bæði
mikils virt í héraðinu og gest-
risni þeirra rómuð.
☆
Hinn 13. þ.m., lézt að heimili
sínu 1714 Pandora Street,
Vancouver, B.C., Andrés Karl
Eiríksson. Hann var kvæntur
Guðrúnu Jónasson frá Hlé-
skógum í Geysisbygð, og
bjuggu þau í Árborg þar til
þau fluttu til Vancouver 1945.
MESSUBOÐ
Fyrsta lúterska kirkja
Sr. V. J. Eylands, Dr. Theol.
Heimili 686 Banning Street.
Sími SUnset 3-0744.
Guðsþjónustur á hverjum
sunnudegi:
Á ensku kl. 11 f. h.
Á íslenzku kl. 7 e. h.
Allir ævinlega velkomnir
☆
Lúterska kirkjan í Selkirk
Sunnud. 2. júní:
Ensk messa kl. 11 árd.
Sunnudagaskóli á hádegi.
Engin kvöldmessa.
S. Ólafsson
Þau eignuðust tvær dætur,
sem báðar eru giftar og bú-
settar í Vancouver. Auk dætr-
anna og eiginkonu, lifa Andrés
bróðir hans Lúðvík í Van-
couver, Guðrún systir og
Veiga Wíum í British Col-
umbia. Andrés var vinsæll og
öllum að góðu kunnur; hann
lék vel á fiðlu og fleiri hljóð-
færi og veitti mörgum ánægju
stundir með músik sinni fyr
og síðar. Hann var málari að
iðn og stundaði starf sitt af
mikilli trúmensku; útförin
fór fram þann 16. þ. m. að við-
stöddu fjölmenni. Séra Eirík-
ur S. Brynjólfsson jarðsöng.
☆
Kristín L. Hannesson, Ste.
10, Franklin Apts., Winnipeg,
lézt miðvikudaginn 22. maí,
68 ára að aldri. Hún átti heima
í Winnipeg um 65 ára skeið;
foreldrar hennar voru hin
mætu hjón, Jóhannes og Jón-
ína Hannesson, er lengi
bjuggu á Sherbrooke St. —
Kristín sáluga var vel gefin
og vinsæl. Hana lifa tvær
systur: Sarah, Mrs. Chris
Goodman, Vancouver, B.C.,
og Grace, Mrs. S. M. Bachman,
Winnipeg; einn bróðir, Hugh
L. Hannesson, Winnipeg. Út-
ferin var gerð frá A. B.
Gardiners útfararstofunni á
föstudaginn.
☆
Catherine, eiginkona Martin
Ingimundarson, 324 Superior
Ave., Selkirk, lézt 22. maí, 41
árs að aldri. Hún lætur eftir
sig son, Garry, og dóttur,
Malola, einn bróður og fjórar
systur. Útförin var gerð á
föstu daginn frá lútersku
kirkjunni í Selkirk. — Séra
S i g u r ð u r Ólafsson flutti
kveðjumál.
Mrs. Helga Bridgewater, 61
Carlton St., Winnipeg, lézt að
heimili sínu á föstudaginn 24.
maí, 74 ára að aldri. Hún
missti mann sinn Arthur Ed-
mund Bridgewater fyrir
nokkrum árum. Hún lætur
eftir sig 4 sonu, Arthur,
Thornton, Leonard og Cedric,
og 10 barnabörn. Hún var
lögð til hvíldar í Brookside
grafreitnum á laugardaginn.
☆
Kæri herra riisijóri:
Viltu vera svo góður að
birta mína nýju utanáskrift,
sem hér með fylgir, í þínu
heiðraða blaði, „Lögbergi.“
Rev. G. P. Johnson
7531 — 27th N. W.
Seattle, Washington.
Phone, Hemlock 7326.
Með kærri kveðju og beztu
óskum.
Þinn einlægur,
Guðm. P. Johnson
☆
Miss Soffía Gudmundson
frá Vancouver kom til borg-
arinnar í lok fyrri viku. Kom
hún frá Chicago, en þar hafði
hún verið í heimsókn hjá
tengdabróður sínum Mr. E. S.
Andersen, Wilmette, 111. Hún
flaug heimleiðis á föstudags-
kveldið.
☆
Jon Sigurdson Chapter,
I.O.D.E., will hold a meeting
on June 7th at the home of
Mrs. P. Sivertson, 497 Telfer
Street.
☆
Eldri kona óskast sem fyrst
sem ráðskona á heimili hér í
bænum. Aðeins tveir á heim-
ilinu. Sími 40-8425.
☆
A chartered bus, taking
delegates to the Convention of
the Lutheran Women’s League
at Arborg, will leave the First
Lutheran Church, Victor St.,
Winnipeg, May 31st, at 9.30
a m. D. S. T. and will pick up
delegates at Selkirk and
Gimli. The bus will leave
Arborg, Sunday, June 2nd, to
attend the official opening of
the Betel Old Folks Home at
Gimli which commences at
2.30 p.m. D. S. T.
☆
VEITIÐ ATHYGLI!
Svo sem tilkynningin á öðr-
um stað í blaðinu skýrir frá,
verður hin nýja bygging við
Betel vígð og formlega tekin
til afnota á sunnudaginn 2.
júní kl. 2.30 e. h.
Allir eru boðnir og velkomnir.
☆
Mrs. Guðlaug Jóhannesson
frá Vancouver, B.C. kom til
borgarinnar til að vera við-
stödd uppsögn Manitoba há-
skólans, en þá útskrifaðist Ian
Moore Morrow, M.D., B. Sc.
(Med). Hann er systursonur
manns hennar, George heitins
Jóhannessonar. Mrs. Jóhannes
son heimsótti um leið bræður
sína og fjölskyldur þeirra,
Friðrik Helgason í Edmonton,
Alta., Helga í Darcy, Sask.,
Ingólf í Glenboro, Kristján að I
Baldur og Erle í Winnipeg.
Hún fer heimleiðis í júlí.
☆
William Ingimar Crow,
B. Sc. gekk að eiga Miss
Valdine Douglas á laugardag-
inn 11. maí. Hann hefir ný-
lokið prófi í Mechanical Eng-
ineering við Manitoba háskóla
og boðist ágæt staða hjá
Proctor Gambel félaginu í
Hamilton, Ont., og fóru ungu
hjónin þangað á sunnudaginn.
“Bill” er sonur Mr. og Mrs.
Wm. Crow hér í borg.
☆
Skemmtisamkoma
verður haldin á föstudags-
kveldið 7. júní kl. 8.15 í Sam-
bandskirkjunni á Banning St.
Vandað hefir verið til skemti-
skrár; meðal annars ágætur
söngur og hljómlist; list-
myndir frá Islandi og Hawaii
verða og sýndar. Aðgangur
50 cents.
Þessi almenna samkoma ér
í sambandi við kvennaþingið,
The Conference of the West-
ern Alliance of Unitarian and
öther Liberal Women, — sem
haldið verður í Sambands-
kirkjunni á föstudaginn og
laugardaginn, 7. og 8. júní.
☆
Mr. Magnús Magnússon til
heimilis í St. Boniface, lagði
af stað áleiðis til Islands á
sunnudaginn; frú hans fylgdi
honum til Minneapolis. í
Chicago ætlaði Magnús að
koma til fundar við vini sína
Kjartan og Eirík Vigfússyni,
sem einnig eru að fara til ís-
lands og með þeim ætlaði
hann að ferðast í bíl til New
York, en þangað verður þá
kominn Jón bróðir Magnúsar
frá Gimli, sem fer alfari til
ættjarðarinnar. Magnús er
ættaður úr Bolungarvík, en
fluttist til Winnipeg 1913.
☆
Dr. Valdimar J. Eylands
kom heim á þriðjudagsmorg-
uninn sunnan úr Illinois-ríki,
en þangað brá hann sér í fyrri
viku til að vígja til prests
Albert Neubouer, er tekur að
sér prestsþjónustu í Blaine,
Wash.
☆ i
8—575 Ellice Ave.
Winnipeg, Man.
May 27th, 1957.
Dear Editor:
Would you kindly have the
following donations to Sun-
rise Lutheran Camp, publis-
hed in your paper:
Mrs. A. S. Bardal, balance
re Sunrise Camp Tea, $ 1.50
Mr. S. Sigurdson,
937 Minto Street, 25.00
Senior Lutheran Ladies
Aid Selkirk, 50.00
Ladies Aid, Sigurvon,
Husavik, 10.00
Women’s Organization
St. Stephens Lutheran
Church, 25.00
Lutheran Ladies Aid
Baldursbrá, Baldur, 25.00
Received with thanks,
(Mrs.) Anna Magnússon.
Treasurer.
Hér með kynnist þér
þingmannsefninu í Selkirk kjördæmi
W. J. (BILL) WOOD
Kosningar; mánudaginn 10. júní
Merkið seðilinn þannig:
WOOD, w. j. | X
Authorized by Selkirk Liberal Association