Lögberg - 12.09.1957, Side 3
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 12. SEPTEMBER 1957
3
Ýmislegt um söng
Frá aldaöðli mun hafa
verið lítið um söng meðal
mannanna til tiltölulega
skamms tíma — „gullaldar
tónskáldanna“, sem eiginlega
hófst ekki fyrr en síðla á
seytjándu öldinni eftir tíma-
skiptin. En þá var sem að
sönggyðjan sjálf kæmi til
mannheima og snerti með
vendi sínum einn eftir annan.
Með þeim fyrstu, sem voru
þannig snertir voru þeir
Bach (hinn fyrsti) og Handel,
sem báðir fæddust árið 1685.
Þá Haydn (1732), Mozart
(1756), Beethoven (1770),
Paganini (1784), Weber (1786),
Schubert (1797), Mendelssohn
(1809), Schumann (1810),
Wagner (1817), Lalo (1823),
Brahms (1833), Saint Saens
(1835) og fjöldi annara. (Tölu-
stafir í svigum eru fæðingar-
ár).
En allt fram á seytjándu
öldina mun hafa verið sára-
lítið um söng, ef treysta má
sögunni. Þó má ganga að því
sem vísu að fólk hafi snemma
byrjað á að raula, kannske
lagleysur — smalar, sem stóðu
yfir fé í haga, og konur við
prjóna- Og allsnemma er getið
um ýms hljóðfæri, hörpu og
orgel, jafnvel í fyrstu bók
Móse (5. kap.), og í fyrri
Samúels bókinni segir, að
Davíð hafi slegið á hörpu
fyrir Sál konung, tengdaföður
sinn. — (En spjátrungurinn
kannske segir, að Sál konungi
hafi þótt bara um og ó um
söng Davíðs, því að hann
greip til spjóts og renndi að
Davíð, sem vék sér undan og
komst lífs af og út um lúkugat
á kastalanum með hjálp konu
sinnar, sem hann sá aldrei
aftur. En þetta er þá kannske
út í hött). Yfirleitt er lítið
getið um söng fyrir tímaskipt-
in, og hvergi svo að verulega
nemi, nema það, að Hómer
segir að hafmeyjar (sirens)
hafi seitt Menelaus konung
og menn hans afvega með
söng, er þeir voru á heimleið
frá Trójustríðinu. Og stafur
er fyrir því, að Neró keisari
hafi leikið á fiðlu (sem líklega
var enn ekki til) meðan Róma-
borg brann. En lítið er um það
að fólk hafi sungið, einstaki-
ingar eða í hópum, ' á þeim
hörmungatímum.
COPENHAGEN
Heimsins bezta
munnfróbak
Sagan getur lítið um söng
um tímaskipta-leýtið, og þá
komu myrku aldirnar, en þær
veittu fólki lítið tilefni til
söngs eða annarar gleði. í
grískri heiðni, sem í þeirri
norrænu, var áherzlan á öðru
en söng, og í íslendinga- og
Noregskonunga sögunum er
söngs að litlu, ef nokkru,
getið. Vera má, að skáldin
hafi tónað, þegar þau fluttu
fram þessar klausur, sem
kallaðar voru vísur, en tón-
lög hafa vart komið til greina,
svo bögulegar sem þessar
vísur voru.
En um það leyti sem ís-
lendinga sögurnar voru að
gerast (á elleftu öldinni) var
skáld uppi í Austurlöndum
(Persíu), sem Omar hét
Khayyam, sem getur um
söng og sönggleði. Má af því
ráða að einhver vísir var í þá
átt, þar sem annars staðar,
hversu veikur sem hann var.
Á miðöldunum er enn lítið
um söng, þótt vísir sé að því
hjá umferðasöngvurum —
(minsirels og hirðfíflum). Og
Shakespeare (síðla á sextándu
löldinni) slær því fram, að
hver sá sem ekki hafi söng í
sálu sinni sé allra handa
gagn (“He who hath not music
in his soul, is fit for treason,
stratagems and spoils”), svo
að eitthvað var um söng á
hans dögum, þótt heil öld ætti
enn að líða hjá áður en dags-
brún gullaldar tónskáldanna
varð vart.
En einkennilegt fyrirbrigði
átti sér stað síðla á seytjándu
öldinni, sem erfitt er að gera
grein fyrir. Þá komu fram í
Cremona, smábæ í Norður-
ítalíu, nokkrir menn sem
smíðuðu fiðlur. Þeir frægustu
eru Amati, Guarnerius og
Stradivarious (Antonino), þótt
auðvitað margir aðrir ynnu
að þessu. Smíðuðu þeir fiðlur
og strengjahljóðfæri af ýms-
um gerðum með þeim hag-
leik að enn í dag hafa þau
ekki sinn maka í hljómfegurð,
hvernig sem reynt er, og þótt
nákvæmlega séu stæld bæði
að lagi og efni. Það einkenni-
lega er, að þessir menn bara
þreifuðu fyrir sér, svo lítið
sem þeir höfðu að byggja á,
því að til þeirra daga var
fiðlan (langspil og annað) með
ýmsu lagi og ófullkomin, enda
enn lítið um sönglög ætluð
einmitt slíkum hljóðfærum.
Virðist því sem þessum smið-
um væri hvíslað í eyru að ein-
mitt þessi viður, með þessu
lagi og af þessari þykkt, með
þessum farða, næði hámark-
inu og fullkomleikanum. —
Mætti svo að orði kveða, að í
fiðlum Stradivariusar sé hið
eina alfullkomna (ne plus
ultra), sem heimurinn enn
þekkir, og sem ekki verður
bætt, hvernig sem reynt er-
Hin minsta breyting frá lagi
og efni Strad. fiðlunnar er til
hins verra. Er því sagt, að í
þessu smíði sé hámarki náð,
fullkomnum. (Hefur sá, sem
úetta ritar, aðeins einu sinni
farið höndum um og leikið á
Strad. fiðlu, og helgar hann
pá stund sem ógleymanlega,
svo þýtt fanst honum hljóð-
færið vera og gjarnt til sam-
vinnu).
Tiltölulega skommu eftir að
Stradivarius fullkomnaði
fiðluna — hið ágætasta hljóð-
færi, og erfiðasta að læra að
leika á, sem sönglistin á til —
skeði annað fyrirbrigði ekki
síður merkilegt, en það var
Nicoli Paganini, efalaust sá
fimasti og mikilhæfasti fiðlu-
meistari, sem ehn hefur komið
fram, og um leið tónskáld með
þeim afbrigðum að hann
stendur jafnfætis Beethoven á
því sviði að semja lög fyrir
fiðluna. D. Major Concerto
Paganinis þolir vel saman-
burð við stórvirki Beethovens,
og slagar hátt upp í að jafnast
á við Symphoníu Lalos —
(Espagnole), í bók þess sem
þetta ritar, það stórkostleg-
asta og fegursta, sem enn
hefur verið samið fyrir
fiðluna.
Paganini var, sem sé, eitt
af þessum undra- og óska-
börnum náttúrunnar sem
virðast kunna, svo að segja
án tilsagnar, allt sem vitað er
um sína list. Svo háfleyg var
list hans að menn undruðust,
og jafnvel brugðu honum um
að vera á vegum djöfsa, sem
einstakir sáu standa við hlið
hans er hann lék.
En það er vissulega rétt, að
Paganini var sá meistari í
fiðluleik, eins og tónverk hans
sanna, að jafnvel í dag eru
það aðeins fyrsta flokks fiðlu-
meistarar, svo sem þeir Ricci,
Campoli, Francescatti og
Heifets, sem takast á hendur
að leika tónverk hans.
Að endingu — söngur og
hljóðfæri voru af skornum
skamti allt fram á seytjándu
öld okkar tímatals, þegar
gullöld söngsins dagaði. Fram
að þeim tíma var sáralítið um
söng, og enn minna um tilefni
til söngs og gleði. Ef stund
gafst frá erfiði til að fleyta
fram lífinu, svo hart sem það
jafnan var, var ekki ósjaldan
gripið til vopna og herjað á
nágrannann til ráns og dráps,
sem þótti karlmannlegt og
fremur sæmandi en að fást við
lærdóm og annan hégóma sem
ekki varð látinn í askana. Og
hvort sem maðurinn hefur
verið á jörðinni í sex þúsund
ár eða sex hundruð þúsund
raskar það ekki gildi þeirrar
staðhæfingar að söngur sé til-
tölulega nýtt fyrirbrigði í
heiminum, ekki langt umfram
tvö hundruð ára í þeirri mynt,
sem við þekkjum hann.
—L. F.
Kaupið Lögberg
VIÐLESNASTA
ÍSLENZKA BLAÐIÐ
Busincss and Professional Cards
ÞJÓÐRÆKNISFÉLAG ÍSLENDINGA í VESTURHEIMI
Forsetl: I)H. RICHARD BECK
801 Llncoln Drlve, Grand Forka, North Dakota.
Styrklð félagið með því að gerast meðlimir.
Arsgjald $2.00 — Tímarit félagsins frítt.
Sendist til fj&rmálaritara:
MR. GCÐMANN DEVY,
185 Lindsay Street, Winnipeg 9, Manitoba.
Minnist BETEL í erfðaskrám yðar SELKIRK METAL PRODUCTS Reykháfar, öruggasta eldsvörn, og ávalt hreinlr. Hitaeiningar- rör, ný uppfynding.. Sparar eldi- við, heldur hita frá að rjúka Ot með reyknum.—Skrifið, slml8 U1 KELLY SVEINSSON 625 WaU St. Winnlpeg just North of Portage Ave. SUnset 3-3744 — SUnset 3-4431
G. F. Jonasson, Pres. & Man. Dir. Keystone Fisheries Limited Wholesale Distrlbutors of FRESH AND FROZEN FISH 60 Louise St. WHitehall 2-5227 S. O. BJERRING Canadian Stamp Co. RUBBER & METAL STAMPS NOTARY & CORPÖRATE SEAL9 CELLULOID BUTTONS 324 Smilh Sl. Wmnipeg WHltehall 2-4624
Van's Electric Ltd. S36 Sargenl Ave. Authorized Home Appllance Deálers GENERAL ELECTRIC — ADMIRAL McCLARY ELECTRIC — MOFFAT SUnMt 3-4890 A. S. BARDAL LTD. funeral HOME 843 Sherbrook Street Selur llkkistur og annast um út- farir. Allur útbúnaSur sá bezti. Stofnað 1894 SPruce 4-7474
PARKER. TALLIN. KRIST- JANSSON. PARKER AND MARTIN BARRISTERS — SOLICITORS Ben C. Parker, Q.C. (1910-1951) B. Stuart Parker. Clive K. Tallin, Q.C.. A. F. Kristjansson, Hugh B. Parker. W. Steward Martin 5th fl. Canadian Bank of Commerce Building, 389 Matn Street Winnipeg 2, Man. WHitehall 2-3561 P. T. Guttormsson BARRISTER, SOLICITOR, NOTARY PUBLIC 474 Groin Exchonge Bldg. 167 Lombord Street Office WHitehaU 2-4829 Residence 43-3864
Thorvaldson. Eggertson, Bastin & Stringer Barristers and Solicitort 209 BANK OF NOVA SCOTIA Bldg. Portage and Garry St. WHitehall 2-8291 SPruce 4-7855 ESTTMATES J. M. Ingimundson Re-Roofing — Asphalt Shinglei Insul-Bric Siding Vents Installed to Help EUminate Condensation 632 Slmcoe St. Winnipeg, Man.
CANADIAN FISH PRODUCERS LTD. J. H. PAGE, Managing Director Wholesale Distrlbutors of Fresh and Frozen Fish 311 CHAMBERS STREET Office: *e».: SPruce 4-7451 SPruce 2-3917 Muir's Drug Store Ltd. J. CLUBB FAMILY DRUGGIST SERVING THE WEST END FOR 27 YEARS SPruce 4-4422 ElUce & Home
S. A. Thorarinson Barrister and Bolicitor 2nd Floor Crown Trust Bldg. 364 MAIN ST. Office WHitehall 2-7051 Res.: 40-6488
FRÁ VINI
Dunwoody Saul Smiih & Company Chartered Accountants WHiiehall 2-2468 100 Prtncess St. Winnipeg, Man And offices at: FORT WILLIAM - KENORA FORT FRANCES - ATIKOKAN
THE MODEL FUR CO. D. MINUK, PROP. Fur Coats Made To Order. Repairing. Remodelling, Relining & Storing, and Sports Wear. Tel. WHitehaU 2-6619 Res. JUstice 6-1961 304 Kennedy St. Winnipeg, Man.
The Business Ciinic Anna Larusson — Florence KeUett 1410 Ekin Street • Phone SPruce 5-6676 Bookkeeping - Income Tax Insurance
Maðurinn yðar drekkur of mikið sterkt kaffi. Hann þolir það ekki, hann verður of æstur af því. Konan: — Þér ættuð að vita hvað hann verður æstur, ef hann fær veikt kaffi. ★ Hvers vegna eru Skotar manna kurteisastir? Vegna þess, að kurteisir kostar ekkert.
Dr. ROBERT BLACK Sérfræðingur I augna, eyrna, nef og hálssjúkdómum. 401 IVrEDICAL ARTS BLDG. Graham and Kennedy St. Office 'WHitehall 2-3851 Res.: 40-3794
I