Lögberg - 17.04.1958, Blaðsíða 5
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 17. APRÍL 1958
5
/iliUGAM/iL
IWENNA
Ritstjóri: INGIBJÖRG JÓNSSON
Þögnin ekki
Við þekkjum margt fólk,
sem erfitt á með að láta til-
finningar sínar og óskir í ljósi,
eða tala um áhugamál sín við
aðra. Robert Lewis Stevenson
lýsti svoleiðis fólki á þann
hátt, að það væri í poka, sem
bundið væri fyrir og enginn
gæti opnað. Sálsýkislæknar
segja, að ein aðalorsökin til
þess að mörg hjónabönd séu
óhamingjusöm eða fari út um
þúfur sé sú, að hjónin geta
ekki rætt blátt áfram og ein-
læglega um vandamál sín;
annað eða bæði séu umlukt í
poka þagnarinnar.
Maður nokkur fór á fund
sálsýkislæknis og sagði hon-
um, að konan sín hótaði að
skilja við sig vegna þess að
hann væri kaldranalegur og
auðsýndi sér enga ástúð. „Ég
skil ekkert í þessu,“ sagði
vesalings maðurinn; „ég legg
henni til allt sem hún þarf og
vel það, og ég hefi aldrei svo
mikið sem litið á aðra konu-“
Læknirinn komst að því, að
þessi maður var einn hinna
þögulu manna, sem eiga erfitt
með að láta tilfinningar sínar
í ljósi; til dæmis hrósaði hann
henni aldrei fyrir máltíðirnar,
sem hún framreiddi fyrir
óvalt gullvæg
hann- „Hún veit vel að mér
þykir maturinn góður,“ sagði
hann, „hún sér að ég borða
hann. Og annað er það — hún
er sífellt að spyrja mig, hvort
ég elski sig í raun og veru.
Vitaskuld geri ég það, en mér
er ómögulegt að tala alls kon-
ar vitleysu um ást; ég er ekki
þannig gerður.“
Læknirinn útskýrði fyrir
hinum angraða eiginmanni, að
allir yrðu að reyna eftir mætti
að gleðja ástvini sína og gera
þeim til hæfis, því án þakk-
lætis þeirra og virðingar yrði
lífið harla tómlegt. Hann ráð-
lagði honum, að hann skyldi
þakka konu sinni þegar hún
framreiddi uppáhaldsrétti
hans; dáðst að nýja kjólnum
hennar; hrósa henni fyrir
fallegu nýju gluggatjöldin, er
hún hefði valið a. s. frv.
Eiginmaðurinn tók þessar
ráðleggingar til greina; smám
saman varð honum léttara um
tnungutak, og hann gat látið í
ljósi við hana í fullri einlægni
hugsanir og tilfinningar, sem
hann hafði áður bælt niður.
Hjónabandið styrktist og börn-
in vaxa nú upp í andrúmslofti
hlýleika og ástúðar.
★ ★ ★
Til er fólk, sem vanfar
sórsaukatilfinninguna
Sumir geta t. d. farið í eld án þess að finna til
Margur undrast, þegar sagt
er frá fakíírunum, sem geta
legið á gaddasæng án þess að
finna til sársauka, eða frá
mönnum, sem láta reka sig í
gegn með prjónum, eða láta
höndina inn í eld og verður
ekki meint af.
Margar skýringar hafa kom-
ið fram um undur þessi, en
engar eru algjörlega sannfær-
andi. Um þetta má nefna ótal
dæmi og eru hér nokkur:
Edward H. Gibson „hinn
mennski nálapúði,“ sem var
einn af mörgum undramönn-
um, sem sýndi listir sínar um
aldamótin, gat látið stinga 60
prjónum hingað og þangað í
sig nema ekki í kviðinn eða
nárann. Þetta gekk meira að
segja svo langt, að einu sinni
lét hann krossfesta sig og var
rekinn nagli í gegnum lófann
á honum, en þegar reka skyldi
annan nagla í gegnum hina
hendina líka, varð að hætta
sýningunni, því að flestir á-
horfendur voru þá fallnir í
ómegin.
Lögfræðingur nokkur, sem
lézt 56 ára gamall, hafði al-
drei fundið til sársauka. Einu
sinni kramdist einn fingur
hans í slysi og þá beit hann
hann af. Einu sinni fékk hann
kýli, sem var að draga hann
til dauða, en hann fann ekkert
til þegar skorið var á það.
Hann var skorinn upp við
augnveiki, en fann ekki til og
var þó ekki deyfður. Þegar
hann lézt kvartaði hann að
vísu um smávegis óþægindi-
Telpa ein sjö ára gömul
lagði það í vana sinn að brenna
sig á glóandi járni, af því að
henni fannst „það svo gott-“
Engin skýring hefur fengizt
á þessum undrum. Þetta kem-
ur fyrir fólk af öllum kyn-
flokkum og alveg eins fyrir
menn sem konur. Þetta fólk
finnur til, ef það er brennt eða
stungið svo að það getur sagt
til, hvar áverkinn er á líkam-
anum, en það finnur ekki til
sársauka eða óþæginda. Oft
finnur þetta fólk litla sem
enga lykt eða bragð, en húðin
virðist vera eðlileg og tauga-
endarnir, sem liggja út í húð-
ina virðast ekkert frábrugðnir
því sem er á öðrum. Það er
því álit sérfræðinga að orsak-
irnar liggi í heilanum.
In memorian
Mrs. Adelaide Johnson
Winsauer
Death claimed the life of a
young Icelandic woman,
Adelaide Johnson Winsauer,
on Sunday, March 16, 1958, at
Bellingham, Washington. She
died at the age of 44 years
after a lingering illness. She
was born July 12, 1913 in
Blaine, Washington. Her par-
ents were Michael Gudjon
Johnson and Ásta Jónsdóttir
of Blaine, Washington. Her
father passed away in 1950.
She was a graduate of Blaine
High School. Surviving rela-
tives are her husband, John P.
Winsauer, 1212 E. Racine
Street, Bellingham, Wash.,
three daughters, Lynn, Bar-
bara and Gail. all at home;
her mother, Mrs. Ásta John-
son, of Stafholt, Icelandic
Home in Blaine, and one
broher, H. Gus Johnson, of
Bellingham, Washington.
Remembering A d e 1 a i d e
Johnson Winsauer, two line
from the poem “The Lovely
Smile” by Edgar A. Guest,
come to mind-
“We thought of her as always
gay ,
And lovely as a sunny morn”
Dýpsta nómo . . .
Framhald af bls. 4
granítsteinar upp á yfirborð
jarðar og höggnir svo að þeir
eru 8—12 þumlunga langir.
Síðan er þeim rennt niður í
námuna og hlaðnir úr þeim
þykkir veggir, sem standa ó-
bifanlegir undir farginu, sem
ofan á þeim liggur. Á hverjum
mánuði eru þannig fluttar
niður í námuna rúmlega 5000
smálestir af höggnu graníti í
þessa veggi. Þetta krefst mik-
illar vinnu og tefur mjög fyrir
sjálfu gullnáminu. Sagt er að
um 85% af námugöngunum
hafi verið fyllt upp á þennan
hátt.
Eins og fyrr er sagt er hitinn
neðst í námunni orðinn 150
stig F- og er því ekki viðlit að
vinna þar öðru vísi en að loft-
ið sé kælt. Þarf því að dæla
um 250,000 teningsfetum af
köldu lofti niður í námuna á
hverjum tveimur mínútum. Á
leiðinni niður hitnar loftið,
svo hitinn í því er orðinn 125
stig þegar niður kemur. f
þeim hita verður að vinna.
Vélar og áhöld hitna svo, að
verkamenn geta ekki snert á
þeim berum höndum. Vatni
er dælt niður og það geymt í
kælirúmum, annars væri það
ódrekkandi fyrir hita. Vatnið
verður að salta, og er það gert
til þess að verkamennirnir fái
ekki krampa vegna of mikillar
saltútgufunnar með svita úr
líkamanum, en auðvitað svitna
námamennirnir óskaplega.
Vegna hins ógurlega þrýst-
ings, sem hvílir á berginu
neðst í námunni, lætur bergið
undan þannig að það verður
meint og tekur að hníga áfram
líkt og skriðjökull og leitar þá
að sjálfsögðu inn í gangana.
Við þetta þrengjast gangarnir
oft um 6 þumlunga á sólar-
hring, eða meira.
Hér er því komið svo djúpt
niður í jörðina, að varla sýnist
Egypzkar konur
lituou augnalok sín græn
fyrir 4 þúsund árum
Nýlega var sýning á Þjóð-
minjasafninu í Kaupmanna-
höfn þar sem austurlenzk
fegrunarmeðul voru sérstak-
lega sýnd. — Um líkt leyti
var haldið 25 ára afmæli ilm-
og snyrtivara í Danmörku, og
var þess minnzt víðsvegar um
landið.
Á því var vakin athygli, að
slíkar vörur hafi seint fengið
útbreiðslu í Danmörku, því að
konur hafi verið seinar til að
nota þær. Hafi til dæmis verið
lítið um notkun varalitar og
aðeins leikkonur og aðrir, er
tóku þátt í skemmtanalífinu,
hafi notað kinnalit og andlits-
duft. En á þessari sér-sýningu
Þjóðminjasafnsins fá menn að
sjá fegrunarmeðul frá því
fyrir Krists daga. Það elzta,
sem þar er að sjá, er skel með
grænum steini í. Hann er frá
því 2 þúsund árum fyrir
Krists burð, og egypzkar kon-
ur notuðu hann til að mála
augnalok sín græn, — alveg
eins og gert er í dag, en nú
er aðeins keypt til þess grænt
stifti, í búð. Þarna er líka lítið
tréhylki — næstum því eins
gamalt. Það notuðu egypzkar
konur fyrir farðapensla sína.
Á sýningunni eru líka skart-
gripir, — þarna er t. d. skart-
gripur eskimóa frá Alaska.
Það er marmarastykki, 250 gr.
á þyngd. Það er fest við vör-
ina og var sérlega fínn skart-
gripur.
Á sýningunni má sjá, hvern-
ig fordildin hefur alltaf þrifizt
á jörðunni-
fært að fara lengra, Þó gerir
stjórn námafélagsins ráð fyrir
því að láta fara niður í 11,500
feta dýpi, ef hægt er fyrir hita
og ef veggir bergganganna
skríða ekki saman áður en
svo langt er komið.
—Lesb. Mbl.
The NEW Look of Leadership for 1958
M0FFAT K57J5
City Hydro brought the first Moffat electric
ranges to Winnipeg nearly 40 years ago and
since that iime have been a leading Moffat
dealer. In the early 1920's electric range cam-
paign iniliaied by City Hydro placed a large
number of these Moffat ranges in Winnipeg
homes. Many of these are still in operalion.
atlesling to Moffat's high quality material and
workmanship.
Like every Moffat range ever made, these new
1958 models are built with that uncompromising
qualily which sets a Moffat distinctly apart from
ordinary ranges- When you buy a Moffat, you
buy lasting satisfaction.
AT YOUR OWN
DEPENDABLE
APPLIANCE
STORE . ..
Úh
401 PORTAGE AVE.
EAST OF KENNEDY
WHITEHALL 6-8201