Kirkjublaðið - 01.10.1892, Qupperneq 11

Kirkjublaðið - 01.10.1892, Qupperneq 11
187 burðurinn þá jafnframt að fylgja efninu eðlilegar og bet- ur. Oneitanlega á betur við að »lifandi orð« sje flutt með lyptandi, lifandi áhuga og fjöri. Fyrir flestra manna tilfinningar mun það áhrifameira að prjedika fyrir þeim um verk Guðs í náttúrunnar og náðarinnar ríki á yfirstandandi tíma. Vjer þurfum eigi svo mjög að sökkva oss niður í fornöldina, eða fálma fyrir oss í öðrum huldum heimum til að verða varir við dýrð Guðs; þetta má finna nær á hverri stundu. Kirkjulífið hefir mikil áhrif á þjóðlífið. Þvi getur enginn, sem annt er um þjóðlífið og framfarir þess, látið sjer í ijettu rúmi liggja, hve dauf't og andalaust kirkju- lifið er. Jeg óska hvorutveggja allra góðra framfara, og segi því hiklaust: Burt með hina gömlu prjedikunaraðferð! BJÖRN BJARNARSON. »Rödd« frá presti um þetta mál birtist innan skamms í Kbl.; þab er athugavert sannleiksatribi í þessari hugvekju leikmannsins, en frá sjónarmibi Kbl. þarf hún leiðrjettingar við, eigi svo lítillai-. —----i--—. Gleðitárin. 1. Þeir eiga gott sem geta hlegið, þeim gleði lífsins mjög er sæt; en hjartað mitt er harmi slegið, i hvílu minni opt jeg græt; en það er rauna blessuð bót, að brosir fögur eilífð inót. 2. Þó að mitt hjarta særist sárum og sorgum mæðist öndin mín, samt græt jeg fögrum gleðitárum, þá, Guð minn, blessuð orðin þín í hjarta’ og eyrum hljóma mjer, það huggun, líf og styrkur er. 3. Þó jeg í myrkri svörtu sveimi og sýnist daufleg æfin .mín,* jeg vona samt mig góður geymi minn Guð af náð og miskunn sín;

x

Kirkjublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/137

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.