Lögberg - 05.03.1959, Qupperneq 8
8
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 5. MARZ 1959
Yfirgangur brezkra togara nær til
fleiri þjóða en fslendinga
Úr borg og byggð
Úr Morgunblaðinu 10. febrúar
1959. Seni hingað flugleiðis.
ÚR „HLUSTAÐ Á ÚTVARP"
„Leikrit eftir Laugu Geirs,
vestur-íslenzka konu, — „1
óveðurslok,“ — þýðandi Aðal-
björg Bjarnadóttir, var leikið
í útvarpi síðastliðinn laugar-
dag. Leikstjóri var Hildur
Kalman, meðal leikenda voru
margir helztu leikarar hér og
ágætlega farið með leikritið.
Leikrit þetta gerist á fyrstu
árum íslenzks landnáms vest-
an hafs, enda kemur það ljós-
lega fram. Uppistaðan eru
erfiðleikar þeir er fólk þetta
átti í, sömuleiðis hjálpsemi
þess, og fórnfýsi. Ekki er leik-
ritið ritað í nútíma stíl.
Efni þess er að ungur land-
nemi, Baldur að nafni, ágætis-
maður tekur þá ákvörðun,
meðfram að ráði vina sinna,
að kvongast ráðskonu sinni,
sem er eldri nokkuð, en hún
er mjög mikilhæf kona. En
Baldur hefir flutt frá Islandi
sökum þess, að unnusta hans
þar, eða a. m. k. kona, ung að
aldri, er hann unni hugástum
og hugði einnig að bæri sama
hug til hans, hafði brugðizt
honum. Vissi hann ekki ann-
að en þessi stúlka væri gift.
En skömmu fyrir brúðkaup
þeirra Baldurs og bústýru
hans kemur gamla unnustan
frá íslandi. Kemur þá í ljós,
að ósamlyndi þeirra byggðist
á óviðráðanlegu atviki. —
Ráðskonan sér að þau unnast
mjög og gefur Baldri eftir lof-
orð sitt um eiginorð og tekur
fyrir annað lífsstarf af mann-
kærleika og fórnfýsi. — Það
má vera að margt eða allt sé
satt, sem sagt er í leikriti
þessu. Talsverður þróttur er í
því og rétt af útvarpinu að
taka það til flutnings.“
Þetta leikrit (á ensku) er til
sölu hjá höfundinum, í Edin-
burg, North Dakota, og hjá
Mrs. H. F. Danielson, 869
Garfield St., Winnipeg 10, og
kostar $2.50.
☆
— Hjónavígsla —
Laugardaginn 24. jan. s.l.
voru gefin saman í hjónaband
á heimili foreldra brúðarinnar
í Vancouver, B.C., þau Ed-
ward Albert Gnievotta og
Sigurlín Sigurveig Hallson.
Sr. E. S. Brynjólfsson gaf
brúðhjónin saman. Brúðgum-
inn er af þýzkum ættum og
eru foreldrar hans nú búsett
í Vancouver, hið mesta mynd-
ar- og dugnaðarfólk. Er hann
starfsmaður í timburverk-
smiðju. Brúðurin er dóttir
hjónanna Ingibjargar og Halls
Hallssonar, er bjuggu að
Silver Bay og Selkirk áður en
þau fluttust til Vancouver.
Hér varð Hallur fyrir miklu
siysi, eins og kunnugt er, en
hann hefur borið mótlæti sitt
og þrautir af frábæru hug-
rekki og karlnmennsku. —
Er brúðurin yngri dóttir
þeirra hjóna. — Svaramenn
brúðhjónanna voru Ben Frie-
sen, vinur brúðgumans og
Guida Shuert, systir brúður-
innar. Brúðkaupsveizla var
háldin í Alpen samkomuhús-
inu og sátu hana um 160
manns. Hr. Oscar Howardson
var veizlustjóri. Sr. Eiríkur
ávarpaði brúðurina og árnaði
brúðhjónunum allra heilla.
Ennfremur flutti fjölskyldu-
vinur brúðgumans ávarp og
Friðfinnur Lyngdal, sem tal-
aði á íslenzku. Um veglegar
veitingar annaðist Kvenfélag
ísl. lútherska safnaðarins í
Vancouver. Var veizlan að
öllu leyti hin ánægjulegasta.
Brúðhjónunum bárust fjöldi
fallegra og nytsamra gjafa. —
Framtíðarheimili þeirra verð-
ur í Vancouver.
☆
Frá Minneapolis
Kæru ritstjórar,
Einar og Ingibjörg:
Það hefir verið mergur í
Lögbergi upp á síðkastið. —
Ferðasaga Soffoníasar og
Götustelpan hin ágæta, eftir
Pálma, ásamt góðum og
skemmtilegum greinum frá
Haraldi Ólafssyni, nú í Cali-
forníu, en frá Mountain, N.D.
Og viðbætirinn við grein
Soffoníasar var bókstaflega
knúsandi. Hafði ég haldið að
ég væri nokkurnveginn “up
to the tick-of-the clock,” hvað
ísland snerti, en nú veit ég
að svo er alls ekki.
Ég mun verða í skuld við
blaðið næsta ár, en hamingjan
veit, að ég mun þá borga fyrir
blaðið! Ég gat ekki þagað yfir
þessum góðu greinum í Lög-
bergi. —G. T. A.
☆
Dr. Richard Beck tilkynnti
á miðvikudagskveldið, að
Stúdentaráð Háskóla íslands
hefði boðið Valdimar Björn-
son féhirði Minnesotaríkis til
íslands í haust til að flytja
þrjá fyrirlestra við Háskólann
í Reykjavík'og einn fyrirlest-
ur við Menntaskólann á Akur-
eyri.
☆
Hið íslenzka kvenfélag Uni-
tarasafnaðarins efnir til spila-
samkomu á mánudaginn 9.
marz kl. 8.30 að kveldi í
samkomusal kirkjunnar á
Banning stræti. — Verðlaun
veitt. Njótið góðrar skemmt-
unar; sækið samkomuna.
☆
Fáið Lögberg ekki að láni
Lögberg berst í bökkum að
koma út vikulega; það er því
sárt til þess að vita, að blaðið
gengur sumstaðar hús úr
húsi að láni hverja viku. Ef
fólk hugsaði út í það, að blað-
ið verður að fá. marga nýja
kaupendur til að halda áfram
vikulega, myndi það ekki láta
sig muna um að greiða sem
svarar 10 cents á viku fyrir
það.
Regndroparnir eru ekki
hnöttóttir. Þeir taka á sig ó-
teljandi myndir og breytast í
sífellu, eða um 16 sinnum á
hverri sekúndu. Að þessu hafa
menn komizt með því að taka
af þeim ljósmyndir með mikl-
um hraða.
MESSUBOÐ
Fyrsta lúterska kirkja
Sr. V. J. Eylands, Dr. TheoL
Heimili 686 Banning Street.
Sími SUnset 3-0744.
Guðsþjónustur á hverjum
sunnudegi:
Á ensku kl. 11 f. h.
Á íslenzku kl. 7 e. h.
Allir ævinlega velkomnir
VÍSUR
um Dr. Richard Beck
Richard Beck, sem frægur
fram
frækn og hrekklaus gengur;
engan flekk hann á, né vamm,
er geðþekkur drengur.
Vel er lærður, vandar mál,
vits af stærð er sprækur.
Endurnærði eigin sál,
ísland færði á bækur.
Dómgreind hyllir hvar sem er
hans tilstilli sanna,
og með snilli einatt sér
öfgavillu manna.
Hann ber þannig heiðurinn,
hress og annaglaður.
ísland manninn átti um sinn,
er varð sannur maður.
Jón Magnússon
---0----
Á V ARP
til Richards Beck í Sealtle,
Washington, 31. jlí 1958.
Vér réttum þér vinarhönd,
Ríkarður Beck,
fyrir ræðurnar þínar og ljóðin,
sem greypt hafa í frægð
íslands gullfagran hlekk.
— Því gleymir ei íslenzka
þjóðin.
Þú kemur nú til vor á
Kyrrahafsströnd,
mjög kærkominn unað að
færa
og styrkja þau þjóðernis-,
bræðralagsbönd,
sem binda’ oss við ættlandið
kæra.
Sönn gæfa þér fylgi á
framtíðarbraut,
til frægðar og góðs æ þig
styðji.
Og blessun Guðs friðar þér
falli í skaut,
þú Fjallkonu þróttmikli niðji.
Kolbeinn Sæmundsson
------0----
V í S A
Ritsnillfngur Richard Beck
reiknast mannfræðingur;
frægari aldrei finnur rekk
fram á sagnaþingum.
J. J. Middal
Brezkir veiðiþjófar hafa sig
ennþá talsvert í frammi í ís-
lenzkri landhelgi, þótt fyrir
komi dagur og dagur, sem
þeirra verður ekki vart. Hins
vegar hafa þeir gefið fyrirheit
um að færa sig upp á skaftið
um eða eftir 12. febrúar.
Landanir í Bretlandi
Nýlega landaði íslenzkur
togara ísfiski í Grimsby. Gekk
löndunin friðsamlega, en yfir-
menn brezkra togara tóku
þann atburð óstinnt upp og
höfðu í hótunum með að gera
verkfall, ef slíkt endúrtæki
sig. Nokkrar tilraunir hafa
veiðiþjófarnir gert til að sigla
beint á íslenzku varðskipin, og
einum veiðiþjófi komu brezk
herskip undan, sem tekinn
hafði verið að veiðum innan
Allt land nokkurra jarða
undir vatni.
Fregn til Alþýðublaðsins
frá Selfossi í gær.
HVITÁ er að flæða upp á kíló-
meters breiðu svæði í Flóan-
um. 1 morgun, þegar bóndinn
Runólfur í Ölversholti kom á
fætur, var Hvítá flædd upp.
Mun flóðið hafa byrjað í nótt.
Stíflan er í ánni skammt frá
Hestfjalli, nálægt Brúnastöð-
um. I frostunum var komin
mikil íshella á ána, en þegar
hlákan kom fylltist allt af
vatni. Hefur áin brotið ísinn
sums staðar og eru komnar
talsverðar hrannir á árbakk-
ann. En ekki hefur hún rutt
sig enn.
Margar jarðir undir vatni
Allt land nokkurra jarða er
undir vatni. Er bóndinn í
Hrygg flutti mjólkina í morg-
un, sá hann ekki veginn betur
en svo, að hann ók út af. Gátu
nokkrir bændur ekki komið
mjólkinni frá sér í dag, en
mjólkin er venjuléga sótt rétt
eftir hádegið hér í nágrennið.
Rennur út um Flóa
Hvítá rennur nú út Flóa og
yfir veginn skammt frá Hraun
gömlu 3ja mílna landhelginn-
ar og höfðu í hótunum að sigla
hvert það varðskip niður, er
reyndi að stöðv.a lögbrjótinn.
Yfirgangur við fleiri þjóðir
En það eru fleiri en íslend-
ingar, sem verða fyrir lög-
lausu ofbeldi af hálfu hinna
nýju sjóræningja Breta á höf-
unum. Færeyingar og Norð-
menn hafa þar einnig sögu að
segja. Fyrir fám dögum gerði
brezkur togari sig líklegan til
að sigla niður norskt gæzlu-
skip. Er mjög vafasamt, að
purrkunarlausara siðleysi í
umgengni við aðrar þjóðir
fyrirfinnist í veröldinni nú í
dag, en það sem Bretar hafa í
frammi við vinveittar ná-
grannaþjóðir á fiskimiðum
þeirra. —Islendingur 23. jan.
gerði. Þar rennur hún út í
Hróarsholtslæk og kl. 5 í dag
var hún komin út að bænum
Læk, sem er á móts við Hró-
arsholtskletta. Og seinast þeg-
ar fréttaritari blaðsins átti tal
við Ölversholt kl. 5, var flóðið
vaxandi. Var þá áin líka farin
að flæða upp á Skeiðum
—Alþbl., 28. jan.
FRÁ ONTARIO
Rte. No. 2, Ayr, Ont.,
February 23, 1959
The Columbia Press Ltd.,
Winnipeg, Man.
Dears Sirs,
Herewith $5.00 for renewal
of Lögberg, due in March.
Enjoy it very much, and hope
this gem of the old timers
may not succumb. I see you
have been getting a fair num-
ber af new subscribers, which
will help, in these days of
perpetual skyrocketing of the
monetary scale.
Yours truly,
L. J. Hedderick,
Beekeeper.
KAUPIÐ og LESIÐ
— LÖGBERG
SENIOR CITIZENS BUNGALOW APARTMENTS
This project planned for the Town of Gimli. Modern
Suites. Consisting of Living Room, Bed Room, Kit-
chenette and Bathroom. Each unit will be fully serviced
with Stove and Refrigerator.
Monthly rental for this De-Luxe accommodations will
be approximately $35.00 per month for couples.
For further details forward application to
TREASURER,
123 Princess St., Winnipeg 2, Man.
SMÁHÚSAÍBÚÐIR FYRIR ELDRA FÓLK
1 ráði er að reisa nokkur smáhús (bungalows) á Gimli,
ef eftirspurn reynist nægileg. Það yrðu íbúðir af nýjustu
gerð með setustofu, svefnherbergi, litlu eldhúsi og bað-
herbergi, og í hverju húsi eldavél og kæliskápur.
Mánaðarleiga fyrir þessar lúxus-íbúðir yrði um $35.00
fyrir hjón. 1 þessari leigu innifelst upphitun, ljós og vgtn.
Frekari upplýsingar fást hjá
TREASURER,
123 Princess St., Winnipeg 2, Man.
Hvítá flæðir yfir bakka sína