Kirkjublaðið - 01.12.1892, Page 11
mennra samskota til kristníboðs í útlöndum og álitu þeim pening-
um, sem safnast kynnu til kristindómseflingar, betur varið í land-
inu sjálf'ut.
Uppástunga kom um borgun á ferðakostnaði hjeraðsfundar-
manna og var því máli vísað til kirkjugarðsnefndarinnar.
Samþykkt var í einu hljóði að halda næsta hjeraðsfund í júní.
Hjeraðsfund JEyfirðinga, 8. sept., sóttu 6 prestar at 9 og 17
fulltrúar af 21. Fund. byrjaði með guðsþjónustu og prjedikaði sjera
Matthías Jochumsson.
Fund. ítrekaði áskorun sína um eptirgjaldslausa bújörð handa
prestinum í Grundarþingum.
Rætt, var um vorprof unglinga, 11—15 ára, og er meira um
það annarstaðar í þessu tölublaði. Samþykkt var að halda áfram
barnaspurningum frá föstubyrjun til veturnótta.
Fulltr. Akureyrar bar fram þá tillögu, að landstjórnin legði
fyrir næsta þing frumvarp synodusnefndarinnar um breytingu á
tekjum presta, sem var fyrir þinginu 1889, og var sú tiliaga sam-
þykkt í einu hljóöi. Sami bar upp þá tillögu, að íá breytingu á
lögum 22. maí 1890 um innheimtu og ineðferð á kirknafje í þá átt,
að þau næðu eins til bændakirkna og annara kirkna, að því undan-
skyldu, að bændakirkjur væru ekki skyldar tii að leggja íje sitt í
hinn almenna kirknasjóð, og var tillagan samþj7kkt með meiri
hluta atkvæða. — Leitað var gjafa til prestaekknasjóðsins.
íFundurinn lýsti yíir því samkvæmt áskorun frá safnaðarfulltrúa
Akureyrarsóknar, að árásir þær, sem gjörðar hefðu verið á sóknar-
prest Akureyrar í útlendum og innlendum blöðum út af kenningu
hans, væru ekki á rökum byggðar, og safnaðarfundargjörðir sókn-
arinnar lýstu því yflr, að söfnuðurinn væri vel ánægður með hann
sem prest«. —
Fundarskýrslan heflr áður staðið í »Norðurljósinu« 0g þar var
líka þessi yfirlýsing, sem víkur að sjera Matthíasi; harla tilefnis-
litil, að því er snertir »árásir« innlendra blaða. IJjer er yfirlýsing-
in tekin orðrjett eptir íúndarskýslu próíásts.
Hjeraðsfund Suður-Þingeyinga, 4. sept., sóttu 0 prestar af 8
og 13 fulltrúar af 18. Fund. var haldinn á sunnudag að afstað-
inni guðsþjónustugjörð.
Unglingapróf höfðu farið fram í nokkrum sókuum, en sumstað-
ar höfðu próf þessi eigi komiist á sökum ótíðar. Afráðið var að
þessi próf kæmust á alstaðar í prfd., sem »tnjög góð og nauðsyn-
leg«, og skyldi prófastur senda prestum skýrsluform til fyrirmyndar.
Bætt var um endurskoðun handbókarinnar og lýsti fund. ylir
því, »að hann óski þess alvarlega, að kirkjustjórnin gjöri breyting-
ar á handbók presta í þá átt, sem síðasti hjeraðsfundur stakk upp
á (Kbl. II, 1), og gjöri þetta sem alla fyrst, helzt á næsta ári.
Sjerstaklega álítur fund. breytingu á hjónavígsluformúlunni bráð-
nauðsynlegat.
Leitað var gjafa til prestaekknasjóðsins. — Prófastur hafði leitað
leyfis biskups til hjeraðsfundarhalds að vorinu '(Kbl. II, 1), en bisk-
up hafði eigi tjáð sig hafa myndugleika til þess, en mundi þó láta
afskiptalaust, ef enginn kærði og málin kæmu eigi síður undirbúin
fyrir fundinn.
•------>*<-------