Kirkjublaðið - 01.11.1895, Blaðsíða 5
þótt nágrannaprestar veiti slíkum prestaköllum s\m góða
þjónustu sem þeim er unnt, þá leiðir það af vegalengd-
um víðast hvar á milli kirkna, að messufall hlýtur að
verða, á meðan svo stendur, hvern helgan dag í öðru-
hvoru prestakallinu.
Fjórða orsök messufalla er það, þegar kirkjur eru í
smiðum eða fá mikilvæga aðgjörð eða eru málaðar. Þetta
kemur tiltölulega opt fyrir hjer á landi, sökum þess, að
kirkjurnar eru allflestar gjörðar úr þeim efnum, sem eigi
eru varanieg (timbur eða torf), svo að endurbyggiugar
og viðgjörðir eru tíðar. Og slíkt tekur þar að auki opt
lengri tíma heldur en vera skyldi, sökum þess að smiðir
fást eigi, þegar mest liggur á, eða ekki nógu margir, til
að leysa verkið greiðlega af hendi, eða þá útveganir á
efni bregðast eða efnisskortur verður, meðan á smíðinni
stendur. Til frekari skýringar skal hjer getið þeirra
prestakalla, þar sem allmörg messuföll hafa orðið á um-
ræddu tímabili af þessum orsökum, sem minnzt hefir
verið á.
1892.
Prestlaust var töluverðan kafla af árinu: í Mjóafirði
(prestur fór utan til lækninga), Kálfafellsstað, Asapresta-
kalii, Meðallandsþingum, Eyvindarhólum, Skarðsþingum,
Rafnseyri, Stað í Grunnavík, Kvíabekk, Þönglabakka og
Þóroddstað.
Kirkjur voru í smíðum: í Mjóaflrði, Kálfatjörn (18
messudaga), Torfastöðum í Árnessýslu, Setbergi (17 messu-
daga), Haga á Barðaströnd (10 messudaga), Stað 1 Grunna-
vík (16 messud.), Breiðabólstað í Vesturhópi, Hvammi í
Skagafirði (8 messud.), Mælifelli (6 messud.).
1893.
Prestslaust um langan tíma: að Kálfafellsstað, Ey-
vindarhólum, Arnarbæli, Helgafelli, Stað í Grunnavik,
Breiðabólstað í Vesturhópi, Þönglabakka.
Kirkjur í smíðum: að Djúpavogi, Kálfatjörn, Breiða-
bólstað í Vesturhópi, Undirfelli (19 messudaga), og Möðru-
dal á Fjöllum.
1894.
Prestslaust um langan tíma: að Helgafelli, Breiða-
ólstað 1 Vesturhópi og Ríp.