Lögberg - 22.08.1957, Qupperneq 8
8
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 22. ÁGÚST 1957
Ör borg og bygð
Til kaupenda Lögbergs:
Gerið svo vel og athugið
nafnmiðann á Lögbergi; hann
segir til, fram að hvaða tíma,
að greitt hefir verið fyrir blað-
ið. Um leið og ársgjaldið
kemur á skrifstofuna er
kvittað fyrir það með því að
breyta ártalinu á miðanum.
Lögbergi kæmi vel að fá öll
áskriftagjöldin greidd fyrir-
fram.
☆
Mr. J. Walter Johannson
leikhússtjóri frá Pine Falls,
Man., var staddur í borginni
um miðja fyrri viku.
☆
Mr. og Mrs. Guðmundur
Grímsson frá Mozart, Sask.,
voru nýlega stödd hér í borg
og höfðu brugðið sér suður til
Mountain, N. Dak., í heimsókn
til ættingja og annara vina.
☆
Miss Helen Josepson lagði
af stað í mánaðarskemtiferð
vestur um Kyrrahafsströnd á
föstudaginn var.
☆
Mr. Örlygur Ivarsson, sem
kominn er fyrir, nokkru frá
íslandi, dvelur í borginni
þessa dagana í gistivináttu
Mr- og Mrs. Thor Víkings.
☆
Mr. G. L. Johannson ræðis-
maður og frú lögðu af stað
síðastliðinn laugardag í ferða-
lag suður um Bandaríki og
munu dveljast þar syðra fram
um næstu mánaðamót.
— DÁNARFREGN —
Á mánudaginn í fyrri viku
lézt að heimili sínu í Árborg
merkiskonan Thorunn Borg-
fjord, 81 árs að aldri; hún
hafði átt heima í Árborg og
grend í síðastliðin 66 ár; auk
eiginmanns síns Guðmundar,
lætur hin látna eftir sig fimm
sonu, Magnús, Victor, Bjarna,
Albert og Marino, og þrjár
dætur, Mrs. H. Field, Mrs. J.
Eyjolfson og Mrs. I. T. Thor-
arinson; einnig lifir hana ein
systir, Mrs- Laura Bonner í
Vancouver; barnabörnin eru
fjórtán og tvö barna-barna-
börn.
Útförin var gerð frá lút-
ersku kirkjunni í Árborg á
fimtudaginn að viðstöddu
fjölmenni; þeir prestarnir
Rev. J. Larson og Rev. H. H.
Barber fluttu kveðjumál.
☆
— DÁNARFREGN —
Norman Laurence Isford,
fiskimaður, búsettur á Gimli,
lézt á mánudaginn hinn 12.
ágúst, 52 ára að aldri. Hann
lætur eftir sig eiginkonu sína,
Katherine; fjóra sonu, Elert,
Garvoc, Marvin og Herman;
fimm dætur, Mrs. D. Torbert,
Mrs. L. Flurry, Mrs. W.
Josephson, Patricia og Kath-
arine; fjórar systur, Mrs. R.
Jones, Mrs. J. Kristjánsson,
Mrs. J. ísfeld og Sigrúnu;
ennfremur sjö barnabörn- —
Útförin fór fram á föstu-
daginn.
MESSUBOÐ
Fyrsta luterska kirkja
Sr. V. J. Eylands, Dr. Theol.
Heimili 686 Banning Street.
Sími SUnset 3-0744.
Kvöldmessur á ensku á
sunnudögum ágústmánaðar,
og fyrsta sunnudaginn í
september-
8. sept. hefjast hinar venju-
legu árdegismessur á ensku
kl. 11, en kvöldmessur á ís-
lenzku kl. 7.
Allir ævinlega velkomnir
☆
ST. STEPHEN'S
LUTHERAN CHURCH
Sí. James, Man.
Services in the St. James
Y- M. C. A. Ferry Road South
(Just off Portage Ave.)
Sunday, Aug. 25ih —
Service 11 A.M.
Guest Preacher—The Rev.
Harald S. Sigmar. — (Séra
Harald and family are on their
way to Iceland where he will
teach theology for two years
at the University in Reykja-
vík. His friends in Winnipeg
who wish to see him are in-
vited to this service. There
will be a Fellowship Hour im-
mediately after the service).
Eric H. Sigmar, Pastor
— ÞAKKARORÐ —
Við þökkum af hjarta gest-
risni og alúð barna okkar,
ættingja óg gamalla vina,
þegar við heimsóttum fornar
slóðir í Þingvalla-bygð í
Saskatchewan í sumar. Einnig
ógleymanlega ánægjustund í
samkomuhúsi Kopkordiu-safn
aðar 23. júní.
Sigríður og Eyjólfur
Gunnarsson,
Campbell River, B.C.
☆
Einar P. Jónsson.
Kæri herra:
Ég undirrituð bið þig vin-
samlega að leiðrétta þennan
gjafalista frá mér í síðasta
Lögbergi. Það eiga að vera
15 dalir en ekki 20 eins og er
í blaðinu. — Nöfnin eiga að
vera: Mrs. Valgerður Magnús-
son (Vala), Winnipeg;, Mrs.
Sigurborg Jones, (Bertha),
Winnipeg; Mrs. Una M. Jóna-
son, Vancouver, B.C.
Með kærri kveðju og fyrir-
fram þökk.
Virðingarfylzt,
Sesselja Oddsson,
624 Agnes St.,
Winnipeg 3.
Icelandic Graduales of the
Winnipeg Normal School
June 1957:
Bjornson, Jónína Geraldine,
daughter of Mr. & Mrs. Th.
G. Bjornson, Riverton.
Danielson, Dorothy Kristín,
daughter of Mr. & Mrs. Leo
Danielson, Lundar.
Eggertson, Margaret, daughter
of Mr. & Mrs. Eggertson,
Siglunes-
Erickson, Luella Mrs., wife of
S. J. Erickson, Lundar.
Eyolfson, Clarice Laura,
daughter of Mr. & Mrs.
Gunnsteinn Eyolfson, Gimli.
Gíslason, Valerie Baldrun,
daughter of Mr. & Mrs.
Oscar Gíslason, Vogar.
Johnson, Arlene Augusta,
daughter of Mr. & Mrs. E.
A. Johnson, Riverton.
Johnson, Christine Stefanía,
daughter of Mr. & Mrs. J.
H. Johnson, Arborg.
Magnússon, Dolores Carol,
daughter of Mr. & Mrs- G.
Magnússon, 647 Broadway
Ave., Winnipeg.
Munday, Eleanor Dianne, her
mother is the daughter of
the late J. J. Vopni,
542 Renfrew St., Winnipeg.
Olafson, Kristín Margaret,
daughter of Mr. & Mrs. Tom
Olafson, St. Rose du Lack.
Saudmoen, Joyce Arlene,
Norwegian, Mother Icelandic,
Hayland Man.
Swanson, Vilma Maxine
Helga, Swedish, Mother Iec-
lahdic, Riverton.
Vigfússon, Daisy Guðrún,
daughter of Mr. & Mrs.
John Vigfússon, Riverton.
☆
Þjóðræknisdeildin „FRÓN"
tilkynnir hér með að bóka-
safn deildarinnar verður opn-
að til útlána bóka eftir sum-
arfríið miðvikudaginn 4. sept.
næstk. Bókasafnið verður frá
þeim degi opið hvern mið-
vikudag frá kl. 9—11 f. h- og
6—8.30 e. 4i. Mikið er til af
góðum bókum að velja úr. —
Lista yfir nýkomnar bækur er
að finna á öðrum stað í
blaðinu.
J. Johnson, bókavörður
☆
Heimilisfang séra Sigurðar
og frú Ingibjargar J. Ólafsson
er nú 71 Walnut Street, Win-
nipeg 10. — Símanúmerið er
SPruce 2-4508.
☆
Tilvalin afmælisgjöf
Gleðjið vini ykkar, þá er
ekki fá Lögberg, með því að
senda þeim blaðið í afmælis-
gjöf eða jólagjöf, þegar þar að
kemur.
☆
Consolidafed Chimney
Sweeps í
Chimneys, furnaces and oil
burners cleaned by “vacuum
methods.”
We also sharpen lawn
mowers. Free pick-up and
delivery in Winnipeg proper.
626 AGNES ST.
Phone SPruce 5-2654
If no answear call SP. 2-7741.
Hitt og þetta
Ekkert má . . .
Ameríkumaður einn var ný-
lega dæmdur í tíu dollara sekt
fyrir það að halda í hönd
stúlku. — Dómarinn tók það
að vísu fram, að hann teldi
það út af fyrir sig ekkert sak-
næmt, þótt ungt fólk héldist
í hendur, — aðeins ef það
væri ekki undir þeim kring-
umstæðum, eins og hér var
um að ræða, að pilturinn
hefði ekið bifreið sinni á 60
km. hraða samtímis þvl sem
hann hélt í höndina á stúlk-
unni, sem sat við hlið hans.
---0----
Fékk sjónina
Áttræður öldungur einn í
Dartington á Englandi, sem
verið hafði blindur í 14 ár,
fékk allt í einu sjónina aftur
með undarlegum hætti. Mað-
ur þessi, sem heitir William
Passmore, hófst dag einn upp
úr eins manns hljóði og hróp-
aði til konu sinnar: — „Ég sé!
Ég sé!“ Passmore telur ástæð-
una fyrir þessari skyndilegu
lækningu hafa verið tvö atvik,
sem komið hafi honum úr jafn
vægi nokkru áður. Annað var
það að hann rak sig hastarlega
á og hlaut af því mikið höfuð-
högg, þegar hann var að moka
kolum í kolageymslu sinni, en
hitt var það, er hann frétti að
bifreið hefði ekið yfir hund
nábúa hans. — Eins og nærri
má geta réð gamli maðurinn
sér ekki fyrir fögnuði út af
því að hafa svo skyndilega
hlotið sjónina aftur eftir 14
ára myrkur, og lét hann þegar
í stað kalla fyrir sig fjögur
barnabörn sín, sem hann hafði
aldrei fyrr augum litið.
---0----
Góður nágranni
Maður einn var orðinn stein
uppgefinn á jagi og nöldri
konu sinnar, og tók hann loks
það ráð, að yfirgefa bæinn og
flytjast út í skemmu á hlað-
inu. Þar hafðist hann við ein-
samall í marga mánuði og
stundaði búskap sinn eins og
fyrr, en kella hans færði hon-
um matinn sinn út í skemmu.
Stöku sinrtum hittust hjónin
þar fyrir utan, og skiptust þá
á nokkrum orðum, og einstaka
sinnum heimsótti konan hann
í skemmuna og vék að honum
ýmsu góðgæti, sem hún hafði
matbúið. Vinir mannsins vor-
kenndu honum þessa útlegð,
og spurðu hvort hann væri
ekki búinn að fá nóg af kerl-
ingarskassinu, og hvers vegna
hann skildi ekki hreinlega við
hana, en hann svaraði: „Mér
líður ágætlega núna — hún er
nefnilega allra bezti ná-
granni.“
---0----
Spilasaín
í Þýzkalandi hefir verið
opnað all-einstakt safn, en það
sýnir þróun og sögu spilanna.
Sum af spilunum í safni þessu
eru yfir 600 ára gömul.
—Sunnudagsblaðið
KENNARAR ÓSKAST
Manitoba þarfnast fjölda nýrra kennara á ári hverju
meS vaxandi nemendafjölda og þær aSstæSur, sem nú gilda.
Kensla býður yður:
• Nám við lágu verði
• Styrki og lán ef þörf gerist
• Örugga atvinnu
• Úrval um stöður um fylkið þvert og
endilangt
• Gott grunnkaup
• Tækifæri til stöðuhækkunar
• Tækifæri til þjóðfélagsþjónustu.
XII. bekkjar nemendur og aírlr, sem hyggja á kennara-
skólanám, ættu aS senda umsóknir einar fyrir skólaárið
1957-58 til Normal School, sem byrjar kenslu 9. september
1957. EyðublöS fást hjá Normal School, skólastjóranum
eóa hjá Registrar, Department of Education, 140
Legislative Building, Winnipeg 1.
Háskólastúdentar, sem hyggja á kenslunám, sendi um-
sóknir til The Dean, Faeulty of Education, University of
Manitoba, Fort Garry, eSa til Mr. E. F. Simms, Room 42,
Legislative Bldg., AVinnipeg 1.
Birt aS fyrirmælum Hon. W. C. Mlllers mentamála-
ráSherra Manitoba fylkis: