Lögberg - 05.03.1959, Blaðsíða 1

Lögberg - 05.03.1959, Blaðsíða 1
OavLdADfL ShjudÍDA^ riIOTOGRAPHERS PhoTie GRover 5-4133 106 Osborne Street WINNIPEG CdavidtDtL ShudioA. PHOTOGRAPIIERS Phone GRover 5-4133 106 Osborne Street WINNIPÉG 71. ÁRGANGUR WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 5. MARZ 1959 NÚMER 10 Fró þjóðræknisþinginu Bréf úr Húnaþingi Því miður gátum við ekki setið alla fundi og samkomur þingsins, en öllum ber saman um, að þetta hafi verið eitt með skemmtilegri ársþingum félagsins og prýðisvel sótt. Áður var skýrt frá því hér í blaðinu hverjir myndu skemmta á kvöldsamkomun- um og leystu allir hlutverk sín af hendi með ágætum. Á þriðjudaginn sat fjöldi manns hádegisverð í boði W. J. Lindal dómara í veizlu- sal Hudson Bay, til heiðurs Guðmundi Grimson, fyrrum háyfirdómara Dakotaríkis, en aðalræðuna í því hófi flutti Mr. Adamson, háyfirdómari Manitobafylkis. — Ennfremur tóku til mál-s Dr. P. H. T. Thorlakson, Stefan Hansen og síðast heiðursgesturinn, en W. J. Lindal dómari stýrði þessu höfðinglega boði. Þingið samþykkti að veita vestur-íslenzku blöðunum fjárstyrk eins og að undan- förnu; nemur hann sem svar- ar $5.00 fyrir hverja útgáfu þess blaðs, sem kemur út viku lega, en $10.00 fyrir hverja útgáfu þess blaðs, sem kemur út aðra hvora viku. Vitað er að félagið berst í bökkum með að koma út Tímariti sínu; við- leitni þess að styrkja blöðin er því sérstaklega virðingar- verð. Það hefir lengi þótt leiðin legt að enginn virtist vita Plastefni notuð hér við augna-aðgerð Plastefni var fyrir nokkru notað hér á landi við augna- aðgerð. Undanfarin ár hefir piastefni og önnur gerfiefni rutt sér til rúms í vaxandi mæli við aðgerðum á ýmsum líffærum í líkamanum. Hafast þessi efni yfirleitt vel við, jafn vel í viðkvæmustu vefjum líkamans. Nýlega gerðu augnlæknar við St. Josepsspítalann hér í Reykjavík aðgerð á auga, er misst hafði sjón, eftir alvarleg meiðsli í slysi. Áður hafði ár- angurslaust verið gerð sú að- gerð á auganu, sem venjulega tíðkast undir slíkum kringum stæðum. Augnlæknar settu plast- stykki inn á augað, með þeim árangri að augað er nú á góð- um batavegi. Upphafsmaður slíkra að- gerða er víðkunnur banda- rískur augnlæknir Schepens, en þessi aðferð hans ryður sér nú mjög til rúms. —Mbl., 25. jan. hvar Gestur heit. Pálsson, skáld og ritstjóri, hafði verið lagður til hvíldar, en eins og kunnugt er, var hann ritstjóri Heimskringlu um skeið fyrir aldamót og andaðist hér vestra. Frú Elísabet Polson, sem fluttist hingað í fyrsta innflytjendahópnum íslenzka, kona greinargóð og stálminn- ug, tilkynnti þinginu, að hún gæti bent á, hvar gröf Gests Pálssonar væri, og var skipuð nefnd til að hafa þetta mál með höndum. Stjórnarnefnd félagsins var endurkosin og eiga þessi sæti í henni: Dr. Richard Beck, forseti Séra Philip M. Pétursson, vara-forseti Próf. Haraldur Bessason, ritari W. J. Lindal, dómari, vara-ritari G. L. Jóhannson, konsúll, féhirðir Mrs. H. F. Danielson, vara-féhirðir Guðmann Levy, fjármálaritari Ólafur Hallsson, vara-f j ármálaritari Ragnar Stefánsson, skjalavörður. Hörmuleg sjóslys í síðasta blaði var skýrt frá því, að íslenzki togarinn Júlí hefði farist og öll áhöfnin, 31 maður, nálægt Grænlandi. Þessa viku barst frétt um það, að annað íslenzkt skip Hermóður, hefði farizt með 18 manns..— 1 ræðu sinni á miðvikudagskvöldið s a g ð i Valdimar Björnsson: Ein minnisstæð setning kom fram í ræðu, sem sendiherra íslands flutti í Minneapolis í fyrra, sem fulltrúi á hundrað ára afmæli ríkisins. Hún var þessi: „ísland — þar sem fólk- ið er svo fátt, og munar þá svo mikið um hvern einstakling!“ Manni dettur þetta í hug núna í sambandi við manntjónið í tveimur sjóslysum síðustu vikurnar — þegar fiskiveiða- skipin „Júlí“ og ,Hermóður“ fórust, 31 dánir skammt frá Grænlandi,' — 18 manns ná- lægt Reykjanesskaganum. — Tap 49 Islendinga samsvarar, eftir fólksfjölda, láti 49,000 Bandaríkjamanna. — Það munar sannarlega um hvern íslending austan hafs og vestan. Kæri Einar og lesendur Lögbergs: Ég sit hér í eldhúsinu og horfi út. Það er allt hvítt af snjó, en upp til fjalla eru samt sæmilega góðir hagar og þar eru kindur okkar á beit. Fyrir framan mig liggur bók. Ég opna hana og sé að þetta er matreiðslu-uppskriftabók og þar stendur Mrs. Hornford’s Prize Buns. Kona mín, Vigdís, ætlar að fara að baka. Svona er lífið, hugsa ég; margt fleira má læra af ykkur í Vestur- heimi. Að minnsta kosti mæli ég eindregið með Mrs. Horn- ford’s Buns og veiti fleiri verð laun, á ný. Pósturinn komst ekki í gær nema að bænum Vík, því að snjór var afar-mikill allt að 20 fet á hæð. Ég var beðinn að fara á móti honum og flytja hann og póstpoka hans eins langt inn á Hvammstanga og hægt var. Því miður komst ég ekki nema hálfa leiðina. Snjóþyngslin voru svo mikil, að jeppinn minn komst ekki. Við prestar á Islandi, sér- staklega þeir sem búa í sveit, verða að gera meira heldur en að þjóna sjúkum og heil- brigðum. Það er eins og Stephan G. orti á sínum tíma: „Löngum var ég læknir minn, lögfræðingur, prestur.“ Hérna hefur verið ofsaveður upp á síðkastið með stórhríð og dimmviðri. Nú er komið bjartviðri, en hver og einn verður algjör- lega að búa að sínu, því að algjört samgönguleysi ríkir hér nema fyrir gangandi menn eins og póstinn. Við fréttum fyrir nokkru að Ari Jónsson, góður fyrrver- andi Vatnsnesingur væri kom inn til landsins. Við vonum hér á slóðum að fá að sjá hann og sýna honum góða og gamla íslenzka gestrisni. Um daginn fletti ég upp í Viðskiptaskránni, mér til gamans. Ég komst meðal ann- ars að raun um, að í Reykja- vík eru 104 læknar, 27 tann- læknar, 79 málarameistarar, 13 tryggingafélög, 6 spítalar, sem annast 6,000 sjúklinga á ári, 14 leigubílastöðvar (Taxi Stations) og 14,000 símar og á biðlista eru fleiri hundruð nöfn. En ekki sá ég neins næturklúbbs getið. — Lands- menn drukku áfengi á síðast- liðnu ári fyrir um lxh. milljón dollara og veiddu 400,000 tonn af fiski. Vonandi er, að eins mikill fiskur berist á land á þessu ári. Útlitið er ekki gott eins og er sökum sífellds ó- veðurs á hafinu. Það er vissulega gott að fá bréf frá góðum kunningjum. að vestan. Það gleður mig mjög að vita, að þessi fátæk- legu bréf mín eru vel þegin. Með beztu kveðju frá okkur öllum á Tjörn. — Roberl Jack Heiðursfélagar Dr. Valdimar J. Eylands Á síðasta fundi hins fertug- asta þings Þjóðræknisfélags- ins voru kjörnir tveir heiðurs- félagar, Dr. Valdimar J. Ey- lands og Dr. Þorkell Jóhannes son. — Hefir Dr. Valdimar jafnan verið einn af helztu styrktarmönnum félagsins, hann var skrifari þess og for- seti um langt skeið, auk þess sem hann hefir ritað fjölda greina og flutt ræður málum þess til fulltingis. Guðmann Levy, fjármálaritari félagsins, mælti með kjöri hans, en for- seti Dr. Beck afhenti honum skírteinið með nokkrum vel- völdum orðum, en Dr. Eylands svaraði með einni af hinum snjöllu og fyndnu ræðum sín- um, er kemur öllum í gott skap. Dr. Þorkell Jóhannesson er rektor Háskóla íslands og kunnur fræðimaður. Hann heimsótti Vestur-Islendinga á- samt frú sinni fyrir nokkrum árum og hefir jafnan sýnt hlý- hug í þeirra garð; hann var um skeið forseti Þjóðræknis- félagsins í Reykjavík. Grettir L. Jóhannson, konsúll og fé- hirðir félagsins mælti með kj.öri hans. Því miður hefir Lögberg ekki mynd til að birta af Dr. Þorkeli. Á ÆGISÍÐU Þar eru hellar miklir í jörðu, gerðir af mannahöndum. Vitna þeir um byggð Papa áður en sögur hófust um landnám norrænna manna. Hjer lýsti og brann hinn fyrsti arineldur, og íslenzk byggð við Rangárstraum var sett, hin gleymda saga greinir fátt, en rjett, hann geymir margt sá trausti þagnar-feldur. Vjer spyrjum fast, það fást ei svör að heldur, en fornir svipir reika hjer um stjett, og hvolfþök bergsins hvísla stórri frjett, mjer hverfa rök, en trúin ljósi veldur. 1 vegginn kross er greiptur högum höndum, jeg heyri kyrjað undir traustri súð, og orðahljóm á annarlegri tungu. Það komu menn um haf að suður-söndum, jeg sje þá lenda, reisa naust og búð, og Guði lof og landinu þeir sungu. ------0----- Þeir námu þennan stað og stóran gerðu, jeg stend og undrast hina víðu sýn, er þetta ísland. ættjörð mín og þín? um allar slóðir mikla framtíð sjerðu. Þó landnámsmannsins mesta hetjusaga sje myrkri hulin, verði alla daga, á Ægisíðu háu hella-þökin oss herma brautryðjandans starf og tökin. Um tún og ekrur ennþá helgar svörð hin írska bæn og fyrsta messugjörð. 28. nóvember 1958. Árni G. Eylands

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.