Kirkjublaðið - 01.12.1892, Qupperneq 8
216
Jeg er líka viss utn, að margir embættisbræður sjera
Pjeturs, sem í fjarlægð eru, mundu taka innilega hlut-
deild í mæðukjörum ekkju hans, ef þeir vissu um hinn
hörmulega hag hennar . . . Jeg er líka viss um, að
margir í Reykjavík mundu sinna þessu, því að sjera Pjet-
ur var þar upp alinn, og móðir hans öllum að góðu kunn«
Hjer er sannarlega neyð og kristilegt kærleiksverk
að vinna fyrir þá sem viljann hafa og einhverja getu.
Kirkjublaðið tekur fúslega við gjöfum, kvittar fyrir þær
og sendir prófastinum á ísafirði.
-----3se-----
Á gamla’ árs kvöld.
Vjer þökkum þjer, Guð vor, sem gafst oss vort líf,
og gæði þau öll er vjer njótum,
sem varst oss frá barnæsku vörður og hlíf
og vilt að vjer sæluna hljótum.
A sjerhverju ári, já sjerhverri stund,
þú sýndir oss föðurást blíða;
og enn heflr leitt oss þín ástríka mund
það árið sem burt er að líða.
En vjer höfum gjaflr án þakklætis þáð
og þínum frá boðum opt vikið.
Nú biðjum vjer: hjálp oss að bæta vort ráð;
oss brestur svo stórlega mikið.
Með árinu liðna gef af leggjum vjer
það allt, sem til hnekkis var gæðum.
Með árinu nýja, sem eptir nú fer,
oss anda gef nýjan af hæðum.
Öll framtíðar árin vor felum vjer þjer;
sem faðir í náð við oss breyttu.
Og lífsárum vorum þá lokið er hjer
í ljósheimi’ oss nýársdag veittu.
fír. J.