Kirkjublaðið - 01.12.1895, Qupperneq 10
Lagt var til ab styrkveitingin úr sýslusjóði til utngangskennslu
væri framvegis bundin við hreppa, en ekki prestaköll.
Gefið var til prestsekknasjóðsins..
11. Hjeraðsfundur Mýraprófastsdæmis var 12 sept. Við
voru allir prestarnir (5) og 7 íulltrúar af 12.
JFundurinn mselti með sameiningu Hjörseyjarkirkju við Akra-
kirkju, er þá jafnframt afhentist söfnuðinum.
12. Hjeraðsfundur Dalaprófastsdæmis var 80. sept. Við
voru allir prestarnir (5) og 4 fulltrúar af 9.
Fundurinn mælti með aíhendingu kirkna að Stóra- Vatnshorni,
Staðarhóli og Hvoli til safnaðanna.
Barnapróf hötðu farið fram í 4 prestaköllum.
Sjera Jóhannes L. L. Jóhannsson bar fram frumvarp til laga
um þóknun til hjeraðsfundarmanna, 2 kr. á dag úr sjóðum kirkn-
anna; og laun prófasta, 10 kr. úr landssjóði f'yrir hverja sókn í
prótastsdæminu, en vísitazíulaun falli niður.
Fundurinn samþykkti frumvarpið og óskaði að biskup hlutað-
ist til þess, að það kæmi fyrir næsta alþingi.
Sami bar og upp frumvarp til laga um lýsingar til hjónabands,
að eins ein lýsiug fullum 3 vikum tyrir giptingu, og um skyldur
og ábyrgð svaramanna, að hún lúti að eins að þegnum þurfa-
mannastyrk.
Frumvarp þetta var afgreitt sem hið fyrra.
Fundurinn taldi æskilegt að börn sem njóta sveitakennslu væru
sameinuð 5—8 í hóp, og hvert barn nyti minnst 4—8 vikna kennslu,
ella varhugavert að mæia með styrk til sveitakennara. Fundurinn
iagði og til að sveitastjórnir útveguðu hin allra-nauðsynlegustu
kennsluáhöld.
13. Hjeraðsfundur Suður-Dingeyinga var 8. sept. Við
voru 7 prestar af 10, og 11 fulltrúar af 18. Þar gjörðist ekkert
fram yfir endurskoðun reikninga o. s. frv,
Fundarfall er tilkynnt úr Austur-Skaptafells- og Strandapró-
fastsdæmum, en ókomnar skýrslur úr Vestur-Skaptafells-, Barða-
strandar-, Vestur-Isafjarðar-, Skagatjarðar- og JNorður Þingeyjar-
prófastsdæmum.
Sunnudagaskólar. Sunnudagaskólafundur Norðurlanda var
haldinn í Stokkhólmi í ágústmánuði, samhliða hinum almenna
kennaralundi. Fund þann sóttu um 2000 manns frá Norðurlönd-
um, ailir í þjónustu sunnudagaskóianna. Nú telst svo til, að um
heim alian sjeu íullar 2 milljónir af konum og körlum, sem kenni
á slíkum skólum, en um 20 milljónir barna, sem sækja þá.
Krossferðiruar. Þess var minnst með ýmsum hátíðahöldum
í Kiermont á Suður-Frakklandi í sumar sem leið, að 800 ár voru
liðin frá því er krossferðirnar tóku sig upp þaðan.