Alþýðublaðið - 11.08.1960, Blaðsíða 14

Alþýðublaðið - 11.08.1960, Blaðsíða 14
Ef Sovét... Framhald af 16. síðu. óþægileg vitni eftir, og fram kvæma má áætlunina, eins og fyrirhugað var. Flóttamönnum, sem út úr fandinu streymdu yrði lýst sem agentum og óvinum fólksins. „Hið árásarsinnaða Franska Kongó er ógnun við friðinn og tekur við flótta- mönnum á ógnandi hátt. Ef fandamærunum er ekki þeg- ar í stað lokað, ef flóttamönn- unum er ekfti þegar í stað skilað til að taka út verðskuld aða hegningu sína, og ef þess- um friðar-fjandsamlégu að- gcrðum er. ekki þegar í stað hætt, má búast við hinum alvarlegustu afleiðingum. Við viljum benda ykkur á, að við eigum eldflaugar, er náð geta íil allra borga og flugvalla í Frönsku Kongó.“ „Patrice Lumumba, þessi auðvirðilega undirlægja, sem hrifsað hefur til sín persónu- leg völd með samsæri við ó- vini fólksins, var dæmdur til dauða í dag af alþýðudóm- stól í Krústjovvilie (áður Le- opoldville) fyrir glæpi framda gegn fólkinu. Hann verður tek inn af lífi á morgun á Rauða torginu.“ „Moise Tsjombe, sem nýt- ur trausts fólksins, var kjör- inn forsætisráðherra í dag. Fyrsta verk hans var að biðja stjórn Sovétríkjanna um að- stoð til að brjóta á bak aftur allar tilraunir studdar af Bandaríkjunum, til að stevpa löglegri stjórn Kongó. Sov- éskir hermenn eru þegar farnir að reyna að koma á friði og reglu. Harðorð mót- mæli hafa verið send SÞ vegna moldvörpustarfsemi Bandaríkjanna og tilrauna þeirra til að koma á kapítal- istósku þrælakerfi í Kongó. Öryggisráðið hefur verið beð *ð um að balda fund þegar í stað til að fordæma og koma í veg fyrir árás Bandaríkja- manna.“ „Amerískir njósnarar hafa verið handteknir í Vorosjilov ville — fyrirgefið Suslovville (áður Molotovville, áður El- izabethville). Þeir hafa stað- fest, að beir hafi komið til landsihs til að dreifa út logn- um áróðri gegn hinum frið- elskandi Sovétríkjum og hafa forustu um að steypa löglegri stjórn Kongó. Allar friðelsk- ondi þjóðir á jörðu fordæma þessar aðfarir o. s. frv.“ ,„Ungverskar aðstæður befðu komizt á á mjög stutt- um tíma, landamærum verið Iokað, aftökur framkvæmdar hver af annarri. Friður og „rólegt ástand“ hefði komizt á.“ Þýzkir jafnaðarmenn Framhald af 4. síðu. ing, enn sem komi'ð er. En það er augljóst, að margir meðlimir flokksins muni eiga erfitt með að sætta sig vi'ð, að flokkurinn fjarlægist svo mjög sjónarmið, sem menn sameinuðust um fyrir aðeins tveim árum. Það er þegar far ið að talg um, að til þess kunni að koma, að stofnaður verði nýr þýzkur verka- mannaflokkur — án þess þó að nokkur trúi því, að slíkt muni hafa mjög alvarleg á- hrif á SPD. A : D iþví er við kemur afstöðu flokksins til hinna nýju vopna er hins vegar augljóst, að um hokkurn rugling er að ræða. Svo virðist sem enn hafi ekki verið tekin nein ákveðin af- staða. Ýmsir af fremstu mönn um flokksins ha.'a upp á síð- kastið látið í Ijós mjög mis- munandi skoðanir á þvj máli, og það er Ijósf, að ákvörðun verður að taka nú í sumar. Áður en flokksþingið kemur saman í haust verður að liggja fyrir samþykkt forust- unnar. þ AÐ er alls ekki víst, að SPD muni með einu pennastriki vísa á bug þeim möguleika, að þýzki herinn — sem er hluti' af varnarliði NATO — verði búinn vopnum, sem nota megi í atómhleðslu, ef til stríðs kemur. (Hleðslurnar mundu sennilega ekki vera undir stjórn Þjóðverja, heldur Bandaríkjamanna. En ennþá er of snemmt að segja nokkuð með vissu um þetta atriði'. Það er mjög undir þróuninni í alþjóðamálum komið. w "iLLY BRANDT er vinsælli en nokkru sinni í Þýzkalandi og á því er tæpast nokkur vafi, að SPD styður hann ör- ugglega sem frambjóðanda til embættis kanzlara. Eftir stríð hafa kosningar í Vestur- Þýzkalandi að verulegu leyti snúizt um forustumenn. í bar- áttunni' milli hins sterka Ad- enauers og hins „venjulega11 OHenhauers haf'a Adenauer og kristilegir demókratar átt tiltölulega auðveldan leik. Það yrði talsvert erfiðara fyrir Adenauer að vera bori'nn saman við Willy Brandt. Það er því engin furða, þó að nokk ur taugaóstyrkur geri vart við sig hjá stjórnarflokkunum. Suðurskauts- ísinn Framhald af 16. síðu. Helslngfors. Kvað Shoumsky. áætlanir sínar sýna, að snjó- koma bætti 2.550 rúmkíló- metrum við Suðurskautsland ið á ári hverju. Nokkuð af snjónum feykist í liafið, áð- ur en hann liarðnar. Nokkuð tapast við bráðnun og upp- gufun, en langmest fer for- göirðum vegna borgarísjaka, sem brotna af jöklinum. Það, sem tapast, er þó aðeins 1.330 rúmkílómetrar, samkvæmt á- ætlunum Shoumskys, þannig, að árleg viðbót er 1.220 rúm- kílómetrar á ári. Að svipuðum niðurstöðum hafa þeir komizt Ástralíumað urinn Dr. Molcolm Mellors og Dr. F. Loewe, sem tók þátt í franska leiðangrinum. London, 10. ágúst. BREZKI flugherinn varpaði í dag niður vistum til þeirra, s«m lifandi eru á olíuskipinu Wofld Sky frá Líberíu, er tilkynnt er, að hafi sokkið hafi úti fyrir strönd Oman við Persafló;a. — Eigendur skipsins, Niarchos- hringurinn, segja, að flugvélar hafi séð 10 af skipinu á sandrifi — Hið einasta, sem hingað til var vitað um skipið, var, að það hefði liðast sundur á ey nokkurri úti fyrir Ornan. 'Samkvæmt skeytum, er Niar- chos-hringnum hafa borizt, hafa 17 komizt af, þar á meðal skip- stjórinn. 35 voru á skipinu, allt Grikkir, nema einn Breti. Skip- ið fór frá Port Sudan við Rauða haf 30. júlí og ætlaði til Kuwait við Persaflóa, þangað sem það átti að koma s. 1. laugardag. — Er þess hafði verið saknað í tvo sólarhringa, fékk Lloyds til- kynningu frá brezka flughern um um, að það hefði sokkið við eyjuna Salala við Okan- strönd. Athugasemd Framhald af 13. síðu. frid AB, Gautaborg, og var samið um kaup á pokum í sam ræmi við það tilboð. Hópur manna, sem var við- staddur, er tilboðin voru opn- uð í bæði skiptin, er til vitnis um, að hér er rétt frá skýrt. Frá öðrum fyrirtækjum en þeim, er að ofan greinir, hafa sementspokar ekki verið keyptir. Sonur minn á engan hlut að þeim fyrirtækjum, sem hér hafa verið nefnd. Má af þessu ráða, hve frétt Frjálsrar bjóðar er gersam- lega úr lausu lofti gripin. Reykjavík, 6. ágúst 1960. Jón E. Vestdal. Bikarkeppnin Framhald af 11. síðu, sæti í aðalkeppninni, en þá koma inn í keppnina 5 lið úr 1. deild, en Akureyringar taka ekki þátt í keppninni að bessu sinni. Næstu leikir í forkeppninni verða: 13. ágúst Valur B — ís- firðingar (í Rvík), Reynir og ÍKF leika í Sandgerði 14. ág„ Þróttur A og ÍBH í Hafnarfirði 14. ágúst, og 'Víkingur og ÍA B á Akranesi 13. ágúst. Verður forkeppninni lokið fyrir mán- aðamót, en aðalkeppnin hefst síðan sunnudaginn 11. septem- ber og er gert ráð fyrir að henni ljúki 9. október. Keppt er um bikar, sem Tryggingamiðstöðin hefur gef- ið sérstaklega til keppninnar. 11. ágúst 1960 — Alþýðublaðið SlysaTarðstofan er opin allan aólarhrlnginn Læknavörður fyrir vitjanir er á sama stað kl. 18—8. Sími 15030. O.............; .....- • Gengisskráning 2. ágúst 1960. Kaup Sala £ 106,74 107,02 US$ 38,00 38,10 Kanadadollar 39,00 39,10 Dönskkr. 5.51,70 553,15 Norsk kr. 533,00 534,00 Sænsk kr. 736,05 737,95 N.fr. franki 775,40 777,45 Sv.franki 882,65 884,95 V-þýzkt mark 911,25 913,65 . •----------- o Skipaútgerð ríkisins: Hekla er í Kmh á elið til Gtb. Esja er á Austfjörðum á norðurleið. Herðubreið er á ' leið frá Austfjörðum til Rvk. • Skjaldbreið er í Rvk. Þyrill er á Autsfjörðum Herjólfur ' fer frá Vestmananeýjum í dag til Hornafjarðar. Skipadeild S.Í.S.: Hvassafell er í Álaborg. Fer 13. þ. m. frá Álaborg til Stett-; in og íslands. Arnarfell fór ! 3. þ. m. frá Swansea til On- ega. Jökulfell fer í dag frá Calais til Hamborgar. Dísar- ; fell osar ábúrð á Norðurlánds . höfnum. Litlafell er á leið-til Rvk frá Norðurandshöfnum. Helgafell lestar síld á Norður- landshöfnum. Hamrafell -fór ; 2. þ. m frá Batum til Rvk. , Kempr 17. þ. m. til Rvk. Millilandaflug: Hrímfaxi fer til Glasgow og Kmh. kl 08,00 í dag. Væntanl. aftur til Rvk kl„ 22,30 í kvöld. Flugvél in fer til Glas- gow og Kmh. kl. 08.00 í fyrramálið. Gull- faxi fer til London kl. 10.00 í dag. Væntanleg aftur til Rvk kl. 20.40 í kvöld. — Innan- lnadsflug: í dag er áætlað að fljúga til Akureyrar (2 ferð- ir), Egilsstaða, ísafjarðar, — Kópaskers, Patreksfjarðar, — Vestmannaeyja (2 ferðir) og Þórshafnar. — Á morgun er áætlað að fljúga til Akureyr- ar (3 ferðir), Egilsstaða, Fag urhólsmýrar, Flateyrar, — Hólmavíkur, Hornaf jarðar, — ísafjarðar, Kirkjubæjarklst., Vestmannaeyja (2 ferðir) og Þingeyrar. Loftleiðir h.f.: Snorri Sturluson er vænt- anlegur kl. 23.00 frá Luxem- burg, Amsterdam, fer til New York kl. 00.30 Edda er vænt anleg kl. 09.00 f.h frá New York, fer til Oslo, Gautaborg- ar, Kmh. og Hamborgar. Eimskipafélag íslands h.f.: Dettifoss fór irá Antwerpen i nótt 10.8. til Rvk. Fjall foss fór frá Hafn- arfirði 6.8. til Hamborgar, Aarhus, Rostock og Stettin Goðafoss fór frá Norðfirði í morgun 10.8. tii Húsavíkur, Akureyrar, Siglu fjarðar, Sauðárkróks, Súg- andafjarðar, Flateyrar, Pat- reksfjarðar og Rvk. Gullfoss kom til Rvk 10.8. frá Kmh. Lagarfoss kom til Rvk 5.8. frá New York. Reykjafoss fer frá Hamina 10.8. til Leith og Rvk. Selfoss kom til New York 8.8. frá Rvk. Tröllafoss fór frá Rotterdam 9.8. til Hull og Rvk. Tungufoss fór frá Gautaborg 9.8. tij. Kmh. og Ábo. Jöklar h.f.: Langjökull fór frá Hafnar- > firði í kærkvöldi á ‘ leið til Riga. Vatnajökull fór frá Strasund í gærmorgun á leið til Rotterdam. XXII. þing norrænna lög- fræðinga, Reykjavík 11.-13. ágúst 1960. íslenzkir þátt- takendur eru vinsamlega beðnir að vitja, sem fyrst gagna, sem ætluð eru þátt- takendum þingsins í skrif- stofu þingsins í dómhúsi Hæstaréttar. Opið 9-19 dag- lega. Verndið dýr gegn meiðslum og dauða með því að hirða vel um girð ingar og skilja eigi vírspotta eða vírflækjur eftir á víða- vangi. — Samband Dýra- verndunarfélags íslands. Fimmtudagur 11. ágúst: 13.00 ,,Á frívakt inni“. 15.00 Mið degisútvarp. — 20.30 Einsöngur: Stefán íslandi syngur ítalskar óperuaríur: — 20.50 Erindi: Hin hvíta borg, Helsinki (Séra Árelíus Níelss.). 21.20 Píanótón- leikar: Alfred Cortot leikur. 21.40 Frásaga af hestinum Lúsa-Rauð (Ár- mann Halldórsson kennari á Eiðum). 22.10 Kvöldsagan: ,,Knittel“, 11. (Ævar Kvaran) 22.30 Sinfónískir tónleikar. 23.05 Dagskrárlok. LAUSN HEILABRJÓTS:

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.