Lögberg - 12.09.1957, Síða 6

Lögberg - 12.09.1957, Síða 6
6 GUÐRÚN FRA LUNDI: DALALÍF • „Nei, blessuð farðu nú ekki að bera hingað hvert orð, sem hún Helga á Hóli hefur þvaðrað við þig í dag“, greip Borghildur fram í og leit til hennar aðvarandi. „Lína var ekki svoleiðis, þegar ég þekkti hana, og varla hefur hún lært það af þeim mæðginunum á Jarðbrú — þau eru vand- aðar manneskjur til orðs og æðis“. „Erlendur reifst um það, hvað það væri sóða- legt hjá Helgu“, hélt Dísa áfram, „og það var líka ofboðslegt að sjá baðstofuna“. „Ó, það er víst ekki nýtt, að þau jagist“, sagði Gróa. „Annars tryði ég nú Erlendi til alls svona utan hjónabands". „Aldrei hefur það nú heyrzt um hann“, sagði Borghildur stuttlega, svona skraf fannst henni óþarft. „Hann meinar víst heldur lítið með þessu glamri sínu“. Dísa hélt áfram: „Helga sagði, að þeir þyrftu nú stundum að stanza á Jarðbrú, bændurnir hérna úr dalnum“. „Það er víst ekki til þess að færa það í frá- sögur, þó að menn fái sér kaffi hjá sveitungum sínum“, sagði Borghildur. „Það hefur alltaf verið gestagangur á Jarðbrú og Hjalla, þeir bæir standa þarna alveg við götuna og gestrisið fólk á báðum bæjunum“. Anna stóð upp frá borðinu og gekk til bað- stofu. Þá vék Borghildur sér að Dísu og ávarpaði hana í ströngum málrómi: „Ef þú ferð að þvætta um það, sem getur haft einhver skaðleg áhrif á hana Önnu, skaltu eiga mig á fæti“. „Mér dettur það nú líklega ekki í hug“, sagði Dísa- „í öllum bænum, Dísa, það máttu ekki gera. Hún hefur nú verið svo róleg í vetur og heilsu- góð. Líklega hefur það verið vegna þess að þú hefur ekki verið heima til að bera í hana alls konar þvætting“, sagði Gróa. „Þú mátt þó vita, að það dugar ekki að koma fram við hana eins og annað fólk, enda verður það nú aldrei til neinna bóta að bera sögur milli bæja“. „Það er svo sem ekkert, sem þú dembir yfir mig“, sagði Dísa sárreið. „Ég ber víst ekki sögur í mömmu. Það er bara eins og hver önnur lygi úr þér, ókindin þín“. „Nú, jæja, ekki eru nú stóryrðin hjá þér, skepnan mín, þó að allt megi skilja. Láttu þá sjá, að þú komir engu illu af stað Lér, en ekki kæmi mér það á óvart. Mikið gekk á fyrir hrafninum í morgun. Ég hef alltaf tekið eftir þeim, það er skrítið, hvernig þeir haga sér stundum", sagði Gróa, dálítið dulræn á svipinn. Dísa reigsaði inn og sat með fýlu allt kvöldið. DÍSA GERIST ÓÞOLANDI OG ÓSVÍFIN Þá var nú komið að því, sem Dísa hafði hlakkað mest til, að hún sæti inn í húsi hjá fóstru sinni og saumaði í fína kaffidúkinn sinn. En vandalaust var það ekki frekar en tóvinnan, allt varð að vanda á þessu heimili. Hún var líka fjarska merkiieg á svipinn, þegar hún kom fram í baðstofuna og eldhúsið og leit spunakonurnar smáum augum. „Aldrei ætlar Manga greyið að verða búin að spinna þetta inórauða band, ósköp er hún víst ónýt til vinnu“, sagði hún einu sinni, þegar Manga var ekki inni. Hún dró bandið fram úr rokknum og strauk það, eins og hún hafði séð Borghildi gera. „Varla hefðir þú verið búin með meira“, anzaði Gróa stuttlega og þeytti rokkinn. „Það verður víst enginn nema þú, sem vanþakkar henni vinnuna hennar hérna á þessu heimili“. „Aldrei stendur á þér að svara“, sagði Dísa. „Það var enginn annar við, sem gat svarað þér. Það á ekki vel við, að Manga sé baktöluð, LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 12. SEPTEMBER 1957 ekki nagar hún um bakið á þér eða öðrum“, svaraði Gróa- „Það er engu líkara en þú eigir hálfan heiminn, síðan þú settist við útsauminn". Borghildur kom nú inn, svo að samtalið varð ekki lengra. Einn daginn, þegar allt fólkið sat við mat- borðið yfir ljúffengri kálfakjötssteik, gerði Dísa sig merkilega á svip og sagði öllum til mikillar undrunar: „Mér fellur ekki bragðið af steikinni hjá þér, Borghildur. Ég skal kenna þér að búa til betri steik“. „Ég býst nú við, að ég sé orðin helzt til gömul til að fara að læra. Það hefur verið hægt að borða matinn hérna, þó að hann sé kannske ekki soðinn eftir allra nýjustu matreiðslubókum“, sagði Borghildur. Steini fór að hlæja. „Ætli það væri ekki betra, að Borghildur kenndi þér“, sagði hann ertnislega. „Heldurðu kannske, að ég hafi ekki lært eitt- hvað hjá henni frú Ástu?“ sagði Dísa. „Steikin er ágæt ein^ og vant er“, sagði hús- bóndinn. „Þeim, sem finna að matnum hjá Borg- hildi, er áreiðanlega ofaukið við matborðið11, bætti hann við. Dísa kafroðnaði og leit til fóstru sinnar í von um liðsauka, en hún lét sem hún heyrði ekki, hvað talað var. Eftir þetta var þagað yfir borðum. „Ekkert skil ég í því, hvað hann pabbi er orð- inn breyttur nú í seinni tíð — hann, sem var svo hlýr og góður við mig, meðan ég var krakki, en nú er hann bara uppstökkur og kaldlyndur“, sagði Dísa við Gróu fram í eldhúsi nokkru seinna. „Það er mikill munur á honum eða henni mömmu, sem alltaf er svo góð og blíð“. „Ójá, það er heldur ómögulegt annað að segja en að þú ætlir að fara að gera þig nokkuð breiða, ef þú ætlar að fara að finna að matnum við hana Borghildi. Þú verður þá varla mosagróin hérna á heimilinu“, sagði Gróa. „En þó að mamma þín sé nú góð og blíð, býst ég við, að hún hafi kannske átt einhvern þátt í því, að hann er orðinn kaldlyndari en hann var, blessaður húsbóndinn“. „Ekki datt mér nú í hug, að nokkur mann- eskja, sízt þú, segðir annað eiens og þetta um 'hana mömmu“, sagði Dísa gremjulega. Það var sama við hvern hún talaði á þessu heimili, alls staðar mætti hún mótblástri. „Þú mátt verða fegin, mamma mín, þegar Gróa fer af heimilinu", sagði Dísa þennan sama dag við fóstru sína. „Hún talar ekki alltaf vel um þig, finnst mér“. „Hún er ágætt hjú, þó að hún sé nokkuð málgefin. Ég sé eftir þeim báðum, Möngu og henni. Hver veit, hvernig þær kynna sig? Og nýr vinnumaður líka“, svaraði Anna. „Það má víst allt fara fyrir mér — helzt af öllu vildi ég þó, að Þórður færi“, sagði Dísa. „Það verður nú sjálfsagt ekki þetta árið, sem hann fer“, sagði Anna. „Mér finnst ég ekki geta liðið hann á heimil- inu“, sagði Dísa. Svo sagði hún henni, hvað Gróa hefði sagt framm í eldhúsinu. „Ég hef nú aldrei farið varhluta af dómum heimsins, trúi ég“, sagði hún, „þeir eru upp og ofan réttlátir. Kannske það sé eitthvað hæft í þessu, en þú lætur líka kjánalega, Dísa, ef þú ætlar að fara að hreykja þér yfir alla á heimilinu. Borghildi fellur það sjálfsagt ekki vel, en Jón þolir það miklu síður“. „Þetta var nú svo sem ekki mikið, sem ég sagði, en það er allt tekið illa upp fyrir mér. Ef einhver annar hefði sagt það, hefði pabbi ekki rokið upp“, nöldraði Dísa. „En það hefði engum öðrum en þér dottið það í hug“, sagði Anna hógvær. „Borghildur getur nú verið þó nokkuð stór í stykkjunum, skal ég segja þér. Það vantaði víst ekki mikið á, að hún berði mig þarna um kvöldið, þegar ég kom handan frá Hóli, af því að ég gaf það í skyn, að Helga hefði séð, að bændurnir úr framdalnum Jcæmu við á Jarðbrú“. „Hún hefur víst aldrei lagt það í vana sinn að berja fólk“, sagði Anna, „en ég sá, að hún að- varaði þig með augunum að tala varlega. Þykist Helga sjá Jón fara þangað heim?“ Dísa brosti lymskulega: „Það er víst ekki svo sjaldan, sem hún hefur séð hann stanza þar“. „Hún þykir nú ekki áreiðanleg, sú kona, og ekki gott að leggja mikið upp úr því, sem hún segir“, sagði Anna. Hún trúði því varla ,að hún ætti enn einu sinni að rekast á svik og ótryggð í fari manns síns. Hann hafði þó lofað henni að koma ekki á það heimili. En hvers virði voru orð og loforð svikara? Hvað hafði hún ekki orðið að þola í fyrra vetur? En hún var nú orðin svo lífs- reynd og fullorðin kona, að hún ætlaði að reyna að taka öllu með stillingu. Hún gat ekki trúað því, að Borghildur og Þórður væru í vitorði með honum- Nei, auðvitað voru þau það ekki. Þau vildu bara hlífa henni við að vita það. Dísa hélt áfram að segja henni fréttirnar eftir Helgu á Hóli. Doddi hafði sagt henni frá þessum góða kunningja, sem gæfi honum holl ráð og hafði komið kjötinu í peninga fyrir hann. Sá hinn sami ætlaði að sjá um, að hann yrði ekki lengi auður, básinn í fjósinu. Og þetta var náttúrlega enginn annar en Jón hreppstjóri — það hafði Helga sagt. Einnig hafði Doddi getað keypt þessi líka feikn af mat fyrir peninga. Anna hlustaði á án þess að hvetja eða letja. „Hvernig vissi Helga það, fyrst Doddi nefndi ekkert nafn?“ spurði hún áhugalaust. „Hún veit það, að enginn annar en Jón lánar peninga og hefur ráð á að gefa kýr. Helga segir, að hann hlaði undir þau, enda græði þau á tá og fingri“. „Mér heyrist þetta nú vera eins og hverjar aðrar getgátur“, sagði Anna og hélt áfram að hekla, en nálin fór þó að ganga talsvert hraðara. Hún fann vel, að Dísa var eins og Ketilríður, reyndi að sverta alla og rægja, en samt var ekki hægt annað en finna, að í öllu þessu þvaðri gat leynzt sannleikskorn. * Anna heyrði, að Dísa hélt áfram rausinu, en henni fannst hiún vera langt í burtu: „Þess vegna er þeim svo illa við, að ég sé hér, Þórði, Borghildi og pabba. Þau eru hrædd um, að ég heyri eitthvað, sem ekki er hollt, að þú fréttir. Aumingja mamma! Það er meira, hvað fólkið er undirförult og óhrein- lynt við þig“. „Það gerir víst ekki mikið til, þó að ég heyri ekki svona lagað“, sagði hún og dáðist að því, hvað hún gat talað kæruleysislega. Dísu sárnaði að sjá, hvað þessi mergjaða saga hafði lítil áhrif á fóstru hennar. Hún sat eins og dáleidd og lagði hekludótið í kjöltu sína. Hugur hennar var floginn nokkur ár til baka. Hún sat inni í baðstofukytrunni á Jarðbrú. Fyrir ofan hana í rúminu lá hvítvoðungur í fínum fötum, sem sælustu og sárustu endurminningar hennar voru tengdar við. Hún hafði fellt mörg tár yfir þessum fötum- Hún hafði dunandi hjartslátt og titrandi taugar. „Góði Guð!“ andvarpaði hún með sjálfri sér. „Hjálpaðu mér til að gleyma. Láttu þessa endurminningu hverfa“. Þá vörðust hlýir barnshandhleggir um háls henni og litla fóstur- dóttirin hvíslaði brosandi við vanga hennar: „Þú situr sofandi, mamma, með opin augun“. Anna tók hana upp á hné sér, þó að hún væri orðin helzt til stór til þess, og þrýsti henni ákaft að sér. „Elsku stúlkan mín — elsku litla stúlkan mín“, sagði hún með klökkva. Hún var fædd á sama sólarhringnum og litli engillinn, sem hún hafði verið að hugsa um. Þarna kom svar við bænar- andvarpi hennar. Þetta barn var henni ætlað að elska og annast. Hitt barnið, sem hún átti svo bágt með að gleyma, hefði hún sjálfsagt aldrei fengið að hafa hjá sér. Hún grúfði andlitið í hálsa- kot Lísibetar og langaði til að gráta, en harkaði það af sér. „Ekkert skil ég í því, hvað þér getur þótt vænt um þessa stelpu, eins og hún þykir frek og leiðinleg“, sagði fullorðna fósturdóttirin út við gluggann. „Það er líklega Helga á Hóli, sem segir það, eins og fleira fróðlegt“, sagði Anna fálega. „Það segja það áreiðanlega fleiri“. „Ertu þá ekki hissa á því, að ég skyldi geta verið góð við þig sjálfa, meðan þú varst barn?“ I

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.