Kirkjublaðið - 02.09.1892, Page 6

Kirkjublaðið - 02.09.1892, Page 6
166 limir kristilegrar kirkju á meðal vor, og láta eigi sin vígðu guðs-hús einn helgan dag eptir annan standa tóm eða harla fáskipuð, þótt þeim sje auðvelt að sækja þang- að, Gruði til dýrðar og sjálfum sjer til kristilegrar upp- byggingar. Þegar nú litið er á fyrri töfluna, sýnir hún, að ár- lega sjeu hjer á landi fluttar á milli 4 og 5 þúsundir messugjörða; að meðaltal messna í hverju prestakalli í öllu landinu hafi árin 1890—91 verið 33 og 35, og að fyrra árið hafl rúmlega 38 af hverju hundraði fermdra verið til altaris, en síðara árið lítið eitt færri eða 35x/2.— Meðaltal messna í prófastsdæmunum hvert ár er fundið með því að skipta samtölu messna með tölu þeirra presta- kalla, sem skýrslur eru um. Þetta meðaltal munar optast eigi miklu ár eptir ár í sama prófastsdæmi, en þó kem- ur það fyrir, eins og i Suður-Múla prófd., þar sem það munar frá 21 til 34, og í Vestur-Skaptafells próf., þar sem það eitt árið er 32, en lnn árin 48 og 51. Hæstar með- altölur, eða yfir 40 messur til jafnaðar á ári i bverju prestakalli, eru í þéssum prófastsdæmum: Rangárvalla, Kjalarnessþings, Vestur-Skaptafells, Arness og Eyjafjarðar; þar næst koma með 30—40 á ári: Skagafjarðar, Borgarfjarð- ar, Mýra, Suður-Þingeyjar, Snæfellsness, Austur-Skaptafells og Vestur-ísafjarðar. A milli 20 og 30 á ári eru í Húnavatns, Dala, Norður-Múla, Suður-Múla, Barðastrandar, Norður- ísafjarðar, Stranda og Norður-Þingeyjar. Taflan um flest- ar messur sýnir, að nokkur eru þau prestaköll, þar sem messuföll eru svo fá ár eptir ár, að þau naumast eru teljandi. Efst stendur þar, svo sem eðlilegt er, Reykjavík með rúmar 60 messur á ári, þar næst má einkum telja: Akureyri, Vestmannaeyjar, Breiðabólstað í Fljótshlíð, Garða á Álptanesi, Möðruvallaklaustur, Landeyjaþing, Eyri í Skutulsflrði, Stokkseyri, Staðarhraun, Grundarþing, Arn- arbæli, Hraungerði, Útskála og Mýrdalsþing, — með 50 messur á ári og þar yfir; þá eru enn 5 prestaköll í Ár- ness prófd., 4 i Rangárvalla og Skagafjarðar, 3 í Kjalar- nessþingi og Eyjafjarðar, 2 í Snæfellsness og Suður-Þing- eyjar,'og 1 í Suður-Múla, Vestur-Skaptafells, Borgarfjarð- ar og^Vestur-ísaíjarðar prófastsdæmum, þar sem fluttar

x

Kirkjublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/137

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.