Alþýðublaðið - 11.08.1960, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 11.08.1960, Blaðsíða 7
 Þórshöfn, 10. ágúst. (NTB). VERKFALL opinbcrra starfsmanna í Fœrcyjum, sem hófst í morgun virð- ist vera mjög almennt. — Næstum allar opinhcrar skrifstofur, som heyxa ur»d ir landsstjórnina, eru !ok- aðar og verkfalísveröir sttanda við skrifstofur landsstjórnarinnar sjáifr- ar og sömuleiðis við bæjr arskrifstofur Þórshafnar. Símasambandslaust hefur verið síðan í morgun milli Þórshafnar og annarra hluta eyjanna. Ástæðau til verkfallsins er neitun lögþingsins að samþykkja launahækkun, er svarar til þeirrar hækk unar ,sem opinberir starfs menn í Dtanmörku hafa fengið samkvæmt nýjum, almennum samningi. Lög- þingið ræddi Iaunamálin á þriðjudagskvöld og ákvað að kjósa nefnd, er gera á tillögur, er þingið kemur aftur saman eftir nýár. — Samband opinberra starfs manna vildi ekki hlíta neinni fresíun og boðaði verkpall frá miðvikudegi. Góð veiði Bergen, 9. ágúst. (NTB). EFTIRLITSSKIPIÐ Garmur segir í dag: Góð veiði í snurpu 200 upp í 500 og 1000 upp í 1700 hektólítrar. Netaveiðí eiimig góð frá 30 til 50 upp í 180 tunn- ur Fínt veður. B-36 ngaþingið hefsf í dag NORRÆNA lögfræðingaþing- ið hið 22. í röðinni hefst í Rvik í dag og stendur fram á laugar- dag. Er það í fyrsta skipti, sem slíkt þing er haldiff hér á landi. Mun það vera fjölmennasta nor- ræna þingið, sem efnt hefur ver ið til hér á landi, þar sem 370— 380 norrænir gestir sækja þing- ið auk rösklega 130 íslenzkra Iögfræðinga. Fyrsta norræna lögfræðinga- þingið var haldið 1872 að frum- kvæði sænskra lögfræðinga. — Samkvæmt reglum þeim, sem þingunum var upphaflega sett, skyldi' halda þau þriðja hvert ár. Ekki hefur þó reynzt ger- legt að halda þvi skipulagi vegna ýmissa eríiðleika. Eftir að þessu þingi' er lokið hafa öU Norðurlöndin staðið fyrir þing höldum þessum. Danir, Norð- menn og Svíar sex sinnum hver, Finnar þrisvar og íslend- ingar einu sinni. Norrænu lögfræðingaþingin hafa mikið gild bseði raunhæft og fræðilega, auk þess sem þau eru vetvangur fyrir norræna lögfræðinga til að hittast og kynnast. Á lögfræðingaþingun- um hafa jafnan verið ræddar mjög hugmyndi'r um norræna lagasamvinnu, og má rekja sam norrænu lögin til þeirra um- ræðna að verulegu leyti. Lögfræðingaþingið verður sett í Þjóðlekihúsinu í dag, qg heldur þá formaður íslands- deildar norrænu lögfræðinga- asmtakanna, Árni Tryggvason, hæstaréttardómari, setningar- ræðuna. Síðan verða rædd fé- lagsmálefni, og að því loknu ’ hefjast umxæður um fyrsta) fundarefnið, „Friðhelgi' einka- lífsins“, þar er aðalframsögu- l ræðumaður Gunnar Thorodd- sen, fjármálaráðherra. Á fostudag verða deildarfund ir í Háskólanum, þann dag flyt ur próf. Ólafur Lárusson fyrir- lestur um félagsmálalöggjöf hér á landi á þjóðveldistímanum.—- Síðan hefjast deildarfundir að nýju. Þá um kvöldið verða er- lendu þátttakendurnir gestir á heimilum íslenzkra lögfræð- inga- Á laugardag fer svo fram allsherjarfundur og þinglausn- ir. Á förum til Israels GUÐMUNDUR I. Guffmunds- son utanríkisráðherra er á för- nm í opinbera heimsókn til ísraels í boði ríkisstjórnar þess. í för með ráðherranum verður Henrik Sv. Björnsson ráðu- neytisstjóri. Á heimleiðinni til íslands munu þpir sitja utanríkisráð- berrafund Norðurlanda, sem haldinn verður í Osló í ágúst- lok. (Frá iitanríkisráðuneyíimi). Fyrsta, annaó riðja og . . . / ÞAÐ er boðið og boðið. Þarna fóru 8000 súpupakk ar fyrir 21 þús. krónur, en þegar til kom, fanmst ekki bjóðandinn. Það Varð að bjóð aftur, Og þá fóru þeir fyrir 10 þús. krónur, og a® þessu sinni fannsf bjóðand inn. Uppboð þetta átti sér staff í vörugeymslu Eim- skipafélags íslands í Haga í gær. — Þarna kenndi margra griaSa m. a. fóru þarna 100 stk. hárþurrkur fyrir 26 þús., 20 gólfteppi fyrir 63 þús., skordýraeit- ur fyrir 70 kr. Einnig vap boffin upp fuglaplokknnar- vél, sem var slegin á nokk ur hundruð krónur, en þegar eigandinn ætlaffi :að færa gripinn með sér heim, reyndisf hann ver^ kistulok af Renó model 4{f. Þarna keypti gömul kona 2 húnt af greni, sem hef- ur verið í geymslunni síð- an 1958, fyrir 380 krónur.. Myndin er af uppboðshald aranum. (mMWWMMWnMWMMMIWMMWMMWWWMMMWWtW FÖSTUDAG s. 1. kom til Keflavíkur kn'attspyrnulið frá Færeyjum. Er hér um að ræða Færeyjameistarana B-36 frá Þórshöfn,. Liðið verður í Keflavík í eina viku, og leikur þrjá leiki' við lið úr Keflavík. Annað kvöld leikur liðið við ÉRK. Á mánu dag vi'ð KFK, og á miðvikudag leikur það við Keflavíkurmeist arana UMFK. Árið 1957 fór kna-ttspyrnulið frá Keflavík til Færeyja í boði B-36, og er koma þess hingað ei'nskonar endurgreiðsla á því boði. ,ærði íslenzku hér o: rannsakar mál eskimóa í GÆR hafði Alþýðublað- ið tal af ungum bandarísk- um málvísindamanni, sem dv'alið hefur hérlendis í tvö ár við íslenzkunám. Þessi maður er Michael Krauss, sem ltom hingað 1958 á Kiljansstyrk. Hann cr ntjög þakklátur fyrir dvölina og biður fyrir kveðjur til allra kunningja hér. Michael Krauss fór vestur í nótt. Hann kvaðst harma að hafa ekki getað farið neitt að ráði am landið. Að vísu var hann um tíma norður í Vatnsdal, en annars hefur hann að mestu verið í Rvík; búið á Garði og setið þar löngum við lestur og nám. Michael Krauss ex auð- heyrilega mikill málamað- ur, þar sem hann talar ís- lenzku afbragðsvel eftir svo stutt nám. Hann var í Færeyjum í sumar við mál- rannsóknir þar, en nú er hann ráðinn prófessor í málvísindum við háskólann í Alaska. Þar kennir hann erlend tungumál og skipu- leggur rannsóknir í Eski- móísku. — Ég veit ekki hvenær ég kem aftur til íslands, sagði hann við Alþýðublað- ið í gær. — Það er erfitt að yfirgefa landið, sem hef- ur fóstrað mann svo ágæt- lega í tvö ár. Og mig mun alltaf langa hingað aftur. Ég hef að sjálfsögðu ekki í hyggíu að láta ístenzku- námið fyrnast, heldur mun ég halda áfram að læra málið. Ég hef liaft mikið upp úr háskólanámi hér, kennslan er góð og miltið á því að græða fyrir mál- vísindamann að koma hingað. Héðan hefur Michael Krauss prófið Baccalaurea- tus Philologiae Islandicea, en hingað kom hann doktor í málvísindum frá Harw- ard. Michael Krauss er tutt- ugu og fimm ára gamall. Um rannsóknarstörf þau, sem framundan eru við há- skólann í Alaska, hafði hann það að segja, að þau væru kostuð af háskólan- um, og að hann hcfði kynnt sér eskimóísku eftir föng- nm. Að lokum endurtók Michael Krauss að hann þakkaði fyrir eóða við- kynningu, og það væri raunar allt og sumt, sem hanh hefði að scgja við dag blað, nú þegar hann væri á förum. Heimsóknin endurgoldin ! Á S.L. ÁRI fóru til Austur- Þýzkalands í boði Samvinnu- sambandsins þar tveir fulltrúar frá samvinnuhreyfingunni á íslandi. Voru það þeir Kjartan. Sæmundsson, kaupfélagsStjóri KRON, og Arthur Guðmitnds- son, fulltrúi hjá KEA. Dvöldu þeir þar ttm hálfsmánaðar skeið. Þann 2. ágúst komu hingað í boði Sambands ísl. samvinnu- félaga tveir fulltrúar frá Aust- ur-þýzka Samvmnusamnand- inu. 'Voru það þau frú Htlde- gard Standke, þingmaður, sem er og í framkvæmdastjórn Austur-þýzka Samvinnusam- bandsins, og hr. Heinz Fahren- krog, deildarstjóri yfir vefnað- arvörudeild Samvinnusam- bandsins. Fulltrúar þessir hafa fejíðast vítt um landið norðanveœ og sunnan, kynnt sér star*emi samvinnuhreyfingarinnar £ ís- landi og skoðað landið. £,étu þeir hið bezta yfir förinni, enda var veður oftast hið fegíTrsta. Gestirrúr héldu heim í dag. I AlþýSublaðið — 11. águst 1960 J

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.