Kirkjublaðið - 02.09.1892, Blaðsíða 10
170
frá flestum söfnuðum. Kirkjuþingið var allfjölmennt og
fór í alla staði vel fram.
Þessi mál voru hin helztu á kirkjuþinginu.
1. SJcólamál kirkjufjelagsins. Skólamálsnefndin lagði
fram reikninga fyrir skólasjóðinn. Á þeim reikningum
sjest, að skólasjóðurinn hefir' vaxið um helming síðan á
kirkjuþingi í fyrra. Sá vöxtur er að þakka almennum
samskotum og gjöfum einstakra manna. Skólanefndin
lánar peninga og greiðir vöxtu af þeim. Skólasjóðurinn
er nú orðinn um 1250 dollars. í sambandi við skólamál-
ið má geta þess, að kirkjuþingið samþykkti að senda rit-
stjóra Kbl. og þeim prestum á Islandi, sem bezthafatek-
ið í skólamálið, þakkarávörp fyrir tillögur sínar í þessu
efni.
2. Prestsleysismálið. Aldrei hefir kirkjuþingið verið
í meiri vandræðum með prestsleysi sitt en einmitt nú.
Kirkjufjelagið hefir eigi nema þrjá vinnandi presta. Og
meðan sr. Jón liggur, verða öll verk hans að bætast á
nágrannaprestana, sr. Friðrik og sr. Hafstein. Verk það,
sem þeir þurfa að vinna, er svo mikið, að það er ómögulegt
fyrir tvo menn að leysa það af hendi. Til þess að bæta úr hinni
brýnustu nauðsyn, þá ákvað kirkjuþingið, að þessir tveir
prestar tækju sjer tvo óvígða menn til aðstoðar um tveggja
mánaða tfma í sumar. Þessir menn eru stud. theol. Björn
B. Jónsson og stud. theol. Jónas A. Sigurðsson. Þeir eru
báðir ungir menntamenn, þótt þeir hafi eigi gengið í gegn
um lærðan skóla (college). Þeir hafa stundað guðfræðis-
nám einn vetur og búast við að geta lokið nánti sínu
næsta vetur. Svo er til ætlast, að þessir ungu ntenn prje-
diki aðallega í þeim söfnuðum, sem hafa liaft mesta prest-
þjónustu og eru þess vegna lengst á leið komnir. En
prestarnir sjálfir ferðist til prestlausu safnaðanna, prje-
diki þar og vinni þau prestsverk, sem nauðsyn krefur.
— Það kont og fram á kirkjuþinginu, að Þingvallaný-
lendusöfnuður hefði beðið biskup íslands að útvega sjer
prest, og það mál væri komið nokkuð áleiðis.
3. Löggildingarmálið. Á þessu kirkjuþingi var ntikið
rætt unt að löggilda (incorperate) kirkjufjelagið. Málinu