Lögberg - 05.03.1959, Blaðsíða 3
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 5. MARZ 1959
3
Business and Professional Cards
ÞJÓÐRÆKNISFÉLAG ÍSLENDINGA í VESTURHEIMI
Forsett: DR. RICHARD BECK
801 Llncoln Drlve, Qrand Forks, North Dakota.
Styrkið félagið með því að gerast meðiimir.
Ársgjald $2.00 — Tímarit félagsins frítt.
Sendist til fjármálarltara:
MR. GCÐMANN LEVT,
186 Llndsay Street, Winnipeg 9, Manltoba.
entar innrituðust í þetta nám-
skeið. Aðsókn því mjög góð.
Miklu betri en ég hafði þorað
að vona.“
Ég vil bæta því við, að
kennsla þessi er algrelega ó-
keypis, og á Haraldur pro-
fessor miklar þakkir skilið
fyrir þessa ágætu kennslu-
starfsemi sína í íslenzku.
Þá hefir vara-féhirðir fé-
lagsins, Mrs. Hólmfríður
Daníelsson, kennt nokkrum
ungum stúlkum íslenzku í
heimahúsum, og telur það
hafa borið góðan árangur. Ber
henni þökk fyrir þá viðleitni
sína.
Deildin „Esjan“ í Árborg
hefir einnig í ár leitast við að
halda uppi æfingum í söng og
upplestri fyrir börn og ungl-
inga, þó að ýmsar ástæður hafi
orðið þar nokkur þröskuldur
í vegi; eigi að síður tóku nokk-
ur börn og unglingar þátt í
tveim samkomum í byggð-
inni með upplestri og söng á
íslenzku. Mörgum mun okkur
einnig í fersku minni hinn á-
gæti upplestur barna þeirra
Gunnars Sæmundssonar hjón
anna í Árborg á kvæðum
Guttorms skálds Guttorms-
sonar á samkomunni hér í
borg honum til heiðurs, er
síðar mun getið.
Af hálfu deildarinnar á
Gimli hafa þær Mrs. Laurence
Stevens og Mrs. Sylvia Kár-
dal haldið uppi kennslu ís-
lenzkra söngva og lesturs, en
undirleik fyrir íslenzka söng-
flokkinn annast ung stúlka,
Carolyn Martin. „Hún talar
vel íslenzku og er þó aðeins
14 eða 15 ára gömul,“ bætir
Mrs. Kristín Thorsteinsson,
forseti deildarinnar að Gimli,-
við í bréfi til mín. Deildin
hafði alíslenzka samkomu 22.
ágúst í sumar, og þegar er
ákveðið, að unglingarnir taki
þátt með íslenzkum söng og
upplestri í Sumarmálasam-
komu 24. apríl næstkomandi.
Vil ég í félagsins nafni þakka
ofannefndum deildum ágæta
viðleitni þeirra að íslenzku-
kennzlu og söngfræðslu, og
þá um leið öðrum deildum fé-
lagsins, sem, ef til vill, halda
uppi slíkri fræðslu, þó að mér
hafi eigi borizt fregnir um
það, en augljóst mál er það,
hvert grundvallaratriði er hér
um að ræða í þjóðræknisstarfi
voru. 1 mjög íhyglisverðu
bréfi til mín víkur Mrs. Her-
dís Eiríksson í Árborg að þörf-
inni á hentugum kennslubók-
um, og ber oss að taka þá hlið
málsins til alvarlegrar athug-
unar, þegar fræðslumálin
koma til umræðu hér á þing-
inu.
Samvinnumál við ísland
Þau mál hafa aftur á liðnu
ári verið harla margþætt, og
þarf ekki að fjölyrða.um það,
hver meginþáttur framhald-
andi ættar- og menningar-
tengslin yfir hafið eru í starf-
semi félags vors.
Margir íslendingar héðan
vestan um haf heimsóttu ætt-
landið á árinu, meðal þeirra
hinn gamli og góði félags-
bróðir vor og fyrrv. forseti
deildarinnar „Fróns,“ Soffoní-
as Þorkelsson, og var frú hans
einnig með í förinni. Ekki fór
hann erindisleysu til ættjarð-
arinnar að þessu sinni fremur
en áður. Eins og skýrt hefir
verið frá í blaðafregnum, til-
kynnti hann í heimferðinni,
að hann hefði ákveðið að gefa
100 þúsund krónur til skóg-
ræktar í Dalvíkurhreppi, en
áður hafði hann gefið ríflega
fjárhæð til skógræktar á fæð-
ingarstað sínum, Hofsá. Þar
sem Þjóðræknisfélagið hefir
um mörg ár haft skógræktar-
málið á dagskrá sinni og stutt
það eftir mætti, þykir mér vel
sæma að geta hér sérstaklega
stórgjafar hins mæta félags-
bróður vors til eflingar því
þjóðþrifamáli. Sé honum heið-
ur og þökk fyrir höfðingskap-
inn og ræktarsemina til átt-
haganna!
En brú heimsóknanna yfir
hafið hefir á liðnu ári verið
byggð frá báðum ströndum,
eins og bera ber. Vér höfum
átt að fagna mörgum ágætum
gestum og kærkomnum heim-
an um haf. Hinn víðkunni
fræðimaður, dr. Einar ól.
Sveinsson, prófessor í íslenzk-
um bókmenntum við Háskóla
Islands, sem var í fyrirlestrar-
ferð um Bandaríkin í boði Ut-
anríkisráðuneytis þeirra, heim
sótti oss einnig, ásamt frú
sinni, og flutti hér í borg á
vegum Þjóðræknisfélagsips
fyrirlestur um „Gildi ís-
lenzkra fornsagna,“ sem mik-
ill rómur var gerður að. Hann
flutti einnig við jafn ágætar
undirtektir fyrirlestra um ís-
lenzk efni -bæði á Manitoba-
háskóla og Ríkisháskólanum í
Norður-Dakota. Mun komu
þeirra hjóna á vorar slóðir
lengi minnst með þakklæti af
hálfu fólks vors, en margir í
þeirra hópi kunna enn vel að
meta heimsóknir slíkra fræði-
manna.
Á liðnu ári gerðust einnig
þau tíðindi í samvinnumálun-
um yfir hafið, að þáverandi
forsætisráðherra í s 1 a n d s,
herra Hermann Jónassop,
skipaði fimm manna nefnd til
þess að vinna að auknu sam-
starfi og kynningu milli ís-
lendinga austan hafs og vest-
an, á grundvelli tillagna, sem
Árni Bjarnarson, bókaútgef-
andi á Akureyri, hefir samið
að tilhlutun ríkisstjórnarinn-
ar. Nefndarmenn eru: Árni
Bjarnarson, sem er formaður,
Benjamín Kristjánsson, prest-
ur að Laugalandi í Eyjafirði,
Egill Bjarnason, auglýsinga-
stjóri, Reykjavík, Hallgrímur
Fr. Hallgrímsson, aðalræðis-
maður Canada, Reykjavík, og
Steindór Steindórsson, yfir-
kennari, Akureyri.
Af hálfu stjórnarnefndar
vorrar hefi ég skipað ritara,
próf. Harald Bessason, vara-
féhirðij Mrs. H ó 1 m f r í ð i
Daníelsson, og vara-fjármála-
ritara, Ólaf Hallsson, til þess
að athuga hinar ofannefndu
og fjölþættu tillögur Árna og
leggja álit sitt á þeim fyrir
þingið til frekari ályktana.
Tillögur þessar birti Árni
fyrst í sérstökum bæklingi, en
síðan í ritinu Eddu, ásamt
með ritgerðum um samstarfið
við oss Vestur-íslendinga og
kveðjuávörpum til vor frá
fjölmörgum forystumönnum
heima á ættjörðinni, með for-
seta Islands, herra Ásgeir Ás-
geirsson, í broddi fylkingar.
Hefi ég áður í blaðagrein vak-
ið athygli á riti þessu og hin-
um mikla góðhug í garð vorn
íslendinga vestan hafs, sem
þar kemur fram, en nú vil ég
á þessum vettvangi þakka öll-
um, sem þar eiga hlut að máli,
hjartanlega í nafni félags vors.
Eins og kunnugt er, komu
þrír af fyrrnefndum nefndar-
mönnum, þeir Árni Bjarnar-
son, Steindór Steindórsson og
séra Benjamín Kristjánsson,
ásamt með frú Gerði Bjarnar-
son og Gísla Ólafssyni lög-
regluvarðstjóra á Akureyri,
hingað vestur um haf í sumar,
með það markmið sérstaklega
fyrir augum að safna efni í
vestur-íslenzkar æviskrár, og
unnu að því verki fram í
september. Varð þeim allvel
ágengt, þegar á allt er litið,
en um það vísa ég að öðru
leyti til kveðju þeirra og
greinargerðar í hinum ís-
lenzku blöðum vorum. En
betur má, ef duga skal, svo að
þetta verk nái fullum tilgangi
sínum. Vil ég eindregið hvetja
Islendinga í landi hér til þess
að sinna sem greiðlegast
beiðnum þeirra félaga um
æviskrár, og stuðla með þeim
hætti að útgáfu þessa merka
rits, sem hér er stofnað til, og
getur haft víðtæka þýðingu,
ekki sízt fyrir framtíðina.
Stjórnarnefnd félags vors
átti fund með þessum heim-
sækjendum bæði er þeir komu
og eins áður en þeir hurfu
heim um haf, og greiddi götu
þeirra eftir mætti; hið sama
gildir um fjöldamörg önnur
félagssystkini vor og aðra Is-
lendinga víðsvegar um álfuna.
Sem starfsmann við skrán-
ingu ævisagnanna réði nefnd-
in að heiman félagsbróður
vorn, Davíð Björnsson bók-
sala hér í borg, og er hann
framvegis umboðsmaður
nefndarinnar, ásamt með
mörgum öðrum íslendingum
hér vestan hafs, sem taldir
eru upp í fyrrnefndri grein-
argerð nefndarinnar í blöð-
um uorum. Aðalritstjóri verks
ins á Islandi er séra Benjamín
Kristjánsson, og má einnig
senda útfylltar æviskrár beint
til hans. í sambandi við komu
Steindórs Steindórssonar yfir
kennara má geta þess, að hann
var ræðumaður á íslendinga-
deginum á Gimli og flutti er-
indi á samkomum deilda fé-
lags vors bæði þar og í Ár-
borg og Winnipeg. Þölrkum
vér honum það þjóðræknis-
starf og þeim öllum, sem að
heiman komu í fyrrgreindum
erindum, kærlega heimsókn-
Minnist
BETEL
í erfðaskróm yðar
G. F. Jonasson. Pres. & Man. Dlr.
Keystone Fisheries
Limited
Wholesale Dlstrlbutors of
FRESH AND FROZEN FISH
60 Louise St. WHitehall 2-6227
PARKER. TALLIN. KRIST-
JANSSON, PARKER AND
MARTIN
RARRISTERS — SOLICITOR8
Ben C. Parker. Q.C.
(1910-1951)
B. Stuart Parker, Clive K. Tallin.
Q.C., A. F. Kristjansson, Hugh B.
Parker. W. Steward Martin
5th fl. Canadian Bank of Commerce
Building, 389 Main Street
Winnipeg 2, Man. WHltehaU 2-35«!
CANADIAN FISH
PRODUCERS LTD.
J. H. PAGE, Managing Dlrector
Wholesale Distributors of Fresh and
Frozen Fish
311 CHAMBERS STREET
Office: Rei.:
SPruce 4-7451 SPruce 2-3917
ERLINGUR K. EGGERTSON,
B.A.. L.L.B.
BARRISTER *m> SOLICTTOR
DE GRAVES & EGGERTSON
500 Power Bulldlng
Winnlpeg 1, Manltoba
WHitxhall 2-3149 Ras. GLoaa 2-607«
Gleym mér ei
HÖFN
IcelancLic Old Folks Home
Society
3498 Osler St., Vancouver 9, B.C.
Féhirðlr, Mrs. Emily Tliorson,
3930 Marine Drive
West Vancouver, B.C.
Simi Walnut 2-5576
Rltari
Miss Caroline Ciiristopiierson
6465 West Boulevard
Siml Kerrisdale 8872
ina, áhugann á samskiptunum
við oss, og það nytjaverk, sem
þeir hafa með höndum með
söfnun og samningu ævi-
skránna.
Niðurlag í næsta blaði
Kæra Mrs. Jónsson:
Ég sé, að fallið hefir úr í
prentun í nafnalistanum yfir
félagsfólk, sem látizt hafði á
áinu, nafn Carls Finnboga-
sonar, byggingameistara í
Vancouver. Væri ég þér mjög
þakklátur, ef þú vildir birta
leiðréttingu um það aftan við
ræðuna í næsta blaði. —R. B.
SELKIRK METAL PRODUCTS
Reykháfar, öruggasta eldsvörn,
og ávalt hrelnlr. Hltaelnlngar-
rör, ný uppfyndlng. Sparar eldl-
vlð, heldur hita frá að rjúka tlt
með reyknum.—Skrlflð, eimið U1
KELLY SVEINSSON
625 Wall St. Wlnnlpeg
Just North of Portage Ave.
SPruce 4-1634 — SPrnoe 4-1634
SPruce 4-7855 ESTIMATES
FREE
J. M. Ingimundson
Reroof Aphalt Shingles. Roof
repaire, lnstall vents, aluminum
windows, doors. J. Ingimundson.
SPruce 4-7855
632 Simcoe St. Winnipeg 3, Man.
Thorvaldson. Eggerlson.
Baslin & Stringer
Barristers and Solicitors
209 BANK OF NOVA SCOTIA Bld*
Portage and Garry St.
WHitehall 2-8291
S. A. Thorarinson
Barrlster and BoUcitor
2nd Floor Crown Trust Bldg
364 MAIN ST.
Office WHitehall 2-7061
Res.: 40-6488
Dunwoody Saul Smith
& Company
Chartered Accountants
WHiiehall 2-2468
100 Prtncess 8t. Winnlpeg, Mam.
And offices .at:
FORT WILLIAM - KENORA
FORT FRANCES - ATTKOKAN