Kirkjublaðið - 01.12.1895, Blaðsíða 3
211
bæjaröðinni, þótt íbúar sjeu ura 100,000, er hin stórkost-
lega uppeldisstofnun, sem kennd er við stofnandann, sem
nefndur er yfir þessum línum, trúmanninn mikla og
mannvininn Francke, sem kom að háskólanum í fæðingu
hans og átti mestan þátt í vexti og viðgangi hans og
hefir kastað frægðarijóma yfir skólann og bæinn l fullar
2 aldir.
Rjettara væri að tala um margar stofnanir, hjer
ræðir um heilt stræti í borginni með byggingum að rúmi
og verði móti hálfum höfuðstað Islands. Þar er sjálft
munaðarleysingjahúsið, stofnað 1698, þar er latínuskóii,
gagnfræðaskóli, kennaraskóli, kvennaskóli, alþýðuskóli,
frískóli fyrir börn og handvinnuskólar. Þar er stórt
prentverk, sem einkum tæst við prentun heilagrar ritn-
ingar, samhliða því er bókaverzlun. Þar er kristniboðs-
stofnun, þar er lyfjabúð og fleira mætti telja. Öll þessi
starfsemi er rekin undir einni stjórn og í anda stofn-
andans.
Ágúst Hermann Francke er fæddur 22. marz 1663 í
Lýbekk, faðir hans var lögfræðingur í góðri stöðu og dó
hann frá syni sínnm 7 vetra. Sveinninn hafði ágætar
námsgáfur og stundaði málfræði og guðfræði við ýmsa
háskóla og varð 22 ára gamall »meistari« í Leipzig fyr-
ir hebreska málfræði, enda var elja hans svo mikil að
hann fór 6 sinnum eitt árið yfir allt gamla testamentið
á frummálinu.
Aldamótin sem þá fóru i hönd voru mikill andlegur
byltingartími í lútersku kirkjunni þýzku. Gullöld trú-
fræðinnar lútersku, 17. öldin, bauð steina fyrir brauð,
strembiun rjetttrúnað og sífelldar stæiur, en skeytti ekki
um hið innra trúarlíf nje kristileg kærleiksverk hið ytra.
Spener og hans fylgjendur sem fá kenningarnafnið píe-
tistar veita nýjum frjóvgandi lífstraum yfir þennan bruna-
sand. Krafa þeirra er lestur heilagrar ritningar, guð-
ræknidiðkanir í heimahúsum, lifandi trú hið innra, sýni-
leg hið ytra i ýmiskonar vandlætisháttsemi.
Háskólinn í Halle verður aðal-stöð hinnar nýju stefnu,
þar verður Francke höfuðraaðurinn og merkastur læri-
6veinn Speners, en áður varð hann sjálfur að heyja sitt