Kirkjublaðið - 01.12.1892, Síða 12
220
t)r. Gisle Johnson, kennari í guðfræbi vib háskólann i Krist-
janíu varð sjötugur 10. sept. þ. á. Hann er lærður vel og mikill
gagnsemdarmaður í ræðum og ritum og margháttaðri starfsemi til
eflingar kristindóminum á íósturjörð sinni. I full 30 ár hafa þeir
dr. Caspari og hann haldið úti guðfræðislegu tímariti, en Caspari
dó í vor (Sam. VII. 3). Gísla doktors er hjer einkum getið, af því
að ætt hans er íslenzk eins og nafnið bendir til. Hann er sonarson
Gísla prests í Noregi (f 1829), sem var hálfbróðir Jóns Espólíns,
sonur Jóns sýslumanns Jakobssonar á Espihóli.
Bindindi presta. Þrír nýir hafa bætzt við síðan nóvbl. kom
út, sjera Olafur Magnússon á Sandfelli, sjera Þorsteinn Benidikts-
son í Bjarnanesi og sjera Gísli Jónsson til Meðallandsþinga. Þá hafa 50
andlegrar stjettar menn á landihjer ritað undir bindindisyíirlýsinguna.
Sunnudagaskóia, vel sóttan, heldur kand. Jón Helgason í
vetur, með aðstoð stúdenta á prestaskólanum, fyrir skólabörnin í
Reykjavík. Meira um það næst.
Prófastur sklpaður af biskupi 7. okt. sjera Ólaf'ur Ólafsson
á Brunná í Dalaprófastsdæmi.
Brauð veitt: Sjera Pjetur Jónsson á Hálsi fjekk Kálfafells-
stað 17. nóv.
Prestvígður sd. 30. okt. kand. Gísli Jónsson til Meðallands-
þinga, fjekk veitinguna 25. október.
Kirkjuhlaðið, 3. árg. 1893, 12—15 arkir, með sama frágangi
og sama verði og áður, 1 kr. 50, fæst hjá prestum og bóksölum.
landsins og útgefanda.
1. árg. 1891, uppprent., 75 a., hjá sömu.
Innheimta gengur báglega í ár. I sept. lok var tæpur */i
hluti þessa árgangs greiddur, eða sem svarar útsendingarkostnaði
þ. á., en síðan hafa úr 6 póstferðum (til 20. nóv.), að austan, norð-
an og vestan, komið alls inn 43 kr. 55 a. Með því áframhaldi verð-
ur seingreiddur prentkostnaður og hepting, sem með uppprentun 1.
árgangs nernur rúmum 1700 kr.
Bameiningin, mánaðarrit hins ev. lút. kirkjufjel. ísl. í V.-h.,
12 arkir, 7. árg. Bitstj. sr. Jón Bjarnason í Winnipeg. Verð hjer
2 kr. Hjá bóks. Sig. Kristjánssyni í Rvík o. fl. víðsv. um land.
Sœbjörg, mánaðarblað með myndum, 1. árg. Ilitstj. sr. O. V.
Gíslason. Send bjargráðan., hjer 1 kr. 50 a., erl. 2 kr. Afgr.st. Isaf.
Kirkjublaðið, inn á hvort ein. lieiin. — Prestar og bóksalar.
Útbýt.bl. Þetta síðara missiri ársins heíir útgef. sent sýnis-
blöð í nokkra staði, en svo fá í einu, að eigi hef'ur þótt taka að
geta þess. Einstaka prestar hafa og fengið sýnisblöð, meðal þeirra
sjera Benedikt Eyjólfsson á Beruíirði 20. — Alls munu send út 500
sýnisblöð þ. á.
HITSTJÓEI: ÞORHALLUB BJABNABSON.
Prentað i íiafoldar prentimiiju. Reykjtivik. Í8S2.